Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 4
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is VERULEGAR tafir hafa orðið á djúpborun við Kröflu og er verkefnið orðið meira en mánuði á eftir áætlun. Borinn er nú fastur í fimmta skipti síðan byrjað var að bora í lok mars. Þrisvar hefur tekist að losa hann, en í eitt skipti þurfti að skilja krónuna eft- ir og bora framhjá festunni. Kostn- aður við hvern dag í úthaldinu hleyp- ur á nokkrum milljónum króna. Festan nú er nánast á sama dýpi og borinn festist 21. apríl síðastliðinn eða á 2.103 metrum. Þá tókst ekki að losa borkrónuna, sem er 42 sentí- metrar í þvermál. Var því steyptur tappi í holuna á um 1.900 m dýpi og borað út úr holunni þar þannig að ný hola varð til, samhliða þeirri eldri. Stálröri var komið fyrir í holunni frá 1.958 m dýpi til yfirborðs og það steypt fast áður en borað var áfram með grennri borkrónu, 31 cm í þver- mál. Á þann hátt er komið í veg fyrir hrun í holunni, en veruleg hætta hef- ur verið á slíku. Alls fóru um 400 tonn af steypu til að loka holunni fyrir ofan gömlu krónuna, sem er mun meira en áætl- að var að nota. Samsvarar það steypu í tvö meðalstór einbýlishús. Á mánudag festist borinn nánast á sama stað og í fyrra skiptið og eru örfáir metrar á milli borkrónanna. Erfiður og krefjandi kafli „Við gerðum ráð fyrir ákveðnum töfum við þessa framkvæmd, en nú erum við að nálgast það sem við töld- um okkur þola,“ sagði Bjarni Pálsson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun Power í gær. „Jarðlögin þarna hafa gert okkur erfitt fyrir, en þau eru bæði lagskipt og hrungjörn á þessu dýpi,“ segir Bjarni. „Þessi kafli hefur vægast sagt ver- ið mjög krefjandi, en vonandi tekst okkur að komast í gegn fljótlega,“ sagði Bjarni Pálsson. Enn eru erfiðleikar við djúpborun  Fastir í fimmta skipti í Vítismóum við Kröflu  Steypu sem dygði í tvö einbýlishús dælt í holuna  Úthaldið kostar nokkrar milljónir króna á hverjum degi  Tafir nálgast mörk sem verkefnið var talið þola Í HNOTSKURN »Týr, bor Jarðborana,er notaður til verksins í Vítismóum við Kröflu. »Bora á allt að 4.500metra holu niður í eld- virkt háhitasvæði. »Markmiðið er að virkjayfirmarkshitaðan vökva á þessu mikla dýpi. »Vegna erfiðleika hefurholan ekkert dýpkað á tæplega tveimur mán- uðum. Ljósmynd/Magnús Við Kröflu Starfsmenn Jarðborana hf. vinna við borkrónuna. „ÞAÐ er erfitt að skilgreina það sem eitthvert hlutfall og þaðan af síður einhverjar fastar stærðir, þetta er eitthvað sem verður alltaf að skoða í samhengi við horfur þjóð- arbúskaparins og horfur ríkissjóðs til lengri tíma,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um skuldaþol ríkisins en í nýgerðum Icesave-samningi er ákvæði um end- urskoðun bresti það þol. „Gagnaðilar okkar hafa skilning á því að þetta þarf að vera viðráð- anlegt,“ segir Steingrímur en með ákvæðinu er ríkinu forðað frá gjald- þroti minnki greiðslugetan stórlega. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra, segir útgangspunkt samninganefndarinnar hafi verið að lánstíminn, kjörin og vextir mættu ekki vera með þeim hætti að of nærri gengi greiðslugetu ríkissjóðs. Ákvæðið sé afurð þessa útgangs- punkts. Endurskoðunarákvæði samningsins er miðað við skuldaþol ríkisins í nóvember 2008 að sögn Jó- hönnu. Hún segir þó erfitt að meta nákvæmlega hvert þolið verði. „Við vitum ekki hvernig gengið verður þá […], það er mjög margt sem þarna kemur til.“ skulias@mbl.is Samið að nýju bresti skuldaþol Ákvæði Icesave forð- ar ríki frá gjaldþroti Jóhanna Sigurðardóttir Steingrímur J. Sigfússon 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Eftir Þorbjörn Þórðarson og Þórð Snæ Júlíusson SKIPTAR skoðanir eru um þau vaxtakjör sem felast í samkomulagi við Breta og Hollendinga vegna Ice- save-reikninganna. Samkomulagið felur sem kunnugt er í sér 5,5% vexti árlega sem gæti þýtt að tugir milljarða króna leggist ofan á höfuðstólinn í vexti á ári hverju. Á móti kemur að ríkissjóður er ekki ábyrgur fyrir greiðslu skuld- arinnar fyrstu sjö árin á meðan skilanefnd Landsbankans mun greiða af láninu. Óviðunandi vextir Ólafur Arnarson, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Sofandi að feigðarósi, segir vaxtakjörin óvið- unandi. „Ég fellst ekki á að þessir OECD-vextir séu notaðir sem grunnur með vaxtaálagi. Þeir eru ekki notaðir á markaði sem slíkir, þeir eru notaðir í einhverjum til- fellum í yfirþjóðlegum lánum eins og hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og nú í þessu tilviki,“ segir Ólafur. Hann segir eðlilegra að horfa á þá vexti sem eignasafn Landsbankans sé að safna í Bretlandi. „Mér skilst að það séu vextir upp á um 3,5%. Mér finnst að það ætti algjörlega að vera há- markið sem við ættum að greiða,“ segir Ólafur. Hann segist leggja áherslu á að um nauðasamning sé að ræða. Íslendingar séu að taka á sig að greiða fyrir galla á regluverki Evrópusambandsins. „Undir þeim kringumstæðum er algjörlega óvið- unandi að við séum að greiða vexti eins og um venjulegan viðskipta- samning sé að ræða.“ Ódýrari fjármögnun Hægt er setja kjörin á Icesave- láninu í samhengi við þau kjör sem eru á ríkisskuldabréfum til jafn langs tíma. Lánið er samsett af 1,1 milljarði evra og 2,2 milljörðum punda. Breska ríkið borgar núna 4,3 prósent í vexti á ríkisskuldabréfum í pundum til fimmtán ára, samkvæmt Bloomberg-fréttaveitunni. „Ég hef tekið eftir því að sumir virðast hafa mistúlkað þau vaxtakjör sem felast í samkomulaginu. Það er einfaldlega ekki hægt að bera útlánasafn Lands- bankans, sem er líklega að mestu á fljótandi vöxtum, saman við fasta vexti til fimmtán ára og nota það til að rökstyðja að vextirnir séu of há- ir,“ segir Agnar Tómas Möller, verk- fræðingur og sérfræðingur í skulda- bréfum hjá Gam Management hf. Agnar bendir á að ekki sé hægt að tala um neikvæðan vaxtamun. Lang- tímavextir séu svona háir því það séu væntingar um að skamm- tímavextir hækki. „Ég túlka þetta þannig að 1,2% álag ofan á fasta vexti sé margfalt ódýrari fjármögnun en íslenska ríkið hefði sjálft fengið á mörkuðum. Á móti er hægt að færa rök fyrir því að það sé ekki sanngjarnt að íslenska ríkið sé að greiða álag. Hvað sé sanngjarnt álag við lausn á erfiðum málum af þessu tagi er erfitt að full- yrða um. Menn geta einnig spurt sig, áttu þeir að gefa okkur álagið og láta okkur fá vexti sem þeir gætu fjármagnað sig á?“ spyr Agnar. Hann bendir á að ef menn telji að vaxtakjörin séu óhagstæð, þ.e. of há- ir vextir til of langs tíma, þá ætti að vera hægt að breyta láninu í lán á fljótandi skammtímavöxtum með vaxtaskiptasamningum þegar að- stæður bjóða upp á það. Morgunblaðið/Eggert Þorskur Tæplega þúsund manns voru á Austurvelli á mánudag til að mótmæla Icesave-samkomulaginu. Einn mótmælandi greip til nærtæks samanburðar. Betri en markaðskjör  Hagstæð vaxtakjör á Icesave-samkomulagi borin saman við kjör á ríkisskulda- bréfum  „Algjörlega óviðunandi“  Má breyta með vaxtaskiptasamningum Sérfræðingur í skuldabréfum segir að svo virðist sem menn misskilji vaxtakjör Icesave- samkomulagsins. 1,2% álag ofan á fasta vexti sé ódýr fjármögnun fyrir íslenska ríkið. Við hverja var íslenska samninga- nefndin að semja í Icesave- viðræðunum? Viðmælendur íslensku sendinefnd- arinnar, sem laut forystu Svavars Gestssonar, voru að mestu embætt- ismenn í nefndum. Í bresku nefnd- inni voru alls fjórir og var hún undir forystu Garys Roberts, aðalsamn- ingamanns Breta. Roberts kemur frá breska fjármálaráðuneytinu. Auk hans sátu í nefndinni fulltrúi frá ut- anríkisráðuneytinu og aðilar frá breska sendiráðinu. Til viðbótar komu lögfræðilegir ráðgjafar. Hollensku nefndinni var stýrt af Joh- an Barnard, sem starfar í hollenska fjármálaráðuneytinu. Í henni voru allt að átta manns og komu þeir úr svip- uðum áttum og þeir sem sátu í hinni bresku. Þurfa þjóðþing þessara landa að samþykkja Icesave-samkomu- lagið? Nei. Tryggingasjóðir innstæðueig- enda í báðum löndunum hafa þegar greitt út til innstæðueigenda Ice- save. Þeir eru að endurheimta fjár- magnið, ekki að fá það lánað. Þeir voru því með fullt umboð sinna þjóð- þinga í viðræðunum. Hollenska sendinefndin mun þó skila skýrslu um ferlið til þingsins. Hvenær verður frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave- samkomulagsins lagt fram á Al- þingi? Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins verður það strax eftir helgi, væntanlega á mánudag eða þriðjudag. Ástæða þess að það er ekki gert fyrr er sú að fyrst þarf að taka málið fyrir í utanríkismálanefnd. Það verður gert á morgun. Hvaða gögn verða lögð fram á þeim fundi? Heimildir Morgunblaðsins herma að þar verði lagt fram frægt minnisblað Árna Mathiesens frá 10. október 2008 þar sem lagt er til að Hollend- ingar láni Íslendingum fyrir Icesave- skuldbindingum okkar í landinu. Lánið átti að vera til íslenska ríkisins, til tíu ára og á 6,7 prósenta vöxtum. Auk þess á að leggja fram minn- isblöð, bréfasendingar og önnur gögn sem eiga að sýna fram á þann þrýsting sem alþjóðasamfélagið á að hafa beitt íslenska ríkið í viðræðun- um. S&S Hinn 11. október 2008 var skýrt frá því á vef fjár- málaráðuneyt- isins að það hefði náðst „sam- komulag milli Hollands og Ís- lands um Ice- save“. Í fréttinni seg- ir að Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, og Wouter Bos, hollenskur starfsbróðir hans, hefðu tilkynnt þetta. Árni bætti við að „aðalatriðið væri að málið væri nú leyst“. Samkomulagið miðaði við að Hollendingar myndu lána íslenska ríkinu fyrir sínum hluta af Icesave- skuldbindingunum til tíu ára á 6,7 prósent vöxtum. Sama dag var birt „sameiginleg yfirlýsing“ fulltrúa Íslands og Bretlands. Þar stendur: „Verulegur árangur náðist um meginatriði fyrirkomulags sem miðar að því að flýta fyrir greiðslum til sparifjáreigenda Ice- save.“ Heimildir herma að það fyr- irkomulag hafi átt að innihalda sömu lánskjör. Tilkynntu um lausn í haust Árni MathiesenNýr vefur helgaður ferðalögum og ferðamennsku var opnaður á mbl.is í gær. Á vefnum eru fréttir tengdar ferðamennsku, upplýsingar um helstu áfangastaði innlenda sem er- lenda, myndasyrpur, viðburðadaga- tal, leit að gistingu víða um heim, m.a. á Íslandi, og ferðasögur úr ýmsum áttum svo dæmi séu tekin. Í sumar verður vefurinn aðallega helgaður ferðalögum innanlands, en er annars ætlaður sem alhliða upplýsingavefur fyrir ferðamenn. Á vefnum stendur nú yfir sam- keppni um bestu ferðasöguna og eru veglegir ferðavinningar í boði. Keppnin stendur til 31. ágúst og verða kynnt í byrjun september. Ferðavefur mbl.is er á slóðinni mbl.is/ferdalog. Ferðavefur á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.