Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Blaðsíða 14

Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Blaðsíða 14
12 NÝTT KVENNABLAÐ RANNVEIG SCHMIDT ^JJjáip h cincía ^J^L ina Tlöf. þessarar greinar, frú Eannveig- Schmidt, mun lesendum blaðsins kunn. I sumar var hún á ferð hér heima eftir 30 ára dvöl erlendis. Nú er hún búsett vestur i Iíaliforníu í Norður-Ameríku. Hún hefur skrifað mikið um ísland og- flutt f.jölda fyrirlestra um land og þjóð í mörgum borgum Vesturheims. S. 1. ár kom út eftir hana bókin „Hugsaö heim“, sem var m.jög vel tekið og kaflar hafa verið lesnir úr i útvarpinu. Frú Rannveig hefur fjölmörg áhugamál og tekur mikinn þátt í félagslífi. Hún er lítil og hnellin og heitir frá Quo. Þeg- ar hún situr á stól ná tærnar ekki niður á gólf- ið; andlitið er frítt á kínverska vísu, augun nokkuð skásett, eins og lög gera ráð fyrir, en brosið indælt og lýsir gæsku og vinarþeli við allan heiminn. Hún er klædd í dökkan, erma- lausan kjól úr kínversku, rósóttu silki, með því sniði, sem allar kínverskar tískukonur með frú CÍiiang-Kaj-shek í broddi fylkingar, nota nú á dögum. Kjóllinn er sniðinn beint upp og ofan og ekkert skraut á honum; sniðið heimtar fyrst og fremst, að konan hafi fallega handleggi — en frú Quo hefir fallega handleggi og sérlega litlar hendur. Á öxlinni hefir hún venjulega forkunn- arfagrar nálar, stundum stóra „jade“-nál, stundum blikandi nál úr ótal stórum demönt- um, en demantana er hægt að skrúfa úr nál- inni og eru þeir þá eyrnahringir. Þessi nál vek- ur alltaf mikla athygli. Hún heitir fullu nafni frú Quo TaiChi, en áður en hún giftist hét hún Shu Dar-Chu, sem þýð- ir dyggð. Maðurinn hennar, Dr. Quo, var sendi- herra Kína í Lundúnum í tíu ár, síðar varð hann verndarráðherra Chiang Kaj-shek’s í Chung- king. Frúin — Madame, eins og við köllum hana — er í Bandaríkjunum vegna heilsu yngsta sonar síns, sem er 10 ára gamall. Hann fæddist í Lundúnum á ríkisárum Edvards áttunda og heitir í höfuðið á konunginum. Edvard litli er mesti myndardrengur, síbrosandi og vinalegur. Ekkert segist hann kæra sig um að verða sendi- herra, þegar hann verði stór, nei, hann hefir heyrt svo mikið um matarskort víðsvegar í heiminum og vill verða bóndi og rækta korn. Eldri sonurinn gengur á háskólann í Santa Barbara. Yngri systir frú Quo, hin mesta fríð- leikskona, dvelur lijá henni í Santa Barbara; hún heitir frú Tennyson Tan, en maður hennar er nú aðalræðismaður Kína í Lundúnum. Frú Tan hefir gengið á ameríska háskóla og talar ágætlega ensku. Systurnar tala líka fi’önsku, enda hafa þær átt heima nokkur ár í París, og þær segja mér að franskan sé þeim léttari en enskan. Systurnar eru framúrskarandi viðfeldn- ar og hafa mikinn áhuga og þekkingu á alþjóða- málum, en sérstaklega bera þær auðvitað fyrir brjósti velferð Kína og 450 miljóna þeirra er landið byggja .... milljónanna, sem hafa bar- ist meira en tíu ár með svo ótrúlegri hreysti og úthaldi við djöflana frá Japan. Við vorum sextán konur í Santa Barbara, sem tókum boði frú Quo um að kenna okkur kín- versku, en við störfuðum allar á einn eða annan hátt fyrir kínversku hjálparstarfsemina þar, og kennslan fór fram á heimili frú Quo í Monte- cito, sem er fallegasti bæjarhlutinn í Santa Barbara. Það er dálítill partur af Kína, sem þarna hefir verið gróðursettur í Montecito, þvi þeir, sem eiga heima í húsinu tala kínversku sín á milli, borða með ,,chopsticks“,*) klæðast kín- verskum búningum og taka á móti gestunum með hinni annáluðu kínverksu gestrisni. Frú Quo segir, að Montecito minni sig að mörgu leyti á enska sveitasælu, háu trén í garðinum, fuglakliðurinn og kyrrðin, en lifnaðarhættirnir eru óbrotnari þar en í Lundúnum, en stórar ljós- myndir af ensku konungshjónunum standa í silfurrömmum á borði í daglegu stofunni og yfir kamínunni hangir stórt málverk af dr. Quo. en hann er í einkennisbúningi stöðu sinnar með ótal orður. Kínversku tímarnir hennar frú Quo voru allt- af skemmtilegir og við höfðum allar áhuga að læra málið. Stundum veitti okkur erfitt að ná rétta framburðinum og við kvörtuðum sáran. Þá hló Madame og sagði: „Kínverska er miklu auðveldari en enska“. Hún bjóst við að geta *) matprjónum.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.