Embla - 01.01.1946, Qupperneq 120
OrSsending frá íslendingasagnaútgáfunni:
Hinni nýju útgáfu íslendingasagna hefur þegar verið svo vel fagnað' af
íslenzkuin bókamönnum, að auðséð er, að þeir kunna að meta kosti hennar:
vandaðan texta, smekklegan frágang, ódýrt verð, — en þó sérstaklega, að
hér eru allav þessar sögur og þættir gefnar lit í fyrsta sinn og það er látið
fylgjast að, sem saman á. l’elta munu menn þó kunna að meta cnn betur,
jicgar nafnaskráin keniur í einu lagi, töfralykillinn að þessu safni.
Utgáfunni hafa þegar borizt mörg tilmæli og áskoranir mætra manna að
láta hér ekki staðar numið. Eftir rækilega athugun hefur nú verið afráðið
að prenta á næstu árum þessa flokka fornrita með sama sniði:
I. Sturlunga siigu, liishupa sögur (hinar eldri) og hina jornu
Annála til 1430 — ineð sameiginlegri nafnaskrá. — Sturlunga
saga og Biskupa sögur gerast samtímis, fjöldi sömu manna
kernur þar við ýmsar sögur. Enginn getur haft full not Sturl-
ungu án Biskupa sagna. Má til dæmis nefna, að í Sturlungu er
einungis prentaður síðari liluti Hrafns sögu, en fyrri hlutinn
í Biskupa sögum. Annálar verða þessum sögum samíerða,
auka ýmsum fróðleik við þær og taka við, þar sein þær hætta.
Þarna fá íslendingar í einu lagi allar helztu heimildir um
tfmabilið frá 1100—1430, hinar örlagaríkustu aldir sögu sinnar.
II. Sœmundar-Edda, Snorra-Edda, Fornaldar sögur allar og ÞiÖriks
saga af Bern. Alkunnugt er, að úr Sæmundar-Eddu eru al-
gjörlega glöluð mörg hetjukvæði, sem eru einungis þekkl úr
endursögn Völsunga sögu. Þiðriks saga er alveg ókunn almenn-
ingi á íslandi, en fjallar um sama efni sem hetjukvæði Eddu.
Því aðeins að maður liafi Jielta allt saman með sameiginlegri
nafnaskrá, eiga menn greiðan aðgang að öllum höfuðheimild-
um um goða- og hetjusögur Norðurlanda.
Vegna Jiess, að nú er í ráði að gefa Heimskringlu út í ódýrri útgáfu og
Flateyjarbók, sem er nýprentuð, hefur inni að lialda þær Noregs honunga
sögur, sem vantar í Heimskringlu, mun varla verða hugsað til að gefa þær
sögur út fyrst um sinn. En hins vegar mun verða undirbúin útgáfa Riddara-
sagna, en þær hafa aldrei verið prentaðar nema á stangli, eru allar uppseldar
og fágætar, margar liinna beztu óprentaðar, en eru mjög skemmtilegar og liafa
löngum verið allra sagua vinsælastar.
Kjörorð íslendingasagnaútgáfunnar eru:
Ehki brot, heldur heildir.
Saman í lieild það, scm saman á.
Gerizt strax áskrifendur að íslendingasögunum. Sendið áskriftir í póst-
hólf 73, Reykjavík.
ÍSLENDINGASAGNAÚTGÁFAN
118
EMBLA