Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 ILLUGI Gunnarsson er með tvöfalt fylgi á við Guðlaug Þór Þórðarson meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík til þess að leiða lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum, samkvæmt nið- urstöðum í skoðanakönnun Mark- aðs- og miðlarannsókna (MMR) sem gerð var í Reykjavík 6. til 11. mars. 52,6% þeirra sem segjast ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum segjast vilja að Illugi leiði listann en 26,6% vilja að Guð- laugur Þór leiði listann. 13,8% þeirra sem svöruðu vildu hvorugan og 7% vissu ekki svarið eða vildu ekki svara. Ef aðeins þeir sem hyggjast taka þátt í prófkjörinu eru flokkaðir, vilja 50,4% þeirra að Ill- ugi verði í fyrsta sæti listans, en 21,5% velja Guðlaug Þór. 604 höf- uðborgarbúar á aldrinum 18-59 ára svöruðu könnuninni, sem MMR vann fyrir stuðningsmenn Illuga. Afgerandi forysta Illuga FRÉTTASKÝRING Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annei@mbl.is HÚSAKYNNUM Íslensku tónverka- miðstöðvarinnar í Síðumúlanum hef- ur verið skellt í lás. Sigfríður Björns- dóttir framkvæmdastjóri ITM segir tryggingafélag miðstöðvarinnar hafa í gær lýst húsnæðið ótryggt undir starfsemina og að samstundis hafi verið hafist handa við að flytja á brott nótur og önnur verðmæti. Fyrst í stað verður gögnunum komið fyrir í raka- og hitastýrðu geymsluhúsnæði á vegum fagaðila og nótnasafnið svo flutt í Þjóðarbókhlöð- una nú fyrir helgi. Þar verður hafist handa við að taka gögnin úr kössum, enda rakinn í þeim svo mikill að hætta er á að þau mygli fljótt verði ekki strax gripið til forvörsluaðgerða. Á vel heima í handritadeild „Við höfum verið í viðræðum áður um að eitthvað af þessu efni kæmi hingað inn því að það á vel heima hér í handritadeildinni,“ segir Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbóka- vörður. „Við viljum því gjarnan bjóða fram húsnæði og hefjast síðan handa við að móta samstarf okkar í milli um það hvernig þessum gögnum verði best fyrir komið í framtíðinni.“ Nótur um átta þúsund tónverka á pappír voru geymdar í húsakynnum ÍTM. Hefur á undanförnum fjórum árum verið unnið að því að afrita nót- urnar á rafrænt form og hafa þegar verið afrituð um fimm þúsund verk. Sigfríður segir eldsvoðann á þriðju- dag sýna að brýnt sé að hraða afritun þeirra nótna sem eftir eru. Margir hafa sett sig í samband við ÍTM og boðið fram aðstoð. „Við erum að ræða hvernig við getum brugðist við þessu,“ segir Sigfríður sem naut aðstoðar forvarðar og fagmanna í pökkun og frágangi við flutninginn í gær. Vatn flaut þá á efri hæðum húss- ins, rafmagnsblossar komu út úr inn- stungum og raki leitaði niður á nokkrum stöðum. Framtíðarlausn á vanda ÍTM þarf þó að finnast og tryggja þarf að þjón- ustuhlutverki miðstöðvarinnar verði haldið gangandi. „Við getum geymt safnið annars staðar og verið í fjar- sambandi í skamman tíma,“ segir Sigfríður. Hefja verði hins vegar þjónustustarfsemina aftur sem fyrst og tekur Bjarki Sveinbjörnsson forstöðumaður Tónlistarsafns Ís- lands í sama streng. Margir, innan lands sem utan, reiða sig á nótur frá miðstöðinni fyrir tónleikahald. „Það er löngu orðið tímabært að gera vel við þessa stofnun og hún getur haft miklu stærra hlutverk ef henni er skapaður rammi til þess,“ segir Bjarki. Fundað var með Katrínu Jakobs- dóttur menntamálaráðherra og ráð- gjöfum hennar í gær og er nú unnið að því að finna framtíðarlausn á hús- næðisvanda ITM, sem verið hefur í Síðumúlanum frá því í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Bjarki bendir á að aðrar stofnanir geri vel að kanna sín varðveislumál í kjölfar brunans. „Segulbandsspólu- safn Ríkisútvarpsins er gott dæmi um slíkt. Þar er geymd sjötíu ára saga þjóðarinnar án nokkurra afrita.“ Menningarverðmæti Sigfríður Björnsdóttir segir hjálp hafa borist úr ýmsum áttum eftir brunann. Flutt út með hraði  Húsnæði ÍTM ótryggt undir starfsemina  Nóturnar geymdar í Þjóðarbókhlöðu  Vantar lausn á húsnæðismálum Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðveisla Breytt var yfir nótur í varðveislu ITM áður en slökkviliðið hófst handa við að slökkva eldinn til að verja þær skemmdum. Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÖRLÖG dvalarheimilisins Helga- fells á Djúpavogi ættu að ráðast fyrir lok næstu viku. Starfsfólki heimilisins var sent uppsagnarbréf fyrir síðustu mánaðamót og ótt- uðust íbúar bæjarins að rekstri yrði hætt og vistmenn fluttir á Egilsstaði eða Höfn. Ráðist var í undirskriftasöfnun og var heil- brigðisráðherra í gær afhentur listi með nöfnum fjölmargra íbúa. Ráðherrann segist vongóður um að niðurstaða náist sem íbúar á Djúpavogi geti sætt sig við. Allt þar til í janúar 2008 rak Djúpivogur dvalarheimilið og án undantekninga með halla. Þegar sveitarfélagið sjálft lenti í fjár- hagsvandræðum var leitað til rík- isins sem tók það undir sinn verndarvæng. Var heimilið inn- limað í starfsemi Heilbrigðisstofn- unar Austurlands (HSA). Þrír möguleikar ráðuneytis Í nýlegri stjórnsýsluúttekt Rík- isendurskoðunar á HSA er sér- staklega vikið að dvalarheimilinu og því beint til heilbrigðisráðu- neytisins að taka reksturinn til gagngerrar endurskoðunar. Bent var á að vistmenn væru í raun hjúkrunarsjúklingar sem ekki fengju þá faglegu þjónustu sem þeim bæri. „Aðstaða á Helgafelli og mönnun tekur ekki tillit til þessarar staðreyndar né heldur sú fjárveiting sem HSA fær fyrir rekstrinum. Þetta veldur bæði heimilismönnum og starfsmönnum Helgafells, sem allir eru ófaglærð- ir, óöryggi og vanlíðan að eigin sögn,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun sagði ráðu- neytið hafa þrjá möguleika; að leggja reksturinn niður, tryggja að þar séu einungis einstaklingar sem heima eiga á dvalarheimili eða skilgreina heimilið sem hjúkrunar- heimili. Ekki fæst fjármagn Andrés Skúlason, oddviti, Djúpavogshrepps, fundaði í gær með Ögmundi Jónassyni heilbrigð- isráðherra. Hann sagði fundinn hafa verið málefnalegan. „Málin verða skoðuð í samstarfi við HSA í næstu viku. Taka á mál- ið upp til betri skoðunar og hugs- anlega búa til nýtt módel um þessa stofnun. Það er því hvorki af né á í þessu,“ segir Andrés. Hann segir rýmin á dvalarheim- ilinu bitbeinið, það er hvort skil- greina eigi þau sem hjúkr- unarrými líkt og bærinn hefur viljað. Farið hefur verið fram á að fá sólarhringsvakt á dvalarheimilð en ekki fæst fjármagn til þess. Einar Rafn Haraldsson, for- stjóri HSA, segir eininguna of litla til að standa undir sér. Auk þess eru þarna vistmenn sem þurfa á meiri hjúkrun að halda en hægt er að láta í té. „En það er margt í bígerð og við erum að skoða hvað við getum gert í þessari stöðu.“ Dvalarheimilið var ekki byggt fyrir hjúkrun og því er hætta á að einhverja vistmenn verði að flytja annað. „Það er eins á öllum dval- arheimilum. Þegar fólk er orðið of veikt til að geta verið á heimilinu, miðað við þá þjónustu sem er veitt, er því boðið upp á önnur úr- ræði.“ Líkur á að flytja þurfi veika vistmenn annað Örlög Helgafells ráðast á næstunni                              !"     $% &%   # &%%&&     ' ()* (+,-    . - ///$%% &$    Í HNOTSKURN »Ögmundur Jónasson heil-brigðisráðherra fundaði með starfsfólki dvalarheim- ilisins Helgafells, bæjaryf- irvöldum á Djúpavogi og stjórnendum HSA í gær. »Ögmundur segir málið ískoðunarferli, reynt verði að koma í veg fyrir uppsagnir starfsfólks og tryggja þjón- ustu við íbúa Djúpavogs. »Fyrri ákvarðanir verða þvíendurskoðaðar. ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 42 04 0 04 .2 00 8 HÚN varð heldur fámenn í gærkvöldi, blysförin sem boðað var til svo þrýsta mætti á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um framboð til formanns- embættis Samfylkingarinnar. Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur boðaði til göngunnar með skömmum fyrirvara í gær en enginn mætti til að ganga með honum aðrir en blaðamenn og ljósmyndarar. Enginn mætti í blysförina Morgunblaðið/Ómar Þórhallur Vill ekki túlka mætinguna svo að stuðningur við Jóhönnu sé hverfandi, heldur hafi verið boðað til göngunnar með mjög litlum fyrirvara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.