Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 TÍSKUSTRAUMAR í barnabókum eru nokkuð fyrirsjáanlegir; þegar galdrastrákur slær í gegn snjó- ar inn bókum um slíka hnokka (og hnátur líka til að skera sig aðeins úr). Að sama skapi fjölgaði drekabókum gríðarlega í kjöl- far langlokunnar um Eragon og Saphira og líka bók- anna vinsælu um Temeraire. Ein slíkra bóka er sú sem hér er gerð að umtalsefni og segir frá ungri stúlku í landi sem svipar um margt til Kína fyrri alda. Hún hefur dulbú- ist sem piltur til að forðast þrældóm og þrengingar og er í læri hjá manni sem vill gera hana að þjóni eins drekanna tólf sem verndað hafa kon- ungdæmið í gegnum árin. Margt fer öðruvísi en ætlað er og það er ekki fyrr en stúlkan gengst við því að vera stúlka sem hjólin taka að snú- ast. Bókin er hressilega skrifuð, nóg af blóði og dauða, djöfulgangi og lát- um og meira að segja léttkrydduð erótík. Víst hefði hún getað verið styttri og sumt í fléttunni er full- einfalt fyrir minn smekk þó það gangi væntanlega betur í börn og ungmenni. Höfundur veltir líka upp forvitnilegum hliðum á því að vera stúlka í dulargervi pilts og þá ekki síst þegar Eon (Eona) er kominn inn á gafl hjá keisaranum. Galli við bókina er fulleinfaldar fléttur, eins og getið er, en líka hve persónur eru einsleitar, ýmist al- vondar eða algóðar, þó hún taki reyndar skemmtilega óvæntan snúning í lokin sem lofar góðu um framhaldið. Hnokkinn hnáta Eon - Rise of the Dragoneye eftir Alison Goodman. Dave Fickling Books gefur út. 430 bls. ób. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Associate - John Grisham 2. The Host - Stephenie Meyer 3. The Story of Edgar Sawtelle - David Wroblewski 4. Plum Spooky - Janet Evanovich 5. What I Did For Love - Susan Elizabeth Phillips 6. Dark of Night - Suzanne Brock- mann 7. Agincourt - Bernard Cornwell 8. Black Ops - W. E. B. Griffin 9. The Guernsey Literary and Potato Peel Pie Society - Shaf- fer & Barrows 10. A Darker Place - Jack Higgins New York Times 1. The Miracle at Speedy Motors - Alexander McCall Smith 2. Revolutionary Road - Richard Yates 3. The Other Hand - Chris Cleave 4. The Reader - Bernhard Schlink 5. The Secret Scripture - Sebast- ian Barry 6. The Blood Detective - Dan Waddell 7. The Gargoyle - Andrew Davidson 8. Wetlands - Charlotte Roche 9. When Will There be Good News? - Kate Atkinson 10. Remember Me? - Sophie Kinsella Waterstone’s 1. New Moon - Stephenie Meyer 2. Careless in Red - Elizabeth George 3. The Reapers - John Connolly 4. The Broken Window - Jeffery Deaver 5. The Sagas of the Icelanders - Ritstj. Jane Smiley 6. Twilight - Stephenie Meyer 7. Change of Heart - Jodi Picoult 8. The Bourne Betrayal - Eric van Lustbader 9. Independent People - Halldór Laxness 10. The Tales of the Beedle Bard - J.K. Rowling Eymundsson Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Í HUGA manna er Hinrik VIII. Englandskonungur bráðlyndi harðstjórinn sem sendi tvær ungar eig- inkonur og ótal vitra ráðgjafa sína á höggstokkinn. En það var annar Hinrik, ungur prins og konungur sem var réttlátur, greindur, vel menntaður, list- hneigður og afburða íþróttamaður. Sérfræðingur í Tudorum Það er breski sagnfræðingurinn David Starkey sem dregur upp þessa mynd, sem lítið hefur farið fyrir, í bók sinni um Hinrik VIII., Henry – Virtuous Prince, sem gefin er út í tilefni af því að á síðasta ári voru 500 ár liðin frá því Hinrik settist í stól Eng- landskonungs. Starkey er þó ekki að leita fyrir sér á nýjum slóðum því hann er sérfræðingur í Tudor- tímabilinu, hefur áður skrifað bók um sex eiginkonur Hinriks og dóttur hans Elísabetu I. og gert sjón- varpsþætti um sama efni. Starkey er þakkað það að hafa breytt sýn manna á Önnu Boleyn, móður El- ísabetar I., sem Hinrik lét hálshöggva, en Starkey telur hana hafa verið snjalla stjórnmálakonu og leiftrandi hugsuð. Í framhjáhlaupi má geta þess að Starkey, sem hefur ekki dálæti á nútímakóngafólki, hneykslaði marga þegar hann kallaði Elísabetu II. ómenntaða húsmóður og líkti menningarsjónarmiðum hennar við hugmyndir Josefs Göbbels. Prins í kvennaheimi Starkey segir bókina um Hinrik VIII. eiga að vera fyrra bindið af stóru verki. Þegar þessu fyrra bindi lýkur er Hinrik enn ungur að árum og í hjónabandi með fyrstu eiginkonu sinni af sex og virðist vera hin geðugasti maður. Hinrik var tæplega átján ára þegar hann varð kon- ungur. Fram að þeim tíma hafði hann að mestu lifað og hrærst í heimi sem var skapaður af konum. Móðir hans og systur voru þær manneskjur sem stóðu hon- um næst og hann var fjarlægur föður sínum og Arth- ur bróður sínum. Höfundur leggur mikið upp úr að lýsa því umhverfi sem Hinrik ólst upp í. Honum tekst ekki eins vel að vekja persónur verksins til lífsins og þær verða því allan tímann nokkuð fjarlægar. Þetta er helsti galli bókar sem er þó um margt athygl- isverð. Í bókinni er sjónum beint að hinum góða Hinriki og verkið er því að nokkru leyti hetjusaga. Persónu- leiki Hinriks gjörbreyttist með árunum og hann varð grimmur og hefnigjarn harðstjóri. Starkey mun skýra hvernig það gerðist í næsta bindi. Síðasti kafli þessarar bókar nefnist Wolsey en þar er sagt frá hin- um volduga ráðgjafa Hinriks. Höfundur segir að það hafi verið Wolsey sem sýndi Hinriki fram á hvað hann gæti gert sem konungur en ekki hvað hann ætti að gera. Wolsey hafi því átt þátt í að skapa hinn vonda Hinrik sem sagan þekkir svo vel. Forvitnilegar bækur: Ný sýn á Hinrik VIII. Góði prinsinn Hinrik á þrítugsaldri Þá voru óheppileg áhrif helsta ráðgjafa hans, Wolsey kardinála, farin að segja til sín. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI AUKASÝNINGA R Á VINSÆLUSTU M YNDINNI FRÁ FRANSKR I HÁTÍÐ Refurinn og barnið m. ísl. texta Fyrsti kafli Underworld myndanna. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! 550 kr. fyrir b örn 650 kr. fyrir f ullorðna SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI - S.V., MBL - DÓRI DNA, DV 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON 650k r. Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 He´s Just Not That Into You kl. 8 MasterCard fors. - 2 fyrir 1 LEYFÐ Bride Wars kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára Underworld 3 kl. 10:30 B.i. 16 ára Seven pounds kl. 5:30 LEYFÐ Australia kl. 8 B.i. 12 ára Taken kl. 6 - 10:45 B.i. 16 ára Frá leikstjóra The Hours og Billy Elliott BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Þegar tvö brúðkaup lenda upp á sama daginn fara bestu vinkonur í stríð! Frábær gamanmynd! Hve langt myndir þú ganga til að varðveita leyndarmál? 650k r. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! 3650 kr. 650k r. Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó He´s just not that... kl. 8 MasterCard forsýning - 2 fyrir 1 LEYFÐ Bride Wars kl. 10:15 LEYFÐ Skógarstríð 2 kl. 6 550 kr. f. börn, 650 kr. f. fullorðna LEYFÐ Underworld 3 kl. 10:10 B.i.16 ára Villtu vinna milljarð kl. 8 B.i.12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 6 LEYFÐ The Reader kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.14 ára Valkyrie kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 - 8 -10:10 LEYFÐ Refurinn og barnið ísl. texti kl. 6 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 5:30 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI 2 fyrir 1 ef greitt er með MasterCard 650k r. 650k r. Bráðfyndin rómantísk gamanmynd sem sviptir hulunni af samskiptum kynjanna 2 fyrir 1 ef greitt er með MasterCard

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.