Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 STAÐA mín er óbreytt hvað sem verður,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins. Eins og skýrt var frá í vikunni hef- ur landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra fengið Guðjón til starfa í ráðuneyti sínu til að sinna undirbúningi breytinga á fiskveiðilöggjöf. Frjálslyndi flokkurinnn galt af- hroð og fékk engan mann kjörinn í alþingiskosningum í apríl. Flokk- urinn er þó áfram starfandi og hafa stofnanir hans og félög sent frá sér ályktanir og gagnrýni á mál, meðal annars um aðgerðir ríkisstjórnar- innar á hverjum tíma. Guðjón Arnar telur það ekki hefta sig sem formann í stjórn- málaflokki þó hann hafi ráðið sig til trúnaðarstarfa í ráðuneyti. Fjöldi starfsmanna Stjórnarráðs Íslands sé flokksbundinn, hafi gegnt póli- tískum trúnaðarstörfum en eigi að síður gagnrýnt menn og málefni eftir atvikum. „Ég mun ekki blanda mínum við- horfum inn í þau störf sem mér verða falin í ráðuneytinu. Ég er áfram formaður Frjálslynda flokks- ins en verði ýfingar vegna þess verður gert út um mál með um- ræðum eins og gerist í lýðræðis- legum flokki. Enginn er eilífur og við höfum auðvitað varaformann,“ segir Guðjón Arnar. sbs@mbl.is Guðjón Arnar Kristjánsson Telur starfið ekki hefta sig í embætti formannsins MEÐ nýrri sókn ætla stjórnendur Íslenska gámafélagsins að skapa 200 störf á næstu þremur árum. „Græni geirinn er í sókn og nú hyggjumst við fjölga starfsmönnum okkar um helming,“ segir Jón Þórir Frantzson framkvæmdastjóri. Haldið er upp á tíu ára afmæli fyr- irtækisins um helgina. Verkstæði fyrir tvinnbíla Stjórnendur Íslenska gáma- félagsins og Líforku undirrituðu fyrir nokkrum dögum samninga um kaup á allri framleiðslu síðarnefnda fyrirtækisins á lífdísil næsta árið. Í flota Íslenska gámafélagsins eru um 500 bílar og ökutæki og er stöðugt stærri hluti þeirra knúinn lífdísil, sem unninn er til dæmis úr steikingarolíu, slori og dýrafitu. „Við eigum mikla auðlind. Ef rétt er á málum haldið má knýja annan hvern bíl á Íslandi með innlendum orkugjöfum eins og lífdísil eða met- angasi. Tíminn vinnur með okkur og nú stefnum við að því að koma á laggirnar hér í Gufunesi verkstæði þar sem bílum er breytt og í þá settar tvinnvélar; sem nýta met- angas en nota hefðbundna orku- gjafa eins og bensín sem aukagetu. Á þessu verkstæði fá 50 manns at- vinnu,“ segir Jón Þórir og bætir við að með vinnslu á lífdísil dragi úr urðun og umhverfisspjöll verði minni en ella væri. Tvöfalda tekjurnar Í sorphirðu víða um land gildir nú svonefnt þriggja tunna kerfi. Þar er uppleggið að heimili flokki sorp í þrjár tunnur, þar sem ein er fyrir endurvinnanleg efni, sú næsta fyrir matarleifar og sú þriðja fyrir efni sem ekki eru endurnýtanleg. Í dag er þessi háttur hafður á í Stykkishólmi, Skaftárhreppi, Flóa- hreppi og á Nónhæð í Kópavogi svo nokkrir staðir séu nefndir. Fleiri byggðir, svo sem Fljótsdalshérað og Fjallabyggð bætast í hópinn á næstunni. „Flokkun gerir okkur kleift að vinna úr sorpinu og skapa úr því verðmæti og fjölda nýrra starfa,“ segir Jón Þórir Frantzson. Hann bendir á að járn sem fellur til sé í dag gjarnan flutt út til Bretlands og endurunnið þar, pappír og mjólkurfernur fara til Svíþjóðar og svo má áfram telja. Í dag skili þessi starfsemi fyrirtækinu um 150 til 200 millj. kr. í gjaldeyristekjur og þær séu hægt að tvöfalda á fáum árum. sbs@mbl.is Flokka sorp og breyta bílum  Íslenska gámafélagið í sókn  Nýta auðlindir og ætla að skapa 200 ný störf Morgunblaðið/RAX Framkvæmdastjórinn Jón Þórir Frantzson hjá Íslenska gámafélaginu segir græna geirann vera í sókn, bæði bílamenninguna og endurvinnslu á sorpi. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti í gær slasaða konu að Gígjökli við Lónið á Þórsmerkurleið eftir að hún fékk grjót í höfuðið og hlaut talsverða áverka. Var talið að hún væri höfuðkúpubrotin. Konan, sem er 26 ára Breti, var í skoðunarferð í hópi háskólanema í jarðfræði. Var fólkið að tína grjót til að skoða en slysið varð þegar einn úr hópnum henti grjóti sem lenti á höfðinu á henni. Að sögn lög- reglunnar á Hvolsvelli var um óviljaverk að ræða. Var björgunarsveitin Dagrenn- ing á Hvolsvelli kölluð til ásamt lög- reglu og þyrlu Landhelgisgæsl- unnar og gekk greiðlega að koma konunni af slysstað að sögn lög- reglu. Konan var flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi með þyrl- unni. Að sögn læknis þar reyndist konan óbrotin og ekki hættulega slösuð. Fékk hún að fara heim af spítalanum í gær. ben@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Við vaðið Gígjökull er við Lónið sem ekið er yfir á leið í Þórsmörk. Fékk grjót í höfuðið við Gígjökul Þyrla sótti 26 ára breska konu í gær „VIÐ hvetjum alla til að kíkja í kaffi og vöfflur í dag og styrkja krakkana í leiðinni,“ segir Guð- mundur Sveinn Hafþórsson, yfirþjálfari sund- deildar KR og íþróttafræðingur. Krakkarnir í sunddeild KR, sem eru á aldrinum 11-18 ára, hófu síðdegis í gær sólarhringsmaraþonsund í formi boðsunds. Að sögn Guðmundar er mark- miðið að synda alls um 90 km og safna þannig áheitum svo hópurinn geti nk. vor farið í æf- ingabúðir til Flórída. Spurður hvort ekki verði erfitt fyrir krakkana að halda sér vakandi í heil- an sólarhring svarar Guðmundur því neitandi og segir líklegast að adrenalínið muni sjá til þess. „Hins vegar er við því að búast að þeir komi til með að sofa vel og lengi á eftir, því svona boð- sund tekur verulega á.“ Þeim sem vilja styrkja hópinn er bent á reikninginn: 0101-26-94700 en kennitalan er: 66191-1209. silja@mbl.is Maraþonsund í Vesturbæjarlauginni til að safna fyrir æfingabúðum Morgunblaðið/Kristinn „Munu sofa vel og lengi á eftir“ Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is SKÓVERSLANIRNAR Steinar Waage, Skór.is og Ecco hafa verið keyptar út úr eignarhaldsfélag- inu Sporbaugi og færðar undir nýja kennitölu. Eft- ir stendur fjárfestingarskuld í gamla fyrirtækinu. Eigendur Sporbaugs eru skv. fyrirtækjaskrá fyrirtækið SevenMiles ehf. sem á 38% hlut. Aðrir hluthafar eru að sögn Péturs Halldórssonar fram- kvæmdastjóra meira og minna gjaldþrota, s.s. Milestone, Vægi og Shoelife. „Búðirnar voru keyptar út úr félaginu og það verður bara ein fjár- festingarskuld eftir,“ segir Pétur en vill ekki gefa upp upphæð skuldarinnar sem Sparisjóðabanki Ís- lands á. Um sé að ræða „töluverða peninga“. „Félagið sem átti þetta er mjög skuldsett og með erlend lán. Það er búið að reyna að semja við bank- ana í sjö mánuði án árangurs. Þarna eru 70-100 störf í hættu og engin svör sem fengust þannig að það komu bara nýir fjárfestar að þessu.“ Að hluta með samþykki kröfuhafa Hann vill ekki segja hverjir hinir nýju eigendur séu en undirstrikar að þeir séu ekki hinir sömu og standa að Sporbaugi. Inntur eftir því hvort kaupin hafi verið gerð með vitund og samþykki kröfuhafa, segir hann svo vera að hluta. „Lagerinn er veðsett- ur hjá Byr og þetta er í góðu samkomulagi við þá en innréttingar og slíkt var keypt út.“ Steinar Waage, Skór.is og Ecco undir nýja kennitölu Fjárfestingarskuld hjá Sparisjóðabanka Íslands eftir í gamla eignarhaldsfélaginu Í HNOTSKURN »Pétur segir að ekki hafi verið greittfyrir nöfn verslananna, enda hafi við- skiptavild verið afskrifuð auk þess sem nöfnin hafi ekki verið skráð sem einkaleyfi. »Sporbaugur rak einnig skóbúðina Val-miki en sú verslun hætti rekstri í des- ember síðastliðnum. »Verslanirnar eru í Kringlunni, Smára-lind og á Laugavegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.