Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 39
kom okkur fyrir sjónir sem einstak- lega heilsteypt kona, hógvær og hlý- leg í viðmóti. Við fengum að njóta gestrisni hennar í marga áratugi, en nú er skarð fyrir skildi, hún er fallin frá og fráfall hennar setur óneitan- lega mark á fundi okkar og veldur miklum söknuði. Þegar við félagarnir hittumst í fyrsta sinn á nýju ári, hinn 7. janúar sl., sagði Steingrímur okkur á sinn æðrulausa hátt að kona sín væri mjög veik og komin á líknardeild Landspítalans. Tveimur dögum síð- ar fréttum við andlát hennar. Fyrir Steingrím er fráfall Krist- rúnar mikið áfall. Sjálfur hefur hann um árabil átt við mikil veikindi að stríða og studdu þau Kristrún hvort annað af alúð og umhyggju í veik- indum beggja. Steingrími vini okkar og fjöl- skyldu hans vottum við einlæga sam- úð. Magnús Aspelund, Páll Ólafsson, Sigurður Ingvarsson og Þór Aðalsteinsson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Atvinnuauglýsingar Viltu vinna erlendis? Viltu vinna erlendis? Ef svarið er JÁ þá getum við hjálpað þér að finna vinnu í Bretlandi og meginlandi Evrópu. Fyrir frekari upplýsingar sendu okkur nafn þitt, síma og e-mail á jobs@smartentgroup.com og við sendum þér nánari upplýsingar til baka. Vélstjóri/ viðhaldsstjóri Fiskkaup hf. óskar eftir að ráða vélstjóra í fiskvinnslu félagsins. Ábyrgðar- og starfssvið:  Hefur yfirumsjón með viðhaldi í fiskvinnslu.  Umsjón og eftirlit með fiskvinnsluvélum.  Eftirlit og keyrsla frystivéla og kælikerfa.  Umsjón með viðhaldi skipa. Menntun og hæfniskröfur:  Vélstjórnarmenntun eða sambærileg menntun.  Reynsla af frysti- og kælikerfum.  Almenn reynsla af viðhalds- og vélavinnu.  Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á Baader-fiskvinnsluvélum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu sendar til Ásbjörns Jónssonar á netfangið asbjorn@fiskkaup.is Einnig eru veittar upplýsingar um starfið í síma 520 7304 og 520 7306. Nánari upplýsingar á www.fiskkaup.is. Fiskkaup hf. gerir út þrjú skip, eitt frystiskip sem stundar grálúðuveiðar, eitt beitingavélaskip og einn krókaflamarksbát sem sjá fiskvinnslu félagsins fyrir hráefni. Fiskvinnslan samanstendur af fryst- ingu, saltfiskvinnslu og vinnslu ferskra afurða í flug. Fyrirtækið er að byggja nýtt fullkomið fiskiðjuver sem verður tekið í notkun um mitt ár 2009. Hjúkrunardeildarstjóri Starf hjúkrunardeildarstjóra á göngudeild Kleppi á geðsviði Landspítala er laust til umsóknar. Göngudeildin þjónar einstaklingum með langvinna geðsjúkdóma og fjölskyldum þeirra. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og stjórnar daglegum rekstri hennar. Hann ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi, rekstri og áætlanagerð. Hann skal stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. fimm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfsmannastjórnun. Framhaldsnám í hjúkrun er æskilegt. Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga sem tekur bæði faglega og stjórnunarlega forystu í málefnum göngudeildarinnar. Einnig er leitað að einstaklingi hefur áhuga á að efla þverfaglega teymisvinnu, taka virkan þátt í innleiðingu hugmyndafræði um aukna þátttöku sjúklinga og fjölskyldna í meðferð, og innleiðingu hóp-, fjölskyldu- og fræðslumeðferða á göngudeildinni. Eitt af forgangsverkefnum nýs hjúkrunardeildarstjóra er að endurskoða störf og verkefni hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á göngudeildinni m.t.t. aukins samstarfs við samfélagsþjónustu fyrir geðsjúka. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi. Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH og viðtölum við umsækjendur. Staðan veitist frá 15. mars 2009, til 5 ára í samræmi við stefnu Landspítala um ráðningu yfirmanna. Umsóknir berist fyrir 25. febrúar 2009 á skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, netfang annastef@landspitali.is. Upplýsingar veitir Eydís K. Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri hjúkrunar í síma 543 4055, netfang eydissve@landspitali.is. Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs Landspítala á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður í hjúkrun. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Félags áfengis- og vímuefnaráðgjafa verður haldinn 21. febrúar næstkomandi að Grettisgötu 89, kl. 10:00. Dagskrá fundarins: 1. skýrsla stjórnar 2. lesnir og bornir upp til staðfestingar reikningar félagsins 3. lagabreytingar 4. ákvörðun um félagsgjöld 5. kosning stjórnar sbr. 5. grein laga FÁR 6. kosning formanna sérráða sbr. 2. grein laga FÁR 7. kosning félagslegra skoðunarmanna reikninga sbr. 5. grein laga FÁR 8. önnur mál Að loknum aðalfundi verður starfsdagur með fræðslu um meðvirkni. Stjórn FÁR. Tilkynningar Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2007/2008 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa fyrir byggðarlagið: Súðavíkurhreppur Um úthlutunarreglur í ofangreindu byggðar- lagi vísast til reglugerðar nr. 605, 24. júní 2008 auk sérstakra úthlutunarreglna í hlut- aðeigandi byggðarlagi sbr. auglýsingu nr. 136/2009 í Stjórnartíðindum. Þessar reglur eru einnig að finna á heima- síðu Fiskistofu, www.fiskistofa.is Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2009. Fiskistofa, 10. febrúar 2009. Félagslíf I.O.O.F. 7.  1892117½  Br. I.O.O.F. 181892118Kk. I.O.O.F. 9  189021181/2 II* HELGAFELL 6009021119 lV/V GLITNIR 6009021119 l Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Raðauglýsingar sími 569 1100 Farðu inn á mbl.is Spilað á 18 borðum hjá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 6. febrúar var spil- að á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 385 Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 361 Guðrún Gestsd. – Lilja Kristjánsd. 358 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 355 A/V Hrafnh. Skúlad. – Dröfn Guðmundsd. 417 Bragi Björnss. – Bjarnar Ingimars 367 Magnús Jónsson – Oddur Jónsson 364 Stefán Ólafsson – Eyjólfur Ólafss. 359 Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 2. febrúar héldu Borgfirðingar áfram að spila að- alsveitakeppnina. Sveit Önnu Ein- ars er enn í efsta sæti með 156 stig. Auk hennar spila í sveitinni Kristján í Bakkakoti, Guðmundur á Grímsstöðum og Ásgeir á Þor- gautsstöðum. Anna gefur ekki sinn hlut án baráttu og stefnir á sigur. Ekki veit ég hvort Sindri í Bakka- koti er alveg sammála því, enda er sveit hans í öðru sæti með 151 stig. Þar spila auk hans Bifrestingurinn Bjarni og Skagamennirnir Einar og Sigurgeir. Keppnin er annars jöfn og ljóst að einhverjir eiga eftir að koma á óvart áður en keppnin verður öll. Svæðismót Norðurlands eystra í tvímenningi Svæðismót Norðurlands eystra í tvímenningi verður haldið í Lions- salnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð, Akureyri, laugardaginn 14. febr- úar. Mótið er silfurstigamót sem er öllum opið. Það er ekki hluti af Ís- landsmótinu í tvímenningi eins og undanfarin ár. Spilamennska byrjar kl. 10 og mótslok áætluð um kl. 17:30. Keppnisgjald er 2000 kr. pr. mann. Kaffi og te innifalið. Lágmarksþátttaka er 12 pör. Æskilegt að sem flestir skrái sig á spilakvöldi síns bridsfélags. Skráning berist Stefáni Vil- hjálmssyni, símar 898 4475 og 462 2468. Skráning í síðasta lagi kl. 19 miðvikudaginn 11. feb. 2009. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 9. jan. Spilað var á 12 borðum. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S Björn E. Péturss. – Jóhann Lútherss. 282 Ragnar Björnss. – Guðjón Kristjánss. 280 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 278 Árangur A–V Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 264 Bragi Björnss. – Guðjón Eyjólfsson 260 Magnús Ingólfss.– Halldór Kristinss. 237 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is @ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.