Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 46
46 Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BASSALEIKARINN Orlando „Cachaíto“ Ló-
pez, sem lést í vikunni, var tónlistarleg kjöl-
festa í félagsskapnum sem kallaðist Buena
Vista Social Club; hljómsveit tónlistarmanna
sem voru upp á sitt besta á fimmta og sjötta
áratug síðustu aldar en sneru svo aftur í sviðs-
ljósið eftir nærfellt hálfrar aldar þögn og lögðu
heiminn að fótum sér.
Til fyrir tilviljun
Ævintýrið hófst þegar bandaríski gítarleik-
arinn Ry Cooder hélt til Kúbu að taka upp
plötu með senegölskum tónlistarmönnum.
Málin þróuðust þó á annan veg og svo fór að
Cooder ákvað að leita til gamalla tónlistar-
manna sem horfið höfðu úr sviðsljósinu ára-
tugum áður. Meðal þeirra sem hann fékk til
liðs við sig var bassaleikarinn snjalli Orlando
Cachaíto López, náfrændi hins goðsagna-
keppna bassaleikara Israel „Cachao“ López
sem samdi lagið Buena Vista Social Club, en
Cachaíto þýðir einmitt litli Cachao.
Cachaíto, sem fæddist 1933, ætlaði sér alltaf
að verða fiðluleikari, en afi hans lagði hart að
honum að læra á bassa, enda hefð fyrir því í
fjölskyldunni – sagan segir að það hafi verið 30
bassaleikarar í ættinni. Hann byrjaði því að
plokka selló og síðan fullvaxinn kontrabassa
þegar hann hafði líkamsburði til þess.
Cachaíto er talinn meðal upphafsmanna
descarga, bræðings af djassi og kúbutakti, og
spilaði með ýmsum helstu hljómsveitum Kúbu
á sinni tíð, þar á meðal Irakere sem margir
þekkja.
Ljúfur í viðkynningu og þægilegur
Cachaíto spilaði með Buena Vista-hópnum í
nokkur ár, var meðal annars á öllum plötum
sem gefnar voru út undir því nafni, og fór um
heiminn með ýmsum þeim Buena Vista-liðum,
sem spreyttu sig í sólóferli, til að mynda með
Omara Portuondo og Ibrahim Ferrer.
Hann sinnti einnig sólóferli samhliða, gaf út
fína plötu fyrir nokkrum árum, Cachaíto, og
fór síðar um heiminn með trompetleikaranum
Guajiro Mirabal, básúnuleikaranum Aguajé
Ramos og gítarleikaranum Manuel Galbán.
Þá hljómsveit sá ég spila í Lundúnum fyrir
nokkrum árum með Cachaíto sem klettinn í
hljómsveitinni. Ég hitti hann svo eftir tón-
leikana; ljúfur í viðkynningu og þægilegur og
gerði lítið úr tónlistarhæfileikum sínum, tón-
listin kæmi af sjálfu sér og því engin kúnst að
spila hana.
Kjölfestan í Buena
Vista Social Club
Bassaleikarinn snjalli Orlando „Cachaíto“ López
lést í vikunni – sjötíu og sex ára að aldri
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Orlando López Sagður ljúfur og þægilegur.
í dag 11. febrúar kl. 20.00
2 fyrir 1
MasterCard korthafar fá tvo miða á verði eins í dag 11. febrúar
kl. 20.00 í Laugarásbíói, Smárabíói, Regnboganum
og Borgarbíói Akureyri greiði þeir með kortinu.
Meira á www.borgun.is/bio
LEIKKONAN
Katherine Heigl
hefur ákveðið að
hætta að leika í
sjónvarpsþátt-
unum Grey’s An-
atomy til þess að
einbeita sér að
kvikmyndaferli
sínum. Heigl sló í
gegn í myndinni
Knocked Up þar
sem hún lék á móti hinum ómót-
stæðilega Seth Rogen. Hún náði svo
að fylgja eftir þeim vinsældum með
gamanmyndinni 27 Dresses.
Heigl hefur leikið Dr. Isobel Izzie
Stevens í 90 þáttum, eða frá 2005 –
2009.
Leikarinn T.R Knight, er leikur
Dr. Georg ÓMalley hefur einnig
ákveðið að yfirgefa þættina. Leik-
ararnir eru víst bestu vinir og eiga
víst að hafa reynt að finna leiðir til
þess að komast hjá skyldum sínum
við þættina í einhvern tíma.
Næst sjáum við Katherine Heigl í
gamanmyndinni The Ugly Truth.
Hættir í
Grey’s
Anatomy
Katherine Heigl
Fegin að losna.
ÞAÐ lítur út fyr-
ir að það sé ekki
alltaf jafn gaman
„að gista hjá
KFUM!“ eins og
segir í laginu
YMCA því fyrr-
verandi for-
söngvari The Vil-
lage People,
Victor Willis,
hefur kært núverandi rétthafa að
nafni sveitarinnar fyrir að misnota
ímynd sína. Willis, er klæddist
ávallt lögreglubúningi, segir fram-
leiðslufyrirtækið sem á réttinn að
nafni sveitarinnar hafa notað
myndir af sér og rödd sína í leyf-
isleysi til að kynna tónleika hinnar
uppfærðu Village People. Hann fer
fram á peningabætur auk þess sem
hann vill fá lögbann á að efni þar
sem hann kemur fram verði notað.
Willis er einn þeirra sem sömdu
slagarann klassíska YMCA er sló
svo eftirminnilega í gegn árið 1979
og hefur verið eftirlæti samkyn-
hneigðra æ síðan. Hann hætti árið
1983.
Löggan
kærir
Victor Willis
Í LJÓSI þess að tónlistarmennirnir sem skipuðu
hljómsveitina Buena Vista Social Club voru upp á
sitt besta á fimmta áratug síðustu aldar kemur
varla á óvart að þeir séu teknir að týna tölunni.
Manuel „Puntillita“ Licea
Söngvari. Hann lést 4. desember 2000, sjötíu
og þriggja ára gamall.
Compay Segundo
Gítarleikari, söngvari og lagasmiður (samdi
meðal annars lagið Chan Chan sem allir þekkja
sem þekkja Buena Vista Social Club). Hann lést
13. júlí 2003, níutíu og fimm ára gamall.
Rubén González
Píanóleikari. Hann lést 8. desember 2003,
áttatíu og fjögurra ára gamall.
Ibrahim Ferrer
Söngvari - allir þekkja Dos gardenias og Silen-
cio sem hann söng með Omara Portuondo. Hann
lést 6. ágúst 2005, sjötíu og átta ára gamall.
Pío Leyva
Söngvari og lagasmiður. Hann lést 22. mars
2006, sjötíu og þriggja ára gamall.
Orlando „Cachaito“ López
Bassaleikari og sá eini ofangreindra sem var á
öllum Buena Vista-plötunum. Hann lést 9. febr-
úar sl. sjötíu og sex ára gamall.
Horfnir