Nýtt kvennablað - 01.01.1941, Blaðsíða 8

Nýtt kvennablað - 01.01.1941, Blaðsíða 8
4 NÝTT KVENNABLAÐ Frú Guðrún Indriðadóttir. í tilefni af ])ví, að nú er í fyrsta sinn liafin heildarútgáfa af rituni Jóhanns Signrjónssonar, skálds, þykir Nýju kvennahlaði vel hlýða, að birta mynd af þeirri konu, sem ef (il vill liefir átt drjúgan þátt í því að auka vinsældir skálds- ins hér á tandi, frú Guðrúnu Indriðadóttur. Fyrst íslenzkra kvenna lék hún hlutverk Höllu í Fjalla-Eyvindi og gerði ])að með þeim ágætuin, að þeim, seni sáu, mun seint úr minni líða. Tókst henni að sýna annarsvegar bóndakonuna, sem stjórnar með því látleysi, tign og festu, sem einkennt hefir margar okkar fremstu konur, en sem liinsvegar hefir að geyma þá ást, er öllu fórnar ef þörf krefur, og kýs fremur dauðann fvrir sig og sína heldur en að gefast upp. — Svo föstuin tökum náði þessi leikur á áhorfendum, að margan rak i rogastans þegar úr leikhúsinu kom, að lenda ekki í sömu manndrápshríðinni og Halla fór út í í leikslok... Eitt Iiarma ég alltaf og það er það, að höf- undur Fjalla-Eývindar skyldi aldrei sjá þessa fyrstu en ram-íslenzku Höllu, sem frú Guðrún sýndi okkur, svo að hann gæti þakkað henni að verðleikum. Frú Guðrún Indriðadóttir mun hafa leikið Höllu-Iilutverkið á milli 70—80 sinnum, þar af 50 sinnum hér í Reykjavík, en í hin skiptin norð- ur á Akureyri og i Vesturheimi. ÓLÍNA ANDRÉSDÓTTIR : £T ROSIN. (Áður óprentað) Þú brosir hér mót suðri og sól, |>ú sannnefnd drottning hlóma, á blaðagrænum guðastól, í glæstum æskuljóma, þú blaðahvíta, bljúga rós, sem ba.rn er saklaust dreymir um eitthvert blessað undraljós frá öðrum betra heimi. Sem himinroðans rjóða dís hin rauða situr hjá þér, hún minnir á þann eld er frýs og ilm hún kastar frá sér. Mér finnst hún tákna undrið ást, sem æskulífið dreymir, þá æðstu sælu er oftast brást, en engin sála gleymir. Guðrún I ndriða- dóttir i hlutverki Höllu. G. M.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.