Nýtt kvennablað - 01.05.1944, Síða 15

Nýtt kvennablað - 01.05.1944, Síða 15
NYTT KVENNABLAÐ 11 — Snörp1 vindhviða vakti liana, það var orðið dimmt og veður ískyggilegt. Hún vafði að sér kápukragann og flýtti sér lieim. Sigríður lézl sofa þegar Dísa koni upp i svefn- herbergi þeirra, en tár sátu i augnahárum. ,/IIún liafði háttað snemma og beðið guð að vernda uppáhalds barnið sitl frá öllum villigötum. Sigríður skildi æskuna flestum fremur, og gönu- iilaup hennar og þrá, en hún gat sízt áttað sig á að stúlkan þráði að klippa hár silt, sem hún og hennar jafnöldrur höfðu keppzt um að hafa sem lengsl og mest. Næstu daga var rok og sjávargangur og menn voru liræddir um sjófarendur. Lausafregnir bárust um að tvo menn liefði tekið lit af „IIauk“. Dísa var hljóð og kyrrlát, var mesl heima lijá Siggu frænku um páskana, sal lengstum við handavinnu sína. Stella og Didda fengu svo köld svör þegar þær kröfðu hana sagna um þclta skyndilega hvarf þegar þær ætluðu allar á hárgreiðslustofuna, að þær nefndu það ekki framar. „Haukur“ kom að Iandi mikið laskaður og þurfti viðgerðar. Fregnin um mcnnina, sem tók út reyndist sönn. Dísa las nöfnin þeirra í blöðunum. Guði sé lof, guði almáttugum sé lof, sagði hún við sjálfa sig og kastaði sér grát- andi um hálsinn á Siggu frænku, til allrar ham- ingju var Dísa stödd lijá henni. Björn kom snöggvast til Sigriðar en tók svo næstu bílferð heim lil sín. — Björn og Sigriður áttu leyndarmál saman. Björn hafði sþurt Sig- ríði dálítið feiminn, hvort Dísa myndi hafa gaman af að eignasl „upphlut“ fyrir Alþingis- hátíðina, og það hafði lifnað svo yfir Sigríði að honum fannst næstuin tilvinnandi að kosta búninginn til að gleðja hana. Sigríður tólc svo að sér að annast allar framkvæmdir. Dísa fór heim i maí með hárið sitl óskert, svo nú féll allt i ljúfa löð. Afmælisdágur Dísu er 12. júní. Sigga frænka fór i lang fyrsta lagi í sumardvöl sína þctta sinn, það gæti líka komið sér vel að vera eitt- hvað til aðstoðar, sumu af fólkinu mundi langa til að vera við hátíðahöldin á Þingvöllum. 12. júní var sól og sumarblíða. Að afliðandi liádegi reið Björn i Múla í hlaðið. Disa sá til ferða hans og hljóp1 út. Ó, livað luin óskaði að sá siður héldist við, að fólk mætti kyssast við svona tækifæri, án ]icss að verða fyrir álasi. Hún tók honum bókstaflega opnum örmum, og hann fann hcilan hug liennar i innilega föstu hand- taki, og um lcið komu orðin „Góðum guði sé lof að ég fæ að sjá þig.“ Hún fann augnaráð lians og allt eins vildi liann vefja hana örmum, og hana langaði til að lialla sér upp að lionum og — gráta. — Nei, þetla dugði nú ekki, hún varð að finna upp á einliverjum glellum. — „jlvað ertu með i þessum stóra poka — afmælisgjöf handa mér?“ Hann brosti við, „Já, það átti nú að vera afmælisgjöf lianda þér, ef þú getur eða villt nota það.“ Dísa skildi livorki upp né niður, hún hafði alls ekki búizt við neinni afmælis- gjöf. — Nú birtist brosandi andlitið á Sigriði í bæjardyrunum. Ilún tók að sér að sýna Dísu afmælisgjöfina, og fór með liana fram i stofu, en Birni var boðið til baðstofu, og spurður frétta af mikilli alúð. Seinna uni daginn gengu þau Björn og Dísa niður túnið, Disa var ldædd í upphlut með hvitri skyrtu, og ljósa svuntu. Það glóði á þykkar, ljósar liárlykkjurnar í sólskininu, hún sýndist hærri en vant var og mýkri i hreyfingum. — Inni i eldhúsinu hjá Ingibjörgu sat aðkomu- kona, og þær ræddu saman. Sigríður gekk fram göngin, og heyrði ]rá Ingibjörgu segja i mæðu- róm: „Já, því segi ég það, munurinn á uppeld- inu á unglingunum nú og í okkar ungdæmi. Liklega hefði maður nú getað þegið að læra eilt- livað — að cg lali nú ekki um ósköpin, að hlaða þessu skarli upp á lcrakkann, þetta er þó aldrei nema 17 ára, og þelta skelfingar tryppi sem hún er. — Sigríður var farin að heyra dá- lítið illa, en það gat komið að henni að nota sér Jiessa vöntun sina, látast ekki heyra, þegar henni þótti það við eiga. Hún gekk inn í eldlnis, með sínu bjartasta brosi, lét sem hún hefði ekki hugmynd um umlalsefnið, tók í höndina á Ingi- björgu og dró liana lit að eldhúsglugganum: „Lítlu nú bara á liana Dísu litlu, finnst þér hún ekki sóma sér nógu vel, það sér ekki á hcnni móðurleysið. Hún er þér lil sóma, það skal ég segja, hvar sem fram kenmr.“ Þctta voru tökin, sem átlu við. Ingibjörg klappaði góðlátlega á hendina á Sigríði: „Já, ef allir væru nú eins góðgjarnir og þú, Sigríður mín, en víst hef ég gjört hvað ég gat, og mikið er ég búin að Iiafa fyrir henni Þórdisi litlu, bæði fyrr og síðar.“ Úr bréfi frá einum Iesanda Nýs kvennablaðs. „Okkur þykir Nýtt kvennablað allra skemmtileg'- asta blaö, og vildum ógjarnan missa það aftur. Hygg ég a‘ö þaö sé víða orSið vinsælt. Ég held að karlmennimir haldi líka upp á þaö.

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.