Nýtt kvennablað - 01.01.1950, Qupperneq 6

Nýtt kvennablað - 01.01.1950, Qupperneq 6
ul mynztur, sem henni því miður mun ekki hafa unn' izt tími til að ganga frá að öllu leyti. Þegar Iðnsaga íslands var iskráð ritaði hún í hana þátt, sem hún nefnir: Vefnaður, prjón og saumur. Liggur að baki þessarar ritgerðar óvenju mikil þekking, bæði bók- menntaleg og listræn. Kem ég þá að kennslustörfum I. L. Hún hafði ung stundað nám hér í líeykjavík, því næst lá leið hennar til útlanda. Eftir þriggja ára náms- dvöl erlendis, í Danmörk og Svíþjóð, kom hún heim 1907. Varð hún þá þegar kennari við Barnaskóla Rv. Kenndi hún litlu stúlkunum handavinnu en drengjun- um ■ smíðar. Við Kvennaskólann í Rv. kenndi hún líka, auk þess hafði hún fjölda nemenda í einkatím’ um, kenndi þar auk hannyrða, tungumál, ensku og dönsku. Síðar kenndi hún í mörg ár dönsku við Kvenna' skólann í Reykjavík þar til kraflarnir þrutu og hún varð með öllu að láta af störfum. Ung kynntist 1. L. ungmennafélagsskapnuin. Átti hún frá þeim tímum margar góðar minningar og trygga vini. I. L. var alla tíð mikil félagshyggju kona. Að telja hér upp öll þau félög, sem hún samdi drög að lögum fyrir, eða vann fyrir á einn eður annan hátt ætla ég mér ekki, lil þess brestur mig þekkingu. Hún var ó‘ venju starfshæf og fús til {>ess að vinna að öllu því, er hún trúði að gagni mætti koma. Tvisvar sótli hún alþjóðaþing kvenna (The International Counsel of Women). 1 Osló 1920 og í Washington í Bandaríkj" unum 1925. í Bæjarstjórn Reykjavíkur sat hún eitt kjörtímabil (1918—1922). Inga Lárusdóttir var að eðlisfari kona mjög yfir' lætislaus og óeigingjörn. Kom þetta aldrei Ijósar fram, en þegar hún rétti bágstöddum hjálparhönd. Um það mátti helzt enginn vita, jafnvel ekki þiggjandinn sjálf- ur mátti vita hvaðan gjöfin kom. í 1. tbl. 1. árg. 19. júní, er smákvæði eftir Maríu Jóhannesdóttur, skáldkonu, sem endar á þessu erindi: Óttumst ei, vinir, þótt þróttur vor þrotni, né þrekið á hálfnaðri leið. Sé önnur höndin helguð drottni, en hin vígð annarra neyð. Inga L. Lárusdáttir var fædd að Selárdal í Arnar- firði 23. sept. 1880. Foreldrar hennar voru Lárus Bene- diktsson, prestur og frú Ólína Ólafsdóttir, dómkirkju- prests í Reykjavík. Systkini Ingu eru: Ólafur Lárus' son, próf. Ólafía, ekkja Björns Magnússonar frá Hnausum í Húnaþingi, Benny kona Magnúsar Jóns- sonar, prófessors oí; Áslaug, gift Þorsteini Þorsteins- syni, alþingismanni og sýslumanni Dalamanna. Steinunn H. Bjarnason. Gripið í annarra prjóna „List cr það lika og vinna“ að Ijúða í garginu hinna, af hcndi það hlulverk að inna, hljómana dýrstu að finna. ,,List cr það lika og vinna“ i lifssorþi gimstein að finna. Sorgir með sólskini þynna ogsitja eltki i Ijósraufum hinna. „List er það lílta og vinna“ að láta svolitið minna, úr ógöngum útleið að finna en aka ekki i kjölfarið hinna. „List er það lika og vinna“ Ijósið að taka og sþinna, á gullsnœldu gleðinnar tvinna gœfuþráð meðbrœðra sinna. „List er það líka og vinna“ i lifinu mörgu að sinna, sjálfum sér friðland að finna og fœra út blómreiti hinna. „List er það líka og vinna“ á líknstaf þá ráðning að finna: að beygðu og brákuðu hlinna en bulla um Itœrleikann minna. „List er það líka og vinna“ þá litlu er orðið að sinna á óhroða œfinnar grinna, ilmstrá og lifgrös þar finna. (Kvœði þetta birtist i 19. júní, nafnlaust). HÁTTVIBTU ÚTSÖLUKONUR! Aldrei er blaðið ykkur nógsamlega þakklátt fyrir ykkar mikla óeigingjarna starf. Kaupendur Nýs lcvennablaSs Akureyri! Gerið svo vel að vitja blaðsins framvegis, í Gjafa- búðina til Guðrúnar Valgerðsdóttur. 4 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.