Morgunblaðið - 05.09.2009, Side 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6 1 4
2 3 5
5 2
4 8 6 7
1 8
3 8 1
7 5 4
1 5 7 8 3
8 7 1
2
2 6 7
5 7
1 7 9 8
9 3 8
3 8 5 6
1 6
5 1 3
4 7 8
8 5
2
8 1
4 3
5 6 2 4
4 3
7 9 4 2
6 8 9 1
7 5 3 8 2 1 9 6 4
8 9 6 3 5 4 1 2 7
2 4 1 7 9 6 3 8 5
5 6 7 9 4 3 8 1 2
4 3 9 1 8 2 5 7 6
1 2 8 6 7 5 4 3 9
3 7 2 5 1 9 6 4 8
9 1 4 2 6 8 7 5 3
6 8 5 4 3 7 2 9 1
5 9 6 1 2 4 8 3 7
1 4 7 8 9 3 6 5 2
8 3 2 7 6 5 1 9 4
9 5 3 2 4 8 7 6 1
2 8 1 6 5 7 9 4 3
6 7 4 3 1 9 2 8 5
4 1 5 9 8 2 3 7 6
3 6 8 5 7 1 4 2 9
7 2 9 4 3 6 5 1 8
1 5 4 7 2 9 6 3 8
2 8 7 6 4 3 9 1 5
6 3 9 1 5 8 2 4 7
7 4 1 5 8 6 3 9 2
3 9 8 2 1 4 5 7 6
5 6 2 9 3 7 1 8 4
8 1 6 4 9 5 7 2 3
9 7 3 8 6 2 4 5 1
4 2 5 3 7 1 8 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 5. september,
248. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Íslenskan er auðugt tungumál. Sembetur fer hafa Íslendingar farið
þá leið að búa til ný orð í stað þess að
taka upp orð úr öðrum tungumálum.
En stundum verða hins vegar til ný
orð að ástæðulausu. Eitt slíkt orð er
orðið „óásættanlegt“. Þetta langa og
óþjála orð hefur slegið í gegn á síð-
ustu árum. Segja má að það hafi
komist í tísku. Allir sem telja sig
menn með mönnum segja „óásætt-
anlegt“ í tíma og ótíma.
x x x
Það er orðið sjaldgæft að áhug-menn um fréttir komist í gegn-
um einn dag án þess að heyra ein-
hvern grípa til þessa orðs. Þingmenn
notuðu orðið „óásættanlegt“ mikið
þegar þeir greiddu atkvæði um Ice-
save-frumvarpið. Þingmenn þurfa að
vera hugmyndaríkir og þeir þurfa
líka að búa yfir auðugum orðaforða.
Þeir hljóta að geta notað fleiri orð til
að lýsa afstöðu sinni til mála.
Forystumenn samtaka á vinnu-
markaði nota líka mikið orðið „óá-
sættanlegt“ og líklega bera þeir
mesta ábyrgð á að festa þetta leið-
inlega orð í tungumálinu.
Hvað er að því að nota orð eins og
„slæmt“, „mjög slæmt“ „ekki hægt
að sætta sig við“, „ekki gott“, „fárán-
legt“, „mér er ofboðið“ eða „þetta eru
mistök“?
x x x
Einhver kynni að halda að þettaorð sé búið að vera til í tungu-
málinu í mörg ár, en það er ekki rétt.
Gagnasafn Morgunblaðsins nær aft-
ur til ársins 1986. Sé orðinu „óásætt-
anlegt“ slegið upp í gagnasafninu
kemur í ljós að það er fyrst notað í
frétt um sjávarútvegsmál 22. febrúar
1990. Í fréttinni kemur fyrir setn-
ingin: „Þetta telur LÍÚ óásættanlegt
og krefst þess að fá að tilnefna sína
tvo fulltrúa, eins og aðilar hafi þegar
samið um, sín í milli.“
Á síðasta ári birtist orðið „óásætt-
anlegt“ 507 sinnum á síðum Morg-
unblaðsins. Það þýðir að finna mátti
orðið næstum tvisvar sinnum í hverju
blaði. Tilraunir stjórnenda Morgun-
blaðsins til að ýta orðinu út úr
blaðinu hafa greinilega ekki tekist.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 keyri, 4 krossa
yfir, 7 tuskan, 8 snyfsi, 9
bekkur, 11 kvenmaður,
13 skemmtun, 14 valur,
15 raspur, 17 flík, 20
bókstafur, 22 sári, 23
ákveð, 24 blauðan, 25
heimskingi.
Lóðrétt | 1 vein, 2 starf-
ið, 3 beitu, 4 veiki, 5
brynna músum, 6 stétt,
10 skorturinn, 12 mátt-
ur, 13 tjara, 15 hreyfir
hægt, 16 óhult, 18
málms, 19 látni, 20 tölu-
stafur, 21 boli.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 vannærður, 8 pabbi, 9 signa, 10 tík, 11 kuðla,
13 afræð, 15 sveif, 18 gilda, 21 áll, 22 legil, 23 ærðir, 24
vanmáttur.
Lárétt: 2 aðbúð, 3 neita, 4 röska, 5 uggur, 6 spik, 7 garð,
12 lúi, 14 fái, 15 sálm, 16 eigra, 17 fálum, 18 glæst, 19
liðnu, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á atskákmóti „heims-
meistara“ sem lauk fyrir skömmu í Zü-
rich í Sviss. Fyrrverandi heimsmeist-
ari FIDE, Ruslan Ponomarjov (2727)
frá Úkraínu, hafði hvítt gegn fyrrver-
andi heimsmeistara unglinga, Werner
Hug (2453) frá Sviss. 29. Dg7+! og
svartur gafst upp enda fátt til varnar
eftir 29… Bxg7 30. hxg7+ Kg8 31.
gxf8=D+ Kxf8 32. Hg8+. Rússinn
Vladimir Kramnik varð efstur á
mótinu af átta keppendum en hann
fékk 5 vinninga af sjö mögulegum og
annar varð heimsmeistarinn Visw-
anathan Anand (2788) frá Indlandi.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sinfóníutónleikar.
Norður
♠765
♥G105
♦KD942
♣85
Vestur Austur
♠D8 ♠G1042
♥D742 ♥Á63
♦G6 ♦10853
♣DG974 ♣ÁK
Suður
♠ÁK93
♥K98
♦Á7
♣10632
Suður spilar 1G.
Í Sumarbrids á mánudagskvöldið
kom vestur óheppilega út með ♣D
gegn einu grandi og sú byrjun gaf tón-
inn fyrir komandi sinfóníu. Austur tók
báða laufslagina og skipti yfir í hjarta.
Sagnhafi lét lítið, vestur drap á ♥D,
spilaði aftur hjarta og austur hreinsaði
litinn með ás og meira.
Ekki er um annað að ræða en spila
tígli, en þegar gosinn kemur annar úr
vestrinu er rétt að meta stöðuna upp á
nýtt. Það er á móti líkum að vestur sé
með ♦G10x og því freistandi að reyna
innkast: spila ♠ÁK og spaða. Eins og
legan er lendir austur inni og verður að
spila upp í ♦D9 í lokin, en fegurðin
liggur í því að þessi leið skilar líka
vinningi í 3-3 spaðalegu. Ef vestur tek-
ur þriðja spaðaslaginn neyðist hann til
að gefa sagnhafa á ♣10 og um leið inn-
komu á fríspaðann.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er að mörgu að hyggja bæði
innan heimilis og utan. Veltu frekar
vandamálunum fyrir þér og flýttu þér
hægt í leit að lausn þeirra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú átt það til að eigna þér tilfinn-
ingar annarra. Fólk sem er ólíkt þér verð-
ur skyndilega aðlaðandi og eitthvað gæti
slegið þig út af laginu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú gengur í augun á öðrum í dag.
Haltu þig eins fjarri þeim og þú frekast
getur, því til þín verður leitað til að lægja
öldurnar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Teldu öðrum trú um að þú sért
sjálfum þér nógur í dag, þá hreppirðu
fyrsta vinning. Þú freistast til þess að
kaupa eitthvað án umhugsunar í dag.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er eitt og annað að gerast í
kringum þig og vertu því snöggur að taka
ákvarðanir. Vertu samvinnuþýður við
maka og nána vini.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það getur reynzt ánægjulegt að
hitta vinnufélagana annars staðar og utan
vinnutímans. Sinntu líka fólkinu í kring-
um þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu hendur standa fram úr ermum
og gakktu djarfur á vit framtíðarinnar.
Nú er kjörið tækifæri til þess að taka
höndum saman við aðra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur hugsanlega aukið
tekjur þínar með einhverjum hætti í dag.
Vertu viss um að gera greinarmun á sjálf-
um þér og því sem þú fæst við.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þið eruð hamhleypur til verka
og það kemur sér vel nú þegar taka þarf
til hendinni. Leyfðu þér umfram allt að
njóta þín.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þó að einhver hafi ekki komist
mjög langt áleiðis með verkefni eða í
þroska skaltu samt ekki telja eftir þér að
hrósa. Gakktu ótrauður til verks og
mundu að hálfnað er verk þá hafið er.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ástvinir þínir eru þurftafrekir
en mundu að sjaldan veldur einn þá tveir
deila. En sérhlífni er líka slæm svo
reyndu að þræða hinn gullna meðalveg.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú veltir fyrir þér hvers vegna
enginn hefur stokkið á tækifærið til að
sinna viðskiptum. Nú er rétti tíminn til að
ganga að samningaborði.
Stjörnuspá
5. september 1942
Þýsk sprengjuflugvél af gerð-
inni Focke Wulf gerði loftárás
á Seyðisfjörð. Sprengja lenti
skammt frá fjórum drengjum
sem voru að leik og slösuðust
þeir allir, einn þó mest. Þeir
voru sjö og átta ára.
5. september 1968
Togarinn Surprise frá Hafn-
arfirði strandaði á Landeyja-
sandi. Skipverjunum 28 var
bjargað í land en ekki tókst að
ná skipinu á flot, þrátt fyrir
margra mánaða tilraunir.
5. september 1972
Varðskipið Ægir beitti tog-
víraklippum á breskan land-
helgisbrjót í fyrsta sinn. Þetta
gerðist innan 50 sjómílna
markanna norður af Horni,
nokkrum dögum eftir út-
færslu landhelginnar. Á rúmu
ári tókst í 82 skipti að klippa á
víra togara.
5. september 1987
Háskólinn á Akureyri var sett-
ur í fyrsta sinn við hátíðlega
athöfn í Akureyrarkirkju.
Kennsla hófst tveimur dögum
síðar, í iðnrekstrarfræði og
hjúkrunarfræði. Fyrsta skóla-
árið voru 47 nemendur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Guðrún Karen Valdimarsdóttir
og Embla Árnadóttir héldu margar
tombólur í sumar til styrktar Rauða
krossinum. Samtals söfnuðu þær
4.507 krónum.
Hlutavelta
„ÉG ætla að halda stóra veislu í Þjóðleikhúskjall-
aranum,“ segir Ámundi Sigurðsson, grafískur
hönnuður, spurður hvernig hann ætli að fagna
fimmtugsafmæli sínu. „Ég held upp á afmælið á
tíu ára fresti,“ segir hann og rifjar upp að þegar
hann varð fertugur hélt hann upp á afmælið ásamt
tveimur frændum sínum á Hótel Borg og þrítugs-
afmælið hélt hann á Óðali ásamt tveimur vinum
sínum. Nú heldur hann hins vegar veislu einn.
Þegar blaðamaður ræddi við Ámunda í gær
sagðist hann vera veikur en hafði fengið þá hug-
mynd að ef hann kæmist ekki í veisluna í kvöld
myndi hann fá einhvern leikara til að mæta í hlutverki Ámunda. „Ég
bar þetta undir fjölskyldu mína og það komu ýmsar skrýtnar uppá-
stungur,“ segir hann. Hann segir að meðal þeirra sem voru nefndir
hafi verið Laddi. „Ég vil ekki nefna hina, ég var alveg miður mín að
fjölskylda mín skyldi hugsa svona um mig,“ segir Ámundi og hlær.
Ámundi á fjögur börn á aldrinum 15-30 ára og segist vel geta hugs-
að sér að eiga fleiri. „Börn eru magnað fyrirbæri, ég er að uppgötva
það betur og betur,“ segir hann og bætir við að hann vilji gjarnan fara
að fá barnabörn. „Ég er sjúkur í að fá barnabörn!“ ylfa@mbl.is
Ámundi Sigurðsson grafískur hönnuður 50 ára
Kemst vonandi í veisluna
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is