Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
ÉG ræddi um það á dögunumí Ljósvakapistli hversugjarn ég væri á það að stilla
á Gullbylgjuna 90,9. Ég geri þetta
oft á morgnana heima og þegar ég
er að keyra, er vísvitandi að sækja í
einhvern einfaldleika. Þarna getur
maður gengið að mörgum af helstu
perlum dægurlagatónlistarinnar
vísum, hvort heldur með Bítlum, El-
ton John, Faces, Supremes, Jim
Croce og svo mætti lengi telja.
Smellir, slagarar og gullmolar all-
an sólarhringinn. Þannig rúllar
þetta og ekkert kjaftæði, engin
dagskrárgerð og ekkert bull. Ja …
eða svona næstum því.
Þannig er nefnilega að sambandmitt við stöðina eftir svona
mikla samveru er eðlilega komið á
ástar/hatursstigið. Og því lengur
sem viðveran er, því fleiri gallar
eru farnir að koma í ljós. Ég ætla að
tæpa lítillega á þeim allra stærsta.
Margvíslegir útvarpsþulir sjá um
að kynna lögin til sögunnar. Í alltof
mörgum tilfellum eru þeir ótrúlega
óupplýstir um efni það sem þeir eru
að kynna til sögunnar. Steininn tók
úr um daginn, og það rak mig um
leið í þessi pistilsskrif, þegar þulur
einn kynnti titillagið á plötu Bítl-
anna, Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band. Hann hóf að lesa tit-
ilinn, augsýnilega af skjá, líkt og
hann væri að sjá þetta nafn í fyrsta
skipti. Ég trúði ekki mínum eigin
eyrum á meðan lesturinn stóð yf-
ir …
„Sgt. … Pepper’s … Lo-
nely …Heart (ath. Heart ekki He-
art) Club … Band.“
Eftir þetta kom smá hik, eins og
maðurinn væri hreinlega að jafna
sig á því að hafa komið þessari runu
út úr sér. Svo segir hann, svona til
reddingar:
„Langt nafn á … flottu lagi!“.
Getur það virkilega verið að um-
ræddur þulur hafi ekki þekkt lagið?
Titillag plötu sem er almennt talið
eitt mesta tímamótaverk gervallrar
dægurtónlistarsögunnar? Og var
þetta að gerast á útvarpsstöð sem
gerir beinlínis út á að spila efni af
slíkum toga?
Það verður að segjast eins og er
að oftast hefur maður á tilfinning-
unni að þessir „dagskrárgerð-
armenn“ á Gullbylgjunni hafi
hreinlega ekki hundsvit á því sem
þeir eru að tala um eða kynna. Þeir
þekkja jú Bítlana og Stones og geta
líkast til sönglað með í „Hey Jude“
en mikið lengra virðist vitneskjan
ekki ná. En bíddu … ég er meira að
segja að gefa þeim aðeins of mikið
kredit hérna. Á dögunum voru Roll-
ing Stones kynntir til sögunnar og
þeir sagðir vera frá Liverpool!!!
Þessi hnakkavinkill, því að öðrunafni get ég ekki kallað þetta,
á þessari annars ágætu ell-
ismellastöð er til mikils vansa. Ef
það á yfirhöfuð að kynna lögin, eitt-
hvað sem er að mínu viti nauðsyn-
legt á stöð sem þessari, er alger
lágmarkskrafa að „fagmenn“ komi
þar að, fólk sem hefur þó ekki sé
nema grundvallarþekkingu á dæg-
urtónlistarsögunni. Nóg er til af
slíku fólki og þessi stutti tími á milli
laga yrði fróðlegri, kjötmeiri og
hlustendavænni en ella.
Ég vil impra á því hérna í lokin
að mér finnst tilvist svona stöðvar
gefa ljósvakalandslaginu mikinn og
góðan lit. Svona „classic radio“-snið
er fasti í útvarspmenningu heims-
ins og það ekki að ósekju. Formið
virkar, fólk vill heyra þetta og ég
vil ganga svo langt að kalla það
menningarlega skyldu við okkur
sjálf að gera helstu þrekvirki dæg-
urlagatónlistarinnar aðgengileg
með þessum hætti.
En það er ekki þar með sagt að
ekki megi bæta í og bæta úr. Megi
því þessi vel meinti tuðpistill verða
til góðs.
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Það verður að segj-ast eins og er að oft-
ast hefur maður á til-
finningunni að þessir
„dagskrárgerðarmenn“
á Gullbylgjunni hafi
hreinlega ekki hundsvit
á því sem þeir eru að
tala um eða kynna.
Hvað!? „John. Þeir vita ekki einu sinni hvað meistaraverkið okkar heitir!?“
„Sgt. Pe … eitthvað …“
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
- S.V., MBL
- L.I.L.,TOPP5.-FBL.IS
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
MEÐAN AÐRIR FYLGDU SKIPUNUM...
FYLGDI HANN SAMVISKU SINNI
MEÐ STÓRLEIKURUNUM KENNETH
BRANAGH, BILL NIGHY,TOM WILKINSON,
TERENCE STAMP OG EDDIE IZZARD.
METNAÐARFULLT STÓRVIRKI FRÁ LEIKSTJÓRA
THE USUSAL SUSPECTS UM MORÐTILRÆÐI Á HITLER
MEÐ TOM CRUISE Í AÐALHLUTVERKI.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
- S.V. Mbl.
- E.E., DV
- S.V., MBL
- L.I.L.,TOPP5.-FBL.IS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
„Byggð á samnefndri
bók sem slegið hefur
í gegn um allann heim“
- S.V. Mbl.
- K.H.G., DV
- S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HEIMILDAMYND EFTIR FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
- DÓRI DNA, DV
- K.G., FBL
- Ó.T.H., RÁS 2
- S.V., MBL
OG BORGARBÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Sýnd kl. 10:30 POWERSÝNING
POWERSÝNING
KL. 10:30 Á STÆRSTA
TJALDI LANDSINS MEÐ
DIGITAL MYND OG HLJÓÐI
Sýnd kl. 6Sýnd kl. 6, 8 og 10
TOPPMYNDINÁ ÍSLANDI
BRÁÐSKEMMTILEG MYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
-bara lúxus
Sími 553 2075
Frábær gamanmynd!
Þegar tvö brúðkaup
lenda upp á sama daginn
fara bestu vinkonur í stríð!
borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
He´s Just Not That Into... kl. 8 MasterCard forsýning - 2 fyrir 1 LEYFÐ
Bride Wars kl. 4 - 6 - 8 - 10 DIGITAL LEYFÐ
Bride Wars kl. 4 - 6 - 8 - 10 DIGITAL LÚXUS
Hotel for Dogs kl. 3:40 - 5:45 LEYFÐ
Valkyrie kl. 5:30 - 8 - 10:30 DIGITAL B.i. 12 ára
Skógarstríð 2 kl. 3:45 550 kr. f. börn, 650 kr. f. fullorðna LEYFÐ
Underworld 3 kl. 10:45 B.i. 16 ára
Villtu vinna milljarð kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Skoppa og Skrýtla í bíó kl. 4 DIGITAL LEYFÐ
MIÐVIKUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR!
500 KR. Á ALLAR MYNDIR Í HÚSINU, ALLAN DAGINN!
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
Sýnd kl. 8 MasterCard forsýning
2 FYRIR 1 (AF FULLU VERÐI)
Gildir ekki á MasterCard forsýningar