Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ mun óska upplýs-
inga frá olíufélögunum um tildrög verðbreytinga í
tengslum við lagabreytingar á vörugjöldum, í því
skyni að meta hvort farið hafi verið að samkeppn-
islögum. Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
þess.
Olíufélögin hafa síðustu tvo daga reiknað út og
ákveðið hvernig þau hyggjast bregðast við því að
hafa rukkað ný bensíngjöld ríkisstjórnarinnar á
gamlar birgðir.
Hugi Hreiðarsson, forstöðumaður kynningar- og
markaðsmála hjá Atlantsolíu, gagnrýnir misvísandi
upplýsingar sem félagið fékk í aðdraganda laga-
breytinganna frá yfirvöldum: „Mín persónulega
skoðun er sú að betur hefði mátt standa að þessum
breytingum og komast hjá því að valda þessum
óþægindum: Ekki aðeins fyrir viðskiptavini heldur
einnig fyrir okkur. Þarna höfðu stjórnvöld geta far-
ið þá leið að gefa út skýrari tilmæli með þessari lög-
gjöf.“ Félagið hafi ákveðið að rukka gjöldin strax.
Það hafi hvorki viljað tapa á nýju lögunum né
græða. Atlantsolía ætlar að endurgreiða viðskipta-
vinum sínum sjálfkrafa innan þriggja virkra daga
og nemur heildarendurgreiðslan um 11 milljónum
kr. Þeir sem hafa dælulykla geta skoðað endur-
greiðsluupphæðina á netinu.
Skeljungur ætlar einnig að endurgreiða sjálf-
krafa til þeirra sem versluðu rafrænt við þá og end-
urgreiðir þeim sem staðgreiddu gegn kvittun og
nemur sú upphæð 15-17 milljónum kr. Olís hyggst
fara sömu leið. Á sama tíma hefur N1 gefið út að
þeir greiði níu milljónir króna vegna þessara mis-
taka til góðgerðarmála. N1 er stærst á markaði og
telur kunnáttumaður að greiðsla þeirra ætti að
nema um 25 milljónum kr. Ekki náðist í Hermann
Guðmundsson, forstjóra N1.
Samkeppniseftirlitið vill
svör um verðbreytingarnar
Atlantsolía gagnrýnir að hafa fengið misvísandi upplýsingar frá yfirvöldum
Morgunblaðið/
Við dæluna Skeljungur, Olís og Atlantsolía end-
urgreiða sjálfkrafa þeim sem versluðu rafrænt.
Steingrímur J.
Sigfússon fjár-
málaráðherra
reiknar með að
frumvarp um að-
gerðir í ríkisfjár-
málum á þessu
ári verði lagt
fram öðrum hvor-
um megin við
næstu helgi. Með
því á að ná fram
sparnaði og auknum tekjum, m.a.
með hærri sköttum, til að ná niður
20 milljarða kr. viðbótarhalla á rík-
issjóði á þessu ári. Steingrímur segir
ekki ólíklegt að ná þurfi a.m.k. um
helmingi þessa með aukinni tekju-
öflun. Því séu takmörk sett hvað
hægt er að breyta miklu í rekstr-
inum á miðju fjárlagaárinu. Það sé
þó enn ekki komið endanlega í ljós
hver hlutföllin verða. Menn séu m.a.
að horfa á fjáröflun Atvinnuleys-
istryggingasjóðs og Ábyrgðasjóðs
launa vegna gjaldþrota. „Þeir þurfa
báðir á auknu fé að halda vegna
ástandsins. Þá er nærtækast að bera
niður í þeim mörkuðu tekjustofnum
sem þeir hafa,“ segir hann.
Steingrímur segir að reynt verði
að dreifa byrðunum með félagslega
sanngjörnum hætti. omfr@mbl.is
Ná helm-
ingi með
tekjum
Steingrímur J.
Sigfússon
Hærra gjald í
Ábyrgðasjóð launa?
ÞRÍR íslenskir menn eru grunaðir um aðild að skipu-
lagningu á innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefn-
um til landsins auk peningaþvættis. Tveir þeirra voru
handteknir í gær og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19.
júní næstkomandi. Þeir eru á fimmtugs- og sextugsaldri.
Sá þriðji, sem er á þrítugsaldri, var fyrir í haldi lögreglu.
Hann var handtekinn 22. maí og úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 12. júní.
Mennirnir þrír eru jafnframt grunaðir um að vera í
samstarfi við alþjóðleg glæpasamtök sem fást við fíkni-
efnamisferli og peningaþvætti. Talið er að málið sé hluti
af gífurlega umfangsmiklu fíkniefnamáli sem teygir anga
sína til 13 landa.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er einn
hinna þriggja grunuðu umsvifamikill á sviði fyrirtækja-
reksturs og eignaumsýslu hér á landi. Hann hefur áður
hlotið dóm fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins leikur grunur á að
maðurinn hafi stundað hér peningaþvætti með fjárfest-
ingum fyrir hagnað af fíkniefnaviðskiptum.
Lögreglan framkvæmdi ellefu húsleitir í gær vegna
málsins. Hún hefur ennfremur verið í samstarfi við
Europol vegna málsins, sem hefur verið í rannsókn í eitt
og hálft ár.
Stórfellt fíkniefnamál
EINN HANN SITUR OG SLÆR Á GONG
Morgunblaðið/Kristinn
Taktur Um hundrað manns mættu á Austurvöll í gær til að mótmæla Icesave. Það gerði líka þessi maður, en hann lét fara vel um sig á garðbekk á meðan
hann sló taktinn. Enda getur gongið verið verulega hávært og því líklegt að hljómurinn hafi borist inn í Alþingishúsið þar sem menn ræða málin.
Námsmannahreyfingarnar hafa boð-
að til samstöðufundar á Austurvelli á
fimmtudaginn kl. 16 til að mótmæla
úthlutunarreglum komandi árs.
„Við hvetjum alla námsmenn og
aðra sem láta sig málin varða til að
sameinast okkur þar og krefjast
þess að það verði eitthvað gert í
þessum reglum svo þær verði leið-
réttar,“ segir Hildur Björnsdóttir,
formaður Stúdentaráðs HÍ.
Í dag eru um 13.000 námsmenn á
námslánum. „Það má búast við að
fleiri verði í námi á næsta ári því það
er minni vinnu að fá núna,“ segir
Hildur og vonast því eftir góðri mæt-
ingu á fundinn.
Efna til sam-
stöðufundar
á Austurvelli
Opinber útgáfa á mati greiningardeildar ríkislög-
reglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu
á hryðjuverkum var birt í febrúar á þessu ári.
Þar sagði meðal annars að ein af afleiðingum af
hruni fjármálakerfisins hér á landi yrði sú að hagn-
aði af fíkniefnaviðskiptum yrði í auknum mæli var-
ið í fjárfestingar hér á landi. Greiningardeildin taldi
sérstaka ástæðu til að vara við þessu.
„Fyrir liggur að verð á fasteignum, fyrirtækjum
og lausamunum ýmsum hefur fallið og á eftir að
falla enn frekar, gangi spár eftir. Slíkar fjárfest-
ingar, einkum fyrirtækjakaup, skapa margvísleg
tækifæri til að fela ólögmæta starfsemi t.a.m. inn-
flutning fíkniefna og peningaþvætti á bak við lög-
legan rekstur.“ Í matinu sagði ennfremur að slík
ráðstöfun hagnaðar kynni ekki síður að eiga við um
erlenda glæpahópa sem hér starfa og flutt geta inn
fíkniefni án þess að þurfa að greiða fyrir þau í er-
lendum gjaldeyri.
Afleiðing af hruni fjármálakerfis
Þrír menn í gæsluvarðhald Grunur um samstarf við al-
þjóðleg glæpasamtök Peningaþvætti með fíkniefnagróða