Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
STAÐA arkitekta er erfið eftir að
kreppan skall á; lítið sem ekkert að
gera við nýbyggingar en Valdimar
Harðarson hjá ASK arkitektum hvet-
ur til þess að menn noti tækifærið og
líti sér nær en áður. Víða séu tæki-
færi.
„Staðan er einfaldlega sú að mark-
aður fyrir nýbyggingar er frosinn.
Það er búið að byggja mikið húsnæði,
misjafnlega gott, og var farið ansi
hratt í málin,“ sagði Valdimar í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Nú er lag að menn horfi inn á við.
Það hefur mikið verið rætt um
miðbæinn í Reykjavík undanfarin ár,
ekki síst að þar þurfi að koma risa-
stórar einingar, en mér finnst tíma-
bært að menn velti fyrir sér eldra
húsnæði og smærra, nýtingu bak-
svæðis og þess háttar. Að menn hugsi
verkefni aðeins öðru vísi en áður og
útfæri betur.“
Vel heppnaðar breytingar
Valdimar talar af reynslu og nefnir
nokkur dæmi. Fyrirtæki hans hefur
t.d. unnið að breytingum á húsnæði
Eymundsson í Austurstræti 18 og á
Skólavörðustíg, í gamla Spron-
húsinu, sem og verslun Pennans-
Eymundssonar í gamla KEA-húsinu
á Akureyri. Fyrir það fékk fyrirtækið
einmitt Byggingalistaverðlaun Ak-
ureyrarbæjar fyrr á árinu en Valdi-
mar og Steinunn Guðmundsdóttir
hönnuðu þær breytingar.
„Húsið við Austurstræti 18 er gott
dæmi um vel heppnaða breytingu,“
segir Valdimar. Húsið hafi hreinlega
sprungið út eftir að byggt var aftan
við það og tengt bakgarði til suðurs.
Staðurinn sé nú gríðarlega vinsæll.
Nýja verslunin við Skólavörðustíg
hafi líka verið mjög vel sótt og sömu
sögu sé að segja af verslun Pennans-
Eymundssonar á Akureyri.
„Fyrir norðan var í raun farið gegn
öllum kenningum; kaffihúsið var fært
á besta sölusvæðið og það hefur al-
gjörlega hitt í mark,“ segir hann.
Mjög hafi færst í vöxt að fólk njóti
þess að geta verið á kaffihúsi og
gluggað í blöð og bækur í leiðinni.
„Öll þessi þrjú dæmi voru grand-
skoðuð. Vel var farið í gegnum hug-
myndafræðina og menn uppskera
eins og þeir sá. Velgengni er ekki til-
viljun.“
Mannlífið blómstrar
ASK arkitektar hafa unnið að ýms-
um stórum verkefnum undanfarin ár;
við Smáralind og fleiri stórverslanir,
fyrirtækið hefur unnið mikið fyrir N1,
hannaði m.a. Staðarskálann nýja og
hefur unnið að íþróttamannvirkjum.
Áður en kreppan skall á voru 27
starfsmenn hjá ASK en eru nú 13.
Einhverjir séu þegar farnir úr landi
og hann segir slæmt ef þeir verði
mjög margir. „Þá er hætta á að stof-
urnar verði of litlar til að takast á við
stór verkefni þegar þar að kemur. Nú
er þörf á að skapa atvinnu og því nær-
tækast að leita tækifæra í okkar
næsta umhverfi með því að byggja
upp í svipuðum anda og í þessum til-
vikum sem ég nefndi. Þetta eru dæmi
um verk sem gengið hafa upp, þar
sem viðskipti hafa aukist til muna og
mannlífið blómstrar,“ segir Valdimar
Harðarson.
Tímabært að huga að hinu smáa
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjavík Frá opnun nýrrar verslunar Eymundssonar á Skólavörðustíg.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Hluta framhliðar gamla KEA-hússins var breytt verulega.
Kreppan hefur komið mjög illa við arkitekta Nú er lag að líta sér nær og tækifærin eru næg,
segir Valdimar Harðarson Gott að huga nú að smærra húsnæði en áður og nýtingu baksvæða
Í HNOTSKURN
»ASK arkitektar fenguByggingalistaverðlaun
Akureyrar í ár fyrir breyt-
ingar á verslun Pennans-
Eymundssonar við Hafn-
arstræti.
» „Mikið var byggt síðustuár og í sumum tilfellum
farið ansi hratt í málin,“ seg-
ir Valdimar Harðarson. „Vel
heppnaðar, þaulhugsaðar
breytingar styrkja mannlíf.“
„RANNSÓKNIR
sýna að meiri-
hluti para upplifir
að gæði sam-
bandsins dala
með tilkomu
barns,“ segir
Ólafur Grétar
Gunnarsson, fjöl-
skylduráðgjafi
hjá ÓB ráðgjöf.
Hann stendur
fyrir námskeiðinu Barnið komið
heim sem er ætlað að hjálpa vænt-
anlegum foreldrum og foreldrum
barna allt að þriggja ára að öðlast
nauðsynlega hæfileika til að takast á
við þær breytingar sem verða í sam-
böndum við tilkomu barns.
Rannsóknir sýni að tilfinningalíf
para sé hinn raunverulegi grunnur
undir þroska barnsins. Óvild milli
foreldra eða truflandi tilfinninga-
samband foreldris við barn hafi var-
anleg, neikvæð áhrif á tilfinninga-
legan og vitsmunalegan þroska þess.
„Það er óhugnanleg og sorgleg stað-
reynd að takist foreldrum ekki að
aðlagast foreldrahlutverkinu getur
það haft langvarandi afleiðingar fyr-
ir barnið.“
Hefur gefið góða raun
Ólafur segir að síðan í nóvember
hafi 120 pör sótt námskeiðið og sé
góð þátttaka að þakka starfsfólki
mæðra- og ungbarnaverndar og
ánægðum þátttakendum. Hann seg-
ir námskeiðið hafa gefið góða raun.
„Stöðumat sem gert er eftir hvern
tíma sýnir að þátttakendur voru
mjög ánægðir og töldu gagnsemi
námskeiðsins mjög mikla.“
Að sögn Ólafs hafa rannsakendur
og meðferðaraðilar um áratugaskeið
unnið út frá frá vitneskjunni um við-
kæmni parsambandsins og mik-
ilvægi fræðslu og tilfinningalegs
stuðnings við fæðingu barns. Hann
segir að höfundar námskeiðsins, sál-
fræðingarnir og hjónin John og Julie
Gottman, séu taldir helstu sérfræð-
ingar á þessu sviði í öllum heiminum.
Könnun hafi leitt í ljós að börn for-
eldra sem hafi sótt námskeiðið brosi
oftar og sé verkefnið hér heima litað
af því. Stór, þverfaglegur hópur sem
hafi unnið með ÓB ráðgjöf í rúm tvö
ár sé afar spenntur fyrir að koma
námskeiðinu af stað.
Meiri samskipti milli kynslóða
Ólafur segir að á Íslandi sé lægsta
tíðni ungbarnadauða í heiminum og
hér á landi séu meiri samskipti milli
kynslóða en á hinum Norðurlönd-
unum. „Námskeiðið styður okkur og
styrkir sem þjóð í því sem við gerum
vel,“ segir Ólafur og bendir á að for-
eldrar geti fengið stuðning til að
sækja námskeiðið frá stéttarfélagi
sínu úr fræðslu-, sjúkra- eða styrkt-
arsjóði.
Í samvinnu við Moggaklúbbinn
býðst áskrifendum Morgunblaðsins
afsláttur af námskeiðsgjaldinu. Nán-
ari upplýsingar má fá á barnid-
komidheim.net. ylfa@mbl.is
Sambönd dala
við barneignir
Fólki hjálpað að takast á við breytingar
Ólafur Grétar
Gunnarsson
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ungabarn Samband margra for-
eldra versnar við tilkomu barns.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Prag
frá kr. 69.900
Frábær þriggja nátta helgarferð - síðustu sætin!
Nú er upplagt að skreppa til Prag og njóta haustsins í
þessari einstaklega fögru borg. Bjóðum frábær sértilboð á
völdum hótelum á ótrúlegum kjörum. Haustið í Prag er
einstakt og frábært að heimsækja borgina og njóta lífsins.
Í Prag er hagstætt verðlag og þar eru frábær tækifæri til að
gera hagstæð innkaup og njóta lífsins í mat og drykk.
Gríptu tækifærið og skelltu þér til Prag og njóttu góðs
aðbúnaðar í ferðinni. Ath. mjög takmarkaður fjöldi
herbergja í boði á þessum kjörum.
Verð frá kr.69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
morgunverði í 3 nætur á Hotel Ilf ***. Aukagjald
fyrir einbýli kr. 10.000. Aukalega kr. 6.000 fyrir
gistingu á Parkhotel Praha ****. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 15.000. Aukalega kr. 10.000 fyrir
gistingu á Clarion Congress Centre ****.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 20.000.
Sértilboð 24. september.
24. - 27. september
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Ótrúleg sértilboð
Ótrúlegt sértilboð