Morgunblaðið - 14.07.2009, Side 28
28 MenningLISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Á SUMARTÓNLEIKUM í
Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar í kvöld kl. 20.30 leikur
Anna Guðný Guðmunds-
dóttir tillit I-X úr Vingt
Regards sur l’Enfant-Jésus,
(Tuttugu tillit til Jesúbarns-
ins), en í fyrra hlaut hún Ís-
lensku tónlistarverðlaunin
sem flytjandi ársins 2008
fyrir flutning sinn á því
verki. Tónskáldið sagði
verkið hugleiðingu um barnið guðlega í jöt-
unni og tillit sem beinast að því: allt frá óum-
ræðilegu tilliti föðurins til hins margfalda til-
lits kirkju kærleikans, og þar á milli
fordæmalaust tillit anda fagnaðarins.
Tónlist
Tíu tillit í Lista-
safni Sigurjóns
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
KRISTJÁN Ingimarsson
leikari sýnir einleik sinn
Mike attack í Samkomuhús-
inu Húsavík í kvöld klukkan
20.
Í frétt um sýninguna segir
að Mike attack sé geðbilað
gamanleikrit án orða, Krist-
ján notar líkamann til að
túlka það sem fram fer.
Leikstjóri verksins er Rolf
Heim.
Miðaverð er 2.000 krónur og er posalaus miða-
sala við innganginn.
Nánari upplýsingar um Kristján Ingimarsson
og verkefni hans er að finna á heimasíðunni
www.neander.dk.
Leiklist
Geðbilaður gam-
anleikur á Húsavík
Kristján
Ingimarsson
DAGRÚN Matthíasdóttir
hefur opnað sýninguna Tré, í
DaLí Galleríi á Akureyri.
Þar vinnur Dagrún í rými
gallerísins og gerir tréð að
umfjöllunarefni. „Merking
trés getur verið mjög fjöl-
breytt og táknmyndir þess
margar og er sú tálsýn að
peningar vaxi á trjánum
mjög heillandi,“ segir lista-
maðurinn. Dagrún Matthías-
dóttir útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á
Akureyri og er í námi í Háskólanum á Ak-
ureyri. Hún er félagi í samsýningarhópnum
Grálist og Myndlistafélaginu.
Sýningin í DaLí stendur til 19. júlí.
Myndlist
Dagrún spáir í
peninga á trjám
Eitt verka
Dagrúnar
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
RÉTT áður en komið er að Ölfus-
árbrú úr vesturátt er íbúðahverfi.
Sé farið í gegnum þetta hverfi og
örlítið lengra, blasir við skógur;
Hellisskógur.
Hellisskógur er útivistarsvæði
Selfyssinga og skógrækt, og liggur
landið allt frá Biskupstungnabraut
niður að norðurbakka Ölfusár. Þar
liggur forn ferjustaður yfir þessa
straumþungu á.
Listamennirnir fengu
leiðsögn um ferjustaðina
Í vor var opnuð sérstæð mynd-
listarsýning í skóginum þar sem 11
listamenn sýna 10 verk, sem öll
eiga það sameiginlegt að hug-
myndin að þeim tengist ferjustaðn-
um. Ásta Ólafsdóttir er meðal
þeirra sem gerðu verk á sýninguna.
„Okkur listamönnunum sem tök-
um þátt í sýningunni, var í vetur
boðið í rútuferð með heimamönn-
um, um svæðið í Ölfusi og Flóa þar
sem lögferjustaðirnir voru á sínum
tíma. Okkur voru sagðar sögur frá
gömlum tíma, við fengum að sjá
ferjustaðina og hólana þar sem fólk
varð að standa meðan það beið eftir
ferju. Ef þú komst á staðinn og
ferjan var hinum megin árinnar,
þurftirðu að fara upp á tiltekinn hól
og kalla yfir. Það var ekki fyrr en
Ölfusárbrúin kom 1891 að ekki
þurfti að ferja fólk yfir.“
Ásta segir þessa sögu stór-
merkilega og að hún, og vafalítið
fleiri af listamönnunum ellefu, hafi
sökkt sér í lestur og fróðleik, en
heimamenn á Selfossi tóku saman
bókalista til að gera þeim grúskið
auðveldara.
„Flestir listamennirnir tengjast
svæðinu á einhvern hátt, mismikið
þó – til dæmis eiga sumir þeirra
forfeður sem þurftu að reiða sig á
ferjurnar.“
Í Grágás og Jónsbók er talað
um ferjustaði á Íslandi og sagt
hvar þeir skuli vera. Það var svo
árið 1776 að sett voru ný ferjulög.
Verð fyrir flutninginn yfir ána var
gefið upp í fiskum, en aðrar
þurftavörur voru líka gjaldmiðill,
eins og smjör, tólg, skinn, kjöt og
vaðmál. Skýrt var kveðið á um
hvernig starfi ferjumannsins
skyldi háttað.
Í afar skemmtilegu korti af
svæðinu sem hægt er að nálgast
þar, er gríðarmikill fróðleikur um
ferjustaðinn til forna auk brota úr
sögum og ljóðum þar sem Ölfusá
og ferjustaðirnir koma við sögu.
Fargjaldið var fiskur
Hér frá staðnum brúkast ferja yfir Ölvesá, segir í Jarðabók Árna Magnússonar
Á þeim stað, í Hellisskógi, er nú myndlistarsýning, byggð á minninu um ferjustaðinn
Guð laun „.... og átti Hellisbóndinn fría ferju, og þar að auki á hann 40 fiska
fyrir átroðning.“ Í verk sínu minnist Ásta Ólafsdóttir þess hver laun ferju-
mannsins voru, gjaldmiðillinn var fiskur.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SÝNINGIN Íslensk hönnun 2009 hefur verið opnuð á
Kjarvalsstöðum, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Ís-
lands og er ætlað að kynna brot af því besta í íslenskri
hönnun í dag. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvars-
dóttir innanhúsarkitekt.
„Það var lagt upp með það í byrjun að sýningin færi út
í heim, en menningarsjóður menntamálaráðuneytis og
utanríkisráðuneytis taka þátt í verkefninu auk Útflutn-
ingsráðs.
Í því ljósi tók ég þá ákvörðun að leggja áherslu á einn
flokk, sem hefur að geyma vöruhönnun, arkitektúr og
húsgögn og áherslan er á samtímahönnun í þessum
flokki. Ég lagði líka áherslu á það að velja hluti sem hafa
verið verðlaunaðir eða hlotið viðurkenningar“ segir El-
ísabet. „Það má segja að þetta sé landsliðið.“
Elísabet miðaði við að hönnunin á sýningunni væri
ekki eldri en um fimm ára, en eldri hlutir, sem hafa verið
lengur en það í þróun, eru líka með og eldri hlutir sem
hafa ekki „sprungið út“, eins og hún kallar það, fyrr en á
síðustu árum, en meira en 20 hönnuðir eiga verk á sýn-
ingunni.
Hönnunin á sýningunni spannar allt frá litlum kína-
prjónum Eddu Guðmundsdóttur til risavaxinna snjó-
flóðavarnargarða á Siglufirði.
„Þrátt fyrir stærðarmuninn er ekki ósvipað hönn-
unarferli að baki báðum og það finnst mér gaman að
sýna. Það eru ákveðnar grunnforsendur sem liggja að
baki hönnuninni, ákveðið hönnunarferli; fagurfræðin
spilar sitt hlutverk, og margt fleira. Mótun manngerðs
umhverfis spannar mjög breiðan mælikvarða.“
Elísabet nefnir nokkra þætti sem eru sem rauður
þráður í íslenskri hönnun eftir
aldamótin. „Það er vakning fyrir
endurvinnslu og endurnýtingu;
rómantíkin, og svo þjóðlegi þátt-
urinn og hlutir sem eiga sér sögu.
Ég nefni sem dæmi um það fjöl-
skylduglös eftir Dagnýju Krist-
jánsdóttur og Ingibjörgu Hönnu
Bjarnadóttur. Þau eru dæmi um
þau þjóðlegu minni sem eru núna í
gangi og styrkja íslenska ímynd.
Sem dæmi um rómantíkina má
nefna eldri kertaljósakrónu sem
Aðalsteinn Stefánsson og Aleksej Iskos útfæra í nýjum
búningi. Í glösunum sem Hrafnkell Birgisson hannar er-
um við svo minnt á endurnýtinguna og að hlutunum má
gefa nýjan tilgang – en hann er líka að vísa í Hattarann í
Lísu í Undralandi og teboðið hans.
Mórölsk áminning er því sterk í mörgum verkunum en
líka sagan.“
Landsliðið í hönnun
Sýningin Íslensk hönnun 2009 opnuð á Kjarvals-
stöðum Fer í heimsreisu á næstu árum
Hof á Höfðaströnd Hannað af Studio Granda.
Ornametrica
Hönnuðir ljósa-
krónunnar eru Að-
alsteinn Stefánsson
og Aleksej Iskos.
FJÓRÐU og síðustu tónleik-
arnir í tónleikaröðinni
„Þriðjudagskvöld í Þingvalla-
kirkju“ verða haldnir í kvöld.
Það er barokkhópurinn Cust-
os sem gleður eyru tónleika-
gesta með söng og leik á upp-
runaleg hljóðfæri. Hópinn
mynda þau Helga Aðalheiður
Jónsdóttir blokkflautuleik-
ari, Kristín Lárusdóttir
gömbuleikari og Einar Clau-
sen söngvari. Með þeim koma einnig fram
blokkflautuleikaranir Bryndís Snorradóttir og
Bogi Haraldsson. Þau flytja verk eftir Telem-
ann, Frescobaldi og Corelli. Tónleikarnir hefj-
ast kl 20 og aðgangur er ókeypis.
Þingvallakirkja
Tónlist
Barokk í Þing-
vallakirkju í kvöld
Sýningarstjóri í Hellisskógi er
Alda Sigurðardóttir á Selfossi.
Auk Ástu Ólafsdóttur eiga
Erla Silfá Þorgrímsdóttir,
Borghildur Óskarsdóttir, Ingi-
rafn Steinarsson, Kristinn G.
Harðarson, Rósa Sigrún Jóns-
dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir,
Sigrún Eldjárn, Sirra Sigrún
Sigurðardóttir, Þór Sig-
mundsson og Þuríður Elfa
Jónsdóttir verk á sýningunni,
en hún stendur út ágúst.
Ítarefni er á vefnum
ferjustadur.is.
Þau sýna:
Fyrir mann lausríðandi með
hesti og reiðveri, 1 fisk.
Fyrir mann gangandi laus-
an, ¾ fisks.
Fyrir 8 hesta lausa, ef hafð-
ir eru á eftir ferju, 1 fisk.
Fyrir hvert skiplagt þrevett
naut, 3 fiska.
Fyrir kú fullorðna, 4 fiska,
Fyrir hest fullorðinn, 5
fiska
Fyrir 6 ær með lömb, svo og
8 sauði tvævetra og yngri, 4
fiska.
Ferjutollurinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-0
5
9
1
WWW.101TOKYO.IS
1 1 TOKYO
13.06.09–19.07.09
SNERTING VIÐ JAPAN
Í NORRÆNA HÚSINU REYKJAVÍK
VEGNA MIKILLAR
AÐSÓKNAR VERÐUR
SÝNINGIN FRAMLENGD
TIL 19. JÚLÍ.
VERIÐ VELKOMIN.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS