Nýtt kvennablað - 01.11.1967, Síða 9
Handþurrka
Efni: Bómullargam — aðallitur, og annar til að hekla
utan um og í stafinn, sem merktur er í homið. Prjónar
nr. 2*4 og heklunál sama nr. Stærð 26X26 cm.
Fitja upp 63 1. og prjóna 3 prjóna garðaprjón, þá
mynztrið:
1. p.: 3 r (3 sn, 3 r) endurt. innan sviganna, enda á 3 r.
2. p.: 3 r (3 r, 3 sn) endurt. innan sviganna, enda á 3 r.
3. p.: 3 r (3 sn, 3 r) cndurt. innan sviganna, enda á 3 r.
4. p.: 3 r (bandinu slegið yfir, 1 lykkja tekin óprj., 2
saman, og óprjónaða 1. drcgin yfir, bandinu slegið yfir, 3
sn.,) endurt. innan sviganna, enda á 3 r.
5. p.: 3 r, (3 r, 3 sn).
6. p.: 3 r, (3 sn, 3 r)
7. p.: 3 r, (3 r, 3 sn).
8. p.: 3 r, (3 sn, slá bandinu yfir, 1 lykkja tekin óprj., 2
saman, sú óprjónaða dregin yfir, bandinu slegið yfir),
endurt. innan svigana. — Þessir 8 p. byrja og enda
alltaf á 3 r.
Er mynztrið hefur verið endurtekið 8 sinnum, er prjón-
að öðrum megin 9 lykkjur slétt prjón á undan 3 cndal. —
prjóna cnn 12 prjóna og þar á eftir 3 garðaprjóna, fella af.
Með þar til völdum lit hekluð fastal. umferð allt í kring
um þurrkuna og þá um leið hekluð lykkja í eitt homið,
15 1. fitjaðar upp og farið niður í næstu I. Síðast heklaðir
takkar allt í kring og fl. utan um hankann.
Á f e rð
Nálgast bernsku brekkurnar
— birtast fornar slóðir —
Opnir standa alstaðar
eyðikofar hljóðir.
Torfhildur var eina konan, sem komst á blað í fyrir-
lestri Gests Pálssonar „Nýi skáldskapurinn", þar segir:
„Torfhildur Þorsteinsdóttir Holm hefur ritað allmikið af
skáldsögum, flestar stuttar, nema um „Brynjólf Sveinsson“.
Aðalgallinn á hennar sögum er sælu-tilfinning (sentiment-
alitet), sem óprýðir þær allar.“
Hanna litla flýtti sér í næsta hús, að segja frá afmælis-
gjöfinni:
— Ég fékk hálskeðju!
— Var hjarta á henni?
— Nei, það var jerúsalem.
— Meinarðu kross?
— Já, já, — það var kross.
Hér er grasi gróin tröð
gengnu horfin sporin,
þar sem lyndislétt og glöð
lék ég bernsku-vorin.
Stend ég sek, við sárin þin,
sinni þyngir liryggðin.
Yfirgefin ert þú, mín
œskudala-byggðin.
Inda frá Neðstabœ
NÝTT KVENNABLAÐ
7