Morgunblaðið - 14.07.2009, Page 9
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Sumarútsalan
í fullum
gangi
Stærðir 38-56
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Ein örfárra versl-
ana landsins sem algengar voru á
árum áður, þar sem allt fékkst, en
eru nú flestar horfnar, er Verslun
Haraldar Júlíussonar á Sauð-
árkróki.
Haraldur stofnaði verslunina ár-
ið 1919 og í tilefni 90 ára afmæl-
isins hélt sonur hans, Bjarni, ásamt
afkomendum og frændliði, veglega
upp á tímamótin sl. laugardag.
Þar var sannarlega sumarhátíð-
arstemming. Reist var tjaldbúð á
bílastæði sunnan verslunarinnar og
við hana sátu og stóðu hundruð
gesta sem komu hvaðanæva til að
taka þátt í gleðskapnum.
Tvö stór grill voru í gangi þar
sem pylsur voru grillaðar, ís handa
þeim sem það vildu og svaladrykkir
til kælingar í góða veðrinu, svo og
kaffi og bakkelsi.
Miðhúsabræðurnir Stefán R. og
Jón Gíslasynir léku á harmonikur,
Ari Jóhann Sigurðsson söng við
undirleik Rögnvalds Valbergssonar
og Geirmundur Valtýsson reif upp
almennan söng á sinn alkunna hátt.
Þá frumflutti Geirmundur lag
sem hann hefur samið við afmæl-
isljóð um Bjarna eftir Hilmi Jó-
hannesson en þar kemur fram að
margt þykir ódýrara hjá Bjarna en
annarsstaðar og því hefur hann
stundum verið í gamni kallaður
„Gamli Bónusinn“ af þeim sem
helst vilja ekki versla ann-
arsstaðar.
Áformað er að Verslun Haraldar
Júlíussonar verði varðveitt í sinni
núverandi mynd, en allar innrétt-
ingar eru nánast frá upphafi þær
sömu, lítið breyttar og því fróðlegt
fyrir þá sem kynnast vilja versl-
unarrekstri frá upphafi síðustu ald-
ar að líta við hjá Bjarna Har. og
skoða vöruúrvalið. Samstarfi versl-
unarinnar við Byggðasafn Skag-
firðinga verður því haldið áfram.
Þetta fæst hjá Bjarna Har
Teygjur, kort og kantskerar,
kleinujárn og kjöthamrar,
klemmur, glös og farmiðar,
kerti, sápa og vettlingar,
brjóstsykur og blýantar,
þvottaefni og þurrklútar,
bækur, grjón og náttsloppar.
Þetta fæst hjá Bjarna Har.
Þetta er hluti af löngum brag
hagyrðingsins Kristjáns Runólfs-
sonar, þar sem hann tíundar hluta
alls þess sem finna má í hillum
verslunarinnar. Í lokaerindi Krist-
jáns kemur fram að þó margt sé til
þar innanbúðar muni þó ef til vill
eitthvað vanta, en þá bregst ekki
Gamli Bónusinn:
Skóflur, tóbak, skaftpottar,
skurðarhnífar allskonar,
ótal hluti útvegar
einnig Bjarni Haraldar.
Gamli Bónusinn blífur
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Afmæli Bjarni Haraldsson kaupmaður með blómvönd, ásamt fyrrum afgreiðslumanni í versluninni, Pálma Rögn-
valdssyni, og konu hans, Bryndísi Óladóttur (t.v.), og Erlu Halldórsdóttur, einnig fyrrum starfsmanni hjá Bjarna.
Hundruð gesta mættu í blíðskaparveðri í 90 ára afmæl-
ishátíð Verslunar Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Núna er Fífan
í fullum blóma!
Komdu og sjáðu Fífuna sem er saumuð í sængurfatnaðinn.
Dásamlega mjúkur rúmfatnaður. Falleg íslensk hönnun.
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið.
Sími 533 2220 www.lindesign.is
Nýkomin blómaker og
garðvörur
Fyrir bústaðinn og heimilið
Opið: má-fö. 12-18, lokað á laugardögum í sumar
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.isHverfisgötu 6, 101 Reykjavík, Sími: 562 2862
ÚTSALA
- 40%
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
50%
afsláttur
Kæru vinir og ættingjar
Í tilefni af 75 ára afmæli mínu síðastliðið vor, langar
mig að bjóða til fagnaðar að Eyjum II í Kjós,
laugardaginn 18. júlí 2009 og hefst gamanið kl.19:00.
Ég fann engan fegurri sal en fjallasalinn minn og þar
verður slegið upp veislutjaldi.
Léttar veitingar verða í boði ásamt fjölbreyttri
skemmtidagskrá. Allir eru hjartanlega velkomnir,
tjaldstæði í boði alla helgina fyrir þá sem vilja.
Hlakka til að hitta ykkur í Heimatúninu.
Bestu kveðjur
Magnús Sæmundsson og fjölskylda.
Allar afmælisgjafir eru afþakkaðar,
en þeim sem það kjósa er bent á Styrktarfélagið Ás.
ÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
ALLT AÐ 70%