Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
EFTIR miklar umræður og á köfl-
um harðar deilur lauk fyrstu um-
ræðu um frumvarp forsætisráðherra
til stjórnskipunarlaga kl. 16 í gær og
gekk það til sérnefndar. Umræður
höfðu þá staðið yfir í alls rúmlega 12
stundir.
Ekki varð annars vart við um-
ræðuna en að þingmenn stjórn-
arflokkanna og bæði Framsóknar og
Frjálslynda flokksins stæðu einhuga
að baki frumvarpinu. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa á hinn bóg-
inn haft uppi mjög harða gagnrýni á
frumvarpið og ekki síður tildrög
þess og vinnubrögð. Verði breyting-
arnar samþykktar á þingi eftir kosn-
ingar og efnt verður til kjörs á
stjórnlagaþing, bendir fátt til annars
en að það verði í óþökk sjálfstæð-
ismanna og í harðvítugar deilur
stefni allt fram á síðari hluta ársins.
Við umræðurnar á Alþingi kom þó
stöku sinnum fram vilji til að ná sátt-
um um breytingar á stjórnarskrá.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
sem sló ekkert af gagnrýni sjálf-
stæðismanna á málið, sagði að ná
þyrfti samkomulagi og sátt um
breytingar á stjórnarskránni. Sjálf-
stæðismenn væru tilbúnir til þess ef
látið yrði á það reyna en það væri
ekki fullreynt. ,,Takið í okkar út-
réttu sáttahönd,“ sagði hún. Fleiri
þingmenn flokksins töluðu á sama
veg og sögðu skynsamlegra að setj-
ast niður og reyna að finna sem víð-
tækasta sátt um breytingar. Björn
Bjarnason orðar málamiðlun í pistli
á heimasíðu sinni og segir að sjálf-
stæðismenn gætu fellt sig við þá til-
lögu að 79. grein stjórnarskrárinnar
yrði breytt þannig að samþykkt Al-
þingis um breytingu á stjórn-
arskránni skyldi borin undir þjóðina
í sérstakri atkvæðagreiðslu og tæki
ekki gildi, nema hún væri samþykkt
í slíkri kosningu. Atli Gíslason,
Vinstri grænum, tók í streng sátta
undir lok umræðunnar í gær og
sagði að unnt ætti að vera að ná sátt
um málið í þingnefndinni.
Sjálfstæðismenn gagnrýna öll
fjögur efnisatriði frumvarpsins, þó
með nokkuð mismunandi áherslum.
Það hefur verið sem rauður þráður í
gagnrýni þeirra að ekki var haft
samráð við þá um samningu frum-
varpsins. Þá sé allt of skammur tími
ætlaður til að afgreiða svo mikils-
háttar breytingar og aðdragandinn
hafi verið allt of stuttur. Einnig
gagnrýna þeir harðlega forgangs-
röðun ríkisstjórnarinnar.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði það illa til
fundið hjá ríkisstjórninni að ætla að
hrapa að slíkum breytingum á síð-
ustu dögum þingsins, án þess að um
slíkt mál hefði verið haft eðlilegt
samráð og samstarf eins og æv-
inlega hefði verið gert þegar slík mál
hefðu verið á ferðinni á und-
anförnum áratugum. Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra mót-
mælti og rifjaði upp að árið 2007
fluttu þáverandi formenn stjórn-
arflokkanna tillögu til breytingar á
stjórnarskrá án þess að allir flokkar
kæmu þar að máli.
Margir þingmenn Sjálfstæð-
isflokks vöruðu mjög við ákvæði um
þjóðareign á auðlindum, orðalagið
væri slíkt að það ylli mikilli rétt-
aróvissu. Gagnrýnin beindist ekki
síður að stjórnlagaþinginu. Sjálf-
stæðismenn hefðu þó alls ekki hafn-
að hugmyndum um stjórnlagaþing
en þeir tækju ekki í mál að Alþingi
gæfi frá sér hlutverkið að vera
stjórnarskrárgjafi og yrði í staðinn
aðeins ráðgefandi.
Gagnrýna
frumvarpið
en vilja sátt
ANNIR hafa færst mjög í aukana á Alþingi seinustu daga. Þingfundir hafa
staðið yfir langt fram eftir kvöldi með löngum umræðum um umdeild mál
hvert kvöld vikunnar. Í gær lauk fyrstu umræðu um stjórnskipunarfrum-
varp ríkisstjórnarflokkanna og Framsóknarflokks og Frjálslynda flokks-
ins. Síðdegis var boðað til þingfundar á ný þar sem mælt var fyrir stjórn-
arfrumvörpum. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og
tryggingamálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um atvinnuleysistrygg-
ingar, Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um
auknar heimildir sérstaks saksóknara vegna efnahagshrunsins. Þá fór af
stað heit umræða um mál iðnaðarráðherra um samninga um álver í Helgu-
vík. Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag.
Morgunblaðið/Golli
Fundir fram á hvert kvöld
og þingstörfin þenjast út
Hvar er stjórnlagafrumvarpið
nú niðurkomið á þinginu?
Sérnefnd Alþingis sem fjallar um
tillögur að breytingum á stjórn-
arskránni hefur nú fengið frum-
varpið til meðferðar. Í henni sitja
níu þingmenn.
Hverjir standa að frumvarp-
inu?
Forystumenn Samfylkingar,
Vinstri grænna, Framsóknarflokks
og Frjálslynda flokksins.
Hvað felst í frumvarpinu?
Ákvæði um náttúruauðlindir og
umhverfismál, um þjóð-
aratkvæðagreiðslur, um breyttar
aðferðir við að breyta stjórn-
arskránni og tillaga um stjórn-
lagaþing.
S&S
„EVA [Joly] hef-
ur bent á að rann-
sóknin komi til
með að verða al-
þjóðleg og hún
býr yfir miklum
samböndum og
reynslu á þeim
vettvangi. Myndi
hún geta nýst og
bent þeim yfir-
völdum sem með rannsóknina fara
bæði á þær leiðir sem unnt er að fara
og einnig að koma með sambönd við
saksóknara og aðra sem eru í henn-
ar tengslaneti,“ sagði Ragna Árna-
dóttir dómsmálaráðherra á Alþingi í
gær um hlutverk Evu Joly og ráð-
gjöf hennar við rannsóknir í
tengslum við bankahrunið.
Safna saman fólki sem
vinnur við rannsóknina
Ragna mælti fyrir frumvarpi sem
eykur heimildir sérstaks saksókn-
ara. Vék hún m.a. að þeim ummæl-
um Evu Joly að fjölga þurfi starfs-
mönnum sérstaks saksóknara. „Ég
bendi á í því sambandi, að töluverður
fjöldi fólks vinnur þegar að rann-
sókninni, [en] á ýmsum stöðum. Ég
get vel ímyndað mér að það sé hægt
að koma því þannig fyrir að safna
einhverju af þessu starfsfólki saman
á einn stað og þannig stuðla að fjöl-
mennri rannsókn, sem tekur á öllum
þáttum málsins,“ sagði hún.
Sambönd
við erlenda
saksóknara
Ragna Árnadóttir
„ÉG dreg ekki dul á andstöðu
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs við stóriðjuna og það
verkefni sérstaklega sem hér er á
ferð. En ég hlýt að benda á að það
er ótrúlegt ábyrgðarleysi sem
kemur hér fram í orðum hæstvirts
ráðherra og þeirra tveggja þing-
manna Suðurkjördæmis sem hér
hafa talað þegar þeir eru að vekja
falsvonir, sem ég vil kalla, um að
þetta verkefni muni bjarga at-
vinnuástandi á Suðurlandi og Suð-
urnesjum og skila á næstu árum
allt að 8 til 9 þúsund ársverkum
[…].“ Þetta sagði Álfheiður Inga-
dóttir, Vg, um ummæli í ræðu Öss-
urar Skarphéðinssonar iðn-
aðarráðherra við umræður um
heimild til samninga um álver í
Helguvík. Verkefnið væri „í bull-
andi óvissu“. Skoraði hún á Össur
að aflétta leyndinni af orkuverði til
stóriðjunnar. Össur lofaði að bera
þau boð til fjármálaráðherra að af-
létta leyndinni, því það væri hann
sem færi með hlut ríkisins í orku-
fyrirtækinu. omfr@mbl.is
„Ótrúlegt
ábyrgðarleysi“
570 2400 og fáðu öruggari öryggishnapp!Hringdu í
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
1
0
2
Ertu ekki örugglega með
öruggari öryggishnapp?
Hjá Öryggismiðstöðinni eru hjúkrunarfræðingar
á vakt allan sólarhringinn.
www.oryggi.is