Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Allt sem gerist og hendir okkur hefur merkingu en hún er oft ekki auðráðin. Einnig í lífsins bók eru á hverju blaði tvær síður. Önnur, sú efri, er skráð af okkur mönnum með ætlun okkar óskum og vonum, en hina fyllir forsjónin, og það sem hún færir hefur sjaldnast verið markmið okkar. Elsku Gaui. Þakka þér fyrir að vera bróðir minn og vinur. Þakka þér fyrir alla hjálpina. Þakka þér fyrir alla gleðina. Þakka þér fyrir allar stundirnar. Minning þín lifir í hjarta mínu, hlátri og tárum. Elsku Þórdís, Hjörtur Leó og Harpa Hlíf, guð og góðar minn- ingar styrki ykkur í allri sorginni og lífinu framundan. Mamma, pabbi, Gylfi bróðir, Linda, Oliver, Hafþór Elí, Anna Björg mín, Sig- urjón, Ívar Haukur og Unnur Dóra mín, ljúfar og góðar minningar í hjarta okkar um ljúfan og góðan dreng fylgi okkur áfram inn í lífið. Hvíl í friði, elsku bróðir. Bergur Tómas. Elsku Gaui. Mikið rosalega eru síðustu dagar búnir að vera erfiðir en einnig er- um við búin að eiga yndislegar stundir heima hjá ykkur, innan um fjölskyldu þína og vini og fundið þar einstakan kærleik og vináttu. Guðjón Ægir Sigurjónsson ✝ Guðjón Ægir Sig-urjónsson fæddist á Selfossi 4. janúar 1971. Hann lést í um- ferðarslysi 5. janúar síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Sel- fosskirkju 16. janúar. Hver hefði getað trú- að því að þú yrðir hrifsaður svona snögglega í burtu frá okkur, þú þessi hrausti, líflegi, yndis- legi maður? Þú varst einstaklega vel gerð- ur og naust lífsins til hins ýtrasta og náðir svo vel að hrífa fólk með þér, hvort sem það voru börn eða fullorðnir. Þú náðir svo vel að sinna öllu, hvort sem það var fjölskylda þín, fallega heimilið ykk- ar, vinirnir eða áhugamálin, sem voru ófá, þar sem fótboltinn og hlaupin áttu stóran hluta. Á svona stundum eru minning- arnar svo dýrmætar og við eigum mikið af þeim, allt frá árinu 1998 þegar Myrruævintýrið hófst, þá vorum við svo heppin að kynnast ykkur Þórdísi, Hirti Leó og Hörpu Hlíf. Mjög fljótt myndaðist djúp og kær vinátta milli okkar allra. Á þeim tíma sem liðinn er hefur margt verið brallað, nánast dagleg samskipti í Myrru, öll matarboðin, ferðalögin, fjallgöngurnar, fjór- hjólaferðirnar, utanlandsferðirnar, þar af ógleymanleg ferð á U2-tón- leika í New York, humarhlaupin, þrekmeistaraferðirnar norður, sumarbústaðarferðir og svo margt fleira. Flest meira og minna skipu- lagt af þér. Þú lést ekki duga að tala um hlutina heldur framkvæmdir þá og alltaf var gleðin í fyrirrúmi enda sagðir þú alltaf að það væri bara ein umferð og við yrðum að njóta hennar. Það gerðir þú svo sann- arlega kæri vinur, með elskulega vinkonu okkar Þórdísi og börnin þín Hjört og Hörpu þér við hlið. Þið voruð einstaklega samhent fjöl- skylda. Allt það sem þið hafið gert saman er ómetanlegt og svo miklu meira en flestir ná að gera á miklu lengri tíma, þær minningar geta þau yljað sér við. Yndislegi kæri vinur Gaui. Nú er komið að erfiðri og ótímabærri kveðjustund. Söknuðurinn í hjarta okkar er svo sár, við munum alltaf geyma þig í huga okkar og hjarta og gera allt sem við getum til að hjálpa Þórdísi og krökkunum. Við trúum því að við eigum eftir að hittast aftur og kveðjum þig með orðunum sem við sögðum svo oft eftir ferðirnar okkar: Þú ert frábær ferðafélagi, takk fyrir allt. Elsku Þórdís, Hjörtur og Harpa. Megi góður Guð hjálpa ykkur í gegnum sorgina. Við verðum alltaf til staðar fyrir ykkur. Minning Gauja mun alltaf lifa með okkur. Ykkar vinir, Rögnvaldur, Eydís, Aníta og Rakel. Við kveðjum góðan vin og skóla- félaga, Guðjón Ægi Sigurjónsson. Góður drengur er fallinn frá í blóma lífsins. Eftir standa fjöl- skylda, stór vinahópur og raunar allt samfélagið á Selfossi harmi slegið. Árgangur 1971 á Selfossi er stór hópur, sem hefur haldið saman þótt fólk hafi farið hvað í sína átt- ina eftir að skyldunámi lauk. Guð- jón var mikilvægur hlekkur í þess- um hópi: hláturmildur og glaðvær félagi og traustur vinur. Frá yngri árum minnumst við Guðjóns sem afburðanámsmanns: íþróttastráks sem var jafnvígur í öllum greinum. Honum reyndist líka næsta auðvelt að ná settum markmiðum í lífinu og – það á látlausan og yfirvegaðan hátt. Sem lögfræðingur var Guðjón bæði snjall og útsjónarsamur. Klár og yfirvegaður en um leið fullur af lífi og gáska og með glampa í aug- um. Nærvera hans var hlý og nota- leg. Síðast þegar við héldum ár- gangsmót var Guðjón hrókur alls fagnaðar. Honum fannst greinilega gaman að hitta gömlu skólasystk- inin sín, enda sýndi hann það og tjáði. Hann fékk verðlaun fyrir að vera með skemmtilegustu innleggin á heimasíðu sem við settum upp af þessu tilefni. Þetta var ógleyman- leg kvöldstund og verður okkur öll- um dýrmæt í minningunni. Guðjón er sá fjórði úr okkar hópi sem fell- ur frá af slysförum: áður eru látnir þeir Eiður Sævarsson, Benedikt Reynir Ásgeirsson og Guðmundur Árnason. Missirinn er mikill en þó mestur fjölskyldu hans, þeirra Þór- dísar, Hjartar Leós og Hörpu Hlíf- ar. Pálína og Sigurjón sjá á eftir yndislegum syni. Við biðjum fyrir allri hans stóru og góðu fjölskyldu. Gömlu skólasystkinin þakka sam- fylgdina. Megi minning Guðjóns Ægis lýsa um alla framtíð. Oft virðast undarleg örlögin, og mörg svo ósanngjörn atvikin á leið um lífsins braut ef lögð er ókleif þraut. Eitt atvik ávallt í huga býr sem aldrei dofnar né burtu flýr. Dæmd voru vorsins blóm vægðarlausum dóm. Í gáska enginn að endinum spyr óvægin sorgin oft knýr þá á dyr, augu hrópa, enginn segir þó neitt því orð fá engu breytt. Öll skulum trúa og treysta því sá tími komi að enn á ný við getum glöð í lund átt góðan endurfund. Þá fái sérhver er sorgina bar svarið við því, til hvers hún var. (Oss) veitist veröld blíð sem varir alla tíð. (Ólafur (Labbi) Þórarinsson) Fyrir hönd árgangs 1971 á Selfossi, Steindór, Grímur, Guðmundur Á., Ingibjörg G., Guðfinna, Laufey. Elsku Gaui minn. Mig langar í örfáum fátæklegum orðum að fá að þakka þér fyrir þennan alltof stutta tíma sem við áttum saman. Maður situr hljóður og máttvana og fær ekki skilið. Myndirnar og minningarnar þjóta hjá og allar eru þær svo hlýjar og góðar. Það voru forréttindi að fá að kynnast þér og verða þér samferða um stund og víst er að lífið verður ekki það sama án þín. Góður guð geymi þig, Gaui minn. Hröð er förin örskömm dvöl á áningarstað. Verum því hljóð, hver snerting er kveðja í hinsta sinni. (Birgir Sigurðsson.) Elsku hjartans Þórdís mín, Hjörtur Leó og Harpa Hlíf, Pálína mín og Sigurjón, elsku Beggi minn og Gylfi og allir ástvinir, guð styrki okkur öll í sorginni. Anna Björg. Ég er harmi slegin, öll orð virð- ast svo máttlítil til að lýsa samhygð minni við fráfall Guðjóns eða Gauja eins og hann var kallaður af vinum sínum. Ég kynntist Þórdísi eigin- konu Gauja árið 1991, þegar við byrjuðum að læra saman snyrti- fræði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Mjög fljótlega tókst með okkur góður og einlægur vin- skapur sem varir enn. Gauja kynnt- ist ég svo í kjölfarið. Það sem mig langar til að segja er, að ég sá strax hve samband þeirra var sér- stakt. Ástin á milli þeirra, virðingin og vináttan var einstök. Þau voru ætluð hvort öðru í blíðu og stríðu. Ávextir þessarar ástar eru tvö yndisleg börn, Hjörtur Leó og Harpa Hlíf. Það er enginn tilviljun hversu vinmörg þau eru. Allir sem þekktu Gauja vita hvaða mannkost- um hann bjó yfir, enda var hann var stoð og stytta fjölskyldu sinnar og vina. Gaui var maður sem alltaf gaf sér tíma til að hlusta á aðra og tilbúinn til að hjálpa. Hann var mjög farsæll í starfi sínu enda bjó hann yfir mikilli þekkingu og hæfi- leika í mannlegum samskiptum. Árið 2001 þurfti ég að leita mikið til Gauja vegna lögfræðiaðstoðar. Þetta tímabil var eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að glíma við í mínu lífi. Það var sama hvenær ég hringdi eða kom á heimili þeirra, alltaf var hlustað, tekið á móti mér og ég umvafin kærleik og hlýju. Þau hjónin veittu mér ómetanlega hjálp á þessum tíma. Ég hef einnig verið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast fjölskyldum þeirra beggja og verð ég að segja að kærleik- urinn sem þar ríkir á milli er mikill dyggð. Á erfiðri stundu sem þess- ari, sameinast þau öll og veita hvert öðru stuðning og styrk, það er eitthvað sem er ómetanlegt í fjölskyldum. Þau eru einnig umvaf- in af góðum vinum, sem vaka og sofa yfir velferð þeirra. Elsku Þórdís, Hjörtur Leó, Harpa Hlíf, Dísa, Þórður, Árni, Pálína, Sigurjón, bræður og vinir, missir ykkar er ólýsanlegur. Mikill maður hefur kvatt þetta líf, skarð hans verður aldrei fyllt. Ég vil Elsku Ragna, þegar ég kveð þig í hinsta sinn og lít til baka þá kemur fyrst upp í huga minn þakklæti. Þakklæti fyrir allt sem þú lagðir af mörkum til barnanna minna, þeirra Árna Beck og Guðrúnar Bjargar. En ég þakka líka fyrir vináttuna sem þú sýndir mér í gegnum árin. Þegar börnin mín voru ung og við bjuggum á Laugaveginum þá eyddu þau mörg- um stundum hjá þér og skipti þá ekki máli hvort við foreldrarnir værum heima eða ekki. Þau voru alltaf velkomin til þín og þú passaðir upp á þau og kenndir þeim eins og þau væru þín eigin. Árni Beck og Guðrún Björg bjuggu með móður sinni og stjúpa í Kaupmannahöfn í nokkur ár en komu reglulega í heimsókn til mín. Þá var farið á Laugaveginn eins oft og hægt var og alltaf var það jafn gaman. Þegar þau svo fluttu heim þá bjuggu þau hjá þér einn vetur. Sú góða reynsla mun fylgja þeim alla ævi. Ragnheiður Benediktsdóttir ✝ Ragnheiður Bene-diktsdóttir fædd- ist á Erpsstöðum í Dalasýslu 1. júlí 1917. Hún lést á taugalækn- ingadeild Landspít- alans í Fossvogi 11. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 20. janúar. Eftir að við Marta hófum sambúð vorum við aufúsugestir hjá þér og góð vinátta myndaðist milli ykkar Mörtu. Minningarnar úr 90 ára afmælinu þínu eru ofarlega í huga mér og þá sér- staklega hversu ánægð þú varst með að hafa allt fólkið þitt hjá þér. Ég efast um að það finnist barnlaus kona sem á jafnmörg „ömmubörn“ og þú. Þrjár kynslóðir kalla þig ömmu og það er réttnefni. Þessi fátæklegu orð ná ekki að lýsa þeirri virðingu og væntum- þykju sem ég bar til þín. Þín er sárt saknað af mörgum. Hvíl í friði. Gunnar Jóhannsson. Nú hefur hún Ragna okkar fengið hvíldina 91 árs að aldri. Það er margs að minnast þegar hugsað er til Rögnu sem alla tíð hef- ur verið í okkar lífi, þótt hún væri ekki á nokkurn hátt skyld okkur. Hún var alltaf hluti af fjölskyldunni og var í senn mamma, amma og vin- kona okkar. Alltaf var gott að leita til hennar og dvelja hjá henni á Laugaveginum. Ég man fyrst eftir mér á Laugaveginum með Rögnu 3-4 ára gömul. Við bjuggum á ann- arri hæð og afi og amma á 3. hæð ásamt Rögnu. Á þeim árum vann Ragna sem saumakona hjá Fötum hf. í bakhúsinu. Þegar ég var fimm ára fór ég á saumastofuna til henn- ar og fannst mikið til koma að sjá allar saumavélarnar og ekki síður stóra hnífinn sem notaður var til að sníða fötin. Ragna hafði mjög gaman af því að spila og hún kenndi okkur manna, marías o.fl. Á unglingsárunum, þegar við vor- um flutt í Breiðholtið, var nær dag- lega komið við hjá Rögnu. T.d. þeg- ar það var frí í Kvennó eða beðið eftir að komast í Tónlistarskólann og á lúðrasveitaræfingu. Alltaf fékk maður inni hjá Rögnu. Ragna var af þeirri kynslóð sem vildi ekki að fólk sem kom í heimsókn færi heim með tóman maga. Kaffiborðið var alltaf drekkhlaðið kökum og góðgæti og ef krakkarnir vildu ekki köku var alltaf til ís í frystinum handa þeim. Þegar við Eiríkur hófum okkar búskap í íbúð Níelsar afa á Lauga- veginum bjó Ragna hinum megin við ganginn. Alltaf var Ragna tilbú- in að líta eftir drengjunum og þeir sóttu mikið til hennar, spiluðu við hana og hún las fyrir þá. Það var ósjaldan sem Óskar fór til Rögnu eftir kvöldmat til að segja góða nótt og sofnaði í fangi hennar, eða á morgnana, þá spurði Ragna hann hvort hann væri búinn að borða morgunmat en hann sagði nei, því hann vissi að þá fengi hann „Cocoa puffs“ eða „hunangscheerios“. Eftir að við fluttum í Grafarvog- inn voru krakkarnir dugleg að fara með strætó til Rögnu. Þetta voru heilmikil ferðalög fyrir unga krakk- ana sem héldu heimsóknum sínum áfram alla tíð. Ragna fylgdist alltaf vel með öll- um og spurði frétta þegar við kom- um til hennar. Þá hafði hún alltaf nýjustu fréttir af öðrum í fjölskyld- unni. Það var gott að fá að eiga þig að Ragna mín og við þökkum þér fyrir allar góðu samverustundirnar í gegnum tíðina. Ekki síst þá síðustu á heimili þínu sem við áttum saman á Þorláksmessu. Þú sagðir að ekki væri Þorláksmessa nema fólk liti inn hjá þér og þessi Þorláksmessa var ekkert frábrugðin að því leyti. Drekkhlaðið kaffiborð fyrir alla sem vildu kíkja í kaffi langt fram eftir kvöldi. Mikið varstu glöð að fá sköt- una sem við komum með til þín, því ekki vildirðu missa af skötulyktinni í húsið þótt þú treystir þér ekki út. Við kveðjum þig, Ragna mín, með söknuði og þakklæti í huga. Guð þig leiði sérhvert sinn sólarvegi alla. Verndarengill varstu minn vissir mína galla. Hvar sem ég um foldu fer finn ég návist þína. Aldrei skal úr minni mér mamma ég þér týna. (Jón Sigfinnsson) Guðlaug Ásgeirsdóttir og fjölskylda. Elsku Ragna mín, mig langar að minnast þín hér með nokkrum orð- um. Ég þakka þér hlýhug þinn og hjartagæsku til mín og minnar fjöl- skyldu alla tíð. Þú varst börnum mínum einstök. Þegar þau þurftu að fá pössun vissum við að þeim leidd- ist ekki að hafa hana Rögnu sína hjá sér þar og þú myndir sjá til þess að þeim liði vel að öllu leyti. Einnig fóru þau oft til þín meðan við bjugg- um fyrir ofan þig á Laugaveginum og seinna meir komu þau til þín úr Mosó. Alltaf þegar við foreldrarninr komum heim var búið að snyrta til í eldhúsinu og annars staðar. Í aðdraganda síðustu jóla spurðir þú hvort hún Heiðdís okkar kæmi nú ekki til með að vera með okkur. Ég veit það Ragna mín að þú vildir að hún væri heima með okkur og þér en hún var að klára nám sitt og sagðist koma í janúar í staðinn. Þegar svo áfallið kom á milli jóla og nýárs vonuðumst við til að þú næðir bata til að hitta engilinn þinn sem var skírð í höfuðið á þér og ömmu hennar en kallið var of sterkt. Ég veit að hún vildi svo gjarnan vera með þér en ekki er við allt ráðið. Kæra Ragna ég veit að nú svign- ar veisluborð þitt annars staðar undan veitingum handa þeim vinum þínum sem farnir eru og þeir njóta ljóssins þíns sem við nutum meðan þú varst hér með okkur. Það var alltaf svo gaman að koma til þín og glaðværðin og jákvæðnin skein ætíð af þér. Þín er sárt saknað af mér og minni fjölskyldu þar sem þú hafðir bólstað í hjarta okkar allra. Það var svo gefandi að fá að að- stoða þig síðustu árin við að sinna þínum erindagjörðum. Ég veit að þú varst ekki eins hrifin þar sem þú vildir sinna þessum erindum ein og óstudd, vera frjáls. Ég óska þess að þér líði nú vel á nýja staðnum og ég veit að þú munt fylgjast með okkur áfram, bara frá öðrum stað. Ég mun minnst þín þegar ég kem á Laugaveginn til að drekka kaffi og með því, líkt og ég gerði síðasta daginn þinn og tjáði þér þegar ég leit til þín á laugardaginn var upp á spítala, og þú bara brostir eins og þér einni var lagið. Megi ljós þitt skína um alla eilífð kæra Ragna. Erlendur Magnús Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.