Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 23
Umræðan 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
MÖGULEIKAR í
heilbrigðisþjónustunni
eru mikilvægir nú þegar
við stöndum frammi fyr-
ir því að líf okkar hefur
tekið kollsteypu og við
þurfum að horfa til allra
krafta til að byggja upp
atvinnu á Íslandi. Við
vitum að heilsan er mik-
ilvægasta eign hvers
einstaklings og mark-
aður er fyrir heilbrigðisþjónustu. Á-
ríðandi er að við leggjum vinnu í að
kanna möguleika á að flytja inn
sjúklinga til læknismeð-
ferðar. Á Íslandi er besta
heilbrigðisþjónusta sem
þekkist í heiminum. Þetta
get ég fullyrt eftir að hafa
kynnt mér þjónustuna
bæði á Norðurlöndum og í
Ameríku.
Vandamálið á Norð-
urlöndum er biðtímar, sem
Íslendingar myndu aldrei
sætta sig við, og í Ameríku
er það gjaldið, sem fáir
geta borgað.Við getum
boðið Norðurlandabúum
og jafnvel öðrum Evrópubúum mun
styttri biðtíma og betri þjónustu en
þeir eru vanir og Ameríkönum mun
betra verð og sambærilega ef ekki
betri þjónustu. Nauðsynlegt er að
vinna markaðsstarfið erlendis og
búa til umgjörð um flutninga sjúk-
linga og þjónustu við þá hér á landi.
Ég hef ekki áhyggjur af lækn-
ismeðferðinni eða endurhæfingunni,
þar sem ég veit að bæði Landspít-
alinn og læknastöðvar geta veitt
fyrsta flokks þjónustu. Veiki hlekk-
urinn í þessu er umgjörðin að öðru
leyti. Þetta þarf næsta ríkistjórn
ásamt þeim, sem geta veitt heil-
brigðisþjónustu með þeim sem geta
skapað umgjörð um flutninga og að-
búnað sjúklinga, að vinna af krafti til
að skapa vinnu og gjaldeyristekjur.
Þessi leið myndi um leið hjálpa okk-
ur að tryggja að læknar og annað
heilbrigðisstarfsfólk yfirgefi ekki Ís-
land vegna ónógrar vinnu en einnig
auka líkur á að læknar, sem starfa
erlendis komi heim aftur. Orku-
húsið, sem býður upp á sérhæfða
þjónustu á sviði bæklunarlækninga,
er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur
aðstöðu og kraft til að taka þátt í
þessari vinnu. Þar eru hundrað
starfsmenn tilbúnir að leggja sitt að
mörkum, en fleiri einstaklingar, fyr-
irtæki eða stofnanir þurfa að leggja
hönd á plóg.
Heilbrigðisþjónusta og gjaldeyristekjur
Eftir Sveinbjörn
Brandsson
Sveinbjörn
Brandsson
Höfundur er bæklunarskurðlæknir
og sækist eftir 7.–8. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
ÉG HEF ákveðið að
bjóða fram krafta mína í
þeirri uppbyggingu sem
framundan er. Það er eitt
af forgangsverkefnum
okkar að bæta stöðu og
velferð fjölskyldna. Það
eru ýmsir þættir sem hafa
áhrif á velferð þeirra og
efast enginn um mik-
ilvægi efnahagslegs ör-
yggis í því samhengi og
öruggrar atvinnu. Það eru líka fleiri
þættir sem skipta máli eins og náin
og örugg tengsl, hæfni til að koma til
móts við hvert annað, getan til leysa
út ágreiningi og félagslegur stuðn-
ingur.
Stór hluti barna á tvö heimili. Sum
búa hjá einhleypum foreldrum og/
eða í stjúpfjölskyldum þar sem ann-
að eða báðir foreldrar hafa eignast
nýjan maka. Fjölskyldustefna þarf
að taka mið af fjölbreytileika fjöl-
skyldugerða. Breyta þarf skattalög-
um til að tryggja að meðlagsgreið-
endur teljist foreldrar og njóti
barnabóta til jafns við aðra foreldra.
Tryggja þarf að allir foreldrar,
óháð forsjá eða hjúskaparstöðu, hafi
jafnan aðgang að upplýsingum um
börn sín frá skóla og heilbrigðisþjón-
ustu. Til að draga úr stéttaskiptingu
þarf öll heilsugæsla, námsbækur og
annar stuðningur að vera aðgengi-
legur börnum og ungmennum þeim
að kostnaðarlausu.
Efla þarf lýðræðisleg vinnubrögð í
stjórnmálum. Þátttaka almennings
er mikilvæg og ég styð tillögur um
þjóðaratkvæðagreiðslu
og aukið íbúalýðræði.
Í dag er u.þ.b. 77%
orkuframleiðslu nýtt til
mengandi stóriðju. Við
eigum að nota okkar
grænu orku til að byggja
upp vistvænni atvinnu-
vegi.
Mikilvægt er að efla
ferðaþjónustu með
áherslu á náttúruskoðun,
koma upp eldfjallagarði
á Reykjanesi, hefja út-
flutning á lífrænt rækt-
uðu grænmeti, byggja upp hátækni-
iðnað og þróa nýstárlega orkugjafa.
Ég er formaður og einn af stofn-
endum íbúasamtakanna Sól í
Straumi og jafnframt formaður Fé-
lags stjúpfjölskyldna. Fram-
kvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags
Íslands, stundakennari við HÍ og
held úti vefsíðunni – www.stjup-
tengsl.is
Fjölbreyttar fjöl-
skyldugerðir og vist-
vænna atvinnulíf
Eftir Valgerði
Halldórsdóttur
Valgerður
Halldórsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi og gefur
kost á sér í 2.-4. sæti í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í SV.
Drífa Hjartardóttir | Hvatning til
kjósenda
Einar Guðjónsson | Kjósum ekki
sveitarstjórnarmenn á Alþingi
Vífill Karlsson | Ásbjörn
Óttarsson til forystu
Hallgrímur Egilsson | Dögg hefur
þekkingu og reynslu
Gestur Gunnarsson | Kjarnakona
Meira: mbl.is/kosningar
Með og á móti
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
GUÐMUND KJARTANSSON
HAGFRÆÐING
Í 3-4 SÆTI Í REYKJAVÍK!
SJÁFSTÆÐISMENN!
Sameinumst um sterkan lista!
Ég býð mig fram í 3-4 sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu
í Reykjavík 13-14 mars.
Helstu áherslur og greinaskrif
mín er að finna á www.xd.is eða
www.profkjor.is/gudmundur.
Ég hef tekið þátt í opinberri
umræðu um stjórnmál og efna-
hagsmál m.a. á Útvarpi Sögu FM
99.4, þar sem ég verð á nk.
fimmtudag, 12 mars kl. 16:30.