Morgunblaðið - 14.07.2009, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ráðþrota vegna lánavanda
Hjón, sem í september var ráðlagt
að greiða upp hagstætt krónulán á
húsi sínu og færa á það erlent lán í
staðinn, glíma nú við algert úrræða-
leysi Nýja Kaupþings gagnvart
skuldavanda fjölskyldunnar. Bæði
upphæð lánsins og afborgunarbyrði
hafa tvöfaldast frá í haust. »Forsíða
Leggst á öndunarfæri
Rannsóknir á dýrum benda til að
svínaflensan leggist sérlega þungt á
öndunarfæri, líkt og spænska veikin
1918 gerði. Sóttvarnalæknir segir
sitt hvað áhrif á dýr og menn. »2
ESB-umræðum enn ólokið
Áfram var deilt um aðildar-
umsókn að ESB á Alþingi í gær. Vel
á annan tug þingmanna var enn á
mælendaskrá þegar þingfundi var
slitið um klukkan hálftíu. »11
Reglum ekki fylgt
Bændamarkaðir njóta sífellt meiri
vinsælda en misbrestur er á að
reglum sé fylgt er varða unna mat-
vöru sem ekki má selja nema hún
komi úr viðurkenndu eldhúsi. »13
Einkaþota Pálma seld
Verið er að selja einkaþotu Pálma
Haraldssonar úr þrotabúi Fons.
Kaupandinn er Norðmaður. »14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Stórar stelpur fá raflost
Pistill: Sjoppufæði í stórbrotinni
náttúru
Staksteinar: Batnandi mönnum er
best að lifa
Forystugreinar: Í hringiðu hrunsins
|Öryggi sjófarenda
UMRÆÐAN»
Icesave-lánin: Í upphafi skal endinn
skoða
Vöknum, Íslendingar
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+01-22
*03-,3
+/-3..
*3-..+
*.-*+3
**,-3,
*-/4/+
*3,-,.
*,4-2.
5 675 */# 89: +003
*+,-3/
+01-32
**0-**
+2-0/.
*3-,+
*.-*,.
**4-/
*-/4,+
*34-/1
*,4-3.
+/*-00/4
&;<
*+4-+/
+0.-22
**0-2/
+2-*0.
*3-,,4
*.-++/
**4-./
*-/3*+
*34-32
*,3-2.
Heitast 15° C | Kaldast 5° C
Norðan 5-13 m/s en
hægari vindur á aust-
anverðu landinu. Dálít-
il rigning en þurrt að
mestu SV-lands. » 10
Vinsælasta sjón-
varpsefnið hér á
landi fyrstu vikuna í
júlí flokkast kannski
ekki beint undir
skemmtiefni. »29
SJÓNVARP»
Veðurfréttir
vinsælar
TÓNLIST»
Fjölmenni var í Jackson-
veislu á Nasa. »31
Brad Pitt og Angel-
ina Jolie ætla að
kaupa sér hús á
Manhattan. Barna-
herbergin þurfa að
vera þónokkur. »30
FÓLK»
Flytja til
borgarinnar
HÖNNUN»
Íslensk hönnun 2009 á
Kjarvalsstöðum. »28
TÓNLIST »
Emilíana Torrini er enn
vinsæl í Þýskalandi. »29
Menning
VEÐUR»
1. Deilt um úrslit í maraþonhlaupi
2. Ósátt við skipulag hlaupsins
3. Milljónasvindl með litaða olíu
4. Deilt um framtíð barna Jacksons
Íslenska krónan stóð í stað.
»MEST LESIÐ Á mbl.is
BORGIN er heiti
nýrrar plötuút-
gáfu sem nýlega
var sett á lagg-
irnar af þremur
mönnum, þeim
Steinþóri Helga
Aðalsteinssyni,
Baldvini Esra
Einarssyni og
Guðmundi
Kristni Jónssyni.
Þegar hafa listamenn á borð við
Megas, Hjálma, Egil Sæbjörnsson
og Baggalút áætlað útgáfur næstu
platna sinna á vegum Borgarinnar
og koma fyrstu plöturnar út um
komandi verslunarmannahelgi.
Steinþór segir að útgáfan sé
kannski meira í ætt við nokkurs
konar samtök um útgáfu fremur en
„hefðbundið“ útgáfufyrirtæki.
„Þetta á að þjóna listamönnunum
fyrst og síðast,“ segir hann. | 29
Borgin gefur út
Megas, Hjálma
og Baggalút
Megas
SKÁKMEISTARARNIR Garrí
Kasparov og Anatólí Karpov heyja
12 skáka einvígi í lok september.
Einvígið fer fram í Valencia á Spáni
en með þessu vilja þeir minnast
þess að 25 ár verða þá liðin frá byrj-
un frægs maraþoneinvígis þeirra
tveggja í Moskvu.
Síðast kepptu skákjöfrarnir tveir
árið 1990 þegar Kasparov sigraði
naumlega. Síðan hafa þeir teflt á
hraðskákmótum, m.a. á skákmóti í
Reykjavík árið 2004.
Karpov varð heimsmeistari í
skák árið 1975 þegar Alþjóðaskák-
sambandið tók titilinn af Bobby
Fischer. Kasparov vann svo titilinn
af Karpov árið 1985 eftir langa og
stranga baráttu. Hann hefur lítið
teflt opinberlega frá 2005. | 13
Kasparov og Kar-
pov í einvígi á ný
FERÐAMENN í Pósthússtræti veittu ljósmyndara
Morgunblaðsins meiri athygli en furðuveru með skott
sem leyndist rétt fyrir ofan þá. Þar var á ferðinni félagi
úr Götuleikhúsi Hins hússins sem með fótafimi og hug-
kvæmni laumaði sér upp á gluggasyllu. Hvort skottið
atarna hafi auðveldað honum klifrið skal ósagt látið.
Reykvískur refur í leyniför
Götuleikhús Hins hússins setur svip á miðborgina
Morgunblaðið/Heiddi
„ÞAR sem myndirnar geta stundum
verið ansi dimmar og þungar þá
skemmtum við okkur við að gera
þessa mynd eins fyndna og skemmti-
lega og við gátum,“ sagði leikkonan
Emma Watson, sem fer með hlutverk
Hermione Granger, á blaðamanna-
fundi í London á dögunum þar sem
umræðuefnið var nýjasta myndin um
Harry Potter og félaga hans.
Myndin, sem er sú sjötta í röðinni,
nefnist Harry Potter og blendings-
prinsinn, og voru aðalleikar myndar-
innar sammála Watson um að myndin
væri meira á léttu nótunum en þær
fyrri auk þess sem ástin væri farin að
kvikna í brjóstum unglinganna í
Hogwarts-skólanum. Baráttu góðs og
ills er þó hvergi lokið hjá galdra-
stráknum og félögum hans og er has-
arinn þó nokkur í myndinni í bland við
hitt.
Harry Potter og blendingsprinsinn
var frumsýnd í London á dögunum og
hefur hlotið afar góða dóma kvik-
myndamiðla á borð við Variety og
The Hollywood Reporter. Myndin er
sem fyrr segir sú sjötta í röðinni, en
þær verða átta áður en yfir lýkur þó
bækurnar sem myndirnar eru gerðar
eftir séu einungis sjö. Síðustu sög-
unni, Harry Potter og dauðadjásnið,
verður skipt upp í tvær kvikmyndir.
Harry Potter og blendingsprinsinn
verður frumsýnd hér á landi á morg-
un.
Hormónabomba | 32
Húmor og hormónar
Harry Potter og blendingsprinsinn verður frumsýnd hér
á landi á morgun Myndin hefur hlotið góða dóma erlendis
Unglingur Daniel Radcliff leikur
Harry Potter sem fyrr.
Í HNOTSKURN
» Harry Potter og blend-ingsprinsinn er sjötta bók-
in af sjö í bókaflokki J.K.
Rowling um galdrastrákinn.
» Bókin kom út 16. júlí 2005og seldist í 9 milljónum
eintaka fyrsta sólarhringinn í
sölu.
»Bækurnar hafa veriðþýddar á 67 tungumál.
HELGI Björnsson ætlaði að halda
tónleika á Hótel Valhöll síðastliðinn
föstudag en sem kunnugt er varð
ekkert af því þar sem Valhöll brann
til kaldra kola þann sama dag.
Helgi lætur það þó ekki stöðva sig
og ætlar að halda tónleika við
brunarústirnar á næstunni. Hann
styður uppbyggingu á svæðinu sem
hagnast almenningi. | 29
Helgi syngur við
rústir Valhallar
Helgi Björnsson Lætur brunann
ekki stöðva tónleikahaldið.