Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkin með poka, streng-
jasetti og stilliflautu. 1/2 stærð
kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900.
3/4 kr. 10900. 4/4 kr. 12.900. Raf-
magnsgítarpakkar frá kr. 29.900.
Hljómborð frá kr. 17.900. Trom-
musett kr. 49.900 með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27
sími 552 2125
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
Til leigu.
3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr í
Miðtúni ( 105). Laus strax.
Upplýsingar í síma 692 9267
37 fm gluggalaus stúdíóíbúð
á 45 þús/m.
Snyrtileg og nýuppgerð með sér-
inngangi og fullbúin húsgögnum.
Örfáir metrar í þjónustukjarna og
strætóstöð. Rafm. + hiti innif.
45 þús/mán. Uppl. í síma 892-8699.
Húsnæði óskast
Einbýlishús óskast
Traustur aðili óskar eftir að leigja
einbýlishús / raðhús / parhús
á höfuðborgarsvæðinu. Leigutími
a.m.k. 1-2 ár, og þarf að afhendast
fljótlega. Vinsamlegast sendið
upplýsingar á shipbrokers@simnet.is
eða hringið í síma 897 2783.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu iðnaðarhúsnæði
Til leigu 415 fm iðnaðarhús með 5 m
lofthæð og 2 stórum innkeyrsludyrum
á besta stað í Kópavogi, með mikilli
umferð og góðu auglýsingagildi.
2 bílalyftur geta fylgt í leigu, mjög
góð aðstaða fyrir framan húsið.
Uppl. í s: 820-5207.
Sumarhús
Sumarhús eða ferðaþjónustuhús
Vandað sænskt bjálkaklæðningarhús
með einangrun og panilklæðningu að
nnan. Löng og góð reynsla hér á
andi. Þetta 32 fm hús er á sérlega
góðu verði. Geymsluhús á góðu verði,
5-15 fm. Stuttur afgreiðslufrestur
JABO HÚS,
Ármúla 36,
sími 581 4070,
www.jabohus.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Nýkominn
matarlitur
7 mismundandi litir
Verð kr. 495
Fermingarkirtlar
Til sölu þrír fermingarkirtlar,
stærðir 42, 44 og 46. Fást á hálfvirði,
einnig til sölu lénið fermingar.is
Uppl. í síma: 861 0000/
fristundahus@gmail.com
Verslun
Íslenskir trúlofunar- og
giftingarhringar
Gott úrval og verð við allra hæfi
(frá 16.000,- par með áletrun).
Parið að ofan 14k/585 4,5 mm kúptir,
kr. 50.220,- ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
Skattframtöl
Skattframtal 2009
fyrir einstaklinga. Hagstætt verð.
Sjáum um eldri framtöl og kærur.
Einnig bókhald, vsk.-skil, heimasíður,
lén o.fl. Dignus ehf. - dignus.is -
s: 699-5023.
Framtal 2009
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga,
rekstraraðila og félög - mikil reynsla -
hagstætt verð. Uppl. í síma 5173977.
Netfang: framtal@visir.is
Þjónusta
GULLSKARTGRIPIR - GULL
Kaupum til bræðslu allar tegundir
gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta,
gegn staðgreiðslu. demantar.is
Magnús Steinþórsson,
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Málningarvinna
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Ýmislegt
Lagersala
Eldhúsvaskar
frá kr. 3.900
Blöndunartæki
frá kr. 3.900
Baðspeglar
frá kr. 990
Norðurhella 10
Hafnarfirði
símar 894 1411/861 7540
Opið mán-fös 12-18,
helgar 12-16
Vönduð svört dömustígvél úr
mjúku leðri og með flís fóðri.
Verð: 21.650.- og 22.875.-
Misty skór Laugavegi 178
sími 551 2070
opið: mán - fös 10 - 18
lau 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
TILBOÐ
Herrainniskór á tilboðsverði
Tvö verð 900 og 1900
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Teg. 11007 vel fylltur BH, stækkar
þig um eina stærð, fæst í BC skálum
á kr. 1.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.- fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bílar
BMW X5 árg. '07 ek. 26 þús. km
sem nýr X5 diesel (umboðsbíll), 4x4,
leður, krókur, CD, iPod stýring, fjar-
lægðarskynjar, regnskynjari. Xenon
ljós, handfrjáls búnaður og fleira.
Verð stgr. 7900 þús. Uppl. 8442110
Bílar óskast
Óska eftir station-bíl
Verðhugmynd 150 þús.
Upplýsingar í síma 844 1011.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Vinnuvélar
FULLBÚINN SENDIBÍLL –
HAGSTÆTT VERÐ. Nýr Isuzu NQR
75 heildarþyngd 7500 kg. Vélarstærð
190hö, sjálfskiptur, 6 gíra,MBB 1500
kg vörulyfta. Vandaður 20 m3 vöru-
kassi.
Upplýsingar: Vélheimar ehf.
Eirhöfða 14, sími 587 5414.
Þjónustuauglýsingar 5691100
60 fm íbúð á rólegum stað í 101
2-3 herbergja íbúð á efstu hæð í
þríbýli við Bragagötu. Stórt svefn-
herbergi, vinnuherbergi, eldhús og
stofa í sama rými. Sérinngangur og
aðgangur að garði. Leiga 120 þús.
Upplýsingar í síma 867 4265.
fögnuðum á heimili Páls og Gyðu.
Um tíma var ekki píanó á heim-
ilinu og þótti ekki tiltökumál þá að
leigja píanó með tilheyrandi um-
stangi svo Unnur gæti spilað undir
söng þegar fagnað var á stórafmæli
Gyðu. Þar var sungið, þar var dans-
að og þar ríkti gleði. Seint gleymist
söngur með undirleik Unnar í erfi-
drykkju Páls í Goðheimunum og
var ekki dregið af í fjöldasöngnum
og lék Unnur þá af list þegar sung-
ið var Efst á Arnarvatnshæðum.
Unnur var stórglæsileg og veitti
af rausn af hæfileikum sínum og
hún lét aldrei falla styggðaryrði um
nokkurn. Hún var góður félagi
hvort sem var brunandi á skíðum
eða í skógræktarferðum með niðj-
um Reykholtssystkina berfætt í
skónum með rós í ljósu hárinu. Við
kveðjum Unni og það hvarflar að
okkur að nú „hlusti, englar Guðs í
Paradís“.
Fyrir hönd afkomenda Páls og
Gyðu,
Inga Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Við andlátsfregn Unnar Eyfells
er ekki laust við að hugurinn reiki
aftur til 6. og 7. áratugarins. Ára-
tuga sem mörgum er hugleikinn
og minnisstæður vegna þeirrar
sérstöðu að þá var efnahagur al-
mennings að vænkast. Foreldrar
okkar byggðu sér hús á Selvogs-
grunni 6. Unnur og Einar byggðu
nr. 10 – eitt hús á milli. Var sam-
gangur mikill. Í þessu sambandi
má ekki má gleyma Steinu og
Böðvari á nr. 13. Þessi þrenning
var mikið saman, m.a. voru farnar
eftirminnilegar ferðir til Spánar
þar sem Unnur og Einar áttu hús.
Þau eru nú öll horfin úr þessum
heimi. Munum við systkinin ekki
eftir okkur öðruvísi en að Unnur
hafi verið nálæg. Það fór ekki á
milli mála þar sem Unnur var, svo
áberandi var hún á mannamótum.
Hún lærði söng hjá Maríu Markan
og spilaði á píanó. Oft stóð hún úti
á tröppum og söng fyrir Selvogs-
grunninn og hélt hún þeim sið al-
veg fram á síðasta dag. Skíða- og
skautaiðkun voru íþróttagreinar
Unnu og Einars. Á hverjum laug-
ar- og sunnudegi að vetri til var
farið í fjöllin á skíði, gjarnan í
Hveradali eða Hengilinn. Á sumr-
in var farið í Kerlingafjöll þar sem
sumarhúsið var. Á efri árum
dvaldi hún þar sem starfsmaður
skíðaskólans í nokkur ár. Oft á
vetrum fengum við að fara með á
skíði ef pláss var í bílnum. Mun-
um við eftir nokkrum árum þar
sem bálköstur var hlaðinn eftir
áramótin í holtinu þar sem nú er
Jökulgrunn. Var sungið og spilað
þar sem Unnur stjórnaði söng að
sjálfsögðu og Eiríkur forstjóri
SVR spilaði á harmónikku. Unnur
var virkur félagi í Þjóðdansafélag-
inu og var álfadrottning á þrett-
ándanum í mörg ár. Í áraraðir sá
hún um að klæða fjallkonuna 17.
júní. Er minnisstætt hvað hún
vakti mikla athygli 17. júní sl. í
sínum þjóðbúningi glæsileg að
vanda. Útlendingar voru mjög
hrifnir og tóku margar myndir af
henni.
Árin líða, við krakkarnir flytjum
burt af grunninum svo og flestir
aðrir frumbyggjar, en ekki Unnur.
Þegar Unnur gerðist félagi í
Gerðubergskórnum sem hefur höf-
uðstöðvar í Efra-Breiðholti nýttust
félagskraftar hennar til fulls.
Komu hæfileikar hennar vel í ljós í
þeim félagsskap hvort heldur var
verið að syngja á almennri sam-
komu hjá eldriborgurum eða í
kirkjunni. Ef enginn var til að spila
á píanóið var Unnur fengin til að
hlaupa í skarðið; ef Kári komst
ekki til að stjórna þá stjórnaði
Unnur og ef enginn var til að
syngja einsöng þá söng Unnur.
Starf hennar á efri árum er lýsandi
dæmi um lífshlaup hennar, ávallt
tilbúin að skemmta og gleðja aðra.
Unnur var einnig virkur þátttak-
andi í Vinabandinu sem skemmtir
víða á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Það verða ekki bara við sem ól-
umst upp með Unni sem munum
sárt sakna hennar, það gera eflaust
margir sem ekki þekktu hana mik-
ið, slík var nærvera hennar.
Ingibjörg, Margrét og fjölskyld-
ur, við systkinin sendum ykkur
samúðarkveður við fráfall glæsi-
legrar og minnisstæðrar konu.
Guð blessi minningu Unnar Ey-
fells.
Gunnar, Sigurður og Ingibjörg.
Það var sumarnótt eins og hún
gerist best, lognkyrr fjörður, angan
af birki og þá komst þú. Farþegi í
flutningabíl sem var að koma fær-
andi varning til mín og minna
manna, í afskekktan fjörð fyrir
vestan, ég að leggja háspennulínur
yfir hálendi Vestfjarða og þú að
heimsækja dóttur þína.
„Hún er hótelstjóri í Vatnsfirði!“
sagðir þú með stolti og glettni í
augum, „komdu og heimsóttu okk-
ur“ sagðir þú og ég gerði það.
Við hótelstjórinn áttum svo sam-
leið í mörg ár, eignuðumst dóttur
og byggðum bú. Og alltaf varst þú
með, örvaðir, hvattir, skammaðir
og söngst gleðina í hjörtu okkar
allra.
Ég sakna þín Unna mín.
Kveðja,
Gísli Pálsson.
Unnur Nikulásdóttir Eyfells
Fleiri minningargreinar um Unni
Nikulásdóttur Eyfells bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu daga.