Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 6

Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttur sibb@mbl.is Í OKTÓBER verður byrjað að bólu- setja þá hópa sem viðkvæmastir eru fyrir svínaflensu. Einnig verður tek- ið tillit til þess hvaða hópar þurfa helst að vera starfhæfir til að halda þjóðfélaginu gangandi. Fram kom á blaðamannafundi sóttvarnalæknis og almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra í gær að það væri nú í höndum heilsugæslu- stöðva, sjálfstætt starfandi lækna og sjúkrahúsa að undirbúa bólusetn- ingu fyrsta markhóps með því að hafa uppi á þeim sjúklingum sem til- heyra þeim hópi. Fólk sem telur sig vera í þeim hópi er einnig hvatt til að hafa samband við sinn lækni. Gert er ráð fyrir að fyrsti mark- hópur verði bólusettur fyrstu þrjár vikurnar í október. Vægar aukaverkanir Haraldur Briem sóttvarnalæknir sagði á fundinum að svo virtist sem væg veikindi fylgdu oft bólusetningu með nýja bóluefninu. Um væri að ræða svipuð einkenni og fylgdu bólu- setningu gegn hefðbundinni flensu. Þá sagði hann það alltaf matsatriði hvort bólusetja ætti viðkvæma hópa eins og þungaðar konur. Bóluefnið hefði hins vegar verið prófað á rúm- lega 40 þúsund einstaklingum og ekkert benti til þess að það skaðaði þungaðar konur eða fóstur. Þar sem flensan virtist leggjast þungt á þenn- an hóp væri því talið ráðlegt að bólu- setja hann. Ekki er gert ráð fyrir umfangs- miklum vinnuforföllum einstaklinga vegna bólusetningarinnar. Viðbragðsáætlanir mikilvægar Vísbendingar eru um að heldur hafi dregið úr útbreiðslu flensunnar hér á landi en það kemur þó ekki endanlega í ljós fyrr en á næstu vik- um. Slíkt væri þá í samræmi við þróun faraldursins á suðurhveli jarðar, þar sem flensan kom fyrst upp. Haraldur sagði að gott væri ef svo væri og að bólusetning gæti farið fram á meðan faraldurinn væri í lægð, áður en hugsanleg vetrar- bylgja hans skellur á. Ómögulegt væri hins vegar að spá því hver þró- unin yrði og því væri mikilvægt að hafa góðar viðbragðsáætlanir til að vinna eftir. Vinna að þeim hefði gengið vel og áætlanir væru víða til- búnar. Þá sagði hann þróun faraldursins á suðurhveli síður en svo gefa til kynna að óþarfi væri að grípa til bólusetningar hér. Þótt það væri dýrt gæti alvarlegur vetrarfaraldur orðið mun dýrari fyrir þjóðfélagið. Bólusett verð- ur í lægðinni Morgunblaðið/Heiðar Kristjánsson Sóttvarnalæknir Haraldur Briem kynnti fyrirhugaðar bólusetningar. Stefnt er að því að byrjað verði að bólusetja gegn svínaflensu A(H1N1) í byrjun október. Bólu- efnið kemur til landsins í fjórum áföngum og er forgangsraðað með tilliti til þess. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is STEFNU sína gegn Landsbankanum byggir Syrktarsjóður hjartveikra barna á samningi frá því í október 2005. Landsbankinn segir í minnisblaði að ný fjárfestingarstefna hafi ver- ið undirrituð í maí 2008. Stjórnarmenn sjóðs- ins kannast hins vegar ekki við slíkt og krefj- ast þess að sá samningur verði gerður opinber. Styrktarsjóður hjartveikra barna hefur far- ið fram á það við lögmann sinn að hann óski eftir því við Landsbankann að „meintur“ samningur frá því í maí 2008 verði lagður fram, eins og Guðrún Pétursdóttir, formaður sjóðsins, orðar það. Sjóðurinn hefur krafið Landsbankann og Landsvaka um rúmlega 21 milljón króna þar sem bankinn hafi farið langt út fyrir áhætturamma í fjárfestingum fyrir sjóðinn. Hún segir að enginn fulltrúa styrktarsjóðs- ins á kynningarfundi í maí 2008 kannist við að gerður hafi verið nýr samningur. Fulltrúar sjóðsins á þessum kynningarfundi hafi auk hennar verið stjórnarmennirnir Hallfríður Kristinsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Irma Sjöfn Óskarsdóttir og mögulega fleiri. Á fundinum hafi verið farið yfir stöðu og horfur og sýndar fjölmargar glærur en fulltrú- ar sjóðsins hafi ítrekað að fjármuni sjóðsins yrði að ávaxta með varúð frekar en hárri ávöxtun. Í fjölmörgum tölvuskeytum á milli sjóðsins og Landsbankans fyrir þennan fund og eftir hann og fram yfir hrun sé hvergi minnst á nýja fjárfestingarstefnu, hvað þá nýj- an samning. Engar athugasemdir gerðar Í minnisblaði frá Landsbankanum kemur fram að í lok maí 2008 hafi sjóðsstjórar eigna- safnsins haldið fund með forsvarsmönnum styrktarsjóðsins og farið ítarlega yfir samsetn- ingu þess. Engar athugasemdir hafi verið gerðar af hálfu stjórnar styrktarsjóðsins. Á sama fundi hafi fjárfestingarstefnan verið end- urskoðuð og ný undirrituð. Því hafi stjórn sjóðsins verið vel kunnugt um fjárfestingar- stefnuna. Öruggasti fjárfestingarkosturinn Í stefnu styrktarsjóðsins er vikið að þessum fundi og segir þar að í bréfi frá Landsbank- anum 23. desember 2008 „kemur meðal annars fram að bankinn hafi litið svo á að Peningabréf ISK hafi verið öruggasti fjárfestingarkost- urinn sem í boði var á síðastliðnu ári. Er þar einnig viðurkennt að á fundi forsvarsmanna stefnanda og stefnda í maí 2008 hafi komið fram skýr krafa af hálfu stefnanda að fjár- munir hans mættu alls ekki við skerðingu. Stefnandi byggir á því að það sé fráleitt og óskiljanlegt að stefndi, Landsbanki Íslands hf., hafi litið svo á að fjárfesting í innlendum skuldabéfasjóði þar sem undirliggjandi eignir voru meðal annars skuldabéf útgefin af Stoð- um hf., áður FL Group hf., Baugi Group hf., Samson eignarhaldsfélagi, Exista hf. og fleiri félögum, hafi verið öruggasti fjárfesting- arkosturinn. Stefnandi byggir á því að þessi skilningur stefnda sé hreinlega rangur og í ósamræmi við þá fjárfestingarstefnu sem lögð var til grund- vallar eignastýringarsamningi milli aðila.“ Meintur samningur verði lagður fram  Stjórnarmenn Styrktarsjóðs hjartveikra barna kannast ekki við nýjan fjárfestingarsamning  Landsbankinn segir að fjárfestingarstefnan hafi verið endurskoðuð og ný undirrituð KÍNVERSKIR iðnaðarmenn eru byrjaðir að glerja Tónlistarhúsið í Reykja- vík. Þetta er viðamikið verk því að ytra byrði hússins er að stórum hluta gler. Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar, segir vinnunni miða vel áfram. Ólafur Elíasson listamaður hannaði stuðlabergskassann sem umlykur húsið. Glerið verður í mismunandi lit, en listamaðurinn er með því að kalla fram áhrif sem erfitt er að lýsa með orðum. Vinna við þennan hluta hússins hefst á næsta ári. Segja má að það sem Kínverjarnir eru að gera núna sé auðveldasti hluti þessa viðamikla verks, en þeir eru að glerja minni veggi sem ekki eru áber- andi hluti hússins. Notað er hefðbundið gler. 36 Kínverjar vinna við að glerja húsið núna, en þeim fjölgar þegar vinna við stuðlabergshjúpinn hefst. Bæði gler og stálprófílar, sem glerið hvílir í, eru framleidd í Kína. Framleiðsla og uppsetning verksins er vandaverk og því þótti nauðsynlegt að sá sem sér um framleiðslu glersins sæi einnig um uppsetningu. egol@mbl.is Morgunblaðið/RAX Glerhjúpur settur á Tónlistarhúsið Glerja Tónlistarhúsið ENN eru í gangi viðræður milli ís- lenskra og brasilískra stjórnvalda um samning um flutning dæmdra manna á milli landanna. Ef af sam- komulaginu verður eiga þeir Íslend- ingar, sem eru í varðhaldi eða fang- elsi í Brasilíu, möguleika á að ljúka afplánun dómanna hér. Sama samkomulag gefur íslensk- um stjórnvöldum einnig færi á að framselja mann til Brasilíu sem tek- inn var nýlega í Leifsstöð með falsað vegabréf. Var maðurinn um miðjan ágúst sl. dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalamisnotkun en hann reyndist vera eftirlýstur í Brasilíu. Samkvæmt upplýsingum úr dóms- málaráðuneytinu liggur ekki fyrir hvort búið er að dæma í máli Íslend- ings sem handtekinn var á flugvelli í Brasilíu sl. vor með sex kíló af kók- aíni í fórum sínum. Alls munu um 16 Íslendingar vera í fangelsi eða varð- haldi erlendis. Fangar í Brasilíu geti afplánað dóma á Íslandi Morgunblaðið/Brynjar Gauti UM mánaðamótin voru greiddar 1.930.708.688 kr. í atvinnuleys- isbætur vegna ágústmánaðar til 15.209 einstaklinga. Heildar- greiðslur vegna júlímánaðar námu hins vegar 1.877.951.543 kr. og var fjöldi greiðsluþega þá 15.583. Það sem af árinu hafa rúmlega 16,3 milljarðar verið greiddir í at- vinnuleysisbætur. sisi@mbl.is 16,3 milljarðar í atvinnuleysisbætur OLÍUFÉLÖGIN hafa lækkað verð á bensíni og dísil- olíu um eina krónu á lítrann. Eftir lækkun er algengt verð á bensínlítranum í sjálfsafgreiðslu nú 188,90 krónur og á lítranum af dísil 181,60 krón- ur. Ástæða lækkunarinnar er lækk- andi heimsmarkaðsverð. Eldsneyti lækkar um 1 krónu á lítrann Fylla Neytendur fagna verðlækkun. Hverjir verða fyrst bólusettir? Í fyrsta markhópnum eru um sjötíu þúsund manns en í honum eru þung- aðar konur, heilbrigðisstarfsmenn, sjúklingar með ákveðna undirliggj- andi sjúkdóma, lögreglumenn, slökkviliðsmenn og björgunarsveit- armenn. Í öðrum markhópi verða m.a. börn frá sex mánaða aldri til átján ára en til stendur að skilgreina þennan hóp betur síðar. Hvað kostar bóluefnið? Stjórnvöld hafa keypt 300.000 skammta af bóluefni sem koma hingað til lands í fjórum jafnstórum sendingum fram til áramóta. Gert er ráð fyrir að bóluefnið kosti um 370 milljónir íslenskra króna en það fer þó eftir gengisþróuninni. Þeir sem verða bólusettir munu ekki þurfa að greiða fyrir bóluefnið. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.