Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
SKRÁÐ atvinnuleysi í febrúar síð-
astliðnum var 8,2% eða að meðaltali
13.276 manns, samkvæmt yfirliti frá
Vinnumálastofnun. Atvinnuleysið
eykst um 27% að meðaltali frá jan-
úar eða um 2.820 manns. Á sama
tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi
1%, eða 1.631 manns.
Atvinnuleysið milli janúar og febr-
úar jókst um 32% svo að heldur hef-
ur hægst á atvinnuleyisskráningum.
Karl Sigurðsson, forstöðumaður
vinnumálasviðs Vinnumálastofn-
unar, kveðst hafa það á tilfinning-
unni að enn hafi hægt á nýskrán-
ingum á atvinnuleyisskrá, það sem
af er þessum mánuði.
Í tölunni hér að framan er búið að
reikna inn þá sem eru í hlutastörfum
og fá því hlutabætur. Fjöldi atvinnu-
lausra á skrá í febrúar er því hærri
tala eða 15.485. Þar af eru 9.849
karlar og 5.636 konur.
Fjölmennasti hópur atvinnulausra
er á bilinu 25-29 ára, eða 2.537
manns. Ef atvinnuleysi ungs fólks er
skoðað, þ.e. aldurshópurinn 16 til 29
ára, kemur í ljós að fjöldinn er 5.845.
Eru það 37,7% af þeim sem skráðir
eru. Sambærileg tala fyrir janúar
var 39%.
Atvinnuleysi er nú mest á Suð-
urnesjum 13,5% en minnst á Vest-
fjörðum 1,8%. Atvinnuleysi eykst
um 31% á höfuðborgarsvæðinu en
um 20% á landsbyggðinni. Atvinnu-
leysi eykst um 28% meðal karla og
25% meðal kvenna. Atvinnuleysið er
9,4% meðal karla og 6,6% meðal
kvenna.
Flestir eru atvinnulausir í Reykja-
vík, eða 6.383. Næst koma Kópavog-
ur (1.487), Hafnarfjörður (1.251),
Reykjanesbær (1.228) og Akureyri
(1.189).
Þeir sem verið hafa á skrá lengur
en 6 mánuði voru 1.205 í lok febrúar
en 1.023 í lok janúar. Alls höfðu 296
verið atvinnulausir lengur en eitt ár í
febrúar en 273 í lok janúar. Þegar
atvinnuleysi eykst eins mikið og nú,
er mesta aukningin meðal þeirra
sem hafa verið atvinnulausir í
nokkrar vikur og mánuði, segir í yf-
irliti Vinnumálastofnunar.
Oft er frekar lítil breyting á at-
vinnuleysi frá febrúar til mars. Í
fyrra var atvinnuleysið svipað í báð-
um mánuðum og mældist 1%. Nú er
hins vegar mun meiri samdráttur í
hagkerfinu og má gera ráð fyrir
aukningu milli mánaða.
Horfurnar eru dökkar
„Gert er ráð fyrir áframhaldandi
samdrætti í mörgum atvinnugrein-
um, einkum verslun, mann-
virkjagerð og þjónustugreinum, á
næstu mánuðum, auk þess sem
mörg minni fyrirtæki eiga við mik-
inn fjárhagsvanda að stríða m.a.
vegna mikils fjármagnskostnaðar og
erfiðleika við öflun lánsfjár. Erfitt er
að áætla atvinnuleysi um þessar
mundir vegna mikillar óvissu í efna-
hagslífinu, en líklegt er að atvinnu-
leysið í mars 2009 muni aukast og
verða á bilinu 9,1%-9,6%,“ segir
Vinnumálastofnun.
Alls voru 1.956 erlendir ríkisborg-
arar án atvinnu í lok febrúar. Þar af
voru 1.264 Pólverjar eða um 65%
þeirra útlendinga sem voru á skrá í
lok febrúar. Langflestir hinna er-
lendu ríkisborgara voru starfandi í
byggingariðnaðinum eða 778. Eru
það um 40% erlendra ríkisborgara á
skrá. Aðrar fjölmennar greinar eru
verslun og ýmis þjónustustarfsemi.
Atvinnuleysi 8,2%
Fjöldi ungs fólks á atvinnuleysisskrá er 5.485 eða tæp 38%
1.956 útlendingar voru án atvinnu hérlendis í lok febrúar
SAMTALS voru 3.052 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok febrúar
í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með til-
fallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í febrúar. Eru þetta
19,7% af þeim, sem skráðir voru atvinnulausir í lok febrúar.
Einstaklingum sem fá greiddar hlutabætur hefur fjölgað eftir að lögin
um hlutabætur á móti minnkuðu starfshlutfalli voru samþykkt á Alþingi í
nóvember.
Í febrúar voru 1.017 sjálfstætt starfandi skráðir á atvinnuleysisskrá
vegna samdráttar í atvinnurekstri, samkvæmt áður nefndum lögum. Þeim
hefur fjölgað jafnt og þétt, voru 586 í lok janúar og 264 í lok desember.
Fólki í hlutastörfum fjölgar
Morgunblaðið/Golli
Atvinnuleysi Mest er atvinnuleysið í byggingariðnaði en einnig er talsvert atvinnuleysi meðal starfsfólks í verslun.
16.666
á atvinnuleysisskrá í dag
)&&% &
#0
12 13
14 15
22 23
24 25
52 53
54 55
62 63
64 65
72 73
74 75
81 83
)9
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„ÞAÐ sem þarf að gera er að sam-
ræma reglur, hafa þær gagnsæjar
og hafa þær einfaldar. Því miður er
það víða þannig í almannatrygginga-
kerfinu að mis-
munandi reglur
gilda eftir því
hvaða tekjur þú
hefur og hvaðan,“
segir Ásta Ragn-
heiður Jóhannes-
dóttir, félags- og
tryggingamála-
ráðherra.
Hún segir að
vinna við endur-
skoðun á þessum
málum sé í gangi í ráðuneytinu og
segist eiga von á að fá tillögur á
næstunni, sem verða síðan bornar
undir hagsmunaaðila. Ásta Ragn-
heiður segist telja mikilvægt að hafa
mikið samráð í þessum efnum, líkt
og fyrirrennari hennar hafi einnig
lagt áherslu á.
Ráðherra var spurður út í nýleg
mótmæli framkvæmdastjórnar
Landssambands eldri borgara vegna
endurkrafna Tryggingastofnunar
sem byggðust á óréttlátum reglu-
gerðum og lögum um að tekjutengja
vexti og verðbætur eins og um tekjur
væri að ræða.
Ásta Ragnheiður segir jafnframt
að ráðuneytið hafi óskað eftir því að
nefnd undir forystu Stefáns Ólafs-
sonar, prófessors, héldi áfram störf-
um og skoðaði ýmsa fleiri þætti í ljósi
efnahagsástandsins, en nefndin
vinnur að endurskoðun almanna-
tryggingakerfisins.
Fjárhagslegt sjálfstæði
Spurð um greiðsluþátttöku ein-
staklinga í daggjöldum á dvalar- og
hjúkrunarheimilum sagði Ásta
Ragnheiður að í sínum huga væri
daggjaldakerfið tímaskekkja. „Þetta
fyrirkomulag er hvergi viðhaft leng-
ur,“ sagði ráðherra.
„Nú er það þannig í nágranna-
löndunum að fólk heldur sínu fjár-
hagslega sjálfstæði þó það flytji á
dvalar- eða hjúkrunarheimili og
þannig á það að vera. Hjá okkur er
það þannig að ef þú kemur inn á öldr-
unarheimili þá hættirðu að fá
greiðslur frá Tryggingastofnun,
hættir að fá lífeyrinn þinn.
Í fyrsta lagi eigum við að vinna að
því að aldraðir geti verið sem lengst
heima hjá sér, en ef fólk þarf að
flytja á hjúkrunarheimili á það að
halda sínu fjárhagslega sjálfstæði.
Þessu er búið að breyta hjá fötluðum
sem búa á sambýlum,“ sagði Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags-
og tryggingamálaráðherra.
Samræma þarf
reglur − tillögur
á næstunni
Daggjaldakerfið tímaskekkja, segir
félags- og tryggingamálaráðherra
Morgunblaðið/Golli
Útivist Golf og pútt er skemmtileg og vin-
sæl íþrótt fyrir alla aldurshópa.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
nÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM
50%afslátturaf völdum vörum
Hornsófar, tungusófar
sófasett, rúm,
borðstofusett ofl.
aðeins í eina viku
takmarkað magn
SKIPVERJAR á netabátnum
Arnari í Hákoti SH 37 komu í land
með vogmey sem þeir fengu í netin
um 5 mílur norður af Ólafsvík. Var
hún 117 cm löng, 17 cm breið en
ekki nema 1,8 kg enda þunnvaxin.
Vogmær heldur sig suður af land-
inu en finnst stundum á fjörum.
Fundust tvær í fyrra, við Ólafsvík
og Hellissand.
Fengu vogmey í netin
Morgunblaðið/Alfons
Með vogmeyna Skipverjarnir Sigurður Garðarsson og Ástgeir Finnsson
með vogmeyna sem þeir fengu í netið fimm mílur norður af Ólafsvík.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir síbrota-
manni. Maðurinn braut margsinnis
af sér á tímabilinu ágúst 2008 til
febrúar sl. þegar hann var handtek-
inn. Maðurinn sætir varðhaldi til 1.
apríl nk. eða þar til dómur fellur í
máli hans.
Ákæra hefur verið gefin út á
hendur manninum. Hann er aðallega
sakaður um auðgunarbrot og önnur
fjármunabrot, þ. á m. fjölda nytja-
stulda á bifreiðum. Hann á að baki
töluverðan sakarferil og hefur marg-
oft verið dæmdur, oftast fyrir auðg-
unarbrot. andri@mbl.is
Brotamanni
haldið í gæslu