Morgunblaðið - 12.03.2009, Page 43
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
White Suit Getting Brown og
bjuggu í kristilegri kommúnu á með-
an. Gísli Ein-
arsson úr Foreign
Monkeys mixaði
svo upptökurnar
og skilaði góðri
vinnu. White Suit
Getting Brown er
indí-rokk plata af
bestu gerð, heilsteypt og öll vinna
við hana til fyrirmyndar.
Ef einhverjir ætla að dæma Jack
London fyrirfram út af því að hljóm-
sveitin telst kristileg þá eru þeir hin-
ir sömu að missa af miklu. Trúar
þeirra gætir ekkert í tónlistinni fyrir
utan að textarnir verða að teljast fal-
FYRSTA breiðskífa Jack London
verður að teljast afbragðs gripur.
Jack London er um fjögurra ára
gömul hljómsveit skipuð piltum sem
hittust allir í gegnum Fíladelfíukirkj-
una, þvílík heppni fyrir okkur hin.
Þeir fóru til Chicago fyrir meira
en ári síðan þar sem þeir hljóðrituðu
legri en oft gengur og gerist í rokk-
inu.
Jack London er eðal-rokk-
hljómsveit eins og þessi fyrsta
skífa þeirra ber með sér. Lögin
hafa yfir sér „gamaldags“ yf-
irbragð og er stundum eins og
maður sé að hlusta á tónlist frá átt-
unda áratugnum, Led Zeppelin
skaut stundum upp kollinum við
hlustunina. Erfitt er að benda á
eitthvert lag betra en annað en lag
samnefnt plötunni er eitt af þeim
sem standa upp úr auk upphafs-
lagsins.
White Suit Getting Brown er
eiguleg skífa eins og áður segir og
ekki bara fyrir rokkara.
Orkumikið rokk
Jack London
– White Suit Getting Brown
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
TÓNLIST
UNDANFARIN misseri hefur fé-
lagsskapur raftónlistarmanna
staðið að tónlistarkvöldum sem
kennd eru við Weirdcore, tónlist
sem lýsir sér í vel tilrauna-
kenndri raftónlist. Fyrsta Weir-
dcore-kvöld ársins verður haldið í
kvöld á Cafe Cultura.
Vaninn er að þrjár raftónlist-
arsveitir komi fram á hverju
slíku kvöldi og verður ekki
brugðið út af vananum að þessu
sinni því fram koma Skurken,
Klive og dúettinn Sykur.
Kvöldið byrjar klukkan 21 á
Cafe Cultura og er frítt inn.
Áhugasömum má einnig benda
á að Weirdcore-félagsskapurinn
gaf út safnskífu á síðasta ári sem
sækja má ókeypis á slóðina
http://www.weirdcore.com.
Lifandi raftónlist
Weirdcore Dúettinn Sykur leikur
fjöruga raftónlist.
SJÓNVARPSÞÁTTURINN Heroes
komst í fréttirnar á dögunum þegar
sagt var frá því að atriði eitt í þátt-
unum þar sem persóna Hayden Pa-
nettiere sækir um vinnu í mynda-
sögubúð, líkist atriði úr
kvikmyndinni Astrópíu með Ragn-
hildi Steinunni í aðalhlutverki.
Það er annars af Panettiere að
frétta að hún er nú sökuð um að
eyðileggja fyrir fyrrum kærasta
sínum og meðleikara í þáttunum,
Milo Ventimiglia. Sameiginlegur
vinur þeirra heldur því fram að Pa-
nettiere reyni allt hvað hún getur
til að fá Ventimiglia rekinn úr þátt-
unum og neitar stúlkan að láta sjá
sig í kvikmyndaverinu þegar hann
er á svæðinu. Leikaraparið hætti
saman í febrúar á þessu ári eftir að
Panettiere fékk leið á Ventimiglia,
að því er fram kom í erlendum slúð-
urblöðum. Var aldursmunur þeirra
einnig talinn vera hluti af vand-
anum.
Kræf Hayden Panettiere
Köld eru
kvennaráð
INDVERSKA leikkonan Freida
Pinto sem skaust upp á stjörnuhim-
ininn með verðlaunamyndinni Slum-
dog Millionaire hefur ákveðið að
segja skilið við heimaborg sína
Mumbai í Indlandi og flytja til New
York. Ástæðan mun vera sú að Pinto
er harðákveðin í að verða leikkona og
telur að það gæti aukið möguleika
hennar töluvert að búa í New York.
Þrátt fyrir að Slumdog Millionaire
hafi verið fyrsta og eina hlutverk
Pinto hingað til, er hún viss um að
hún muni fá verkefni í bandarískum
kvikmyndum. „Ég er samt ekki viss
um að Slumdog... hafi sýnt fram á alla
mína hæfileika og það verður að segj-
ast að ég lít ekkert alltof vel út í
myndinni, með ör á andlitinu og glóð-
arauga. Ég vona bara það besta.“
Fyrirsæta Hin forkunnarfagra
Pinto sýndi á Dolce & Gabbana sýn-
ingunni í Milan í síðustu viku.
Flytur frá
Mumbai til
New York