Morgunblaðið - 05.09.2009, Side 1
L A U G A R D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
240. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
HÖFUM BRUGÐIST Í
FJÁRMÁLAUPPELDINU
«STÆRSTI ORGELKVARTETTINN
Apparat trekkir upp
með tónleikum
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
HÓPUR norskra fjárfesta undir for-
ystu Endre Røsjø vill setja 20 millj-
arða íslenskra króna í langtímafjár-
festingu í íslensku atvinnulífi. Hefur
Røsjø fundað með fulltrúum lífeyris-
sjóðanna með það fyrir augum að
stofna sérstakan fjárfestingarsjóð
sem yrði samvinnuverkefni lífeyris-
sjóða og Norðmannanna. Hugmyndin
er að lífeyrissjóðirnir setji 20 millj-
arða á móti framlagi norsku fjárfest-
anna.
„Svein Harald Øygard, þáverandi
seðlabankastjóri, bauð mér hingað í
apríl. Ætlun hans var að leiða saman
fjárfesta til að koma að fjárfestingu í
íslenskum fyrirtækjum og stuðla að
endurreisn íslensks efnahagslífs,“
segir Røsjø, sem hefur áratuga-
reynslu af fjárfestingum og hefur
komið víða við á löngum ferli.
Nauðsynlegt, erlent fjármagn
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, sat
í gær fund með Røsjø, fulltrúum
tveggja stórra lífeyrissjóða, ásamt
Øygard og Ingjald Ørbeck Sørheim,
sem er norskur lögfræðingur og
frammámaður í norska Verkamanna-
flokknum. „Við teljum að það sé mjög
áhugavert að ná samvinnu við Norð-
mennina um aðkomu þeirra að end-
urreisnarstarfinu enda nauðsynlegt
að fá erlent fjármagn inn í landið, ekki
síst frá vinum okkar á Norðurlönd-
unum,“ segir Hrafn.
Røsjø er sjálfur að íhuga alvarlega
að leggja MP banka til 50-60 milljónir
nkr. í formi nýs hlutafjár, sem jafn-
gildir 1-1,2 milljörðum íslenskra
króna. Hann segist deila gildum með
eigendum bankans sem hafi farið út í
fjárfestingu á ríkisskuldabréfum
snemma á síðasta ári og þannig tryggt
mjúka lendingu í bankahruninu.
Norðmenn vilja setja tugi
milljarða í endurreisnina
Á Íslandi í boði Svein Harald Øygard Hafa fundað með lífeyrissjóðunum og
vilja stofna sérstakan fjárfestingarsjóð Með langtímafjárfestingu í huga
Í HNOTSKURN
»Røsjø segist líta á sjálfansig sem varfærinn, íhalds-
saman bankamann.
»Forsenda fyrir fjárfest-ingu hans og viðskipta-
félaga hans hér á landi er að
hún verði gerð í samstarfi við
trausta, íslenska aðila.
Norskir fjárfestar | 20
LANDSBYGGÐIN virðist í fínum málum fyrir seinni helming Bikarsins í
golfi þar sem sveitir frá landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu eigast við.
Eftir fjórleikinn og fjórmenninginn í gær hefur landsbyggðin 9 vinninga
gegn 3 vinningum höfuðborgarsvæðisins. Í dag verður keppt í tvímenningi
og eru tólf vinningar í boði. Hér fylgjast Guðmundur Á. Kristjánsson og
Andri Þ. Björnsson með pútti frá landsbyggðinni. | Íþróttir
LANDSBYGGÐIN Í GÓÐUM MÁLUM Í GOLFINU
Morgunblaðið/Kristinn
LESBÓKIN í dag er að mestu
helguð Bókmenntahátíð í Reykja-
vík og rætt er við rithöfunda sem
fram koma á hátíðinni.
Pakistanski rithöfundurinn Tar-
iq Ali segir að þótt ofgnóttarskeið
kapítalismans sé á enda, sé það
ákveðinn vandi að vinstrimenn séu
pólitískt gjaldþrota, hafi ekkert
fram að færa og engar lausnir á
fjármálakreppunni.
Keníski rithöfundurinn Ngui wa
Thiong’o segir að ekki skipti máli
hve margir eða fáir tali tiltekið mál,
það eigi sér alltaf sinn tilvistarrétt,
enda sé tungumál lager þekkingar
og reynslu. » Lesbók
Lesbók helguð Bók-
menntahátíð í Reykjavík
ÞORSTEINN
Pálsson segir að-
ildarumsókn Ís-
lands að Evrópu-
sambandinu vera
í uppnámi. „Enn
hefur ekki verið
gerð alvörutil-
raun til þess að
fá stjórnarand-
stöðuflokkana með í þetta ferli. Það
þarf breiðan pólitískan bakgrunn
og breitt pólitískt bakland eigi að
ljúka málinu þannig að þjóðin fái
samning sem hún getur fellt sig
við,“ segir Þorsteinn. Hann telur
utanríkisráðherra vilja breiða sam-
stöðu um málið en segir formenn
stjórnarflokkanna hafa sýnt þeim
áherslum lítinn skilning. Málið gæti
því lent í blindgötu. »24
Segir aðildarumsókn að
ESB vera í uppnámi
VERIÐ að kanna þann möguleika
að nýtt fangelsi verði reist af einka-
aðilum á höfuðborgarsvæðinu og
Fangelsismálastofnun leigi það til
langs tíma, t.d. 30-40 ára. Fangels-
ismálastofnun muni því ekki eiga
húsnæðið, heldur reka það.
Hugmyndin er sú að þarna verði
pláss fyrir 40 fanga, fyrst og fremst
gæsluvarðhaldsfanga og fanga í
skammtímaafplánun. Verði þetta
að veruleika verður framkvæmdin
boðin út. Fangelsi landsins eru yf-
irfull og 234 einstaklingar bíða af-
plánunar. »28
Í athugun að einkaaðilar
reisi fangelsi sem ríkið leigi
– Línurnar í lag!
L&L
Þú leggur línurnar
Létt & laggott!