Nýtt kvennablað - 01.01.1941, Blaðsíða 5

Nýtt kvennablað - 01.01.1941, Blaðsíða 5
1. árg. - 5. tbl NÍYTT KVEIMBLAV 1941. 1 91 4 1 Tuttugasta öldin heldur áfram jöí'num skref- um og skilar vel. Húii er ekki ein á ferð, ungur og gamall, er í liennar föruneyti. Afram, áfram sögðu áramótaklukkurnar. l'yrsta ár hins fimmta tugar er hafið. Standi nú liendur fram úr ermum. — Klæði og skæði kíða þess að vera sniðin, nálar þess að vera þræddar, hjól að vera knúin. Margt beið liálfgert yfir áramótin, tegldir fletir og þvættar voðir. Sumir liöfðu prjónað sokkinn að hæl, aðrir fi'am að úrtekt. Hvorl lengra eða skemmra er komið, sldptir engu, að lialda áfram er listin. Eftir að ketillinn er settnr upp og áramóta- kaffið drukkið sameiginlega, fer hver lil sinnar venjulegu vinnu. . Flestar taka könurnar til heimilisstarfanna, þess vegna eigum við Iíka að leggja ríka áherzlu á húsmæðranámið. Við förum til hús og harna og umsvifa hversdagslífsins, sem er raunar hverri gleðistund dýrmætara. Það er hið holla líf. Búsýslan nær út fyrir eldhúsið og bæjardyrnar. Sæll er að líla út um gluggann, lil hafs og heiða, skreppa út í dyr, glevpa gol- una og fagna ferskum degi. Við segjum harn- inu hvað fjallið heitir, hvað tanginn og teigur- inn er kallaður, Iivar næsti hær stendur, hvað langt það má fara o. s. frv. En er ekki starfssviðið stærra? Heimtar tuttugasta öldin ekki meira af okkur? .Iú, sú gamla, hún er heimtufrek á sinni jöfnu göngu. Hún ætlast til, í umstangi dagsins, að konur geri sér ljóst hvert stefnir, og leggi skerf í þró- un þjóðarhúsins. Hún hefir gefið oklcur landið, íhlutun um velferð þess lagalega, og stækkað allra útsýn. ísland er okkar land, og þess hreytilegi him- inn er okkar himinn. — í framtíðinni her þjóðlifið svip starfs konunnar eða aðgerða- levsis. Veljum starfið og munum heilræðið: Trúðu þínum stallhróður en sjálfum þér hezt. Það er jafnvel vafamál, hvort konur almennt fagna í raun og veru hinni víðfeðmn útsýn. Líkar þeim ekki alltaf hezl að karhnennirnir einir semji lög og reglur, en telja sig þvo hend- ur sinar með ]>ví að koma þar hvergi nærri? Gallinn er þá hara sá, að við þvoum hendur okkar aldrei hreinar héðan af. Við erum sam- sekar nm misfellur þjóðlifsins. Þær eru okkur að lcenna, okkar vanræksla. Nýtt kvennahlað vill fá, á þessu ári, þrjár konur á löggjafarþing þjóðarinnar, lil þess að leysa vandamálin með öðrum vitrum mönnum. Blaðið er misseris gamalt. Nú á afmælinu hið- ur það lesendur sína, að stinga upp á hverjar þessar konur eiga að vera. Þær eru vissulega ekki fyrir uppástunguna eina komnar inn í þingið. En gaman væri að lieyra álit ykkar. Með kærri þökk fyrir gamla árið. Gleðilegt nýár! G. St. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR: ÍÁoyJikcúi mcizðui c.%, mób.u\m.áAib{ m. Frá alda öðli hefir móðirin verið fyrsti kenn- ari harnsins og vafalaust ofl sá hezli. Það er sjálfsagl engin tilviljun, að talað cr um móður- mál. Barnið lærir fyrstu orðin af móður sinni, og undir lienni er það oftast komið, hvernig málfar þess og allt orðaval verður, og hve mik- inn orðaforða það eignast á fyrstu árum æv- innar. Aðstaða kaupstaðabarnsins lil þess að læra móðurmálið er á margan hátt miklu lakari en sveitaharnsins, eins og allir vita. Það lærir ckki á sama hátt, af því að taka Jjátt í margvíslegum störfum úti og inni, umgangast skepnur og lifa nánu samlifi við náttúruna. Og auk þess er í

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.