Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 35

Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 ✝ Kristín Anna fæddist á Týsgötu í Reykjavík 20. ágúst 1938. Hún lést 26. ágúst sl. Hún var dóttir Guð- finnu Jónasdóttur og Baldvins Þórðarsonar. Kristín eignaðist sjö börn. Þau eru: 1) Sveinn Guðfinnur Ragnarsson, f. 4.1.1956, d. 25.2. 2003. Börn Sveins eru: a) Sigrún, f. 1981, móðir hennar er Jóhanna Ósk Kristjáns- dóttir, b) Steindór Smári, f. 1986, móð- ir hans er Sjöfn Garðarsdóttir, c) Dav- íð, f. 1994, d) Eydís, f. 1995, móðir þeirra heitir Bergdís. 2) Valur Smári Geirsson, f. 18.9.1957, d.11.3. 1984. Börn Vals Smára og Lindu Að- albjörnsdóttur eru: a) Aðalbjörn Þor- geir, f. 1977, b) Anna Dóra, f. 1981, sonur hennar er Örnólfur Smári, f. 2000. 3) Grétar Pétur Geirsson, f. 24.9. 1958. Barn Grétars Péturs og Guð- rúnar Guðfinnsdóttur er Guðríður, f. og Jóhönnu B. Halldórsdóttur er Sonja Rut, f. 1996. Sævar og Jóhanna slitu samvistum. 7) Anna Lea Geirs- dóttir, f. 13.2. 1980. Barn Önnu Leu er Linda. Sjöfn, f. 1998. Barnsfaðir henn- ar er Alex Þorsteinsson. Kristín ólst ein upp hjá móður sinni sem vann víða sem ráðskona, m.a. í Keflavík og Vestmannaeyjum. Kristín Anna missti móður sína ung og þurfti að fara sem kaupakona aðeins 13 ára gömul í Grænhól í Ölfusi til þeirra heiðurshjóna Guðbjargar Gunnars- dóttur og Steindórs Ísleifssonar sem reyndust henni vel. Þar var hún í nokkur ár. Flutti hún síðan til Reykja- víkur þar sem hún m.a. vann sem ráðs- kona hjá Árna Björnssyni lýtalækni. 1957 kynntist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Geir Grétari Péturs- syni. Þau byrjuðu búskap sinn í Reykjavík en fluttust til Vest- mannaeyja árið 1963. Þar bjuggu þau fram að gosi. Þau bjuggu á Stokkseyri í tvö ár, en fluttust aftur til Vest- mannaeyja. Árið 1980 fluttu þau á Sel- foss að undanskildum nokkrum árum í Þorlákshöfn. Kristín Anna vann lengst af við fiskvinnslu en einnig vann hún hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja og var þar yfir kjövinnslunni. Síðasta starf Kristínar Önnu var sem dagmamma. Útför Kristínar Önnu verður gerð frá Selfosskirkju í dag, laugardaginn 5. sept., og hefst athöfnin kl. 13,30. 1981. Börn hennar eru Hörður Frans Pét- ursson, f. 1999 og Guð- finnur Flóki Guðmunds- son, f. 2006. Börn Grétars Péturs og Lauf- eyjar Þ. Ólafsdóttur eru: a) Eva, f. 1986, b) Kristín, f. 1989, c) Geir Grétar, f. 1992, d) Dagný, f. 1992, e) Díana, f. 1992. Grétar og Laufey slitu sam- vistum. Núverandi unn- usta er Brynhildur Fjölnisdóttir. 4) Steindór Guðberg Geirsson, f. 26.12.1961, d. 1.10. 1978. 5) Heimir Freyr Geirsson, f. 1.6. 1963. Börn Heimis og Eyglóar Guðmunds- dóttur: a) Valur Smári, f. 1988, b) Sæ- þór Freyr, f. 1991. Erling Adolf Ágústsson, f. 1974, fósturbarn Heimis, og Halldóra Kristín Ágústsdóttir, f. 1978, fósturdóttir Heimis, börn Eygló- ar. Heimir og Eygló slitu samvistum. Núverandi unnusta Heimis er Margrét Þ. Sverrisdóttir. 6) Sævar Helgi Geirs- son, f. 18.10. 1966. Barn Sævars Helga Móðir mín dó skyndilega er hún var í bíl hjá yngsta bróður mínum, Sævari. Það er erfitt að gera sér í hugarlund hvílík lífsreynsla það hefur verið en hann stóð sig eins og hetja í því ferli sem fylgdi á eftir. Fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur. Móðir mín var verkakona og vann lengst af við fiskvinnslu. Þá var enginn kvóti og öll frystihús full af fiski. Not- ast var við hið alræmda bónuskerfi þar sem konur unnu í akkorði frá morgni til kvölds, standandi á hörðu steingólfi. Vinnudagarnir voru oft langir og strangir og gátu hæglega farið upp í 14 tíma. Er heim kom tóku heimilisstörfin við, eldamennska og stórþvottar af fimm tápmiklum gaurum. Það er ekki hægt að segja að lífið hafi leikið við þessa ágætis fjölskyldu. Hún upplifði þá martröð að missa þrjá syni. Steindór drukknaði árið 1978, að- eins 16 ára gamall er hann tók út af togaranum Klakki. Valur Smári drukknaði árið 1984, 26 ára að aldri, þegar Hellisey sökk. Sveinn Guðfinnur lést árið 2003, 47 ára gamall, úr hjarta- áfalli. Þetta setti mark sitt á fjölskylduna. Á þeim tíma þegar bræður mínir tveir drukknuðu var ekkert sem hét áfalla- hjálp. Hver og einn bar með sér harm- inn og reyndi að harka af sér og það gerði hún móðir mín. Hún var sterkust af okkur öllum og var kletturinn í fjöl- skyldunni sem hélt hlutunum gang- andi. Fyrir um tíu árum síðan fór heilsa móður minnar að gefa sig. Líkaminn var undirlagður af gigt af of mikilli erf- iðisvinnu og stoðkerfið gaf sig alger- lega. Að auki barðist hún við hjarta- sjúkdóm og magavandamál. Seinustu þrjú árin voru móður minni mjög erfið og enginn dagur án verkja. Hún var oft búin að tala um að hana langaði til að fara. Hún var þó búin að vera með betra móti undanfarið, var komin á ný lyf og það gaf okkur von um betri daga. En nú hefur hún fengið þá hvíld sem hún þráði, laus við allar þjáningar. Söknuðurinn og eftirsjáin hjá okkur sem eftir lifum er mikil. Við hefðum öll viljað hafa hana svo miklu lengur hjá okkur og að hún hefði náð að sjá litla nýja barnabarnið sem er á leiðinni. Það má kalla það eigingirni, því móðir mín var orðin södd lífdaga. Ég vil trúa því að hún sé hjá sonum sínum þremur núna og að við munum öll hittast aftur síðar. Á meðan er ómetanlegt að geta yljað sér við minningarnar, því þær eru margar og góðar. Einugis fjórum dögum áður en hún dó hittumst við börn, tengdabörn og barnabörn heima hjá foreldrum mínum í tilefni af 71 árs afmæli hennar. Það var slegið upp veislu, gömul myndaalbúm dregin fram og mikið hlegið. Ég vil þakka pabba fyrir hans þátt í að gera líf hennar mömmu eins gott og hægt var síðustu árin og bið Guð að styrkja hann í þessari miklu sorg. Ég lít yfir farinn veg fullur þakk- lætis til móður minnar. Fyrir allar stundirnar sem ég átti með henni einni þar sem við ræddum um allt milli him- ins og jarðar. Fyrir allar utanlandsferð- irnar og það sem við upplifðum þar saman. Fyrir að hafa verið til staðar þegar ég og börnin mín þurftum á að halda og léð okkur eyra þegar þess var þörf. Blessuð sé minning Kristínar Önnu. Grétar Pétur Geirsson. Sannleikur fegurðar og vits, sann- leikur sorgar og strits eru setningar sem mér finnst lýsa fallegu yndislegu móður minni best. Allir sem þekktu móður mína vita hvað felst í þessum setningum. Móðir mín var fallegasta sál sem ég kynntist. Móðir mín var stærsti klettur í ólgusjó sorgarinnar þegar hún skall á með ógnarafli. Móðir mín var hetjan mín. Móðir mín var trú mín, traust og kjarni. Móðir mín var skjöld- ur minn og hlíf. Móðir mín var raungóð kona. Móðir mín var besti vinur minn. Móðir mín er komin á vit almættisins, og ég veit með vissu að englarnir fagna hennar nærveru meðan við sem eftir lifum syrgjum þessa merku, stórkost- legu konu. Bræður mínir á himnum fá mömmu aftur til sín. Smári, Steindór og Svenni, nú er mamma komin til ykk- ar með fallega brosið sitt, fallega röddin hennar hljómar á ný í eyrum ykkar sem og smitandi hláturinn hennar. Mömmuilmurinn er nú í vitum ykkar, elsku bræður mínir. Fallega, yndislega móðir okkar vefur ykkur ást, kærleika og hlýju í silkimjúkum faðmi sínum. Móður minni líður vel núna. Nú er allur sársaukinn sem þú þurftir að bera svo lengi horfinn, elsku mamma mín. Ég verð þér ævinlega þakklátur fyrir hverja stund sem ég átti með þér, elsku mamma mín, og hvert orð sem fór á milli okkar er ég þakklátur fyrir. Þakk- látur og lánsamur fyrir allt sem þú kenndir mér, mamma mín. Þú varst alltaf friðarsinni og vildir farsæla lausn á öllu, hvað sem á gekk. Bara að allir væru vinir var þér kærast. Ég bý að ómetanlegum fróðleik sem þú deildir úr huga þér til mín. Heimsins besta móðir mín, ég er svo þakklátur að hafa fengið að halda í hönd þína þegar þú kvaddir þessa tilvist. Höndina sem strauk vanga minn þegar þú lagðir mig til svefns hvert kvöld sem barn. Hönd sem þurrkaði tárin úr augum mínum ef ég átti um sárt að binda, og hönd sem hélt á mér nýfæddum í kjöltu þinni. Ég kveð þig með fallega ljóðinu okk- ar, elsku besta mamma mín. Hún er björg mín og skjól byrgi mitt og ból, trú mín traust og kjarni móðir sem verndar barnið Ég er bara barn barn sem elskar móður Sannleikur fegurðar og vits sannleikur sorgar og strits úr huga sér deilir mér öllu úr veröld hér Ég er bara barn barn sem elskar móður Þú ert móðir mín eina sem ég aldrei mun gleyma Þú ert heimsins besta móðir Þú ert heimsins besta móðir. Guð geymi þig og varðveiti. Þinn sonur, Sævar Helgi. Elsku mamma, eins og ég var vanur að ávarpa þig, mér þótti svo sárt að horfa upp á þig þjást dag eftir dag í veikindum þínum. Þú kvartaðir aldrei yfir veikindum þínum. Alltaf þegar ég spurði þig hvernig þér liði, þá var svarið ávallt: ég hef það ágætt bara, því þú vildir ekki leggja áhyggjur á okkur, börnin þín. Þú lifðir þrjú börnin þín og varst klettur í stórsjó þeirra sorgar sem flökti yfir okkur allt of mikið. Þú hugg- aðir okkur börnin í sorgarferlinu, og það léstu ganga fyrir skilyrðislaust. Þú vafðir faðmi þínum um okkur og hugg- aðir. Þú sagðir við mig: Þeir deyja ungir sem guðirnir elska, og uppskar ég vega- nesti frá öllum innihaldsríkum huggun- arorðum þínum til að vinna úr í minni erfiðu sorg á þeim tíma. Þó sárin grói aldrei þá heldur lífið áfram og falleg minning þín lifir um alla eilífð. Þú varst sannkölluð hetja, mamma mín, og bar ég gríðarlega mikla virðingu fyrir þér. Ég er er svo þakklátur fyrir að hafa hitt þig svo oft síðustu tvö árin sem þú lifðir eftir að ég flutti upp á land frá Eyjum. Símtölin sem ég átti við þig nánast upp á hvern dag voru alltaf minnisstæð. Þegar ég hringdi og þú svaraðir, þá svaraðir þú alltaf virðulega: Já, Anna. Já, er þetta hún Kristín Anna? spurði ég að bragði. Já, þetta er hún, en er þetta hann Heimir Freyr? spurðir þú, og þá skall á hlátur undantekningar- laust því þetta var bara okkar húmor í upphafi hvers símtals sem átti sér stað dag hvern. Húmorinn var aldrei langt undan, og á ég svo margar góðar og skemmtilegar minningar um þig, elsku mamma mín, sem tæki heila eilífð að skrifa hér. Nú ertu í Guðs höndum, elsku mamma, og bræður mínir njóta nærveru þinnar og englar á himnum fagna meðan við hin syrgjum þig. Mamma mín, þú varst alltaf til staðar ef ég þurfti að leita til þín. Elsku mamma mín, ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman allt til hinsta dags þíns. Nú líður þér betur, mamma mín, það veit ég með vissu. Smitandi og einstakur hlátur þinn mun hljóma um allt himnaríki svo allir heyri og taki undir. Minning þín mun lifa um alla tíð eins og áður hefur komið fram, og má koma fram aftur, því þú varst einstök kona sem ég er stoltur af að hafa átt sem móður og líka sem besta vin. Ég mun geyma þig í hjarta mínu og biðja til þín, elsku mamma, hvert kvöld sem ég lifi sem og til bræðra minna líka. Bræður mínir og synir þínir og við öll fjölskyldan erum alltaf saman í anda. Guð geymi þig og varðveiti, elsku mamma. Elskandi sonur þinn, Heimir Freyr. Elsku mamma mín. Ég upplifði til- finningu sem ég fæ ekki fest í orð þegar ég sá Sævar bróður koma inn um dyrn- ar og presturinn við hlið hans. Vissi ég hvað hafði gerst en höggið var þungt. Þakklát samt fyrir að fá að halda í hönd- ina á þér stuttu seinna. Það eru ekki all- ir eins heppnir og ég að fá að hafa átt svona yndislega mömmu. Þú vafðir mig ást og umhyggju, varst allt sem ég þurfti og svo miklu meira. Man þegar við héldumst í hendur þegar ég var lítil, þá straukstu mér með þumlinum yfir handarbakið. Ég kom langsíðust af stórum stráka- hóp í þessa brotnu en sterku fjölskyldu og mikið búið að ganga á. Ég var bara ung þegar Smári heitinn fórst og ég skildi ekki hvað gekk á en þú varst alltaf svo sterk, búin að missa annan son áð- ur, Steindór. Þú varst stúlkan sem starðir á hafið. 2002 fékkstu annað áfall og misstir Svenna. Þú hélst uppi minn- ingum þeirra eins og klettur og margt flaug í gegnum huga mér. Ég furðaði mig alltaf á því hvernig þú fórst að þeg- ar ég varð eldri. Nú loksins ertu komin til þeirra. Þú ert manneskja sem ég svo sann- arlega lít upp til og það er margt sem ég mun taka með mér á lífsleið minni sem þú kenndir mér. Þýðir ekkert að leggjast í gólfið og gefast upp m.a. Þú ert hjá mér og ég mun halda áfram. Þakka Guði fyrir það sem ég á. Pabba, bræður, Lindu Sjöfn mína sem ég veit að þú varst stolt af. Á meðan þú hafðir heilsu þá varstu alltaf til í að koma og kíkja eitthvað út og lífsgleðin skein þrátt fyrir allt. Linda saknar þín mikið og ég er til staðar á löngum nóttum fyrir hana og hún fyrir mig. Ég man alltaf þegar ég sagði: „O, mamma, mig langar svo í lít- ið barn núna.“ þá sagðir þú: „Farðu þá að finna þér kall, stelpa,“ og við djók- uðum um þetta fram og til baka. Allt sem fór fram við eldhúsborðið á Foss- heiðinni er efni í góða gamanseríu. Og alltaf klukkan 16.35 var sjónvarpið upptekið, Leiðarljós í gangi. Sakna þín svo mikið, elsku mamma. Ég upplifði tímann sem þú varst svo veik en ég veit að þú ert komin á betri stað núna og líður betur. Þjáist ekki lengur. Sem veitir mér mikinn styrk í gegnum þessa erfiðu tíma. Söknuður í minn garð en léttir í þinn garð. Frelsið er yndislegt, elsku mamma mín. Laus, og niður með axlirnar, þú veist hvað ég á við. Kveð í bili. Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel. Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra. Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur. Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði, því að þú ofurselur helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina. Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleði- gnótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. (Sálmur.) Þín dóttir, Anna Lea Geirsdóttir. Kristín Anna Baldvinsdóttir  Fleiri minningargreinar um Krist- íu Önnu Baldvinsdóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR MARINÓSSONAR, Hrísmóum 1, Garðabæ. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Gísli Blöndal, Guðrún Guðmundsdóttir, Rúnar Helgi Vignisson, Christian Marinó, Arnar Már, Guðmundur Ragnar, Ísak Einar og Þorri Geir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, FRIÐRIKA MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR, Dalbæ, Dalvík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 1. september, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 11. september kl. 13.30. Anna Jóna Friberg, Elsa Björg Friðjónsdóttir, Bjarni Oddsson, Sveinbjörn Friðjónsson, Sigrún Árnadóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, GÍSLA ALBERTSSONAR húsasmíðameistara, Engihjalla 17, Kópavogi, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 14. ágúst. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Fríðuhúsi og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Vilborg Guðrún Víglundsdóttir, Arndís Gísladóttir, Ingvi Þór Ástþórsson, Viglundur Gíslason, Yuka Yamamoto, Albert Gíslason, Ólöf Erna Ólafsdóttir, Birgir Gíslason, Kristjana Schmidt, Guðrún Ósk Gísladóttir, Jóhann S. Ólafsson, Þórhildur Gísladóttir, Hallur Egilsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.