Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Hæðasmára 4, Kópavogi, símar 555 7355 og 553 7355 Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. er flutt í Hæðasmára 4 í sama hús og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind www.selena.is Glæsilegur sumarfatnaður Frábær opnunartilboð 25% afsláttur af völdum undirfötum 25% afsláttur af völdum sundfötum 25% afsláttur af völdum vörum frá Bolir • Skyrtur • Kjólar • Pils Sigurður Jónsson tannlæknir ferí Sundhöll Reykjavíkur hvern virkan morgun og er þar í góðum félagsskap, Sundhallarflokknum svonefnda. Þar kemur hann með vísu handa þeim félögum morgun hvern. Einn morguninn hafði eng- in vísa fæðst, en á leiðinni kom þetta: Ekkert fær nú flokkurinn ljóð, farinn er úr mér kraftur, en vísan frá mér í gær var svo góð. Við gætum notað hana aftur. Guðmundur B. Guðmundsson lætur flakka vísu eftir Elías Mar. „Maður hét Bjarnþór Þórðarson og setti svip sinn á kvosina í Reykjavík og kaffihús þar um mið- bik seinustu aldar. Minnast hans vafalaust einhverjir. Hann var ör- yrki, vel greindur, lauk stúdents- prófi og kunni ágæta frönsku og latínu og hafði e.t.v. svolitlar tekjur af því að lesa þessi tungu- mál með menntaskólanemum fyrir próf. Honum var uppsigað við yf- irvöld fræðslumála og átti í úti- stöðum við þau. Kunningi hans, Elías Mar rithöfundur, orti eft- irfarandi vísu um Bjarnþór: Skrílsins framhjá skarnflór skálmaði hann garnmjór. Sterkan þráði stjarnbjór studiosus barnrór. Kennilýður kvarnfrjór klaufskt við fótum sparn sljór. Hann sem lífs um hjarn fór héðra nefndist Bjarnþór.“ Það fylgir sögunni að orðið stjarnbjór er haft um koníak. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af Elíasi og stud- iosus Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það er frábært að finna hvað frumkvöðlaumhverfið hefur opnast og hversu vel er tekið á móti frumkvöðlum í dag. Þó mætti styrkjakerfið í sumum tilvikum vera sveigjanlegra fyrir hugmyndir sem falla kannski ekki alveg að eldri reglum eins og sumir hafa réttilega bent á.“ Þetta er mat Sigrúnar Völu Valgeirsdóttur og Huldu Sveins- dóttur sem nú stunda frum- kvöðlanám í Eldey á Ásbrú. Náminu ljúka þær í ágúst og verða í hópi fyrstu frumkvöðlanna sem braut- skrást frá Keili, miðstöð vísinda-, fræða- og atvinnulífs. Eldey er eitt af 8 frumkvöðlasetr- um Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) og í samstarfi við Keili og Há- skóla Íslands. Í Eldey er boðið upp á frumkvöðlanám, sem er 60 ECTS diplómanám á háskólastigi og gefur gráðuna PDE (Professional Diploma in Entrepreneurship). Auk þess hafa frumkvöðlar og sprotafyrirtæki þar aðsetur með aðgang að sér- fræðiteymi NMÍ, auk aðstöðu til að þróa hugmyndir sínar. Aðstöðuna nýta nú 8 einstaklingar og sprotafyr- irtæki og eru flest þeirra í samstarfi við einhverjar deildir innan Keilis. Einn þeirra einstaklinga sem nýta sér aðstöðuna í Eldey er Sigrún Vala Valgeirsdóttir sem flutti á haust- mánuðum á Ásbrú. Blaðamaður sett- ist niður með henni og Huldu Sveins- dóttur úr Njarðvík sem er langt komin með hugmynd sína og fús til að fjalla um hana. Sigrún Vala vildi hins vegar ekki ræða sína hugmynd á þessu stigi. Einar dyr lokast og aðrar opnast á sama stað Hulda fékk fyrir margt löngu hug- mynd að kodda fyrir fólk með stoð- kerfisvandamál eftir að hafa skadd- ast sjálf á hálsi og ekki fundið kodda sem gaf henni þann stuðning sem hana vantaði. Koddinn hefur fengið nafnið Keilir enda minna stuðnings- púðarnir tveir við vanga á fjallið, en til viðbótar veitir koddinn stuðning undir hnakka. Að sögn Huldu hafa um 60 aðilar notað koddann og svör- unin verið mjög jákvæð. Samhliða þróuninni gerði Hulda rannsókn á heilsukoddum og hefur notið að- stoðar Nönnu Guðnýjar Sigurð- ardóttur, löggilts sjúkraþjálfara við alla rannsóknar- og rýnihópavinnu. Hulda hefur fengið hönnunarvernd og leyfi til að selja vöruna bæði á Ís- landi og í Evrópu en á nú í viðræðum við aðila á Bandaríkjamarkaði. Einn af kostunum við frum- kvöðlanámið er sú vitneskja sem nemendur öðlast við allt það flókna ferli sem nauðsynlegt er að kunna skil á þegar hrinda á hugmynd í framkvæmd og stofnsetja fyrirtæki. „Ég fór í námið því ég sá að koddinn gæti hjálpað fleirum en mér. Mig vantaði tilsögn og hvatningu til að koma mér áfram. Hér hef ég kynnst frábæru fólki og við erum orðin eins og systkini,“ sagði Hulda, sem átti síst von á því að á gamla vinnustaðn- um sínum myndi hún kynnast nýju fólki en Hulda vann hjá Public Works í byggingu 506 hjá Varnarlið- inu þar til herinn pakkaði saman og fór. Einar dyr lokuðust og aðrar opnuðust á sama stað, en Eldey er staðsett í byggingu 506. „Þetta er þróun sem enginn sá fyrir þegar varnarstöðinni var lokað og ekkert nema ánægjulegt að sjá hvaða fram- tíð hefur orðið til hér,“ sagði Hulda. „Þetta umhverfi hefur tekið vel á móti mér og hér finnst mér gott að búa og vera,“ bætti Sigrún Vala við, sem flutti af höfuðborgarsvæðinu á Ásbrú þegar hún hóf frum- kvöðlanámið. Í samtali við blaða- mann lagði hún áherslu á hversu þroskandi og lærdómsríkt námið væri, en það byggist m.a. á mikilli sjálfskoðun. „Þetta er ekki bara búið að vera mikil vinna heldur mikið innra ferli og gagnlegt ferðalag, enda uppbygging námsins frábær og kennararnir frábærir. Þá höfum við aðgang að sérfræðingum sem búa yfir ómetanlegri þekkingu. Námið er líka dýrt.“ Sigrún Vala lagði einnig áherslu á hversu nauðsynlegt væri að styðja við frumkvöðlaumhverfið og finnst að opna þurfi umhverfið enn meira þó ýmislegt hafi áunnist. „Hér í nám- inu höfum við verið leidd hlýlega um frumskóg styrkjakerfisins, sem mörgum sjálfstæðum frumkvöðlum stendur ógn af,“ sagði Sigrún Vala. Hún sagðist í lokin hafa heyrt út- undan sér að stofna ætti nýsköp- unarráðuneyti og fagnar þeirri hug- mynd, enda nauðsynlegt til þess að hægt verði að taka enn betur á móti frumkvöðlum. Gagnlegt ferðalag Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Frumkvöðlar Sigrún Vala Valgeirsdóttir og Hulda Sveinsdóttir hafa átt góða daga í Eldey þótt frumkvöðlanámið sé mikil vinna og áskorun.  Fyrstu frum- kvöðlarnir í Eldey langt komnir í námi Í HNOTSKURN »Keilir býður upp á eins ársfrumkvöðlanám við skóla skapandi greina. »Fagleg ráðgjöf og stuðn-ingur er meðal þess sem stendur frumkvöðlum til boða á frumkvöðlasetrunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.