Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.02.2009, Blaðsíða 42
er lengi að semja og verk samanstendur jafvel af um 80 hljóðfæraröddum. Slík verk hafa fengið fleiri punkta meðan verk eins og sönglög, með ein- földum undirleik, hafa fengið færri. Það sem lagt hefur verið til grundvallar matinu er eingöngu umfang verksins og tímalengd. Með því er alls ekki verið að leggja neins konar listrænt mat á tónsmíðarnar, enda er það afstætt.“ Óánægja meðal sumra félaga í FTT Þetta fyrirkomulag olli óánægju meðal sumra þeirra sem semja léttari tónlist, sem flestir eru í FTT, en þess ber að geta að bæði fólk í TÍ og í ut- anfélagahópnum semur líka létta tónlist og eru öll verk metin á sömu forsendum óháð félagsaðild. Kjartan segir að ekki séu allir á sama máli innan FTT, þar sem þeim fari fjölgandi í því félagi, sem semji verk í stærri formum.. „Að undanförnu hafa farið fram við- ræður félaganna innan STEFs um þetta mat, og fram komið tillögur um að leggja núverandi úthlutunarkerfi niður,“ segir Kjartan og bætir við að það hefði verið á skjön við það sem erlendis gerist; þar hafi matskerfin ekki verið aflögð, en þróuð og betr- umbætt í takt við tímann. „Það er eðlilegt, að eftir því sem tónlistar- umhverfið breytist og þróast, þá breytist slíkar reglur með. Þegar á viðræðurnar leið, kom í ljós að ágreiningsefni milli FTT og TÍ voru ekki mikil. Fjárhagslega skiptir þetta ekki svo miklu máli og það að til- tekið tónverk hafi verið metið til margra punkta og því hærri greiðslna, þýðir ekki að greiðslur vegna annarra tón- verka skerðist sem því nemur. Punktarnir eru bónus, og í því sambandi skiptir máli hvernig greiðslur skiptast á milli íslenskra og erlendra tónskálda. Meir en helmingur allra tekna Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KJARTAN Ólafsson tónskáld, sem jafnframt er formaður Tónskáldafélags Íslands, TÍ og varafor- maður STEFs, hafnar því að regluverk STEFs, Samtaka tónskálda og eigenda flutningsréttar, mismuni tónskáldum eftir því hvers konar tónlist þau semji, og jafnframt sé það fjarri sanni að tón- list sé metin æðri eða óæðri eftir því hvort um er að ræða popptónlist eða svokallaða alvarlegri tón- list. Um málið hefur verið rætt í fjölmiðlum að undanförnu eftir að félagar í FTT, Félagi tón- skálda og textahöfunda gagnrýndu svokallað punktakerfi, matskerfi sem notað hefur verið til að meta tónsmíðar til greiðslna og úthlutað er eft- ir fyrir spilun tónlistar á Íslandi. Kjartan segir rangfærslur hafi verið í fréttaflutningi af málinu, því hvorki hafi verið um stríð að ræða, né sigur. Félagar í TÍ eiga fjölmargir verk í léttari flokkum, þar á meðal sönglög og popplög. Á sama hátt eiga félagar í FTT sumir hverjir verk í þyngri flokkum, svosem djass, kamm- er- eða sinfónísk verk. Að STEFi eiga þrír hópar aðild. Auk FTT, sem að uppistöðu er félag popparanna er það TÍ, en þriðji hópurinn samanstendur af rétthöfum utan félaganna og í þeim hópi eru tón- skáld, textahöfundar og erfingjar látinna tón- skálda. „Punktakerfið er nokkurs konar bón- uskerfi fyrir þær tónsmíðar sem kosta meiri vinnu og eru viðameiri,“ segir Kjart- an. „Þetta á við til dæmis um verk fyrir sinfón- íuraddir, þar sem tónskáld STEFs af stefjöldum fer til útlanda, vegna þess að hér er líka spiluð útlensk tónlist, og STEF inn- heimtir þau gjöld fyrir fyrir samtök erlendra rétt- hafa.“ Kjartan ítrekar að fjárhagslega skipti punkta- kerfið ekki máli fyrir tónskáld, því um litlar upp- hæðir sé að ræða. „Þá stóð það eftir, að ástæðan fyrir því að sumir vildu breyta punktakerfinu, var frekar huglæg. Mönnum fannst óréttlátt að vera settir í ákveðinn flokk, þannig að þetta var meira tilfinningalegs eðlis. Þegar búið var að finna út hver ásteytingarsteinn var, reyndist ekki erfitt að leysa málin. Ef menn búa við kerfi sem þeim finnst óréttlátt, er sjálfsagt að breyta því.“ Tónskáldin standa jöfn frá upphafi Samkvæmt samkomulagi milli aðildarfélaga STEFs verður punktakerfið tekið úr sambandi og öll verk metin jöfn. Tónskáld geta þó óskað eftir mati telji þau verk sín það umfangsmikil. „Það er réttlátt sjónarmið. Með þessu er einungis komið í veg fyrir að matið sé sjálfvirkt. Það mikilvæga er, að allt gengur jafnt yfir alla, óháð því hvaða félagi þeir tilheyra, og þannig hefur það verið. Tón- skáldum hefur ekki verið mismunað eftir félögum, þótt því hafi verið haldið harkalega fram.“ En hverjar eru þær upphæðir sem um er rætt, og Kjartan segir að ekki hafi skipt miklu máli í vasa tónskálda. „Þetta er 1,5 milljón á ári, sem deilist niður á tónskáldin öll, 2000 manns.“ Ekkert stríð, enginn sigur  Punktakerfi STEFs verður aftengt  Tónskáldum hefur ekki verið og verður ekki mismunað eftir félagsaðild, segir formaður TÍ  Öll verk verða metin jöfn Punktakerfið byggist upp á lengd verka og umfangi. Punktar eru gefnir fyrir mín- útufjölda, en auk þess er innbyggt í kerfið að því viðameira sem verkið er, því fleiri punkta fær það. Því fleiri punkta sem tónverk er met- ið á, því hærri verður greiðslan frá STEFi fyrir flutning á útvarpsstöðvum og annars staðar. Með nýja samkomulaginu verður punkta- kerfið tekið úr sambandi, og öll verk standa jöfn í mati. Hvert og eitt tónskáld, óháð fé- lagsaðild, getur þó farið fram á mat á verki sínu, telji það verkið verðskulda það vegna umfangs, út frá því matskerfi sem áður var til staðar. Hvernig eru tónverk metin? 42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 BANDARÍSKA barnabóka- forlagið Scolastic Inc. hefur meðal annars gefið úr bókaraðirnar um Harry Potter og er atkvæðamikið í útgáfu skóla- bóka. Að sögn The New York Times er Scolas- tic nú sakað um að nota bóka- klúbba, sem börn í Bandaríkjunum geta verið meðlimir í innan skól- anna, til að auglýsa tölvuleiki, barnaskartgripi, leikfangabíla og annars konar vörur. Þrýstihópur sem kennir sig við „auglýsingalausa æsku“ segist hafa kannað fréttabréf Scolastic og kom- ist að því að þriðjungur hlutanna sem boðnir eru séu annaðhvort ekki bækur eða bækur sem eru seldar með öðrum hlutum. Talsmaður hópsins segir að þeim hafi borist kvartanir um að verið væri að selja börnum leikföng og snyrtivörur í nafni bókaklúbbs sem væri leyfður í skólastofum. „Að fá að kynna vörur í skólum er forrétt- indi, ekki sjálfsagður réttur,“ segja þau. Forstjóri bókaklúbba Scolastic segist samþykkja allt sem boðið er til sölu í klúbbunum. Hluti af því sé t.d. bækur sem eru seldar með litlum límmiðum, sem eiga að hvetja börn sem „eru ekki hefðbundnir les- endur“ til að taka sér bók í hönd. Auglýsa í skólum Forlagt sagt auglýsa í barnaklúbbi Harry Potter Gef- inn út af Scolastic. BANDARÍSKA leikkonan Jane Fonda lék síðast á sviði árið 1963, þegar hún var 25 ára gömul. Núna, meira en 45 árum síðar, stígur hún á svið að nýju, er hún leikur í verk- inu 33 Variations efir Moises Kaufman á Broadway, leikriti sem fjallar um sköp- unarmátt listamanna undir lok æv- innar. Fonda, sem er orðin 71 árs gömul, lék í fyrsta sinn fyrir framan áhorf- endur í gærkvöldi, í röð forsýninga á verkinu. Í viðtali í The Guardian segir leikonan, sem hefur hlotið tvenn Óskarsverðlaun, fyrir The Klute, árið 1971, og Coming Home, árið 1978, að hún líti á fjögurra og hálfs mánaðar sýningatímabilið sem er framundan sem mikið ævintýri. „Þannig kýs ég að hugsa um það. Ég gæti verið dauðhrædd. Ég meina, átta sýningar á viku eftir 45 ár! En ég lít á þetta sem áskorun.“ Fonda lék á sínum tíma í fjórum Broadway-sýningum en fylgdi síðan í fótspor föður síns, Henrys Fonda, inn í heim kvikmyndanna. Hún sló í gegn í Cat Ballou, árið 1965, og varð enn frægari sem Barbarella þremur árum síðar. Þegar Fonda hafði samþykkt að snúa aftur á sviðið benti enn eldri vinur hennar henni á að á þessum aldri ætti fólk að setjast í helgan stein. „Ég er því ekki sammála,“ segir Fonda og bætir við að hún sé að skrifa bók, sem mun heita The Third Act: Entering Prime Time. Fonda aftur á svið Jane Fonda GAMMABLOSSAR er ný fyr- irlestraröð í Reykjavíkuraka- demíunni. Fyrirlestrar verða mánaðarlega, og í dag kl. 12.05 ríður dr. Gunnþóra Ólafsdóttir á vaðið með fyrirlestur sem hún kallar „Náttúrutengsl og upplifanir ferðamanna á Ís- landi. Fjögur tengslamynstur vellíðunar.“ Þar kynnir Gunn- þóra niðurstöður doktorsverk- efnis, rannsóknar á heilunar- áhrifum ferðalaga um náttúruna. Breskir ferðamenn í tveimur skipulögðum hópferðum til Íslands voru til rannsóknar. Kannað var ferlið frá draumi ferðamannsins um að fara í ferðina, ferða- lagið sjálft og aftur heim í hið venjubundna líf. Hugvísindi Náttúrutengsl og vellíðun Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir STOPPLEIKHÓPURINN sýnir í kvöld í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi, nýtt ís- lenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Hjálmars Jónssonar í Bólu, Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl. 20. Verkið nefnist: Brunað í gegnum Bólu- Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borg- ara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum. Höfundar verksins eru Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sig- urgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leiklist Bólu-Hjálmar í Funalind 2 Hjálmar Jónsson STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika í Iðnó í kvöld kl. 20.30. Stjórnandi og höf- undur tónlistar á þessum tón- leikum verður Nikolaj Bent- zon, fyrrverandi píanóleikari og aðalstjórnandi Stórsveitar danska ríkisútvarpsins. Í tón- list sinni leitar Bentzon áhrifa í arabískri tónlist en slíkt verður teljast mjög óvenjulegt í djass- tónlist. Jass- og funktónlist blandast því ýmsum arabískum straumum í ein- stakri efnisskrá eins af fremstu tónlistarmönnum Dana. Nikolaj Bentzon lék með Stórsveit danska ríkisútvarpsins frá 1990 og stjórnaði frá 2001. Hann leiðir einnig fleiri eigin hljómsveitir. Tónlist Danskur djass með arabískum ilmi Nikolaj Bentzon VÖNDUÐ verk eftir nokkra kunnustu myndlistarmenn þjóð- arinnar voru boðin upp hjá Gallerí Fold á mánudagskvöldið. Dýrasta verkið sem seldist var Miðsum- arnótt, olíumálverk frá árinu 1944 eftir Svavar Guðnason, sem var slegið kaupanda á 4,4 milljónir króna. Tryggvi P. Friðriksson upp- boðshaldari sagði uppboðið hafa gengið vel, en um 80 af 92 verkum seldust. Meðal annarra verðmætra verka sem seldust má nefna mál- verk eftir Nínu Tryggvadóttur sem var slegið á 1.350.000 krónur en var metið á um tvær milljónir, abstraktverk eftir Þorvald Skúla- son frá árinu 1962 var slegið á eina og hálfa milljón, á matsverði, tvö verk eftir Kristján Davíðsson seld- ust á 650.000 og 800.000, þau voru metin á 1,6 og 1,2 milljónir, og módelmynd eftir Gunnlaug Blön- dal var slegin kaupanda á 950.000, sú var metin á 1,6 milljónir. Tryggvi segir þetta hafa verið gott uppboð og fínar myndir sem voru að koma inn. „Í fljótu bragði sýnist mér þetta hafa verið bærilegt. Sum aldýr- ustu verkin fóru ekki en annað seldist,“ segir hann. „Þau verk sem voru metin undir milljón seldust langflest. Þá seld- ust verkin í ódýrari kantinum, upp að hálfri milljón króna, öll. Á því hefur ekki orðið nein breyting á síðustu uppboðum. Verk sem eru komin vel yfir milljón seljast hins vegar verr.“ Húsfyllir var á uppboði Gallerís Foldar á mánudagskvöld en þeir sem buðu í dýrari verkin nýttu sér margir símatæknina og voru fjar- staddir. Ofan á verð á uppboðum sem gefin eru við hamarshögg bætist uppboðsgjald, 10%, og höfund- arréttargjald, sem er 5-10%, eftir verði verksins. efi@mbl.is Svavar á 4,4 milljónir Abstrakt Verk eftir Þorvald Skúlason var slegið kaupanda á 1,5 milljónir króna.  „Gott uppboð“ segir Tryggvi Frið- riksson í Gallerí Fold Það var ákveðið að svissa nafni sveitar og nafni plötunnar til að koma í veg fyrir útgáfutafir og aukinn kostnað.44 » Morgunblaðið/Golli Kjartan Ólafs- son Ekki erfitt að leysa málin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.