Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 12

Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 SIGURÐUR Kári Kristjánsson hreppti 5. sætið í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík en Birgir Ármannsson varð í 6. sæti. Engu að síður er Birgir þingmaður í dag en Sigurður Kári ekki. Ástæða þessa er sú að þeir fé- lagar röðuðust í þriðja sætið á lista flokksins sinn í hvoru Reykjavík- urkjördæminu. Sigurður Kári rað- aðist í Reykjavíkurkjördæmi norð- ur, þar sem flokkurinn fékk aðeins tvo þingmenn, en Birgir í Reykja- víkurkjördæmi suður, þar sem flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna. Allir flokkar halda sameiginlegt prófjör fyrir bæði kjördæmin í Reykjavík, og því geta hlutirnir æxlast með þessum hætti. Skemmst er að minnast kosning- anna 2007. Þá varð Mörður Árna- son í 7. sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjavík og skipaði 4. sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður. Í áttunda sæti í prófkjör- inu varð Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, og skipaði því 4. sætið í Reykjavík suður. Úrslit kosning- anna urðu þau að Samfylkingin fékk þrjá menn kjörna í Reykjavík norður en fimm í Reykjavík suður. Steinunn Valdís komst á þing og einnig Ellert B. Schram en Mörður sat eftir með sárt ennið, þótt hann hefði lent 5 sætum ofar í prófkjöri en Ellert. Sigurður Kári er því í sömu sporum og Mörður var fyrir tveimur árum. Í kosningunum nú var skiptingin jafnari hjá Samfylkingunni í Reykjavík, fjórir þingmenn í hvoru kjördæmi. Fyrstu varaþingmenn fyrir kjördæmin eru títtnefndur Mörður Árnason og Anna Pála Sverrisdóttir. sisi@mbl.is Sigurður Kári í sömu sporum og Mörður Árnason var eftir kosningarnar 2007 Sigurður Kári Kristjánsson Mörður Árnason ENDURNÝJUN á Alþingi í kosningunum nú er sú mesta frá upphafi. Nýir þingmenn eru 27 af 63, eða 42,9%. Mesta endurnýjun sem áður hefur þekkst var í kosningunum 1991, þegar 25 nýir menn settust á þing, eða 39,7%. Minsta endurnýjun á þingi í seinni tíma sögu varð árið 1963, eða 15%. Í kosningunum 2007 komu 24 nýir menn á þing og hefur því orðið meiri endurnýjun á Alþingi á tveimur árum en nokkru sinni í sögunni. Þingið nú er því hið reynsluminnsta frá því Alþingi var endurreist. Alls hafa 42 þingmenn af 63 tveggja ára þingreynslu eða minni. Eftirtaldir 18 þingmenn sóttust ekki eftir endurkjöri í kosningunum á laugardaginn: Í sviga er árið sem þeir tóku fyrst sæti á Alþingi sem að- almenn: Ágúst Ólafur Ágústsson (2003), Ármann Kr. Ólafsson (2007), Árni M. Mathiesen (1991), Björk Guðjónsdóttir (2007), Björn Bjarnason (1991), Ein- ar Már Sigurðarson (1999), Ellert B. Schram (1971), Geir H. Haarde (1987), Guðfinna S. Bjarnadóttir (2007), Gunnar Svavarsson (2007), Herdís Þórð- ardóttir (2007), Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (1991), Jón Magnússon (2007), Kristinn H. Gunnarsson (1991), Lúðvík Bergvinsson (1995), Magnús Stef- ánsson (1995), Sturla Böðvarsson (1991) og Valgerður Sverrisdóttir (1987). Eftirtaldir 9 þingmenn voru í framboði en náðu ekki endurkjöri: Arn- björg Sveinsdóttir (1995), Ásta Möller (1999), Grétar Mar Jónsson (2007), Guðjón Arnar Kristjánsson (1999), Helga Sigrún Harðardóttir (2008), Karl V. Matthíasson (2001), Kjartan Ólafsson (2001), Kolbrún Halldórsdóttir (1999) og Sigurður Kári Kristjánsson (2003). sisi@mbl.is Mesta endurnýjun sem orðið hefur á Alþingi og þingið með minnsta reynslu ÁSMUNDUR Ein- ar Daðason sauð- fjárbóndi verður yngstur alþing- ismanna og hann er jafnframt átt- undi yngsti frá upphafi sem kjör- inn hefur verið á þing. Ásmundur var 26 ára og 178 daga gamall þegar hann var kjör- inn á þing á laugardaginn. Hann er næstur á eftir Jónasi Árnasyni, sem var 26 ára og 148 daga gamall þeg- ar hann var kjörinn á þing árið 1949. Næstur á eftir Ásmundi er Sigurður Bjarnason, sem var 26 ára og 199 daga gamall þegar hann var fyrst kjörinn á þing árið 1942, eða fyrir 67 árum. Sigurður er næst- elstur núlifandi manna sem setið hafa á þingi, fæddur 1915. Eldri er Vilhjálmur Hjálmarsson frá Brekku, fæddur 1914. Gunnar Thoroddsen er yngstur þeirra sem kjörnir hafa verið á þing. Hann var 23 ára og 177 daga gamall þegar hann var kjörinn fyrst á þing árið 1934. Sá sem yngstur hefur tekið sæti á Alþingi er hins vegar Sigurður Magnússon, núverandi bæjarstjóri á Álftanesi. Sigurður var 23 ára og 167 daga gamall, þegar hann tók sæti sem varamaður á þingi árið 1971. sisi@mbl.is Sigurður Magnússon bæjarstjóri yngst- ur þeirra sem tekið hafa sæti á þingi Sigurður Magnússon JÓHANNA Sigurðardóttir forsætisráðherra man tímana tvenna í þau 31 ár sem hún hefur setið á Alþingi Íslendinga. Þegar Jóhanna tók fyrst sæti á Alþingi að loknum kosningunum 1978 voru aðeins þrjár konur á þingi og hlutfallið 5%. Auk Jóhönnu sátu á þingi þær Ragnhildur Helgadóttir og Svava Jakobsdóttir. Þegar nýtt þing kemur saman verða konur 27 af 63 þingmönnum og hlutfallið 43%. Konur hlutu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis með stjórn- arskrárbreytingu 19. júní 1915. Kona var fyrst kjörin til Alþingis í lands- kjörinu 8. júní 1922. Það var Ingibjörg H. Bjarnason af Kvennalista. Guð- rún Lárusdóttir varð fyrst kvenna til að hljóta kosningu í almennum alþingiskosningum árið 1934 en hún hafði áður verið landskjörin 1930. Lengst af sátu ein eða tvær konur á Alþingi og engin kona sum þing. Það gerðist síðast árið 1953. Veruleg umskipti urðu í kosningunum 1983, þegar 9 konur komust á þing og hlutfallið náði 15%. sisi@mbl.is Jóhanna man tímana tvenna á Alþingi STUTT Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÞINGFLOKKUR vinstri grænna hefur stækkað svo mikið, að hann er búinn að sprengja utan af sér núver- andi herbergi. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis. Þingmenn Vinstri grænna voru 9 talsins eftir kosningarnar 2007 en nú eru þeir orðnir 14 talsins. Þingflokkur Vinstri grænna hefur haldið sína fundi í herbergi sem jafn- an er kallað gamla krataherbergið, en þar hélt Alþýðuflokkurinn sína fundi á meðan sá flokkur var og hét. Umrætt herbergi er á fyrstu hæð Alþingishússins með glugga að bak- dyrunum. Að sögn Helga Bernód- ussonar liggur enn ekki fyrir hvaða herbergi Vinstri grænir fá fyrir þingflokksfundi sína en verið er að skoða alla möguleika. Aðrir þingflokkar halda sínum herbergjum. Ekki liggur fyrir hvaða herbergi Borgarahreyfingin fær, en eitt herbergi losnaði við brotthvarf Frjálslynda flokksins af þingi, og hugsanlegt að Borgarahreyfingin fái þar inni. Þing saman eftir þrjár vikur? Nú er verið að undirbúa brott- flutning þeirra þingmanna, sem nú hætta á þingi. Þeir fá svigrúm til að tæma herbergi sín eða allt að 10 daga. Að því búnu þarf að þrífa her- bergin og mála, áður en nýir þing- menn geta komið sér fyrir. Áður en herbergjum er úthlutað þarf að liggja fyrir hvernig stjórn verður mynduð því ráðherrar og þingforseti fá ekki herbergi eins og almennir þingmenn. Lögum samkvæmt á Alþingi að koma saman eigi síðar en 10 vikum frá því kosningar eru haldnar. Sam- kvæmt því skal Alþingi koma saman eigi síðar er síðustu vikuna í júní og því ljóst að ríkisstjórnin hefur tals- vert svigrúm til að kalla saman þing. Nokkrar undanfarnar kosningar hefur venjan verið sú, að þing hefur komið saman um það bil þremur vik- um eftir kosningar. Ef sú verður raunin nú mun þing koma saman um miðan maí næstkomandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Munu flytja Nýr þingflokkur Vinstri grænna kom saman til fundar í gær. Fundurinn var haldinn í Vonarstræti. VG þarf nýtt aðsetur  Vinstri grænir búnir að sprengja utan af sér þingflokks- herbergið  Fráfarandi þingmenn að tæma herbergi sín Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞINGMÖNNUM Norðvest- urkjördæmis fækkar úr níu í átta fyrir næstu þingkosningar þar sem vægi atkvæða í kjör- dæminu var meira en tvöfalt meira en vægi atkvæða í Suð- vesturkjördæmi í kosningunum á laugardag. Um leið fjölgar þingmönnum Suðvest- urkjördæmis úr tólf í þrettán. Eftir sem áður hafa atkvæði sem greidd eru í Suðvesturkjördæmi minna vægi en í öðrum kjördæmum. Í stjórnarskrá og kosningalögum eru fyrirmæli um að ef kjósendur á kjörskrá að baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfnunarsætum, eru eftir alþingiskosningar helmingi færri í einu kjördæmi en einhverju öðru, skuli breyta fjölda þingsæta í kjördæminu í því skyni að draga úr þeim mun. Aðeins breytt eftir kosningar Það varð því ljóst um leið og kjörskrár lágu fyrir að Norðvest- urkjördæmi myndi missa einn þing- mann en þar sem breytingarnar eru aldrei gerðar fyrr en eftir kosn- ingar hélt kjördæmið sínum níu þingmönnum. Þingmannafjölda er aðeins breytt að loknum kosningum en hver urkjördæmis, Ásmundur Einar Daðason, Vinstri grænum, hefði að sjálf- sögðu dottið út en í stað- inn hefði VG náð Bjark- eyju Gunnarsdóttur inn sem jöfnunarmanni í Norðausturkjöræmi. Sam- fylkingarkonan Jónína Rós Guðmundsdóttir hefði við þessar hrókeringar dottið út í Norðaust- urkjördæmi en í staðinn hefði Lúð- vík Geirsson, bæjarstjóri náð kjöri fyrir flokkinn í Suðvesturkjördæmi. Heildartala þingmanna flokkanna yrði óbreytt. hefðu áhrifin orðið ef breytingarnar hefðu gengið í gegn fyrir kosn- ingar? Níundi þingmaður Norðvest- Misvægið minnkað  Þingmönnum Norðvesturkjördæmis fækkar úr níu í átta eftir næstu kosningar  Áframt töluvert misræmi atkvæða .$,  %$,+  0  +  + 1  2 3  0  4 5  3 6 ,3   ,   3 7,-. 7,-   3 .    3 . ,   3                    /  /  /  / 1  2 3  0  4 5  3 6 ,3           /  / /   18/9 *.   /7 *.                 / /       0% 1% ! ),)  +$""%  ,   3 57  #:5    ,3 ,3    - 3  ,3  /3  . -7,-  3  ) Lúðvík Geirsson Ásmundur Einar Daðason Bjarkey Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.