Morgunblaðið - 05.09.2009, Síða 28

Morgunblaðið - 05.09.2009, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Hafi alvarahrunsinsfarið fram hjá einhverjum ættu fréttir gær- dagsins af vænt- anlegum niðurskurði á Land- spítalanum að taka af allan vafa um ástandið. Spara þarf 400 milljónir króna það sem eftir er af árinu og verður hallinn á rekstri spítalans þá 1.200 milljónir króna. Þetta verður gert með því að breyta sólar- hringsdeildum í dagdeildir, loka skurðstofum, draga úr kostnaði við kaup á lyfjum og endur- og símenntun, end- urnýja ekki tímabundnar ráðningar og ráða ekki í stað þeirra, sem láta af störfum vegna aldurs. Vegna hruns krónunnar hafa afborganir af lánum étið upp sjóði, sem ætlaðir eru til tækjakaupa, og án sérstakra fjárveitinga mun endurnýjun á tækjakosti ekki eiga sér stað á spítalanum á næstunni. Reyna á að koma í veg fyrir uppsagnir fastráðins starfs- fólks, en engu að síður er ljóst að þetta mun hafa mikil áhrif á heilbrigðisstéttir landsins og ekki síst starfsfólk Land- spítalans. Almenningur mun ekki fara varhluta af þessum aðgerðum. Þær þýða að aðeins verða gerðar mikilvægustu aðgerð- ir. Tilfelli, sem geta beðið, munu bíða. Gera má ráð fyrir að nú muni biðlist- ar lengjast á ný. Heilbrigð- isþjónustan á Ís- landi hefur iðu- lega verið gagnrýnd, en hún er engu að síður með því besta sem gerist í heiminum. Allt kapp verður að leggja á að missa þá stöðu ekki niður en fréttir gærdags- ins sýna hversu erfitt það verður og full ástæða til að spyrja hvort það sé ekki úti- lokað. Sömuleiðis er staða íslensks menntakerfis mikið áhyggju- efni. Framtíð þessa lands liggur í menntun. Hvernig á að koma í veg fyrir að nið- urskurður leiði til hnignunar skólakerfisins? Augljóst er að skattahækk- anir munu ekki duga til að borga kostnaðinn af hruninu, hvort sem um er að ræða Ice- save eða aðrar skuldir sem lenda á ríkinu og þar með al- mennum skattborgurum. Þetta er sá veruleiki, sem nú þarf að takast á við, og verk- efnið er ekki öfundsvert. Á Íslandi ríkir nokkurs kon- ar þjóðfélagssáttmáli um það að allir skuli hafa jafnan að- gang að heilbrigðisþjónustu og menntun. Hvort tveggja er hluti af lífskjörum almenn- ings. Nú sjá Íslendingar ekki bara fram á skert lífskjör vegna skerðingar ráðstöf- unartekna heldur hriktir í stoðum samfélagsins. Vegna hrunsins hriktir í stoðum samfélagsins. } Raunveruleikinn Mikill skorturer á fagfólki til starfa á sam- býlum fatlaðra. Því er ekki um að kenna, að sérmenntað fólk sæki ekki í þessi störf, heldur geta færri menntað sig til þeirra en vilja. Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðis- skrifstofu fatlaðra á Reykja- nesi, skýrði frá því í samtali við Morgunblaðið á fimmtu- dag, að mun færri kæmust að í þroskaþjálfanámi í Háskóla Íslands en vildu og mörgum hefði verið vísað frá undan- farin ár. Hún vísar til þess, að fyrir 30 árum hafi nær allir starfsmenn vistheimila verið menntaðir þroskaþjálfar. Þörf fyrir starfsfólk, sem er mennt- að á þessu sviði, hafi aukist mikið eftir að fatlaðir fluttu í auknum mæli af stofnunum á heimili úti í bæ, um leið og þörfin innan skólakerfisins hafi aukist mjög. Í sumum til- fellum sé aðeins einn faglærð- ur starfsmaður inni á heim- ilum fatlaðra, en ófaglærðir um einn tugur. Sigríður segir réttilega, að þetta sé grafalvarlegt mál og brýnt sé að bæta þar úr. Illskiljanlegt er hvernig þessi augljósa afturför var lát- in viðgangast. Á sama tíma og gerðar voru auknar kröfur um betri aðbúnað fatlaðra og lögð áhersla á að þeim yrði gert kleift að búa á sambýlum var litið framhjá þeirri staðreynd að fagfólki fækkaði jafnt og þétt. Háskóli Íslands gat ekki sinnt menntun allra þeirra, sem leituðu eftir að komast þar í þroskaþjálfanám. Nú hef- ur Háskólinn að vísu brugðist við með því að bjóða upp á fjarkennslu, sem hefur fjölgað nemendum nokkuð, en ljóst er að langur tími mun líða þar til ástandið verður orðið við- unandi. Það er ólíðandi, að fólk hafi ekki tök á að mennta sig til þessara mikilvægu starfa. Nú þegar mikið er rætt um uppstokkun og forgangsröðun gilda, er vert að hafa í huga hvaða þjóðfélagsþegnar þurfa mest á stuðningi samfélagsins að halda. Þörfin jókst, en fagfólki fækkaði}Menntun og störf V andinn er bara sá að Ingólfstorg er sirkabát ljótasta torg í heimi, enda þrífst þar lítið og lélegt mannlíf.“ Svo mælti Egill Helga- son á bloggi sínu í gær, en þar felldi hann dóm um torgið vegna fyrirætlana hóps sem berst gegn því að fimm hæða hótel verði byggt rétt við það. Verði af áformunum þarf að flytja tvö gömul hús af sínum stað og inn á torgið. Líka á að fórna tónleika- og sam- komuaðstöðunni í Nasa, eða gamla sjálfstæð- ishúsinu. Hópurinn sem mótmælir þessum áformum bendir m.a. á að rétt sé að gömlu húsin fái að vera í friði á sínum stað. Þá verði mikill skuggi yfir Ingólfstorgi eftir breytingarnar. „Björg- um Ingólfstorgi og Nasa,“ er slagorð hópsins, sem ætlar að standa fyrir tónleikum á torginu í dag. Á bloggi sínu fór Egill mikinn og sagði að til þess að bjarga Ingólfstorgi þyrfti engar smáaðgerðir, heldur rífa ýmis hús, t.d. húsið sem hýsti TM og hugsanlega gamla Morgunblaðshúsið líka. Ingólfstorg mun seint teljast fallegt torg. Það er grátt yfirlitum og stundum fremur kuldalegt á að líta. Segja má að því hafi ekki verið gefið mikið í vöggugjöf þegar það var búið til fyrir hátt í tveimur áratugum. Þrátt fyrir þetta hefur skapast heilmikið mannlíf á torginu. Þetta veit ég því ég fer þar reglulega um. Á dag- inn má þar sjá krakka á hjólum og hjólabrettum, sem gaman er að fylgjast með. Þá sækir vél- hjólafólk á torgið með fáka sína. Á Ingólfstorgi hef ég líka séð ýmsar uppá- komur. Ég hef séð áhugafólk um línudans stíga dansspor, hljómsveitir spila og bar- áttufólk halda samkomur. Á sumrin stendur fólk í röð í ísbúðinni við torgið og sest svo á tröppurnar í sólinni og gæðir sér á kræsing- unum (raunar verður torgið þá oft all klístr- að). Vetur einn fyrir nokkrum árum var starf- rækt skautasvell á torginu í nokkrar vikur og var það vel til fundið. Sjálfsagt má bæta úr ýmsu á Ingólfstorgi og gera það huggulegra, en ekki með því að skemma aðstöðu sem krakkar hafa haft þar. Það þurfa ekki öll torg að hafa gras og gos- brunn til þess að vera fín. Það er raunar áreiðanlega hægt að hressa upp á torgið og umhverfi þess, án þess að grípa til stórfellds niðurrifs. T.d. mætti íhuga að minnka bílaumferð um svæðið og stækka þannig enn frekar svæði gangandi vegfarenda. Núna eru Íslendingar blankir og þurfa á ferðamönn- um að halda. En þarf endilega að hola niður hótelum á hverri þúfu í hjarta bæjarins til þess að koma þeim fyrir? Viljum við endalausa umferð rútubíla við elstu hús bæj- arins? Og viljum við að miðborgin verði nær eingöngu staður fyrir ferðamenn? Hvað um að reyna að stuðla að fjölbreyttu mannlífi meðal íbúa miðbæjarins? Um þá hugmynd að rífa Nasa þarf ekki að fjölyrða – hún er einfaldlega fáránleg. elva@mbl.is Elva Björk Sverrisdóttir Pistill Lífið á ljótasta torgi í heimi Unnið að úrbótum í fangelsismálum FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is F angelsi landsins eru yf- irfull og langir biðlistar eftir afplánun. Rannsókn er hafin á bankahruninu og hún mun vafalaust leiða til saksóknar og síðan sakfell- ingar, þótt enginn viti á þessari stundu hvert umfangið verður. En eitt er ljóst: Íslensku fangelsin verða að óbreyttu ekki undir það búin að taka við þeim fjölda sakborninga, sem sá málarekstur kann að skila inn í fangelsin. Að sögn Rögnu Árnadóttur, dóms- málaráðherra, er nú innan ráðuneytis hennar unnið að tillögum sem lúta bæði að lagabreytingum, m.a. um ný úrræði í refsivörslukerfinu (rafrænt eftirlit og samfélagsþjónustu í auknum mæli), og að fjárhagslegum rekstri Fangels- ismálastofnunar. Að sögn Rögnu er meðal annars verið að athuga hvort unnt sé að fjölga fangaplássum með því að leggja niður starfsemi á ákveðnum stöðum, þar sem fangaplássin eru dýr, og bæta þá frekar við þar sem fulln- ustan er hagkvæmari. Þessar tillögur verða kynntar nú í vetur, að sögn Rögnu. Að sögn hennar er rekstur Hegning- arhússins á Skólavörðustíg og kvenna- fangelsisins í Kópavogi dýrari en ann- arra fangelsa, og er skýringin sú að þau rúma mun færri fanga en flest önnur fangelsi. Því liggi beinast við að kanna hvort hægt er að leggja niður fanga- pláss á þessum stöðum og færa þau annað, þar sem reksturinn yrði hag- kvæmari. Þá bendir Ragna á að þótt rekstur Hegningarhússins gangi vel hafi aðbúnaður fanga í húsinu verið gagnrýndur í gegnum árin. Páll Egill Winkel, fangelsis- málastjóri, vinnur með ráðuneytinu að mótun tillagna til lausnar á þessum vanda. Páll segir að m.a. sé verið að kanna þann möguleika að nýtt fangelsi verði reist af einkaaðilum á höfuðborg- arsvæðinu og Fangelsismálsofnun leigi það til langs tíma, t.d. 30-40 ára. Fangelsismálastofnun muni því ekki eiga húsnæðið heldur reka það. Hugs- unin er sú að þarna verði pláss fyrir 40 fanga, fyrst og fremst gæslu- varðhaldsfanga og fanga í skamm- tímaafplánun. Athugun sé komin býsna langt, en engar ákvarðanir hafa verið teknar enn. Það yrði pólitísk ákvörðun hvort ráðist yrði í þetta eða ekki. Verði þetta samþykkt þá verði byggingin boðin út. Ekki liggur fyrir hvar á höfuðborg- arsvæðinu fangelsið myndi rísa. „Ég yrði mjög ánægður ef af þessu yrði. Nýtt fangelsi hefur ekki verið reist í 40 ár og þörfin er mjög mikil,“ segir Páll. Hann segir að Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, hafi sýnt mál- efnum Fangelsismálastofnunar mik- inn skilning og verið mjög áhugasöm um að beita sér í málinu. Fangelsismálastofnun rekur nú fimm fangelsi; á Litla-Hrauni, sem er langstærst, á Kvíabryggju við Grund- arfjörð, á Akureyri, kvennafangelsið í Kópavogi og Hegningarhúsið í Reykjavík. Meðalfjöldi fanga í fang- elsum landsins hefur verið að aukast jafnt og þétt. Nú eru 147 fangar í þeim 133 plássum, sem Fangelsismálastofn- un ræður yfir. Núna bíða 234 eftir að geta hafið afplánun, eða næstum helmingi fleiri en fangelsi landsins rúma. Morgunblaðið/RAX Litla-Hraun Í stærsta fangelsi landsins eru fangar sem afplána langa dóma og þeir sem sitja í gæsluvarðhaldi. Þar hafa verið gífurleg þrengsli. Hjá dómsmálaráðuneytinu er unnið að lausn á vanda Fangels- ismálastofnunar. Meðal þess sem er til skoðunar er að nýtt fangelsi verði reist í einka- framkvæmd og ríkið muni svo leigja það til langs tíma. EF sú ákvörðun verður tekin að leggja niður Hegningarhúsið við Skólavörðustíg verða mikil tíma- mót í fangelsissögu landsins. Hegningarhúsið var tekið í notk- un árið 1874 og er elsta fangelsið á landinu. Eftirlitsstofnanir hafa ítrekað gert athugasemdir við að- búnað fanga, sem ekki þykir boð- legur. Enda er erfitt að koma þar fyrir ýmsu því sem í dag þykir til- heyra nútíma fangelsisrekstri. Þar er engin vinnuaðstaða fyrir fanga, enginn matsalur, fábreytileg íþróttaaðstaða og nánast engin tómstunda- eða sameiginleg að- staða. Erfitt er að gera breytingar á húsinu, enda er stór hluti þess friðaður af Húsafriðunarnefnd rík- isins. Á árum áður var pláss fyrir mun fleiri fanga í húsinu enda voru sumir klefanna fyrir allt að fjóra fanga í senn. Núna eru fangarýmin samtals 16. GAMALT FANGELSI ››

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.