Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 38

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Nudd Frábært nuddtæki Virkar vel á vöðvabólgur. Aðeins 2500 kr. Nálastungur Íslands ehf. Heilsu- verndarstöðin við Barónsstíg 47. www.rikki.is Símar 561-9400 og 863-0180. Húsnæði í boði Til leigu 119 m² íbúð auk 23 m² bílskúr í raðhúsi í 112 Rvk. Laus: samkomulag, sanngjörn leiga. Upplýsingar í síma 431 1881 og 698 2781, best eftir kl. 17.00. 2 herb. íbúð, Kópavogsmegin í Fossvogsdal Til leigu 2 herb. 54 m² íbúð Kópavogs- megin í Fossvogsdal. Laus strax, verð 80 þús. á mánuði. Uppl. í síma 845-0304 / 554-3174 / 693-1404. Sumarhús Laugarvatn, nýtt sumarhús Fallegt nýtt sumarhús til leigu að Laugarvatni. Svefnpláss fyrir 9 manns. Heitur pottur. Helgin kr. 25 þús., vikan 55 þús. Sími 897-2264. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Stéttarfélag Vesturlands auglýsir eftir sumarhúsi í Borgarfirði (helst í Húsafelli) til leigu í allt að eitt ár. Húsið þarf að vera í góðu standi með svefnpláss fyrir 6 – 8 manns og heitum potti. Æskilegt er að húsið sé fullbúið húsgögnum og öðrum búnaði. Félagið hefur einnig áhuga á að leigja sumarbústað á Suðurlandi frá maí til september. Upplýsingar gefur formaður í síma 430 0432 eða 894 9804. Stéttarfélag Vesturlands, Orlofssjóður. Iðnaðarmenn Rafvirkjar Rafverktaki getur bætt við sig verkefnum. Nýlagnir, viðgerðir og breytingar. Sími 893 5214. Námskeið Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Leirkrúsin- Námskeið í leirmótun Helgarnámskeið í febrúar - fyrir byrjendur og lengra komna. Opin vinnustofa alla virka daga. Uppl. og skráning hjá leirkrus@leir.is og s: 661 2179. www.leir.is Þjónusta Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar Suðurveri - Stigahlíð 45, sími 553 4852. lgi.is - lgi@lgi.is Fermingarmyndatökur - Fjölskyldu- myndatökur - Skilríkjamyndatökur - Myndatökur fyrir fjölskylduna. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt ÚTSALA Triumph Triumph bikiní í úrvali. Hamraborg 7, 200 Kópavogi, sími 564 0035, gengið inn frá Hamrabrekku. www.aquasport.is Gæða skór fyrir góða menn. Úrval af herramokkasíum úr leðri, skinnfóðraðir og á vönduðum sóla. Verð: 10.850.- 11.500.- 12.450.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Teg. OLIVIA - virkilega haldgóður og flottur í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum á kr. 8.850, Teg. LOTTIE - mjög smart og heldur vel í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990, Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bílar Opel Astra GL-97 vínrauður Ekinn 106 þ. km. Vetrar- og sumar- dekk fylgja. Skoðaður í nóv. '08, verð 170.000 kr. Uppl. í síma 659 2801. Bílaþjónusta Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla . 8921451/5574975.Visa/Euro. Húsviðhald Eruð þið leið á baðherberginu? Breytum, bætum og flísaleggjum. Upplýsingar í síma 899 9825. Stigahúsateppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 533-5800. Morgunblaðið í morgungjöf Farðu inn á mbl.is/askrift         Farðu inn á mbl.is og skráðu þig Hversu heppinn getur maður verið að hafa átt Kittý sem systur, eina trúverð- ugustu manneskju sem hægt er að hugsa sér, systur, vinkonu og móður í einni og sömu manneskjunni, sem ekki brást í eitt einasta skipti. Ekki var verra að hún var gift Steingrími sem hefur verið mikil stoð og stytta fyrir mig og mína fjölskyldu í gegnum árin og verður honum aldrei fullþakkað, ég fæ tár í augun er ég hugsa um öll hans góðverk. Einnig þykir mér afar vænt um börnin þeirra, Bjarneyju, Tryggva, Rósu og Jón Þór, ég hef þekkt þau öll frá fæðingu og auðvit- að passað þau hérna áður fyrr. Kittý passaði svo aftur mín börn, en svona var þetta og þótti ekkert til að tala um. Það sem var mjög fyndið við Kittý var að hún hélt því alltaf fram að hún væri ekki trúuð kona, en ef hún vissi um einhvern sem var í vanda var hún fyrst til að bjóða fram hjálp sína, fór jafnvel inn í alla skápa hjá sér til að finna hvað hún gæti gefið af sínu. Margir fóru frá henni bæði með mat og annað nýtilegt sem hún naut virkilega að gefa. Hún lifði nefnilega eftir boðorðunum, meira en margur Kristrún Hólmfríður Jónsdóttir ✝ Kristrún Hólm-fríður Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 11. maí 1934. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 8. janúar síðastliðinn og var jarðsungin frá Langholtskirkju 20. janúar. sem telur sig mjög trúaðan gerir. Ég var kölluð Heimilisköttur- inn, því að ég var þar næstum daglega, það var gott fyrir börnin að hafa kött því ekki gátu þau átt venjuleg- an kött, af því að Rósa var með astma. En almáttugur hvað við Kittý höfum átt fallegar stundir sam- an, svo mikil vinátta og allur hláturinn þeg- ar við vorum að fíflast, Jafnvel eftir að hún vissi að hún væri með sjúkdóm sem að lokum mundi leggja hana að velli gat hún gantast með það og sagði bara: „Það er bara ekkert við þessu að gera og Soffía, ég banna þér að væla ofan í sængina mína þegar yfir lýkur.“ Elsku systir mín, hvað ég elska þig heitt, takk fyrir samveruna. Við hittumst hinum megin. Að lokum sendi ég ljóð sem sungið var í jarð- arför móður okkar. Þér kæra sendi kveðju með kvöldstjörnunni blá það hjarta, sem þú átt, en sem er svo langt þér frá. Þar mætast okkar augu, þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, Guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. (Bjarni Þorsteinsson.) Elsku Steingrímur, Tryggvi, Badda, Rósa, Jón Þór, barnabörn og barnabarnbörn. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Soffía og Hafsteinn. Ljúfsárt er orðið sem kemur upp í hugann nú þegar komið er að hinstu kveðju. Það er ljúft er þjáningum lýkur en sárt að sjá á eftir persón- unni, kveðja brosin, hláturinn, sam- tölin og allt það sem tengist henni. Og ljúfar eru minningarnar um Kittý frænku okkar, t.d. minningin um að setjast við eldhúsborðið í Goð- heimunum „ef maður var stilltur“ og fá kókómalt með ískaldri mjólk og ristað franskbrauð með smjöri, eða annað bakkelsi. Og Kittý varð hálf miður sín ef uppáhaldssortin var ekki til. Við systkinin eigum fleiri minningar um Kittý sem okkur þyk- ir afar vænt um og langar til að deila með öðrum. Jórunn: Ég man nettar skammir þegar ég var hesturinn hans Nóna (Jón Þór) þar sem hún hafði áhyggj- ur af að bakið á mér myndi skaðast, hve stolt ég var þegar hún leyfði mér að halda á honum, ég held að ég hafi verið fjögurra ára og hve hún samgladdist mér þegar í ljós kom að ég myndi eignast barn eftir allt sam- an. Lalli: Ég minnist Kittýjar fyrir gjafmildi og hreinskiptni. En ef þakka átti fyrir sig mátti það eig- inlega ekki, það var eins og það væri svo sjálfsagt að gefa og henni væri gerður greiði með því að „hirða þetta drasl“. Ég var nú ekki barna stilltastur á unga aldri og lenti til dæmis í því að klessukeyra bílinn sem þau Steingrímur áttu. Og ým- islegt annað gerði ég sem ekki var fullorðna fólkinu alveg að skapi. Það er mér því minnisstætt þegar Kittý hótaði að flengja mig svo að rassinn á mér færi upp í loftið og ég sá alltaf rassinn uppi í loftinu fyrir mér. Lilja: Fyrst má nefna peysurnar sem Kittý prjónaði á mig og mér fannst sem hér ætti ég ömmu. En þannig upplifði ég Kittý, sem ömmu. Ég vildi óska að ég hefði getað sagt henni hve glöð ég er yfir að hún skyldi koma í brúðkaupið mitt eins veik og hún var orðin. Ég vildi líka að hún hefði náð að sjá son minn. Í fyrra áttum við Badda ógleym- anlega stund með henni en hún ákvað að kenna okkur að baka hina frægu Kittýjarköku. En svo vildi hún engan veginn smakka kökuna góðu því henni þótti hún vond … Það fór reyndar illa fyrir uppskrift- inni því hún lenti í þvottavélinni. Svo jólin í ár urðu dálítið skrýtin því eng- in var Kittýarkakan. Öll: Það voru bara engin jól fyrr en Kittýjarkaka – kaka sem Kittý bakaði alltaf handa okkur – var komin í hús. Jólin og Kittý tengdust ekki bara í gegnum kökur. Hið ár- lega jólaboð hjá Jóu ömmu og afa í Fossvoginum kemur sterkt inn og það brást ekki ár eftir ár að Kittý þótti börnin vera allt of hávær. Mik- ið var nú gott þegar við sluppum úr þeirri deild! Við vitum ekki hvort Kittý gerði sér nokkra grein fyrir því hve mikið öryggi hún veitti okkur systkinun- um með því einu að vera til en að eiga hana að var eins og að eiga aukaömmu. Það er erfitt að hugsa til þess að nú sé ein kjölfestan í lífinu horfin en að eiga svona minningar fær mann til að brosa í gegnum tár- in. Hvíldu í friði, okkar kæra frænka (amma). Elsku Steingrímur, Badda, Tryggvi, Rósa, Jón Þór og aðrir að- standendur. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, Jórunn, Lárus, Lilja og fjölskyldur. Elsku Kittý mín. Ég man svo vel eftir góðu tímunum í Goðheimunum, við systkinin og mamma að koma í heimsókn. Í þá daga komum við að ég held bara daglega í heimsókn. Kittý mín, þú varst okkur sem amma því Bjarney amma dó svo ung. Ég hugsa með hlýhug um allar peysurnar sem þú prjónaðir bæði á mig og börnin mín. Ég man hvað þú bakaðir góðar kökur og slóst upp allavega tveimur ef ekki fleiri veislum fyrir mig. Ég man líka þegar þú gafst mér mjólk. Hún var svo köld að ég hríðskalf því ísskápurinn kældi svo vel. En af ein- stakri natni geymdir þú alltaf mjólk- ina á borðinu um leið og ég kom til að ég fengi volga mjólk. Ég man þegar þið mamma voruð að setja perm- anent hvor í aðra, hvað þið gátuð hlegið og grínast. Og hvað þú reynd- ist mömmu góð vinkona og í raun mamma. Eins og mamma orðar það, enginn stóð eins þétt með henni eða sýndi henni jafn mikla hlýju og þú en hún var aðeins þriggja ára þegar móðir ykkar dó. Kittýjar-kakan, nammi namm. Það var einstök upplifun að fá að vera með þér í desember 2007. Við Lilja komum til þín og fengum að læra hvernig Kittýjar-kaka væri bú- in til. Það var skrítið að þessi jól, 2008, var engin Kittýjar-kaka sem var svo sannarlega táknrænt fyrir þennan missi en nú ertu komin á stað þar sem þér líður betur. Elsku Steingrímur, Tryggvi, Badda, Rósa, Jón Þór, barnabörn og barnabarnabörn, við fjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Bjarney Oddrún Hafsteins- dóttir og fjölskylda. Fyrir meira en hálfri öld varð til vináttusamband ungra íslenskra manna í öðru landi. Eftir að heim var komið, og við þessir ungu menn bún- ir að festa ráð okkar, treystum við vináttuböndin með því að hittast reglulega til skiptis hver heima hjá öðrum og hafa þessir fundir staðið fram á þennan dag. Á fundunum kom það í hlut eiginkvenna okkar að dekra við okkur og láta okkur líða vel. Þannig kynntumst við Krist- rúnu. Hún var kona Steingríms og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.