Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Angels and Demons kl. 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára Night at the museum 2 kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ X-Men Origins: Wolfe... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Angels and Demons kl. 8 - 10:40 B.i. 14 ára Boat that rocket kl. 8 - 10:40 B.i. 12 ára Draumalandið síðustu sýn. kl. 6 LEYFÐ Ghost of Girlfriend past kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 7 ára Terminator: Salvation kl. 8 - 10:10 B.i.12 ára Þú færð 5 % endurgreitt í HáskólabíóSími 462 3500 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI 750k r. 750k r. Ghost of a Girlfriend .... kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Gullbrá og birnirnir 3 kl. 6 LEYFÐ Terminator: Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL Vinsælasta myndiní heiminum í dag Þegar ljósin slökkna byrjar fjörið... aftur! ... og nú í stærsta safni í heimi! 750kr. Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar! Toppm yndin á Ísland i í dag “... fínasta spennu- mynd með flottum hasaratriðum...” - V.J.V., FBL „Stórbrotinn hasar.“ SV MBL 750kr. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Vinsælasta myndin í heiminum í dag Ó.H.T., Rás 2 -M.M.J., kvikmyndir.com -T.V., - kvikmyndir.is - S.V., MBL Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Frábær teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Þetta er hið klassíka ævintýri um Gullbrá og birnina 3 í nýrri og skemmtilegri útfærslu. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁBÆR GAMANMYND Í ANDA WEDDING CRASHERS VÆNTANLEGA þekkja flestir bækur Al- exanders McCall Smiths um Mma Ra- motswe, einkaspæjara í Botsvana, enda eru þær orðnar tíu og hafa að auki orðið kveikja að vinsælum sjónvarps- þætti á BBC. Sögurnar eru áþekkar, í þeim ger- ist harla lítið en þó heil- mikið þegar betur er skoðað, enda er McCall Smith einkar lagið að segja svo frá hversdags- leikanum að lesandinn verður hugfanginn. Í tíundu bókinni um Mma Ramotswe, Tea Time for the Traditionally Built, eru glæpirnir ekki veigamiklir frekar en endra- nær, fótboltalið sem gengur illa á vellinum er eitt af því sem kemur við sögu, en það kemur ekki að sök, jafn indælt er að lesa bækurnar og endranær. Sögur sem þessar krefjast kannski ekki mikillar yfirlegu eða ígrundunar, en geta þó iðulega sagt okkur talsvert um lífið og svo er því farið með þessa seríu sem heldur sjálfsagt áfram á meðan höfundurinn lifir. Meira af Mma Ramotswe Tea Time for the Traditionally Built eftir Alex- ander McCall Smith. Little, Brown gefur út. Árni Matthíasson ERLENDAR BÆKUR» Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is UM 1940 voru íbúar Varsjár um 1.200.000. Þriðjungur þeirra var gyðingar sem var þröngvað í af- girt gyðingahverfi þá um haustið og næsta hálft annað árið létust ríflega 80.000 úr hungri. Sumarið 1942 voru 300.000 fluttir í útrým- ingarbúðir, en þeir sem eftir voru féllu eða voru fluttir í útrýming- arbúðir þegar þýski herinn jafn- aði gyðingahverfið við jörðu í kjöl- far uppreisnar í apríl 1943. Hálfu fjórða ári síðar, í sept- ember 1946, hófst uppgröftur í rústum húss í útjaðri hverfisins. Eftir vandasama leit komu menn niður á mjólkurbrúsa og síðan fleiri slíka, en í þá höfðu íbúar safnað ýmiss konar gögnum til að varðveita minningu lífsins í hverf- inu sem varð Þjóðverjum að bráð. Þessi saga er rakin í bókinni Who Will Write Our History? eft- ir sagnfræðinginn Samuel D. Kas- sow sem kom út nýverið en hún segir ekki bara sögu þessarar merku heimildasöfnunar, heldur líka mannsins sem kom henni í kring, Emanuel Ringelblum. Ringelblum, sem var sagn- fræðimenntaður sérfræðingur í sögu gyðinga í Varsjá, hrinti söfn- uninni af stað í nóvember 1940. Hann fékk fjölda manna í lið með sér og skipulagði starfið eins og byltingarhreyfingu, skipaði mönnum í litla hópa sem höfðu lágmarkssamskipti sín á milli til að tryggja að starfið héldi áfram, þó einhverjir yrðu gripnir. Hópurinn kallaðist Oyneg Sha- bes, sabbatsgleði, og hafði að markmiði að tryggja það að hægt yrði að draga upp mynd af dag- legu lífi þó samfélagið myndi leys- ast upp. Því söfnuðu menn saman ritgerðum um daglegt líf og frá- sögnum um hversdagslega hluti, skömmtunarseðlum, sporvagna- miðum, leikhúsmiðum, sælgæt- isumbúðum, póstkortum, tón- leikaskrám, teikningum og skissum, ljóðum, ljósmyndum og svo má lengi telja. Við lá að þetta mikla safn myndi allt glatast því af þeim á sjötta tug sem þátt tóku í Oyneg Shabes komust ekki nema þrír af í hild- arleiknum og af þeim aðeins einn sem vissi hvar gögnin höfðu verið grafin. Alls voru greftrunarstað- irnir þrír; gögnin í þeim fyrsta voru að miklu leyti ónýt, á einum stað var allt í lagi en á þeim þriðja fundust ekki nema tætlur. Forvitnilegar bækur: Stórmerkileg heimild um horfinn heim Raddir að handan Fórnarlömb Handtökur í kjölfar uppreisnarinnar í gyðingahverfi Varsjár í apríl 1943. Þjóðverjar jöfnuðu hverfið við jörðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.