Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 Dagskrá fundarins er 1. Sk‡rsla stjórnar. 2. Ger› grein fyrir ársreikningi. 3. Tryggingafræ›ileg úttekt. 4. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt. 5. Samþykktir kynntar. 6. Önnur mál. Ársfundur 2009 Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda Ársfundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur haldinn a› Borgartúni 29, Reykjavík á 4. hæ›, þriðjudaginn 28. apríl 2009 og hefst kl. 17.00. Reykjavík 16. 03. 2009 Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞAÐ er allt kyrrt og þetta er mjög skrítin tilfinning. Það er ótrúlegt hversu auðvelt það var að fá fólk til að hlýða skipunum yfirvalda. Það var eins og allt lamaðist strax á fimmtudag þegar heilbrigðisyfirvöld gáfu út tilkynningu um hækkað við- bragðsstig,“ segir Elín Ingvarsdóttir sem hefur búið í Mexíkóborg í 30 ár og upplifir nú hvernig svínaflensan hefur áhrif á daglegt líf fólks í borg- inni. „En Mexíkóar eru Mexíkóar og því er mikið talað um að flensan sé tæki yfirvalda til að kanna vald sitt eða til að dreifa athygli okkar. Þeir eru alltaf að hugsa um að eitthvað búi að baki svona hlutum,“ segir Elín. Jarðskjálfti bættist við ógnina „Í gær þurfti ég að fara í skólann til að sinna verkefni og þá fann ég svo fyrir jarðskjálftanum,“ segir Elín. Aðstæðurnar hafi verið eins og í kvikmynd þar sem fólk reyndi að komast á öruggan stað vegna skjálft- ans með bláar grímur fyrir andlitinu, en jarðskjálfti á 5,6 á Richter reið yf- ir borgina í gær. Landið er lamað Elín Ingvarsdóttir segir ástandið í Mexíkóborg með miklum ólíkindum og að fólk taki svínaflensuógnina mjög alvarlega Í HNOTSKURN »Talið er að 149 manns hafilátist af völdum svínaflens- unnar í Mexíkó. »Skólar í Mexíkóborg verðalokaðir til 6. maí og eru allir staðir fyrir fjölda- samkomur lokaðir. »Enginn meiddist í jarð-skjálftanum í gær en hús voru rýmd. MIÐALDA- og handverkshátíðin í Lithgow í Ástralíu er nú haldin 10. sinn en á henni er bar- dagalist fyrri alda í heiðri höfð, allt frá víkingum til stórorrustna á Napóleonstímanum. Eru þar raunar meginstefið að þessu sinni. Hér takast á tveir kappar , líklega víkingur og annar, sem erfiðara er að segja deili á. Hann er skjaldarlaus en bætir sér það upp með því að hafa sverð í hvorri hendi. svs@mbl.is Hérna mætast stálin stinn AP Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is STJÓRN Srí Lanka sagði í gær að hún hefði fyrirskipað hernum að hætta sprengju- og loftárásum á tamíl- tígrana til að hlífa óbreyttum borgurum sem eru inn- lyksa á yfirráðasvæði tamílsku uppreisnarmannanna á norðaustanverðri eyjunni. Stjórn landsins sagði að hún hefði ekki fallist á vopna- hlé, aðeins að herinn breytti aðferðum sínum. Mahinda Rajapakse, forseti Srí Lanka, sagði að herinn ætti að hætta að beita þungavopnum, flugvélum og flug- skeytum í árásum á uppreisnarmennina. Áður hafði stjórnarherinn fullyrt að hann hefði ekki beitt þunga- vopnum gegn tamíltígrunum síðustu vikur. Neita að gefast upp Uppreisnarmennirnir sökuðu stjórnina um að reyna að blekkja stjórnvöld í öðrum löndum og embættismenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa hvatt báðar fylkingarnar til að stöðva átökin. Talsmaður tamíltígranna sagði að stjórnarherinn héldi áfram hörðum sprengjuárásum á svæði þeirra. „Við gefumst aldrei upp nema stjórnin verði við lögmætum kröfum okkar,“ sagði hann. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna telja að allt að 50.000 óbreyttir borgarar séu innlyksa á átakasvæðinu en stjórnin segir þá vera færri en 20.000. Hún sakar upp- reisnarmennina um að halda fólkinu í gíslingu og nota það sem nokkurs konar skildi. Áætlað er að um 110.000 manns hafi flúið af átaka- svæðinu vikunni sem leið. Tamíltígrarnir hafa barist fyrir sjálfstæðu heimalandi tamíla á Srí Lanka frá árinu 1983. Yfir 70.000 hafa beðið bana í stríðinu en tala látinna kann að hafa hækkað til mikilla muna í átökunum síðustu vikur. Í skjali sem emb- ættismenn Sameinuðu þjóðanna sendu stjórnarer- indrekum á Srí Lanka í vikunni sem leið sagði að allt að 6.500 óbreyttir borgarar kynnu að hafa beðið bana og um 14.000 særst í átökunum síðustu þrjá mánuði. Segjast ætla að hætta sprengju- og loftárásum Reuters Á flótta Tamílar þvo sér og sækja vatn í flótta- mannabúðum í norðausturhluta Srí Lanka. Stjórn Srí Lanka fellst þó ekki á vopnahlé og Tamílar saka hana um blekkingar YFIRMAÐUR lögreglunnar í einu af hverfum Moskvuborgar varð þremur mönnum að bana og særði a.m.k. sex til viðbótar, þar af fjóra lífs- hættulega, þegar hann hóf skothríð á stórmarkaði. Lögregluforinginn Denis Jevsjú- kov hafði haldið upp á 32 ára afmæli sitt ásamt eiginkonu sinni á veitinga- húsi. Hermt er að þar hafi upphafist heiftarlegt rifrildi á milli þeirra þeg- ar konan hafi kvartað yfir því að lög- regluforinginn hafi unnið of mikið síðan hann var gerður að yfirmanni lögreglunnar í Tsaritsyno-hverfi í nóvember. Jevsjúkov strunsaði út, tók leigubíl og hóf skothríð með skammbyssu sem talið er að hann hafi tekið af glæpamanni. Hann skaut á lögreglumenn, sem komu staðinn, áður en þeim tókst að yf- irbuga hann. Lögreglan í Moskvu hefur lengi verið gagnrýnd fyrir spillingu og hrottaskap. bogi@mbl.is Varð þrem að bana og særði sex Lögregluforinginn hleður byssuna. Lögregluforingi fyllt- ist morðæði í Moskvu DANSKAR stúlkur fá brjóst um einu ári fyrr en fyrir fimmtán árum, að sögn danska dagblaðsins Politik- en. Blaðið hefur eftir vísindamönn- um að komist stúlkur of snemma á kynþroskaskeiðið geti það aukið hættuna á brjóstakrabbameini, auk þess sem það auki líkur á því að stúlkurnar hætti fyrr að stækka. Þessi þróun er rakin til efna sem raska hormónastarfseminni, m.a. efna í snyrtivörum og mat. Rannsókn vísindamannanna náði til 2.000 stúlkna á aldrinum fimm og hálfs árs til tuttugu ára í Kaup- mannahöfn. Hún fór fram á árunum 1992-93 og 2006-2008. Stúlkur fá brjóst fyrr „ÞAÐ er kominn tími til að við verðum í farar- broddi á ný,“ sagði Barack Obama er hann tilkynnti áform ríkisstjórnarinn- ar um að 3% landsframleiðslu Bandaríkjanna verði varið til vísindarannsókna. Meðal þess sem Obama setur á oddinn er að framleiða ódýrar sól- arrafhlöður, umhverfisvæn hús sem framleiði orkuna sem þau nýta, leggja aukna áherslu á menntamál á sviði vísinda, framfarir í þróun gervilima og rannsóknir í geimvís- indum. jmv@mbl.is Eykur vægi vísinda Barack Obama

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.