Morgunblaðið - 05.09.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Jón Pétur Jónsson og
Björn Jóhann Björnsson
FLÓAHREPPI var óheimilt að
semja við Landsvirkjun um greiðslu
kostnaðar við skipulagsvinnu vegna
fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar í
Neðri-Þjórsá, samkvæmt úrskurði
samgönguráðuneytisins. Skeiða- og
Gnúpverjahreppur gerði einnig sams
konar samning við Landsvirkjun, eins
og fram hefur komið í fréttum, og tal-
ið er líklegt að þessi sveitarfélög verði
að endurgreiða Landsvirkjun þann
kostnað sem um ræðir. Hjá Flóa-
hreppi gætu þetta verið um 6,5 millj-
ónir króna og hátt í ellefu milljónir
hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Vegna úrskurðarins ákvað um-
hverfisráðherra í gær að kalla eftir
frekari upplýsingum um skipulagstil-
lögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,
sem ráðherra hefur til skoðunar.
Úrskurðurinn er kveðinn upp
vegna stjórnsýslukæru íbúa í Flóa-
hreppi þar sem þess var krafist að
samkomulag sveitarstjórnar við
Landsvirkjun frá árinu 2007 yrði
ógilt og til vara að samkomulagið yrði
lýst ólögmætt. Ráðuneytið telur sam-
komulagið lögmætt, með þeirri und-
antekningu er snýr að kostnaði.
Landsvirkjun hafi ekki verið heimilt
samkvæmt skipulags- og byggingar-
lögum að bera allan kostnað af gerð
deili- og aðalskipulags á virkjunar-
svæðinu, ásamt tilheyrandi greinar-
gerðum vegna skipulagsvinnu og
framkvæmdaleyfis.
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Flóahrepps, segir niðurstöðu sam-
gönguráðuneytisins koma sér á
óvart. Hann var síðdegis í gær ekki
búinn að kynna sér úrskurðinn ná-
kvæmlega og átti eftir að ráðfæra sig
við lögfræðing hreppsins. Hann segir
ráðuneytið klárlega hafa tekið
u-beygju í málinu og komið með nýja
túlkun á gildandi lögum.
Aðalsteinn segir aðalskipulags-
vinnuna hjá Flóahreppi ekki frá-
gengna. Hún hafi snúist um meira en
Urriðafossvirkjun og Landsvirkjun
aðeins innt af hendi hluta af tilfall-
andi kostnaði. Hreppurinn hafi einn-
ig fengið framlög úr skipulagssjóði,
eins og honum ber samkvæmt skipu-
lags- og byggingarlögum, en við
breytingar á aðalskipulagi geti sveit-
arfélagið fengið greiddan allt að
helming kostnaðar úr skipulagssjóði,
sem er í umsjá Skipulagsstofnunar.
Ólögmætar greiðslur
Flóahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur gætu þurft að endurgreiða Lands-
virkjun milljónir í kjölfar úrskurðar samgönguráðuneytisins um skipulagsmál
» Landsvirkjun mátti ekki bera allan kostnaðinn
» Ný túlkun á lögunum, segir oddviti Flóahrepps
» Flóahreppur gæti þurft að skila 6,5 milljónum
» Umhverfisráðherra kallar eftir upplýsingum
ÞEIR eru glaðir drengirnir á leið í fótbolta, þar
sem þeir koma upp úr ræsi sem liggur undir
Vesturlandsveginn, nálægt Klébergsskóla á
Kjalarnesi. Vegagerðin greip til þess ráðs að fá
heimamann til að smíða trégólf í ræsið og laga
aðkomuna í því skyni að auka öryggi skólabarna.
Þetta er bráðabirgðalausn og nú er verið að
ljúka hönnun á upplýstum undirgöngum, sem
munu koma þarna skammt frá. sisi@mbl.is
KJALNESINGAR HAFA FENGIÐ „UNDIRGÖNG“
Morgunblaðið/RAX
SKJÁREINN mun síðar í þessum
mánuði hefja útsendingar á fréttum í
sjónvarpi sem unnar eru af Morg-
unblaðinu. Fréttirnar verða sýndar
kl. 18.50 og endursýndar kl. 21.50
alla virka daga.
„Fréttir Morgunblaðsins, bæði í
blaðinu og á mbl.is, njóta yfirburða-
trausts í þjóðfélaginu og það eru
mikil verðmæti fólgin í þeirri vinnu
sem þar er búið að vinna,“ segir Ósk-
ar Magnússon, útgefandi Morg-
unblaðsins. Bendir hann á að fréttir
séu mjög vinsælt efni á öðrum sjón-
varpsstöðvum. „Við væntum þess að
auglýsendur hafi áhuga á að tengjast
þessum útsendingum og að það geti
skilað arði. Þannig má segja að við
séum að reyna að renna fleiri stoðum
undir rekstur Árvakurs án þess að
leggja í umtalsverðan kostnað við
það,“ segir Óskar.
„Við teljum að fréttir Morgun-
blaðsins eigi erindi í sjónvarpið. Með
þessum samstarfssamningi erum við
að láta reyna á nýjar leiðir í íslensku
sjónvarpi. Við höfum þau markmið
að leiðarljósi að þetta sé verkefni
sem skili viðskiptalegum ávinningi
fyrir bæði fyrirtækin,“ segir Sigríð-
ur Margrét Oddsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skjá miðla. Að sögn
Sigríðar er hér um tilraun að ræða
sem til að byrja með verður metin
vikulega en síðan mánaðarlega. Seg-
ir hún rafrænar sjónvarpsáhorfs-
mælingar gera það að verkum að
viðtökur áhorfenda ættu að liggja
mjög fljótlega fyrir. silja@mbl.is
„Láta reyna á nýjar leiðir
í íslensku sjónvarpi“
SkjárEinn sendir út sjónvarpsfréttir Morgunblaðsins
Sigríður Margrét
Oddsdóttir
Óskar
Magnússon
VIÐ fögnum því
ef fundin verður
leið til þess að
ríkið komi að
greiðslu kostn-
aðar við skipu-
lagsvinnu, en
fögnum því ekki
ef lítil sveitar-
félög verða látin
borga brúsann,“
segir Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, um úrskurð sam-
gönguráðuneytisins. Hann segir
Landsvirkjun hafa gert þessa
samninga til að tryggja að sveitar-
félögin séu jafnsett, og þau þurfi
ekki leggja í kostnað vegna breyt-
inga á skipulagi einvörðungu vegna
mannvirkja á vegum Landsvirkj-
unar. Að öðru leyti beri að fagna
lögmæti samningsins og nú geti
nýtt aðalskipulag Flóahrepps, sem
geri ráð fyrir Urriðafossvirkjun,
hlotið staðfestingu umhverfisráðu-
neytisins. bjb@mbl.is
Fagnaðarefni ef rík-
ið vill borga kostnað
Þorsteinn
Hilmarsson
SHÍ mótmælir
niðurskurði
„VIÐ ERUM mjög ósátt við þetta
og sérstaklega núna þegar er gíf-
urleg fjölgun í Háskólanum,“ seg-
ir Hildur Björnsdóttir, formaður
Stúdentaráðs HÍ, um boðaðan
niðurskurð til Háskóla Íslands.
„Stjórnvöld eru einmitt að beina
atvinnulausu fólki í Háskólann og
þá er mjög óeðlilegt að skera nið-
ur í stað þess að veita meira fjár-
magni til háskólastarfseminnar.“
Í ályktun sem Stúdentaráð
sendi frá sér í gær segir að nið-
urskurðurinn muni koma hart
niður á háskólasamfélaginu og
fela í sér verulega skerta þjón-
ustu og lakari menntun. „Það er
ógjörningur að mennta þá tæp-
lega 15.000 stúdenta sem nú eru
skráðir til náms í Háskólann ef
þeim fylgir ekkert fjármagn frá
ríkinu,“ segir í ályktuninni og er
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hvött til að endur-
skoða ákvörðunina.
ben@mbl.is
... og rjómi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
6
7
4
MIKLAR sviptingar áttu sér stað í
fjórðu umferð Íslandsmótsins í skák
í gærkvöldi. Tveir efstu keppendur
mótsins, þeir Henrik Danielsen og
Jón Viktor Gunnarsson, töpuðu
báðir. Henrik fyrir Braga Þorfinns-
syni og Jón Viktor fyrir Guðmundi
Gíslasyni. Henrik, Guðmundur og
Bragi eru nú efstir með 3 vinninga.
Henrik, Guðmundur
og Bragi efstir