Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 22
Reuters
Einmanalegt líf Þessi þriggja ára gamla stúlka, Matina Shakya, var útvalin
Kumari-gyðja í Katmandú í október síðastliðnum.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÞEGAR hún var barn var Rashmila
Shakya dýrkuð sem „lifandi gyðja“ í
Nepal eftir að hafa sannað hugrekki
sitt fjögurra ára gömul með því að
gráta ekki þegar hún sá höfuð fórn-
ardýra. Shakya er nú 29 ára og eftir
að hafa lengst af lifað í algerri ein-
angrun í bernsku varð hún fyrsta
fyrrverandi Kumari-gyðjan í Nepal
til að ljúka háskólanámi. Hún starfar
nú við forritun hjá tölvufyrirtæki.
Hefð er fyrir því í Katmandú-dal
að velja Kumari-gyðju úr röðum
ungra stúlkna. Kumari þýðir „hrein
mey“ og stúlkan sem verður fyrir
valinu er álitin holdtekja gyðjunnar
Taleju þar til hún byrjar að hafa tíð-
ir. Þá er gyðjan talin fara úr líkama
stúlkunnar og ný Kumari-gyðja er
valin.
Kumari-gyðjan þarf að vera með
„flekklausan líkama, bringu eins og
ljón og læri eins
og hjartardýr“.
Þótt stúlka full-
nægi þessu skil-
yrði er ekki víst
að hún verði fyrir
valinu, því hún
mun einnig þurfa
að sanna hug-
rekki sitt með því
að dvelja eina
nótt í herbergi
með höfðum fórnardýra án þess að
gráta.
Shakya var útvalin gyðja þegar
hún var fjögurra ára og bjó í átta ár í
lítilli höll í miðborg Katmandú. Hún
segir að líf stúlkna í gyðjuhlutverk-
inu sé ákaflega einmanalegt.
Hún var í nær algerri einangrun í
höllinni og fékk aðeins að fara út á
hátíðisdögum þegar hún var höfð til
sýnis í vagni sínum á götum Kat-
mandú, með þykkan farða og í
skrautbúningi.
„Hindúaprestarnir tilbáðu mig á
hverjum morgni og á daginn lék ég
mér að dúkkum sem fólk gaf mér,“
sagði Shakya. „Þarna var sérstakt
eldhús þar sem matur var eldaður
handa mér sérstaklega og ég þurfti
að borða ein. Stundum var mér leyft
að sitja við gluggann og horfa á fólk-
ið úti en mér fannst skrýtið að sjá
fólkið og bílana fara framhjá.“
Shakya viðurkennir að það hafi
verið erfitt að venjast lífi venjulegra
kvenna eftir þetta einmanalega
gyðjulíf. Hún er ógift og vonast til
þess að ganga út en margar fyrrver-
andi Kumari-gyðjur giftast aldrei
vegna hindurvitna um að þeir sem
kvænist þeim deyi ungir.
Kumari-gyðjur eru enn valdar í
þremur bæjum í Katmandú-dal en
gyðjan í höfuðborginni nýtur mestr-
ar virðingar. Konungar Nepals leit-
uðu eftir blessun hennar á hverju ári
og forseti landsins hefur haldið
þeirri hefð.
Erfitt að venjast því
að vera ekki lengur gyðja
Ungar stúlkur í Nepal dýrkaðar sem holdtekjur gyðju
Rashmila
Shakya
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009
FYRSTA vistheimilið fyrir netfíkla í
Bandaríkjunum hefur nú verið
stofnað í borginni Seattle og fíkl-
arnir geta dvalið þar í allt að 45 daga
í einu til að reyna að venja sig af
fíkninni.
Dvölin kostar rúmar 14.000 doll-
ara, sem svarar 1,8 milljónum króna,
og sex vistmenn geta dvalið þar í
senn. Þeir fá ráðgjöf sérfræðinga í
tölvu- og netfíkn og sálfræðilega
meðferð, auk þess sem áhersla er
lögð á hópefli, gönguferðir og lík-
amsrækt.
Meðferðarsérfræðingurinn Hil-
arie Cash stofnaði vistheimilið eftir
að hafa sérhæft sig í aðstoð við net-
fíkla frá árinu 1994 þegar hún hjálp-
aði manni sem hafði misst eiginkonu
sína og tvö störf vegna fíknarinnar.
Morgunblaðið/Golli
Ánetjaðir Fíklarnir eru í allt að 16-
17 tíma á dag á netinu.
Netfíklar
fá vist-
heimili
Eru í allt að 45 daga
að venja sig af netinu
RÁÐHERRA ut-
anríkismála á Ír-
landi, Micheal
Martin, varaði í
gær við því að
stjórnin myndi
þurfa að berjast
af miklum krafti
til að tryggja að
meirihluti kjós-
enda samþykkti
Lissabon-sáttmálann í þjóð-
aratkvæðagreiðslu sem fer fram í
næsta mánuði. Í nýrri skoð-
anakönnun sem var birt í gær í
Irish Times sést að stuðningurinn
hefur minnkað um átta prósentu-
stig og mælist hann nú vera 46%.
Um 29% eru á móti. Óákveðnum
hefur fjölgað um sjö prósentustig,
mælast nú vera 25%.
Írar höfnuðu Lissabon-sáttmál-
anum, sem kveður á um breytt
skipulag og vinnulag í Evrópusam-
bandinu, í þjóðaratkvæðagreiðslu
12. júní í fyrra. 53,4% kjósendanna
greiddu þá atkvæði gegn honum.
Öll ríki ESB þurfa að staðfesta
sáttmálann til að hann geti öðlast
gildi. Írska stjórnin samþykkti að
efna til annarrar atkvæðagreiðslu
eftir að hafa knúið fram tilslakanir.
Írar fá m.a. að halda sæti sínu í
framkvæmdastjórninni.
kjon@mbl.is
Fleiri gegn
Lissabon-sátt-
málanum
Micheal Martin
ur verið borgarastyrjöld í nær tvo
áratugi. Hér er bíll sem venjulega
MENN nýta vel farartækin í Afr-
íkuríkinu Sómalíu þar sem háð hef-
flytur mjólk og annan varning til
staða í höfuðborginni Mogadishu.
Á LEIÐ Í BÆINN
Reuters
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ALLT að 90 manns eru sagðir hafa
fallið aðfaranótt föstudags að staðar-
tíma þegar herþotur Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, gerðu loftárás í
Kunduz-héraði á á tankbíla með elds-
neyti. Talíbanar höfðu rænt vögnun-
um. Fullyrt var að 40 hinna föllnu
hefðu verið óbreyttir borgarar sem
hefðu farið á staðinn til að ná sér í elds-
neyti úr vögnunum. Sagði talsmaður
þýska varnarmálaráðuneytisins í Berl-
ín að þær frásagnir væru rangar en
Þjóðverjar eru með nokkurt lið í Kun-
duz.
„Við teljum núna að yfir 50 upp-
reisnarmenn hafi fallið,“ sagði tals-
maðurinn, Christian Dienst. „Við álít-
um ekki að neinir óbreyttir borgarar
hafi fallið,“ bætti hann við. Um algerar
„getgátur og áróður fjandmannanna“
væri að ræða þegar sagt væri að tugir
óbreyttra borgara hefðu týnt lífi.
Framkvæmdastjóri NATO, Anders
Fogh Rasmussen, hét því að fram færi
vandleg rannsókn á sprengjurárás-
inni.
Efasemdir um stefnu NATO
Efasemdir um stefnu ríkja Atlants-
hafsbandalagsins og bandamanna
þess í Afganistan fara nú vaxandi.
Ekki hafa frásagnir af meintu kosn-
ingasvindli Hamids Karzais og manna
hans í forsetakosningunum nýverið
dregið úr óánægjunni. Eric Joyce,
einn nánasti samstarfsmaður varnar-
málaráðherra Bretlands, Bob Ains-
worths, sagði af sér embætti í vikunni
og sakaði ráðamenn um að styðja ekki
nógu vel við bakið á breskum her-
mönnum í Afganistan. Kvartað hefur
verið undan því að búnaður þeirra sé
bæði lítill og stundum lélegur.
Rúmlega 200 Bretar hafa fallið í
landinu frá 2002, Þjóðverjar hafa misst
35 manns, þar af 18 í átökum. Joyce
sagðist halda að breskur almenningur
myndi ekki mikið lengur sætta sig við
mannfallið. „Bretar berjast, Þjóðverj-
ar borga, Frakkar reikna, Ítalir koma
sér undan þessu,“ sagði Joyce.
Tugir manna féllu í loftárás
Þýska varnarmálaráðuneytið segir frásagnir um mikið mannfall í röðum óbreyttra
borgara í árás NATO á tankbíla í Kunduz vera „getgátur og áróður“
Í HNOTSKURN
»Þjóðverjar eru með um4.200 manns í Afganistan,
þar af 900 í Kunduz. Sáralítið
hefur verið um átök í Kunduz
þar til fyrir fáeinum mán-
uðum er kom til snarprar orr-
ustu við talíbana.
»Bandaríkjamenn hafalangfjölmennasta liðið í
landinu. Auk þeirra hafa
Bretar, Kanadamenn, Hol-
lendingar og Danir sent lið til
hættulegustu svæðanna, í suð-
ur- og austurhluta landsins.
Peking. AFP. | Sex ára gömul stúlka
varð eftirlæti kínverskra fjölmiðla
á fyrsta skóladegi sínum þegar hún
kom sjónvarpsmanni í opna skjöldu
með hreinskilnu svari við því hvað
hún ætlaði að verða þegar hún yrði
stór.
„Ég vil verða spilltur embætt-
ismaður vegna þess að spilltir emb-
ættismenn eiga svo marga hluti,“
svaraði stúlkan.
Mörgum þykir svarið sýna
hversu rótgróin spillingin sé orðin í
kínverska stjórnkerfinu.
Spillingin
eftirsótt