Nýtt kvennablað - 01.01.1950, Qupperneq 3

Nýtt kvennablað - 01.01.1950, Qupperneq 3
NÝTT KVENNABLAD 11. árgangur. 1. tbl., jan. 1950. Áramótaþankar Svona er líliö — koaiingar og aftur kosningar. í október, ;irið sem leið, alþingiskosningar, nú í janúar 1950 bæjaratjórnar- og sveitarstjórnar- kosningar. Ogsvo prestkosningar t. d. í Fríkirkju- söfnuðinum í Reykjavík. Prestkosningin er öllu mannlegri, þar sem um mann er valið, en í þingkosningum og bæjar- stjórnarkosningum er valið um flokk. Það þykir fullkomið lýðræði, en er |dó ekkert nema véla- brögð. Þjóðin á ca. 70 menn, sem raða hverjir öðr- um upp á listana, og þá megum við kjósa. þ. e. a. s. einn listann. En þó þetta sé grár leikur, eru kosningar þannig háðar í lýðfrjálsum lönd- um, og lengur gildir ekki; Bara ef lúsin íslenzk er o. s. frv. í þennan búning eða bönd eru stjórn- málin vafin, illu heilli. Það skeði margt á árinu, sem leið. T. d. skeöi það, að við konurnar gengum berfættar bæja á milli, áttum ekki sokka á fæturna. Piltarnir vestlislausir, af því ameríski móðurinn er aðeins buxur og jakki. Öll íslenzk börn frá 7—16 ára aldurs fóru í skóla. Við munum öll að síldin brást og vorið brást fram eftir öllu. En það tvennt dá menn, al- mennt, mest allra liluta. Bókaútgáfa var mlikil á árinu og gleðiefini liversu margar konur voru í liópi höfundanna. Út kom 1. bindi „Rit Kristínar Sigfúsdóttur“, 4. og síðasta bindi „Dalalíf" Guðrúnar frá Lundi, „í biðsal hjónabandsins" eftir Þórunni Elvu Magnúsdóttur, „Tvennir tímar“ eftir Elínborgu Lárusdóttur, 4. hindi „Dóra“ eftir Ragnheiði Jónsdóttur, „Gengin spor“, ljóðabók eftir Guð- rúnu Árnadóttur, „Úlfhildur“ og „Vængjaþyt- ur“, ljóðabók eftir Hugrúnu, „Sveitin okkar" eftir Þorbjörgu Árnadóttur, „Tveir júnídagar" eftir Oddnýju Guðmundidóttur o. fl. og nokkrar bækur í þýðingu kvenna. NÝTT KVENNABLAÐ Fjöldli lista- og iðnsýnimga voru á árinu, en Reykjavíkursýningin í hinu nýja stórhýsi Þjóð- minjasafnsins fjölsóttust. Margi'ét Indriðadóttir, blaðamaður, minnir mig að kæmist að orði eitt- hvað á þá leið um eina þeirra, að til fjáröflunar Jijóðhollra fyrirtækja væri engin leið eins skemmtileg og sú, að halda sýningu. Báru menn Reykjavíkursýninguna, að ágætum, saman við Búnaðarsýninguna 1947, en hún var, þeim er þetfa skrafar, einskonar paradís allra sýninga. Þýzkt verkafólk var flutt til landsins til land- búnaðarvinnu, af því að íslenzkt starfsfólk fæst ekki til að vera í sveitinni á veturna. Hafa þýzku stúlkurnar g.ifzt, hver af annarri, svo árið hefur þannig lagt nýjan hornstein í grunn þjóðlífsins. Skemmtiferðalög landsmanna til útlanda voru mikil, og sömuleiðis ferðalög innanlands, þar eð allir fá nú frí frá vinnu sinni til einhverra til- breytiinga. Hótelum fjölgaði eitthvað úti um sveitir landsins, en ekki nóg. Húsnæð ð er mikið atriði fyrir gesti og gangandi. í kaupstöðunum er húsnæðiseklan alvarlegt vandamál. Húsaleigulögin, sem hrellt hafa og eyðilagt. sambúð fjölskyldna eru enn í fullu gildi og stór- íbúðaskatturinn nú mjög umtalaður, ef stofan er nógu stór, þar sem fara á eftir gólffleti, gæti 'svo farið að eigandinn þyrfti að taka inn á sig minnsta kosti eina fjölskyldu. Og þeir húsnæðis- lausu settir til erkióvinarins. Nú má engiti kona manni treysla til að skaffa sér þak yfir höfuðið, þeir eru þess ekki megnugir síðan fjárfestingin er nauðsynleg vegna gjaldeyrisskorts. Svona er lífið. Konan verður að treysta sínum flokki. Við höfðum nóg að borða árið sem leið, því ekki að færa það í letur, sem mest var um vert, þó skömmtunarseðlar skertu matarlystina og fleiri kvillar. Nú hefur nýtt ár rótað við okkur og mætturn við óska, að það tæki ekki á okkur harðari höndum en fyrirrennari þess. 1

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.