Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 24

Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 24
24 Daglegt lífVIÐTALIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Þ orsteinn Pálsson lét af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins um miðj- an júní síðastliðinn. Leiðaraskrif hans í blað- ið vöktu oft mikla athygli og til þeirra var vitnað í öðrum fjölmiðlum. Þor- steinn skrifar nú vikulega greinar í Fréttablaðið um þjóðfélagsmál. Hann er fyrst spurður hvers vegna hann hafi hætt sem ritstjóri Fréttablaðs- ins. „Ég varð ritstjóri Fréttablaðsins í ársbyrjun 2006 skömmu eftir að ég lét af störfum sem sendiherra. Ég gerði upphaflega þriggja ára ráðn- ingarsamning. Þegar sá tími var ríf- lega liðinn fannst mér einfaldlega rétt að hætta.“ Hafði efnahagsumhverfið áhrif á þá ákvörðun, var ekki of dýrt fyrir Fréttablaðið að vera með tvo rit- stjóra? „Auðvitað geta allir sagt sér að efnahagsumhverfið hafði sín áhrif á þessa ákvörðun en hún hefði verið tekin þrátt fyrir það eins og áformað var í byrjun. Mér fannst reyndar mikil upplifun að eiga kost á því að koma aftur inn í blaðamennsku. Ég hóf blaðamannsferil minn á Morg- unblaðinu þegar ég var í háskólanámi og 27 ára varð ég síðan ritstjóri Vísis. Svo tók Vinnuveitendasambandið við, síðan stjórnmálin og loks embættis- mennska erlendis. Ritstjórnartíminn hjá Fréttablaðinu sem kom í kjölfarið var spennandi. Satt best að segja var það svolítil ögrun að byrja að vinna með svo stórum hópi af ungu fólki. Það er mikill munur að koma aftur í blaða- mennsku eftir að hafa verið hér og þar í millitíðinni. Maður býr að ákveð- inni reynslu sem nýtist og gerir starf- ið léttara en þegar maður var innan við þrítugt að stíga fyrstu skrefin í fjölmiðlaheiminum með óorðnar hug- myndir og metnað um framtíðina.“ Í samhenginu, hefði þá ekki frem- ur mátt búast við að þú hefðir orðið ritstjóri Morgunblaðsins en Frétta- blaðsins? „Nei, ég held að á vissan hátt hafi ég lagt Fréttablaðinu meiri lið á þess- um tímapunkti í mínu lífi en ég hefði gert sem ritstjóri Morgunblaðsins. Eftir að hafa lengi verið ráðherra og sendiherra hafði ég á mér svolítið stofnanayfirbragð. Morgunblaðið þurfti ekki á því yfirbragði að halda, Fréttablaðið þeim mun frekar.“ Fréttablaðið hefur af sumum, ekki síst mönnum í þínum flokki, verið kallað Baugsmiðill. Skiptu eig- endur sér af ritstjórnarstefnunni? „Það sem skiptir máli fyrir þá sem vinna á ritstjórn er hvort þeir hafa ritstjórnarlegt frelsi eða ekki. Það hafði ég óskert. Ég fann ekki fyrir af- skiptum eigenda. Þegar Baugsrétt- arhöldin stóðu sem hæst réðum við til að mynda mjög færan blaðamann af Morgunblaðinu. Hann hafði skrifað um þau réttarhöld þar og fékk það verkefni hjá okkur.“ Steinar úr glerhúsi Staða þjóðarbúsins er vægast sagt ekki góð. Voru að þínu mati gerð mistök í aðdraganda bankahruns- ins? „Ég held að Einar Oddur hafi haft næmari skilning á hættunni en flestir aðrir. Undir áhrifum hans skrifaði ég marga leiðara í Fréttablaðið um að menn gættu ekki nægilega að sér varðandi viðskiptahallann. Menn tóku ekki nógu mikið mark á því að tekjur ríkissjóðs, sem byggðust í rík- um mæli á viðskiptahallanum, væru ekki varanlegar. Ég get tekið dæmi af fjárlögunum 2007 þegar upp- sveiflan var á hátindi. Þá gagnrýndi ég þáverandi ríkisstjórn fyrir að ætla ekki að gera ráð fyrir meiri afgangi af rekstri ríkissjóðs en hún áformaði vegna þess að tekjurnar væru í of rík- um mæli byggðar á viðskiptahalla og miklu innstreymi af lánsfé. Þáverandi stjórnarandstöðuflokkar höfðu önd- vert sjónarmið og gagnrýndu stjórn- ina fyrir of mikið aðhald. Þeir lögðu formlega til að öllum afganginum sem þáverandi ríkisstjórn áformaði yrði varið í aukin útgjöld. Það var sameiginleg stefna þáverandi stjórn- arandstöðu að hafa ekkert borð fyrir báru. Í dag eru þessir menn að kasta steinum úr glerhúsi þegar þeir saka aðra um að hafa ekki gætt að sér. Þetta breytir ekki því að þeir sem höfðu völdin báru auðvitað ábyrgðina en stjórnarandstaðan þá sýndi ekki að hún hefði skilning á því hvert þjóð- félagið var að þróast.“ Gjaldmiðill landsins virðist vera stórt vandamál. Áhrifamenn í at- vinnulífinu sem styðja Sjálfstæðis- flokkinn vilja kasta krónunni og taka upp nýjan gjaldmiðil, og þá er evran nefnd til sögu, en íhaldssam- asti armur flokksins virðist ekki vilja hlusta á þessar raddir. Er þessi togstreita ekki vandamál í flokkn- um? „Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið breiður flokkur og það er bæði styrkleiki hans og veikleiki. Þessi togstreita er til staðar og menn þurfa að komast að niðurstöðu. Málið er of stórt til að hægt sé að skila auðu. Sag- an frá heimskreppunni miklu á að kenna okkur ákveðna hluti. Upp úr 1930 er augljóst að það sem olli því að menn sukku sífellt dýpra í fen haft- anna var að þeir komu sér ekki sam- an um stefnu í peningamálum. Hafta- stefnan þá byrjaði á mjög einfaldri reglugerð um skilaskyldu á gjaldeyri sem síðan vatt upp á sig. Við bjugg- um við samansaumað haftaþjóðfélag í meira en þrjátíu ár. Ég vil ekki sjá þá sögu endurtaka sig. Það er hins vegar hætta á að það geti gerst. Eins og staðan er í dag hef ég ekki séð neinar trúverðugar vísbendingar frá stjórnvöldum um að þetta hafta- tímatil verði stutt. Ég held að það séu alveg jafn miklar líkur á því að höftin aukist og að þeim verði aflétt.“ Aðildarumsókn í uppnámi Þú ert Evrópusambandssinni og sjálfstæðismaður. Fá sjónarmið Evr- ópusambandssinna að njóta sín inn- an Sjálfstæðisflokksins? „Umræðan hefur færst mikið í aukana innan flokksins á síðustu misserum. Þessi umræða er mikilvæg og rökrétt framhald af þeirri utanrík- isstefnu sem forystumenn Sjálfstæð- isflokksins mótuðu á sínum tíma, fyrst með inngöngu í Atlantshafs- bandalagið, inngöngu í Fríversl- unarsamtökin og síðan með EES- samningnum. Við Íslendingar lærðum í seinni heimsstyrjöldinni að hlutleysis- stefnan dugði ekki. Við urðum að tryggja pólitíska stöðu okkar og við ákváðum að verða virkir þátttak- endur í pólitísku bandalagi þeirra þjóða sem standa okkur næst. Atl- antshafsbandalagið breyttist eftir lok kalda stríðsins og hefur ekki sama áhrifavaldið og áður. Bandaríkin eiga sín samskipti í ríkara mæli við Evr- ópu í gegnum Evrópusambandið en ekki eingöngu í gegnum Atlantshafs- bandalagið. Hernaðarleg þýðing Ís- lands hefur minnkað og samstarfið við Bandaríkin veikst þannig að við þurfum að tryggja pólitíska stöðu okkar inn í framtíðina með sama hætti og við þurftum á sínum tíma. Þá er innganga í Evrópusambandið rökrétt framhald af þeirri utanrík- isstefnu sem hefur verið hér við lýði og Sjálfstæðisflokkurinn mótaði öðr- um fremur. “ Nafn þitt hefur verið nefnt í sam- bandi við í formennsku í íslensku samninganefndinni í viðræðum við Evrópusambandið. „Ég er ekki á höttunum eftir opin- beru embætti. Ég ákvað að hætta sem sendiherra þegar mig fór að langa til að tjá skoðanir mínar og Þ O R S T E I N N P Á L S S O N Enn með pólitíska Bók væntanleg? Það hefur ýmislegt drifið á daga mína sem ég ætla að skoða nánar. » Ég virði mjög hvernig Steingrímur J. Sigfús-son hefur gengið fram. Hann er greinilega hinn pólitíski leiðtogi stjórnarsamstarfsins. Hann hefur haft fullan vilja til að taka á málum af ábyrgð og fórna stefnumálum flokks síns fyrir þjóðarhag, en ég held að vegna veikleika í baklandinu muni hann ekki hafa úthald í það. » Það finnast örugglega stjórnmálamenn semgeta velt sér upp úr því ævina á enda að þeir hafi tapað í kosningum. Ég er bara ekki þeirrar gerðar að ég nenni því. Í stjórnmálum mæta menn bæði sigrum og ósigrum. Það hef ég gert. Ég vona að það teljist mannlegt að viðurkenna að ég naut sigranna betur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.