Morgunblaðið - 05.09.2009, Side 33

Morgunblaðið - 05.09.2009, Side 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 ✝ Bylgja Bjarnadótt-ir fæddist í Reykjavík 20. maí 1981. Hún lést á Ak- ureyri 24. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Bjarni B. Vil- hjálmsson, f. 16.11. 1936, og Aðalheiður Angantýsdóttir, f. 8.6. 1943. Bylgja eignaðist dóttur, Anítu Heiðu Kristinsdóttur, f. 27.12. 2008, faðir hennar er Kristinn Kristinsson. Systkini Bylgju í móð- urætt eru: Matthildur Eiðsdóttir, f. 18.3. 1961, eignaðist hún tvö börn, Helga Rafn, f. 18.12. 1976 og Heiðar Val Bergmann, f. 10.8. 1979. Her- Telmu Valsdóttur, f. 20.6. 1996 og Arnór Valsson, f. 25.7. 1998. Systkini Bylgju í föðurætt eru: Sveinrún Bjarnadóttir, f. 17.1. 1959, gift Júl- íusi Hólmgeirssyni, f. 7.1. 1950. Sveinrún á fjögur börn: Elmu Dögg, f. 2.5. 1976, Atla Má, f. 24.3. 1979, Heiðar Pál, f. 13.9. 1982 og Maríu Ýri, f. 1.12. 1983. Ó. Bára Bjarna- dóttir, f. 11.9. 1960, gift Róbert E. Hallbjörnssyni, f. 14.6. 1945. Bára á þrjú börn: Antonio Aquilar, f. 9.6. 1978, Nenítu M. Aquilar, f. 9.6. 1980 og Raquelitu R. Aquilar, f. 7.10. 1984. Vilhjálmur P. Bjarnason, f. 6.9. 1962, giftur Ingibjörgu Guðmunds- dóttur, f. 14.6. 1967. Þeirra börn eru Auður Vilhjálmsdóttir, f. 2.10. 1984, Bjarni B. Vilhjálmsson, f. 15.12. 1986, Róbert Vilhjálmsson, f. 6.3. 1989. Bylgja verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 5. september og hefst athöfnin klukk- an 10.30. mann Hinriksson, f. 11.11. 1963, kvæntur Laufeyju Vilmund- ardóttur, f. 3.9. 1968, eiga þau tvö börn, þau Hinrik Hermannsson, f. 7.1. 1993 og Öldu Her- mannsdóttur, f. 16.4. 1994. Hermann á eitt barn úr fyrra sambandi, Agnar Kristin Her- mannsson, f. 2.2. 1987. Ægir Bergsson, f. 13.7. 1965, kvæntur Hallfríði J. Hallsdóttur, f. 31.5. 1961, eiga þau eitt barn, Kormák Ægisson, f. 1.7. 1996. María Bergsdóttir, f. 12.7. 1971, í sambúð með Óla Friðberg Kristjáns- syni, María á þrjú börn, Daníel Ægi Kristjánsson, f. 1.1. 1990, Margréti Ég á svo fá orð til að lýsa sorg minni og söknuði. Þú munt alltaf eiga pláss í hjarta mínu og í þessu myrkri sé ég ljós í Anítu Heiðu, dótt- ur okkar. Hamingjuna öðlaðist ég þegar ég kynntist þér. Við þökkum allar gleðistundirnar sem við áttum með þér. Dimmar rósir eru minning þín. Heitar nætur eru þú og ég. Bjartir dagar eru brosið þitt, örfá tár, ég græt þig ástin mín. Ef ég fæ að sjá þig aftur lífið breytir lit. Ef þú kemur til mín aftur ég mun tigna þig. Minning þín þá mun bera fögur blóm. Brosið þitt þá táknar bjartan dag. Þú og ég þá eigum heitar nætur, gleðibros, ég fæ þig ástin min. Ó, mig langar til að lifa, langar til að finna þig. Ó, mitt líf mun ætíð verða einlæg bið. Því ég veit svo vel þú kemur ei, veit svo vel að þú horfin ert, veit svo vel að líf mitt er einskisvert. (Tatarar.) Ástarkveðjur, Kristinn og Aníta Heiða. Elsku Bylgja. Ást og samhygð eru okkur efst í huga þegar við kveðjum þig á þess- ari erfiðu stundu. Viljum við þakka þér fyrir þann tíma sem við fengum að kynnast þér á meðan þú varst í sambúð með syni okkar. Ykkar ynd- islega dóttir sem þið eigið saman gefur von og kærleika, hennar ynd- islega bros lýsir upp heiminn og er huggun í sorginni og hugsum við til þín hvern dag sem við horfum á hana. Megi guð geyma þig og veita þér frið. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra :,:veki þig með sól að morgni:,:. Drottinn minn faðir lífsins ljóss lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. :,:Þú vekur hann með sól að morgni.:,: Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta :,:vekja hann með sól að morgni.:,: Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd. Og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. :,:Svo vaknar hann með sól að morgni.:,: Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. :,:Svo vöknum við með sól að morgni.:,: (Bubbi Morthens.) Kveðja, Kristinn og Björk (Kiddi og Bökka). Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kveðja frá systkinum. Elsku Bylgja, nú hefur þú kvatt þessa jarðvist sem var alltof stutt. Megi ljósið og kærleikurinn um- vefja sálu þína. Svefninn laðar, líður hjá mér. Lífið sem ég ann ég lifað hef. Fólk og furðuverur hugann báðar andann hvílir. Lokbrám mínum æsi uns vakna endurnærður. Það er sumt sem maður saknar vöku megin við. Leggst út af á mér slokknar. Svíf um önnur svið í svefnrofunum finn ég sofa lengur vil. Því ég veit að ef ég vakna upp finn ég aftur til. Svefninn langi laðar til sín lokkafulla ævi skeiðs. Hinsta andardráttinn. Andinn yfirgefur húsið hefur sig til himna við hliðið bíður drottinn. (Björn Jörundur og Daníel Ágúst.) Elsku Kristinn, Aníta Heiða, for- eldrar, systkini og aðrir aðstandend- ur, guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Snjólaug, Óli og fjölskylda. Elsku Bylgja Þú komst eins og sólargeisli gleð- innar inn í fjölskylduna mína heima á Íslandi, og sól ástarinnar skein á ykkur Kristin bróður þegar þið hóf- uð sambúð á Ólafsfirði. Síðan kom kraftaverkið, sólargeislinn ykkar, Aníta Heiða. Litla stúlkan sem breytti lífi ykkar, brosandi, glitrandi gersemi sem þú elskaðir svo heitt og hugsaðir svo vel um. En svo birtist slægur sjúkdómr þinn í öllu sínu veldi og svipti þig öllu. Ég vill þakka þér fyrir þær ótal stundir sem við áttum saman fyrir framan tölvuna, þú, Kristinn bróðir og Aníta Heiða, þið heima hjá mömmu og pabba og ég á verkstæð- inu mínu í Odense. Þið voruð svo stolt af Anitu og ást ykkar skein eins og fallegt málverk. Ég hlakkaði allt- af til að heyra frá ykkur og hjarta mitt dansaði af gleði í hvert sinn ég sá ykkur saman. Ég veit að allir í fjölskyldunni voru svo stoltir af ykk- ur. Nú ertu farin í ferðalagið og það er eins og þú hafir vitað að sú stund nálgaðist, stór kassi með bókum, bænir í römmum, dót í baðið, engill á náttborðið. Allt þetta komstu með yfir til mömmu áður en þú fórst. Ég sendi þér minn hlýjasta hug og þakka þér af alhug góð en allt of stutt kynni. Alkóhólismi heitir hann, sjúkdómurinn, sem mig vann. Hann er blekking, hann er böl hann er heljar sálarkvöl. Hann læddist að mér nær og nær uns viti mínu var ég fjær. Hans ljóta hönd hún leiddi mig um helsis myrkvalönd. Ég átti blíðan og góðan mann ást í faðmi hans ég fann. En alkóhólisminn, það hann kann, að gleðja aldrei nokkurn mann. Mikið var ég hrædd og ein, fannst ég öllum vinna mein. Ljósins faðir þá kom þá inn og honum fel ég anda minn. (HL.) Kveðja, Helga Luna. Bylgja Bjarnadóttir Guðný Þórðardóttir ✝ Guðný Þórð-ardóttir var fædd þann 30. júní 1918. Hún lést 25 ágúst síðastliðinn. Útförin fór fram frá Háteigs- kirkju 1. september sl. Meira: mbl.is/minningar Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að út- för hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verð- ur birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Minningargreinar ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR, Sunnuvegi 11, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu Hafnarfirði laugardaginn 29. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 7. september kl. 13.00. Björn Ingvarsson, Þorsteinn Björnsson, Anna Heiðdal, Björn Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN ÞORSTEINS HJALTASON, Glói, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 29. ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 7. september kl. 13.30. Sigríður Steindórsdóttir, Steindór Jónsson, Anna Þórný Jónsdóttir, Helgi Vigfús Jónsson, Ingibjörg Jónasdóttir, Lára Magnea Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, afabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN GUNNAR WILLIAMSSON, áður til heimilis Hamarstíg 27, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 1. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 9. september kl. 13.30. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, Gunnar Þorsteinsson, Mjöll Helgadóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, Þorvaldur Þorsteinsson, Helena Jónsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 9. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Heimahlynningu Landspítalans, sími 543 1159. Haukur Ottesen Jósafatsson, Örn Ottesen, Þórunn Oddsdóttir, Magnea Erla Ottesen, Guðni Kjartansson, Haukur Ottesen, Guðlaug Þorgeirsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS KRISTINSSONAR rakarameistara og fyrrv. forstöðumanns, Austurbyggð 17, áður Byggðavegi 95, Akureyri. Arnar Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Helga Elínborg Jónsdóttir, Örnólfur Árnason, Arnþrúður Jónsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir, Jón Ragnar Örnólfsson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Árni Egill Örnólfsson, Sólveig Arnarsdóttir, Þorleifur Örn Arnarsson, Oddný Arnarsdóttir, Jón Magnús Arnarsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.