Morgunblaðið - 28.04.2009, Side 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
4 5 6 8
3
2 6 1 3 7
5 9 1 4
3
8 5
9 5
7 4 8
6 9
3 2 6
7 1
2
9
2 7 8 1 4
4 5 2 6
2 9
6 8
1 4 5
1
4 9 5 2 6
5 1
9
9 3 2 5 1
5 7 8
7 6 8 3
6 9 5 4
3
4 7 8 1 6 3 2 9 5
3 6 2 5 7 9 1 8 4
1 5 9 2 4 8 3 7 6
2 9 1 6 5 7 8 4 3
7 8 6 4 3 1 9 5 2
5 3 4 9 8 2 6 1 7
8 2 3 7 9 4 5 6 1
9 4 5 3 1 6 7 2 8
6 1 7 8 2 5 4 3 9
1 3 4 2 7 6 8 9 5
8 9 6 3 5 1 4 2 7
2 7 5 8 9 4 1 6 3
6 8 3 4 2 7 9 5 1
7 4 9 5 1 3 6 8 2
5 1 2 9 6 8 7 3 4
9 5 7 6 4 2 3 1 8
3 6 1 7 8 5 2 4 9
4 2 8 1 3 9 5 7 6
1 6 9 2 5 3 4 8 7
5 7 3 6 4 8 1 9 2
8 4 2 9 1 7 6 3 5
6 3 1 7 2 4 9 5 8
7 5 4 8 3 9 2 1 6
9 2 8 5 6 1 7 4 3
2 8 5 1 9 6 3 7 4
3 9 6 4 7 5 8 2 1
4 1 7 3 8 2 5 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 28. apríl, 118. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Víkverji er gallharður Þórsari ogfagnar því að félagið eigi loksins
sinn fulltrúa á hinu háa Alþingi Ís-
lendinga. Þór Saari, nýbakaður þing-
maður Borgarahreyfingarinnar, staf-
setur nafnið raunar ekki alveg rétt en
það er sama. Víkverji lítur á hann
sem sinn mann á löggjafarsamkund-
unni.
x x x
Víkverji óskar Ryan Giggs, útherj-anum knáa hjá Manchester
United, til hamingju með nafnbótina
leikmaður ársins í ensku knattspyrn-
unni. Það voru samtök leikmanna
sjálfra (PFA) sem stóðu að útnefning-
unni. Þetta er í fyrsta skipti sem hinn
35 ára Giggs hreppir hnossið en hann
er sem kunnugt er sigursælasti leik-
maður ensku knattspyrnunnar frá
upphafi, hefur unnið tíu meistaratitla
með liði sínu, auk fjölda bikara af
ýmsu tagi. Eigi einhver leikmaður
skilið umsögnina „goðsögn í lifanda
lífi“ er það Ryan Giggs. Hann hefur
verið frábær fulltrúi íþróttar sinnar í
átján ár – innan vallar sem utan.
Giggs hefur meðal annars lengi
verið í forystusveit sparkenda sem
sagt hafa kynþáttafordómum stríð á
hendur en hann á þeldökkan föður.
Giggs hefur gengið í endurnýjun
lífdaga í vetur og leikur nú á ný lyk-
ilhlutverk í liði United. Hann var í
hlutverki varaskeifunnar í fyrra.
x x x
Enda þótt Víkverji samgleðjistGiggs hefði hann ekki greitt
honum sitt atkvæði að þessu sinni –
hefði hann verið kjörgengur. Það
hefði fallið Steven Gerrard, fyrirliða
Liverpool, í skaut. Hann hefur að áliti
Víkverja borið höfuð og herðar yfir
aðra leikmenn í úrvalsdeildinni í vet-
ur. Næstur á blað hefði verið Wayne
Rooney, sem farið hefur á kostum í
liði Manchester United, en hann var
merkilegt nokk ekki í hópi sex efstu
manna hjá PFA.
Víkverji ítrekar hér gamla gagn-
rýni á kjörið: Það er gengið alltof
snemma til atkvæða. Fróðlegt verður
að sjá hvern samtök sparkfrétta-
manna velja bestan í vor.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 á ný, 4 glennir
út, 7 svalur, 8 guðinn, 9
álít, 11 framkvæma, 13
mæli, 14 þekkja, 15 beiti-
lands, 17 hestur, 20
þjóta, 22 sprengiefni, 23
árum, 24 vætuna, 25
ráfa.
Lóðrétt | 1 tormerki, 2
blásturshljóðfærið, 3 lé-
legt, 4 þægileg við-
ureignar, 5 hafna, 6
dreg í efa, 10 rík, 12
keyra, 13 verkur, 15
stökkva, 16 kvenguð, 18
ginni, 19 hæsi, 20 hús-
dýrið, 21 hefur eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mannsefni, 8 suddi, 9 guldu, 10 tær, 11 riðla,
13 augun, 15 hræða, 18 salla, 21 rit, 22 launi, 23 ostur,
24 mannamáls.
Lóðrétt: 2 andúð, 3 neita, 4 eigra, 5 nálæg, 6 ásar, 7
kunn, 12 lið, 14 una, 15 hóls, 16 æruna, 17 arinn, 18
storm, 19 lítil, 20 aðra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 Db6 6. Rb3 e6 7. Bd3 a6 8.
O-O d6 9. Be3 Dc7 10. f4 b5 11. Df3 Bb7
12. Dh3 Be7 13. Hae1 0-0 14. Hf3 Rb4
15. Hg3 Kh8 16. Rd4 g6 17. f5 gxf5 18.
Rxf5 exf5 19. Bd4 f4
Staðan kom upp á alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótinu sem lauk fyrir nokkru
í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu. Ítalski alþjóðlegi meistarinn Dani-
ele Vocaturo (2.445) vakti athygli á
mótinu fyrir vasklega taflmennsku og
hér hafði hann hvítt gegn stórmeist-
aranum Mihailo Oleksienko (2.551) frá
Úkraínu. 20. Hf1! fxg3 21. Hxf6 Db6 22.
Bxb6 Bxf6 23. Dd7 gxh2+ 24. Kh1
Rxd3 25. cxd3 Bc8 26. Dxd6 hvítur
stendur nú til vinnings. Framhaldið
varð: 26. … Be6 27. d4 Bg7 28. d5 Bg4
29. Df4 Bd7 30. e5 Hac8 31. Bd4 b4 32.
Re4 Hcd8 33. Rf6 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ekkert grín.
Norður
♠32
♥ÁK943
♦K10
♣ÁG82
Vestur Austur
♠9 ♠G876
♥G8762 ♥D105
♦6 ♦ÁD832
♣D96543 ♣7
Suður
♠ÁKD1054
♥--
♦G9754
♣K10
Suður spilar 4♠.
Bæði NS-pörin í úrslitaleik Grant
Thorntons og Eyktar hnusuðu af
spaðaslemmu, en stönsuðu í 4♠ að vel
athuguðu máli. Á yfirborðinu er spilið
sterkt, en ólegan kraumar undir niðri.
Vestur kom út með einspilið í tígli,
austur tók á ♦Á-D, spilaði þriðja tígl-
inum og vestur trompaði með níu. Bók-
in mætt. Nú verður vestur að spila
laufi, en ekki hjarta. Það gerðu báðir
vestmennirnir að beiðni félaga síns,
sem hafði af nákvæmni valið ♦2 til
stungunnar. Sagnhafi tók laufið heima,
lagði niður ♠Á og sá leguna. Ætlaði
svo að rjúka inn í borð á ♣Á til að svína
fyrir ♠G, en þá trompaði austur óvænt:
einn niður. Grínlaust.
Leikurinn endaði með jafntefli, en
Grantverjar bjuggu að betri birgðum
og Íslandsmeistaratitillinn hafnaði hjá
þeim.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Forðastu það eins og heitan
eldinn að ímynda þér ástarsamband
sem er fullkomið. Hálfnað er verk þá
hafið er.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú gætir hitt einhvern sem hef-
ur mikil áhrif á þig. Fjórar plánetur
hvetja þig til að leyfa þér að festa
kaup á einhverju sem þú átt eftir að
njóta um ókomna framtíð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tvíburarnir biðja um eitt-
hvað og fá ósk sína uppfyllta taf-
arlaust, sem auðvitað gleður þá. Mun-
ið að njóta sérhverrar mínútu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þetta er rétti tíminn til að fá
smáunað og rómantík inn í lífið og
gera það ljóðrænna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það eru litlir útúrdúrar sem gera
daginn skemmtilegan. Nánustu sam-
bönd þín eru einnig hlýleg og gefandi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Svarið er að sætta sig við stöð-
una eins og hún er núna og vita að þú
kemst þangað þegar það kemur þér
best.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Áætlanir sem tengjast frímálum,
listsköpun og börnum ættu að ganga
að óskum á næstunni. Hristu af þér
slenið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Á næstu vikum þarft þú á
aukinni hvíld að halda. Fyrir alla
muni ekki byrgja tilfinningarnar inni,
það endar með ósköpum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nýjar og óvenjulegar hug-
myndir um leiðir til fjáröflunar vekja
áhuga þinn í dag. Horfðu framhjá því
sem sagt er.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er jafnmikilvægt að
íhuga hvernig þú getur dregið úr
eyðslunni og að auka tekjurnar. Ef þú
minnist gætilega á umkvörtunarefni
heilar það sambandið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú getur aðeins sjálfum þér
um kennt ef verkefnin eru að vaxa
þér yfir höfuð. Annars áttu á hættu
kringumstæður sem þú ræður ekki
við.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fólk í fiskamerkinu er aðlað-
andi, kannski einum of. Tilraunir þín-
ar til þess að standa fast á þínu bera
ekki árangur.
Stjörnuspá
28. apríl 1237
Bardagi var háður að Bæ í
Borgarfirði (nefndur Bæj-
arbardagi). Þar féllu meira en
þrjátíu manns. Þetta er talin
fyrsta stórorrusta Sturl-
ungaaldar.
28. apríl 1819
Tukthúsið í Reykjavík var
gert að embættisbústað fyrir
stiftamtmann, samkvæmt kon-
ungsúrskurði. Þar eru nú
skrifstofur forsætisráðherra.
28. apríl 1932
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis tók til starfa.
Fyrstu áratugina var af-
greiðslan við Hverfisgötu.
Hann var lengi stærsti spari-
sjóður landsins en fór í þrot
vorið 2009.
28. apríl 1955
Samkomulag náðist í vinnu-
deilu verkalýðsfélaga í
Reykjavík og Hafnarfirði við
atvinnurekendur. Verkfall
hafði þá staðið í sex vikur og
mun það vera eitt hið lengsta
og víðtækasta sem um getur.
Samið var um 10% launa-
hækkun, stofnun atvinnuleys-
istryggingasjóðs o.fl.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Ívar Örn
Hrólfsson frá
Heiðarbæ í
Strandasýslu og
Carolyne Akinyi
Nyabua af Lu-
ættbálknum í
Kenýa voru gefin
saman 21. mars
sl. Brúðkaupið
fór fram á Safari
Park-hótelinu í
Nairobi. Prestur
var séra Larry
Lombert. Heimili þeirra verður á
Marbakka á Tálknafirði.
Brúðkaup
„Ætli ég skelli ekki í nokkrar pönnukökur í tilefni
dagsins, ég er nokkuð góður í þeim,“ segir Gunn-
laugur Guðmundsson stjörnuspekingur sem er 55
ára í dag. „Ég er rólegur eins og flest naut og er
lítið gefinn fyrir stórveislur, þannig að þetta verð-
ur smátt í sniðum hjá mér, bara afmæliskaffi fyrir
allra nánustu fjölskyldumeðlimi.“ Gunnlaugur
segist þó einu sinni hafa haldið almennilega upp á
afmælið sitt en það var þegar hann varð þrítugur.
Annars segir hann afmælisdaginn sinn nokkuð
merkilegan fyrir þær sakir að 28. apríl er sá dagur
sem flestir Íslendingar eru fæddir á. „Ég held það
geti eitthvað haft með það að gera að þá eru um níu mánuðir liðnir frá
verslunarmannahelginni,“ segir Gunnlaugur og hlær. Hann segir að
sér líði fjarska vel með að eldast og að það sé gott að bæta í reynslu-
sarpinn með hverju árinu. „Sálin er eilíf og líkaminn aðeins hylki.
Maður er í raun alltaf sama manneskjan, þó svo að svo lengi læri sem
lifi. Vissulega hafði ég meiri orku þegar ég var yngri en núna kann ég
miklu betur að nýta þá orku sem ég hef.“ Gunnlaugur hefur starfað
sem stjörnuspekingur samfleytt í 28 ár og kann því vel og ætlar að
mæta til vinnu sinnar í dag rétt eins og aðra daga. khk@mbl.is
Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur 55 ára
Sálin er eilíf og eldist ekki
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is