Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 161. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Alvarleg staða hjá LÍN
Grunnframfærsla Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna verður ekki
hækkuð á næsta ári, þrátt fyrir verð-
bólgu. Menntamálaráðherra segir
stöðuna alvarlega. »Forsíða
Krefjast úrbóta við veginn
Íbúar á Kjalarnesi segja Vest-
urlandsveg skera byggðina í sundur.
Þeir vilja fá undirgöng og girðingu
strax við veginn og efna til mót-
mælaaðgerða á föstudag. »12
Exista í greiðslustöðvun
Kröfuhafar Exista vilja að félagið
verði sett í greiðslustöðvun á næstu
vikum. Þeir hafa komið sér saman
um aðstoðarmann í aðgerðinni en
deilt er um framtíð stjórnenda fé-
lagsins. »13
Brown í öruggu sæti
Utanríkisráðherra Bretlands seg-
ir þingflokk Verkamannaflokksins
ekki deila lengur um leiðtoga sinn.
Sæti Gordons Browns forsætisráð-
herra sé ekki laust. »14
Taki ekki erlend lán
Sveitarfélögum á Norðurlöndum
er ekki heimilt að taka lán í erlendri
mynt, vegna áhættuþáttarins sem
það felur í sér. Hérlendis íþyngja
slíkar lántökur sveitarfélögunum
verulega. »16
SKOÐANIR»
Staksteinar: Er hægt að gefa
án þess að eiga?
Forystugreinar: Óupplýst Alþingi
Höfðinglegt framtak
Pistill: Húsið til barnanna
Ljósvaki: Morgunstund gefur gull …
UMRÆÐAN»
Barnslíf að veði
Erfið glíma við staðreyndir
Allt stopp!
Sigrar kerfið?
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+/0-00
**1-21
+3-,./
*4-,44
*.-+,3
**.-.,
*-+4.,
*40-01
*,.-41
5 675 4# 89: +//4
*+,-4/
+/.-/0
**0-*2
+3-23/
*4-20,
*.-3+*
**,-//
*-3//0
*4.-*+
*,,-11
++4-0,,*
&;<
*+2-+/
+/.-00
**0-0+
+3-4//
*4-4*0
*.-3.4
**,-33
*-3/13
*4.-,/
*,,-41
Heitast 14°C | Kaldast 5°C
Hæg breytileg átt,
skýjað eða skýjað með
köflum og þurrt að
mestu. Smáskúrir SA-
til. Hlýjast sunnanlands. »10
Ástin á tímum
ömmu og afa er ynd-
isleg lesning um ást
á ofanverðri tuttug-
ustu öld í íslenskri
sveit. »29
AF LISTUM»
Saga manns
og konu
KVIKMYNDIR»
Birnir og brúðgumar í
bíóhúsum. »31
Söfnuðu gögnum í
mjólkurbrúsa til að
varðveita minningu
lífsins í hverfinu sem
varð Þjóðverjum að
bráð. »30
BÓKMENNTIR»
Horfinn
heimur
FÓLK»
Kungfú-leikarinn
eitursvali. »32
TÓNLIST»
Emilíana er í 36. sæti
Billboard-listans. »28
Menning
VEÐUR»
1. Kona lést í eldsvoðanum
2. Íslendingar streyma til Noregs
3. Nýtt flensutilfelli á Íslandi
4. Sturla heldur til Noregs
Íslenska krónan veiktist um 0,9%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | „Ég hélt ég myndi deyja á leiðinni
heim,“ segir Karen Helga Steinsdóttir á Hrauni,
nú þrettán ára, er hún rifjar upp fund sinn við
birnuna sem gekk á land á Skaga í fyrra. Birnan
er nú til sýnis, uppstoppuð, í Hafíssetrinu á
Blönduósi. Fyrstu íbúar landsins sem urðu á vegi
hennar voru heimilishundurinn Týra, sem birnan
horfði fyrst í augun á áður en hún tók eftir Karen
sem vakti áhuga hennar.
Karen stóð enn á ný andspænis birnunni nýver-
ið og rifjaði upp þeirra fyrsta fund. Þá hélt hún sig
hafa séð áburðarpoka sem breyttist svo á örskots-
stundu í ísbjörn. Þessi skelfilega uppgötvun Kar-
enar leiddi til einu skynsamlegu niðurstöðunnar,
hún fann þann kost bestan að hraða sér heim og
þorði ekki fyrir sitt litla líf að líta um öxl fyrr en
hún var komin í öruggt skjól heima hjá sér.
Hundurinn Týra hamaðist linnulaust í birnunni
og höfðu heimilismenn af því áhyggjur að Týra
yrði ísbjarnarfóður en grænlenskur námsmaður
sem staddur var á Hrauni kom Týru til bjargar.
Karen sagði að lögreglan hefði sagt heimilisfólk-
inu að læsa húsum sínum meðan björninn gekk
laus. Þetta fannst henni svolítið skrýtið, „því ég
hafði aldrei heyrt um það að birnir kynnu að opna
dyr, hvað þá læstar!“
Karen gat þess einnig að þessi lífsreynsla hefði
sett nokkurt mark á sálina. Myrkfælni hefði kvatt
dyra hjá henni í vetur sem hún þekkti ekki áður
og þegar hún væri ein úti vildi hún gjarnan sjá
girðingu milli sjávar og bæjar. Hún endaði þó sína
frásögn á því að hún væri öll að hressast í
ísbjarnarlegu tilliti og óttinn við hið liðna væri að
hverfa.
„Hélt ég myndi deyja“
Birnan sem gekk á land við Hraun á Skaga er komin á Hafíssetrið á Blönduósi
Karen Helga Steinsdóttir, þá 12 ára, horfðist í augu við hana og hljóp svo heim
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Endurfundir Karen á Hrauni með birnunni sem
hún kynntist svo óvænt fyrir ári.
Í HNOTSKURN
»Ísbjörn gekk á land á Skaga 16. júní ífyrra og gæddi sér á eggjum í æð-
arvarpi.
»Annar björn hafði nokkrum dögum fyrrkomið á land og var sá veginn strax.
»Reynt var að fara aðra leið með seinnibjörninn. Tilraun var gerð til að fanga
hann og svæfa en það mistókst. Björninn
var veginn og uppstoppaður í kjölfarið.
KRAKKARNIR í 6. bekk í Fossvogsskóla hafa burstað
tennurnar af mikilli ákefð eftir skólahádegisverðinn í
rúmlega tvær vikur. Hópur foreldra stóð að átakinu
sem lauk í gær, en því var ætlað að vekja börnin til vit-
undar um tannheilsu og hvort fræðsla og eftirlit með
tönnum eigi jafnvel heima í skólum rétt eins og leikfimi
eða sund. Tannlæknar í hverfinu hafa hvatt börnin til
dáða og munu þau skila til þeirra skýrslu um átakið,
hvernig gekk og hvernig þau telji að skólinn geti komið
að eftirliti með tannhirðu. jmv@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
BURSTAÐ Í TVÆR VIKUR
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson píanó-
leikari gerði sér lítið fyrir og stofn-
aði fyrirtækið Hands On Music til
að gefa út sína fyrstu plötu, Debut,
sem kom út 17.
maí sl.
„Ég sá fram á
að það væru
margir kostir við
að gefa út sjálf-
ur, þó svo það
væri miklu meiri
vinna,“ segir
Víkingur og
nefnir í fyrsta
lagi að hann eigi
þannig útgáfu-
réttinn að upptökum sínum og í
öðru lagi að hann ráði allri um-
gjörð á útgáfunni, dreifingu, mark-
aðssetningu og fái að hafa sitt að
segja um útlit platna og kynning-
arefnis.
Víkingur þurfti að leggja sjálfur
út fyrir plötunni og því nokkur
fjárhagsleg áhætta að standa í út-
gáfunni sjálfur. Á tímum kreppu sé
lítið einkafjármagn að fá og kostn-
aðurinn mikill enda hafi hann
ákveðið að spara hvergi.
„Ég tók hana upp í einni fræg-
ustu tónleikahöll í heiminum, Ge-
wandhaus í Leipzig, með frábærum
upptökumeistara,“ segir Víkingur
og bendir á að geisladiskur sé grip-
ur sem gaman er að eiga og því
þurfi að vanda vel til verka. | 27
Víkingur
með eigin
útgáfu
Víkingur Heiðar
Ólafsson