Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 52
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Pistill: Tekist á um hrun
girðingarinnar
Forystugreinar: Erlend fjárfesting?
|Skortur á samhengi
Ljósvakinn: Flett í gegnum albúmið
Staksteinar: Ásakanir og afsakanir
4#%%$5 (#
/
% ,
$
67889:;
(<=:8;>?(@A>6
B9>96967889:;
6C>(B B:D>9
>7:(B B:D>9
(E>(B B:D>9
(3;((>& F:9>B;
G9@9>(B< G=>
(6:
=3:9
.=H98?=>?;-3;H(B;@<937? I:C>?
J'
J J J
J J J'
?#"%
%" & #/
J
J
J J' J J
J
J
.%B
2 (
J J
J J' J' J'
'J J
Heitast -1° C | Kaldast -11° C
Fremur hæg norð-
læg eða breytileg átt.
Víða léttskýjað en dá-
lítil él norðan- og aust-
anlands. » 10
Formaður TÍ hafnar
því að regluverk
STEFs hafi nokkurn
tímann mismunað
höfundum eftir teg-
und tónlistar. »42
MENNING»
Engin mis-
munun?
FÓLK»
Jennifer Hudson gráti
næst á Grammy. »50
Einar Falur fjallar
um sýningu Stein-
gríms Eyfjörð,
Ásýnd Guðs, er þyk-
ir víðtæk og
skemmtileg. »43
MENNING»
Fjallað um
Ásýnd Guðs
FÓLK»
Rihanna illa farin eftir
líkamsárás. »45
TÓNLIST»
Koma Tenderfoot saman
aftur? »44
Menning
VEÐUR»
1. Svakalegt að fá þetta í andlitið
2. Bankaráðsformenn segja af sér
3. Viðtalið tekið úr samhengi
4. Leynd verði aflétt
Íslenska krónan stóð í stað í gær
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Mæðgurnar Guðný Kristjánsdóttir og Kristín Rán Júlíusdóttir sögðu frá reynslu sinni af rafrænu einelti.
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
STELPUR stunda fremur rafrænt
einelti en strákar. Talið er að þær séu
markvissari, málvissari, geti fengið
aðra til að gera hlutina fyrir sig og séu
laumulegri við iðju sína. Strákar eru
sagðir koma upp um sig og taka frek-
ar þátt í „hefðbundnu“ einelti. Þetta
er meðal niðurstaðna Kristrúnar
Birgisdóttur og Heiðu Kristínar
Harðardóttur úr eigindlegri rannsókn
meðal fagfólks sem þær gerðu á raf-
rænu einelti og skrifuðu um í lokarit-
gerð sinni í námi í uppeldis- og
menntafræðum. Rannsóknin var
kynnt í gær á málþingi á vegum
SAFT um rafrænt einelti.
„Við lögðum upp með þá spurningu
hvernig hægt væri að koma í veg fyrir
rafrænt einelti og hvort kynin hegð-
uðu sér á mismunandi vegu,“ segir
Kristrún. „Niðurstaðan var sú að sof-
andaháttur valdi þessu, við höfum
sofnað á verðinum.“ Þetta segir hún
að eigi við um alla þá sem koma á ein-
hvern hátt að uppeldi barna, for-
ráðamenn og þá sem sinna börnum í
skólanum.
Meðal niðurstaðna var að almennt
er talið algengara að stelpur stundi
rafrænt einelti en strákar. „Það á við
bæði um gerendur og þolendur,“ segir
Kristrún, „og þá frekar innan kyns en
milli kynja.“ Viðmælendur í rann-
sókninni; kennarar, skólastjórar,
námsráðgjafar, forstöðumaður fé-
lagsmiðstöðvar og eins aðilar sem
unnið hafa mikið að æskulýðsmálum,
telja rafrænt einelti alvarlegt og vax-
andi vandamál hér á landi þrátt fyrir
að ekki komi mörg slík mál inn á borð
skóla. „Algengasti staðurinn, þar sem
börn segja frá svona löguðu, er í fé-
lagsmiðstöðvum,“ segir Kristrún.
Það telur hún hugsanlega vera vegna
þess að þar halda börnin að enginn
leggi eyrun við. Þau séu tregari til að
segja frá slíkum málum heima, af því
að þau óttist tölvubann. „Sem er
skelfilegt, af því að það er oft notað
sem hegning,“ segir Kristrún.
„Ég mun alltaf muna“ | 6
Höfum sofnað á verðinum
Rafrænt einelti
alvarlegt og vax-
andi vandamál
ÞJÓFNAÐUR á matvöru hefur
aukist töluvert undanfarna tvo
mánuði eða frá því fyrir síðustu
jól. Helst er aukning í stærri mál-
um þar sem gengið er út úr mat-
vöruversluninni með vörur í körfu
eða kerru án þess að greitt sé fyr-
ir. Í síðasta mánuði var tilkynnt
um 350 þjófnaði, þar af 95 sem
falla undir hnupl, skv. því sem
kemur fram í bráðabirgðatölum
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu.
„Þetta er töluvert vandamál. Ég
er reyndar ekki með tölur á
hreinu en það hefur verið töluverð
aukning frá því fyrir jól,“ segir
Pétur Magnússon, öryggisstjóri
hjá Norvik, sem rekur m.a. Krón-
una og Nóatún. Pétur segir að
gripið hafi verið til frekari ráð-
stafana vegna þessa, gæsla aukin
og tilmælum beint til starfsfólks
um að fylgjast betur með. Pétur
segir engan þjóðfélagshóp frekar
en annan brjóta af sér. Hjá Högum
fengust engar upplýsingar enda sú
regla í gildi að ræða ekki öryggis-
mál fyrirtækisins.
Þjófnaðir tilkynntir lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu voru færri í
janúar en í desember, þegar til-
kynnt var um 450 þjófnaði.
Fjölgunin er hins vegar mikil ef
litið er til síðustu ára. Í janúar á
síðasta ári var tilkynnt um 204
þjófnaði, 212 árið 2007 og 204 árið
2006. andri@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Stuldur Svo virðist sem fleiri séu
farnir að stela sér til matar.
Fleiri og stærri þjófnaðir
úr matvöruverslunum
LANDNÁMSSETUR Íslands hlaut
í gær Eyrarrósina þegar hún var
afhent í 5. sinn við hátíðlega athöfn
á Bessastöðum. Eyrarrósin er sér-
stök viðurkenning fyrir framúrskar-
andi menningarverkefni á lands-
byggðinni sem Listahátíð í
Reykjavík, Byggðastofnun og Flug-
félag Íslands standa að. Auk Land-
námssetursins voru tilnefnd til
verðlaunanna Skaftfell, miðstöð
myndlistar á Austurlandi, og Eyr-
byggja, sögumiðstöð í Grundarfirði.
Dorrit Moussaieff forsetafrú og
verndari verðlaunanna afhenti for-
svarsmönnum Landnámsseturs
verðlaunafé að upphæð 1,5 milljónir
kr. og verðlaunagrip sem Steinunn
Þórarinsdóttir hefur gert.
silja@mbl.is | 8
Eyrarrósin
afhent í 5. sinn
Mæðgurnar Guðný Kristjánsdóttir
og Kristín Rán Júlíusdóttir sögðu
frá reynslu sinni af rafrænu einelti
á málþingi SAFT í gær. Guðný sem
foreldri og Kristín Rán sem þolandi.
Báðar hafa þær fyrirgefið gerand-
anum en hann gaf sig fram eftir að
tilkynnt var að lögregla yrði látin
rannsaka ummæli sem færð voru á
bloggsíðu Kristínar. Það kom á
óvart að sú sem átti færsluna var,
að því er Kristín taldi, góð vinkona
hennar.
Kristín segir að þó að hún hafi
fyrirgefið muni hún aldrei gleyma.
„Við erum ekki beint vinkonur í dag
en ég hef mætt í afmælin hennar og
hún í afmælin mín,“ segir Kristín.
Gerandinn gaf sig fram
Skoðanir
fólksins
’Snemma í stjórnarmyndunarferl-inu tóku framsóknarmenn að sérþað vafasama hlutverk að slá út afborðinu allar hugmyndir um að eiguryrðu kyrrsettar. Samfylkingin tók þá
undir þau falsrök að þetta væri vita-
skuld ekki hægt vegna stjórnarskrár-
varinna réttinda. » 22
BJARNI HARÐARSON
’Ég ákæri ekki þá sem skópu þettakerfi nýfrjálshyggjunnar, heldurþá sem nýttu sér svigrúmið í gróðafíknsinni og græðgi. Ekki þá sem trúðu áósýnilega hönd sem héldi markaðnum
í skorðum. Vegna þess að ég trúi sjálf-
ur á opinn markað. » 25
SIGURÐUR V. SIGURJÓNSSON
’Velt hefi ég fyrir mér, hvort eitthvaðgott hafi komið út úr þessu hrunifyrir fólkið í landinu. Víst er um það, aðÍsland er nú betur þekkt í útlöndum ennokkru sinni fyrr. Fólki fannst spennandi
að lesa um það, hvernig þessi litla þjóð
fór frá því að vera ein ríkasta þjóðin í
heimi í eina af þeim fátækustu, og líka úr
þeirri hamingjusömustu í að vera ein sú
daprasta. » 25
ÞÓRIR S. GRÖNDAL
’Eru Jón og Gunna líka í ábyrgðfyrir þessum ósköpum? Í viðbótvið Icesave og allt hitt. Okkur er sagtað stýrivextir verði að vera svona háirtil að hamla á móti verðbólgunni. Und-
ir það taka verklýðsforingjar sem vita
að þeim mun hærri vextir þeim mun
meiri verðbólga og þeim mun hærri
verðtrygging á lífeyrissjóðslánin. » 26
SIGURÐUR ODDSSON
’Vissulega neyðumst við til aðreisa efnahag landsins úr rústum,en við eigum að gera það upprétt oghalda sjálfstæði okkar. Við þurfumnýtt óspillt blóð og við skulum láta þá
svara til saka sem sekir eru. ESB mun
ekki leysa okkar vanda og nýr gjald-
miðill er annað mál. Látum ekki hugs-
unina um Urðarsel Bjarts hræða okk-
ur. » 24
BJÖRN GUÐMUNDSSON