Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 18

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 ÓVÍÐA á Íslandi liggur þjóðvegur 1 með mikilli og hraðri umferð nær íbúa- byggð en við Grund- arhverfi á Kjalarnesi. Sem dæmi þá er skólalóð Klébergs- skóla aðeins í um 27 metra fjarlægð frá Vesturlandsveginum, (samkvæmt mælingu á borgarvefsja.is) þar sem sam- kvæmt vef vegagerðarinnar fara um 7.000 ökutæki að meðaltali á dag. Það þýðir bíll á 12 sekúndna fresti á u.þ.b. 100 km/klst hraða. Og enn fleiri á sumrin, 8.500 að meðaltali og allt upp í 12.000. Reyndar er það þannig að á þessum kafla Vesturlandsvegarins fyrir ofan Grundarhverfi er leyfð- ur hámarkshraði einungis 70 km/ klst, en samkvæmt mælingum lög- reglu og reynslu fólks er mikill misbrestur á að hann sé virtur. Tilefni þessarar greinar nú er að miðvikudaginn 3. júní mátti engu muna að slys yrði á veginum þeg- ar tveir drengir á sjötta ári voru hætt komnir á veginum. Það að ekki varð slys má kalla heppni. Í apríl 1991 var „heppnin“ ekki til staðar. Þá lést fjögurra ára gömul stúlka á veginum við hverf- ið eftir að hafa orðið fyrir bíl. Aðgerðaleysi yfirvalda Í 18 ár hafa íbúar á Kjalarnesi þurft að stóla á heppni. Í 18 ár er búið að fara flestar leiðir sem færar eru til þess að fá úrbætur í umferðaröryggismálum við Grundarhverfi. Að telja upp það sem reynt hefur verið væri of langt mál hér. En nú er nóg kom- ið. Við íbúarnir höfum fengið okk- ur fullsadda af aðgerðaleysi yf- irvalda og nú á sunnudaginn var haldin fundur í Fólkvangi á Kjal- arnesi sem bar yf- irskriftina „Umferð- aröryggi barnanna vegna“. Þar var sam- þykkt eftirfarandi ályktun: „Fundurinn „Um- ferðaröryggi barnanna vegna“ haldinn í Fólkvangi sunnudaginn 7. júní 2009 skorar á sam- gönguyfirvöld að ráð- ist verði tafarlaust í eftirfarandi verkefni: Að koma upp mannheldri girð- ingu við Vesturlandsveg milli gatnamóta við Esjuskála og Klé- bergsskóla. Undirgöng verði sett undir Vesturlandsveg við íþróttasvæði. Tryggja að hámarkshraði, sem er 70 km/klst fyrir ofan Grund- arhverfi, verði virtur.“ Auðvitað ætti þessu að vera löngu lokið og ef miðað er við tímann frá banaslysinu hafa yf- irvöld haft u.þ.b. 6.500 daga til að framkvæma. Í samanburði var haft eftir verktaka sem unnið hef- ur við að setja niður einföld und- irgöng með stórum rörum, bæði fyrir búfénað og fólk, þá gæti það tekið 1 dag að koma slíku fyrir. EINN DAG. Vegagerðin er reyndar búin að eiga teikningu af steyptum „alvöru“ göngum í 17 ár, sem einhverra hluta vegna eru ekki komin. Hjá vegagerðinni fengust þær upplýsingar að nú ætti að fara að gera eitthvað, þeir gætu þó ekki gert neitt fyrr en Reykjavíkurborg kláraði sitt skipulag, en þeir hafa jú bara haft 11 ár til þess eða frá því að Kjalarneshreppur og Reykjavík- urborg sameinuðust og hrepp- urinn hafði 7 ár. Svo eru nú engin geimvísindi að setja upp girðingu og t.d. að fræsa raufar í veginn við hverfið til að lækka virkilega hraðann tæki kannski nokkra klukkutíma. Svo einfalt er þetta nú. Það er auðvitað óskiljanlegt að þessu skuli ekki vera löngu lokið. Tími aðgerða er runninn upp Ennfremur samþykkti fund- urinn „Umferðaröryggi barnanna vegna“, að nú væri runninn upp tími aðgerða til að hnykkja á um úrbætur. Aðallega var stungið upp á ýmsu sem gera mætti á eða við Vesturlandsveginn. Eitt af því sem rætt var var að stöðva um- ferð á veginum á næstkomandi föstudag. Það yrði auðvitað all- róttæk aðgerð og óskemmtileg, en hvað sem við gerum biðjum við um skilning vegfarenda, barnanna vegna. Okkur hefur borist til eyrna að þolinmæði lög- reglunnar gagnvart slíkum að- gerðum sé á þrotum eftir mót- mæli undanfarinna missera, en þolinmæði foreldra barna og ann- ara íbúa á Kjalarnesi er líka á þrotum. Það má svo auðvitað benda lögreglunni á að ef á að taka hart á okkur fyrir umferð- arlagabrot við mótmæli þá eru umferðalögin brotin nokkur þús- und sinnum á dag í 27 metra fjar- lægð við skólalóð með 6 ára göml- um börnum. Hvar annarsstaðar líðst það? Því segjum við: aðgerð- ir strax, og áskiljum okkur rétt til að grípa til hverra þeirra að- gerða sem skilað gætu árangri. Barnslíf að veði Eftir Magnús Inga Magnússon »Umferðaröryggis-mál hafa verið í ólestri árum saman þar sem Grundarhverfi og Vesturlandsvegur skar- ast. Þolinmæði íbúa er nú á þrotum. Höfundur er foreldri og íbúi í Grundarhverfi á Kjalarnesi. Magnús Ingi Magnússon Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að lækka stýri- vexti um 1 prósentu- stig á fimmtudaginn. Þessi ákvörðun nefnd- arinnar hefur valdið töluverðum óróa í þjóðfélaginu. Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, sagði í fréttum að menn gætu alveg eins farið heim að undirbúa hátíðarhöld fyrir 17. júní, það væri ófært að ná samkomulagi á almennum markaði undir oki þess- ara vaxta. Ef það verður raunin, að aðilar vinnumarkaðarins nái ekki saman núna, er það afar mikið áhyggjuefni. Stuðningsmenn ríkisstjórn- arflokkanna hafa allt frá því í febr- úar boðað miklar stýrivaxtalækk- anir. Sitt sýnist hverjum um hvort þessar yfirlýsingar allar og heimt- urnar í kjölfarið rími saman. Á fimmtudaginn var áttu menn svo von á að peningastefnunefnd kvittaði upp á aðgerðir og áætlanir rík- isstjórnarinnar í ríkisfjármálum með því að lækka vexti að ráði, enda hefði bankanum verið gerð grein fyrir því, að núverandi stjórnvöldum væri full alvara við það að leysa vandann og að tekið yrði á málunum. Þá hafði peningastefnunefndin gefið ádrátt um frekari stýrivaxtalækk- anir í greinargerð sinni í maí sl. en þar segir: „Verði gengisþróun krónunnar og aðgerðir í fjármálum hins op- inbera eins og nú er gert ráð fyrir, væntir peningastefnunefndin þess að stýrivextir verði lækkaðir umtals- vert til viðbótar eftir fund nefndarinnar í júní, enda verði þá kom- in til framkvæmda fleiri skref í efnahagsáætl- uninni.“ Síðan þá hefur gengi krónunnar verið lágt. En það sem verra er, væntingar peningastefnunefndar um aðgerðir í fjármálum hins op- inbera reyndust, að því er virðist, ekki á rökum reistar. Og á meðan aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum láta á sér standa, mun varla draga ský frá sólu. Á ríkisstjórnarbekkjunum er mik- ið talað um hve vandinn sé stór og umfangsmikill. Því verður svo sann- arlega ekki á móti mælt. En rík- isstjórnin kemst ekki hjá því mínútu lengur að koma fram með áætlanir sínar í ríkisfjármálum. Það er allt undir og hér er allt stopp. Allt stopp! Eftir Ólöfu Nordal Ó́löf Nordal »Ef það verður raun- in, að aðilar vinnu- markaðarins nái ekki saman núna, er það afar mikið áhyggjuefni. Höfundur er þingmaður. AGNES Bragadóttir, hinn reyndi rannsóknarblaðamaður, heldur áfram skrifum sínum um Samtök atvinnulífsins og lífeyr- issjóði án þess að skeyta um staðreyndir mála. Glíman við þær ætlar að reynast Agnesi erf- ið. Í grein sinni sl. sunnudag, 7. júní, gerir Agnes enga tilraun til þess að sýna fram á að sjóðir sem stjórnað er af öðrum aðilum en Samtökum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingunni, s.s. sjóð- félögum sjálfum, hafi náð betri árangri í fjárfestingum eða rekstri. Enda þarf svo sem ekki miklar eða ýtarlegar rannsóknir til að finna út að allur sam- anburður af því tagi er hag- stæður fyrir sjóði á vegum Sam- taka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar. Enda- laust má ræða einstakar fjárfest- ingar sjóðanna en það sem máli skiptir er útkoma þeirra í heild yfir lengri tíma og geta þeirra til að standa undir lífeyrisréttindum og lífeyrisgreiðslum. Þá grípur Agnes til nýrrar röksemdar fyrir andstöðu sinni við veru fulltrúa Samtaka at- vinnulífsins í stjórnum lífeyr- issjóða en það er að stjórnarsetu fylgi völd. Samtök atvinnulífsins líta hins vegar á hlutverk sitt sem mikilvægt samfélagslegt verkefni sem þau hafa metnað til að leysa vel af hendi og hafa gert það í góðu samstarfi við verka- lýðshreyfinguna. Þannig hafa Samtök atvinnulífsins og for- verar þeirra byggt upp sjóðina ásamt verkalýðshreyfingunni og eflt þá jafnt og þétt þannig að þeir gætu gegnt því hlutverki sínu að vera meginuppspretta líf- eyris landsmanna þegar fram líða stundir. Þetta er áratuga verkefni sem kallar á framsýni, frumkvæði og úthald. Völd allra þeirra sem sitja í stjórnum sjóð- anna á vegum Samtaka atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfing- arinnar eru notuð til þess að stuðla að fagmennsku í meðferð fjármuna og vaka yfir þeim breytingum sem verða á að- stæðum þeirra, t.d. vegna aukins langlífis, til þess að geta brugðist nægilega snemma við og eflt sjóðina. Lífeyrissjóðir á vegum Samtaka atvinnulífsins og verka- lýðshreyfingarinnar eru í fremstu röð og fjölmargir velja að greiða til þeirra án þess að vera bundnir til þess samkvæmt kjarasamningum, bæði stjórn- endur og sjálfstæðir atvinnurek- endur. Nú hefur Agnes vegið gróflega að æru stjórnarmanna lífeyr- issjóða með því að halda því fram að þeir hafi látið ginna sig til vonlausra fjárfestinga með boðs- ferðum. Rannsóknarblaðamað- urinn Agnes er þó ekki tilbúin til þess að koma fram með neinar staðreyndir máli sínu til stuðn- ings heldur vísar mér á að vinna vinnuna sína, þ.e. leita upplýs- inga sem ég hvorki þarf á að halda né liggja á lausu hjá að- ilum sem eru mér óviðkomandi að öðru leyti en því að þeir eru eða voru vonandi félagar í Sam- tökum atvinnulífsins eins og hátt í 2000 önnur fyrirtæki. Það hlýt- ur að þurfa að ætlast til þess að virtir rannsóknarblaðamenn leggi staðreyndir á borðið á en breiði ekki út róg um fólk. Eftir stendur því ein spurning: Þykir Agnesi Bragadóttur ekki vænna um Morgunblaðið en svo að hún vilji gera það að vettvangi fyrir róg? Vilhjálmur Egilsson Erfið glíma við staðreyndir Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ÍSLENDINGAR munu á næstunni verða beðnir að færa miklar fórnir í formi hærri skatta, minni þjónustu hins op- inbera og lægri kaup- máttar launa. Þetta eru afleiðingar efna- hagshruns sem rekja má til glannalegs reksturs þess hluta atvinnulífsins sem tók gríðarleg lán erlendis í nafni viðskiptabanka þjóð- arinnar og ríkisvalds sem horfði að- gerðalaust á eða jafnvel hvatti áfram þá sem mestu lánin tóku. Almenn- ingur á ekki sök á þessum hremm- ingum. Það er af þessum sökum afar mik- ilvægt að sú rannsókn sem nú á sér stað á orsökum hrunsins sé unnin í þeim tilgangi einum að hið rétta komi í ljós. Í þessu samhengi vekur það áhyggjur okkar að Alþingi hefur tekið til umfjöllunar beiðni um að Sigríður Benediktsdóttir hætti í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Uppgefin ástæða er kvörtun fyrrverandi forstjóra Fjár- málaeftirlitsins yfir ummælum hennar í skólablaði Yale-háskóla. Eftir bankahrunið skipaði Alþingi rannsóknarnefnd sem átti að kanna orsakir hrunsins. Nefndin er skipuð tveimur lögfræðingum sem starfa hjá hinu opinbera ásamt Sigríði. Sig- ríður er eini nefndarmaðurinn með sérþekkingu á fjármálamörkuðum og hagfræði. Samkvæmt blaðafregn- um hefur nefndin verið iðin við að kanna hina ýmsu þætti bankahruns- ins, og án efa leitað í skúmaskotum sem ýmsir sérhagsmunir vildu frek- ar að væru áfram í skugga. Sigríður er einn af færustu hag- fræðingum Íslands. Hún lauk dokt- orsnámi frá Yale-háskóla í Banda- ríkjunum, þar sem hún stóð sig afburða vel. Að lokinni útskrift tók hún til starfa við Seðlabanka Banda- ríkjanna þar sem hún sérhæfði sig í fjármálamörkuðum. Nú starfar hún við hagfræðideild Yale-háskóla. Enginn efast um hæfni hennar sem hagfræðings. Við þekkjum hana báðir sem strangheiðarlega mann- eskju með sterka réttlætiskennd. Í upphafi árs fór hún í viðtal við skólablað Yale, þar sem fjallað var um Ísland. Viðtalið var ekki tekið upp, og óvíst hvort blaðamennirnir, sem eru nemendur við skólann, hafa haft alveg rétt eftir henni. Í grein- inni er haft eftir henni að óhófleg græðgi í bankakerfinu og brestir í umgjörð eftirlitsferilsins hafi átt stóran hlut í hruninu. Þetta eru orð sem flestallir Íslendingar gætu tekið undir. Ekki er tekið fram hvort átt er við ófullkomið regluverk Evrópu- sambandsins, skort á reglum innan lands, takmarkað rekstrarfé FME, aðgreiningu FME og Seðlabankans eða mistök við eftirlitsstörfin. Slíkt var nefndarinnar að rannsaka. Þessi orð eru uppgefin ástæða þess að farið hefur verið fram á að Sigríði verði vikið úr nefndinni. Fyrrverandi forstjóra FME fannst ástæða til að kvarta undan þeim, og Alþingi sá ástæðu til þess að fjalla um ósk meirihluta rannsókn- arnefndarinnar um að víkja henni úr nefndinni vegna þeirra. Alþingi vís- aði erindinu til baka til rannsókn- arnefndarinnar, þar sem hinir tveir nefndarmennirnir munu ákveða hvort Sigríði verður vísað úr henni. Brottvikning Sigríðar úr rann- sóknarnefndinni mundi trufla og tefja störf hennar og jafnframt varpa skugga á hina endanlegu nið- urstöðu. Íslendingar eru beðnir að bera byrðar hrunsins í formi skatta og lakari lífskjara og eiga kröfu á að rannsóknarnefndin leiði hið rétta í ljós. Brottvikning þess nefndar- manns sem hefur mesta þekkingu á sviði fjármálamarkaða, eingöngu vegna sakleysislegra en kannski óheppilegra orða í skólablaði, væri miður. Íslendingar eiga betra skilið af ráðamönnum sínum. Kerfið hefði sigrað. Sigrar kerfið? Eftir Gylfa Zoëga og Jón Daníelsson » Brottvikning þess nefndarmanns sem er með mesta þekkingu á sviði fjármálamark- aða, eingöngu vegna sakleysislegra en kannski óheppilegra orða í skólablaði, væri miður. Gylfi Zoega Gylfi er prófessor við Háskóla Ís- lands. Jón er prófessor við London School of Economics. Dr Jón Daníelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.