Nýtt kvennablað - 01.09.1945, Qupperneq 16
14
NÝTi' KVENNABLAÐ
Samstarfsmenn
Frá
Elín GúSmundsdöttir
ófeig'sfirði,
fædd 27/2 1919 í Bæ í
Árneshreppi. Foreldrar:
Guðm. Guðmundsson og
Steinunn Hjálmarsdóttir.
Gift Guðmundi Péturssyni,
Ófeigsfirði. Hefur hún út-
breitt blaðið í sínu nágrenni og annast það
prýðilega.
Þann 28. apríl átti Þórlaug Bjarnadóttir hús-
freyja á Gaulverjabæ í Árnessýslu 65 ára af-
mæli. Eg hafði fyrir löngu lofað ritstjóra þessa
blaðs að skrifa nokkur orð um Þórlaugu, en hún
hefur verið útsölumaður blaðsins frá byrjun.
Finnst mér tilvalið tækifæri að gera það nú í
tilefni af afmælinu. Þorlaug er fædd að Sviðu-
gerðum í Gaulverjabæjarhrepp 28. apríl 1880.
Voru foreldrar hennar Bjarni Þorvarðsscn
hreppstjóra Jónssonar og Guðrún Pálsdóttir
prests Ingimundarsonar í Gaulverjabæ, kona
séra Páls var Sigríður Eiríksdóttir Sverrisen
sýslumanns. En móðir síra Páls var Sigríður
Árnadóttir, systir Valgerðar konu Gunnlaugs
sýslumanns Briem, föður ólafs Briem í Eyja-
firði. En Þórlaug, föðuramma og nafna Þórlaug-
ar, var af Bolholtsætt, en af þeirri ætt eru
margir merkismenn, og einkum eru konur þeirr-
ar ættar skörungar miklir.
Eins og sjá má af þessari litlu ættfærslu, er
Þórlaug af góðu bergi brotin og má vel sjá að
svo er. Þorlaug missti föður sinn ung og voru
systkinin mörg, ólst hún því mest upp hjá Þór-
laugu ömmu sinni í Sviðugörðum. Stuttu eftir
fermingu missti Þorlaug heilsuna og var tvísýnt
að hún fengi lækningu. Þá var það að frændi
hennar, séra Valdimar Briem, tók Þorlaugu til
sín. „En hún var skild báðum hjónunum“. Þar
fékk Þórlaug heilsuna. Dvaldi hún á Stóra-Núpi
þar til 1904 að hún giftist Degi hreppstjóra
Brynjólfssyni fræðimanns Jónssonar frá Minna-
Núpi. Hófu þau búskap í Þjórsárholti en flutt-
ust þaðan fyrst að Gerðiskoti í Eyrarbakka-
hrepp, en síðan að Sviðugörðum, fæðingarheim-
ili Þorlaugar. í síðustu 25 ár hafa þau búið stór-
búi að Gaulverjabæ. Þau hafa eignast 6 börn, 4
eru á lífi. Bjarni dó ungbarn og Sigrún dó 19
ára, var hún talin efnilegasta stúlka hér um
slóðir. Á lífi eru Brynjólfur læknir á Hvamms-
tanga, Ingibjörg, símamær að Selfossi, Bjarni
búfræðingur heima og Dagur, sem nú dvelur sér
til heilsubótar á Vífilstöðum, mesti efnispiltur.
Auk þess hefur Þórlaug alið upp sonardóttur
sína, Huldu Brynjólfsdóttur, myndarstúlku, sem
enn dvelur heima. Þar að auki hafa unglingar
dvalið oft langdvölum hjá þeim hjónum. Það
lætur að líkum að húsmóðir á heimili eins og
Gaulverjabæ hefur mörgu að sinna. Að Gaul-
verjabæ er Kirkjustaður, póst- og símastöð, bif-
reiðaafgreiðsla og fundarstaður. Allt þetta velö-
ur miklum gestagangi, sem mæðir ekki sízt á
húsmóðurinni á þessum fólksleysistímum. Þarf
mikinn dugnað og kjark til að standa í slíkri
húsmóðurstöðu. í þesum sessi sómir Þórlaug sér
vel. Hún er stórmyndarleg húsmóðir, stjórnsöm
og reglusöm. Hefir það komið sér vel svo oft
sem maður hennar hefir orðið að fara að heim-
an, sökum sinna margþættu starfa. Þórlaug er
myndarleg að vallarsýn og sópar af henni. Hún
er stórbrotin og hreinlynd en líka hjálpsöm,
greiðvikinn og góðgjörn og vill hvers manns
vanda leysa og er gott til hennar að leita. Hún
er prýðisvel greind, fróð og víðlesin svo furðu
gegnir um konu sem hefur haft svo mörgu að
sinna um dagana Auk sinna miklu húsmóður-
starfa hefur Þórlaug tekið mikinn þátt í félags-
lífi sveitarinnar. Hún hefur verið í stjórn
kvenfélagsins frá stofnun þess eða 27 ár gjald-
keri. Auk þess hefur hún um mörg ár verið í
fræðslunefnd. öll félagsstörf vinnur Þórlaug
með mikilli samvizkusemi og árvekni. Eftir 13
ára nábýli við Þórlaugu get ég sagt það, að eftir
því sem ég kynnist henni betur, þykir mér meira
til hennar koma. Eg vil enda þessar línur með
beztu hamingjuóskum Þórlaugu til handa. Veit
ég að þá mæli ég fyrir munn fjölda sveitunga.
Guðlaug Narfadóttir.