Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 42
42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið/Ómar Tónlistarhúsið Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan verða bæði til heimilis í Tónlistarhúsinu við höfnina. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÍSLENSKA óperan mun eignast heimili í tónlistarhúsinu við höfnina. Þetta staðfesti Stefán Baldursson í samtali við Morgunblaðið í gær. „Eigendur hússins óskuðu eftir því í vor að við skoðuðum þann möguleika að flytja í húsið, og í ljósi kringumstæðna vorum við mjög já- kvæð, þótt húsið væri ekki beinlínis hannað fyrir sviðslistir. Stjórn Ís- lensku óperunnar samþykkti í sum- ar að ganga að þessu, og nú í haust er unnið að samningi við Austur- höfn.“ Að undanförnu hafa Stefán og stjórn Óperunnar unnið að því með Stefáni Hermannssyni fram- kvæmdastjóra Austurhafnar og arkitekt tónlistarhússins að skoða vistarverur tónlistarhússins með það í huga var heppilegast væri að staðsetja starfsemi Óperunnar. Sinfó og Óperan deila salnum Í stóra salnum er hljómsveitar- gryfja, sem þörf er á við óperusýn- ingar og munu því hljómsveitin og Óperan deila dögum í salnum, en að sögn Stefáns, kemur líka til greina að setja upp sýningar í öðrum sölum hússins. „Við höfum verið hógvær í okk- ar kröfum, en það eru þó lág- markskröfur sem þarf að upp- fylla. Sem betur fer var gert ráð fyrir hljómsveitargryfjunni, en það þarf einhvern veginn að fjölga inngöngum á sviðið, því það er æskilegt fyrir sýningar að hafa fleiri innkomumöguleika en gert var ráð fyrir, fyrir hljóm- sveitina. Í okkar þröngu og erfiðu að- stæðum í núverandi húsnæði er þetta ekkert nema skref framá- við; við viljum gera það besta úr þessu og við erum mjög ánægð,“ segir Stefán Baldursson. Íslenska óperan mun eignast heimili í tónlistarhúsinu Þetta er skref framávið MIREYA Samper opnar myndlistasýninguna Vættir í DaLí Gallery á Akureyri í dag kl.14. Hún sýnir skúlp- túra og myndverk unnin með blandaðri tækni og eru öll verkin unnin fyrir sýn- inguna. Mireya fjallar um íslenskar vættir og verur, en með þeim leynist einn japanskur shaman. Mireya heldur til Abiko í Japan með vættir sínar í október til sýningar. Hún tók líka þeirri áskor- un að vinna inn í litla rýmið Kom inn á vinnu- stofu DaLí sem er sagt vera eitt minnsta sýn- ingarrými landsins. Allir eru velkomnir. Myndlist Vættir með jap- önskum shaman Mireya Samper KVIKMYNDASAFN Ís- lands sýnir myndina Stra- tegia del ragno eða Her- kænska köngulóarinnar í Bæjarbíói í Hafnarfirði kl. 16 í dag. Myndin er til- brigði við smásögu argent- íska rithöfundarins Jorge Luis Borges. Þar segir frá eftirgrennslan ungs manns um afdrif föður síns í valda- tíð fasista á Ítalíu, en fað- irinn var andstæðingur Mussolinis. Höfundur myndarinnar er Bernardo Bertolucci en töku- maður var Vittorio Storaro sem kynntur var sérstaklega á afmæli safnsins í fyrra. Kvikmyndir Borges og Berto- lucci í Bæjarbíói Bernardo Bertolucci Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KOLBEINN Bjarnason flautuleik- ari og japanska tónskáldið Toshio Hosokawa hafa gert samning við Naxos-útgáfuna um að gefa út öll flautuverk tónskáldsins í flutningi Kolbeins. Naxos er stærsta plötuút- gáfufyrirtækið í klassískri tónlist í dag. „Ég tók upp sjö verk eftir Hoso- kawa frá júní til desember í fyrra, þar af tvo flautukonserta, annan sem ég spila með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands undir stjórn Hoso- kawa og hinn með Caput. Hoso- kawa var þá með það í huga að fara með upptökurnar til Naxos.“ Það var ekki búið að fullklippa upptökurnar þegar Kolbeinn sendi Hosokawa afrit og hann var svo ánægður að hann fór strax á fund Naxos-manna sem samþykktu á staðnum að gefa þær út. „Þetta er of mikið fyrir einn disk, þannig að sennilega verður þetta gefið út á tveimur diskum og Hosokawa semur þá ný verk fyrir mig til að bæta við á seinni disk- inn.“ Þegar Kolbeinn er spurður um hvað útgáfusamningurinn þýði fyr- ir hann og hvað hann færi honum kveðst hann ekki vilja hugsa dæm- ið þannig, heldur snúa því við. „Ég vil spyrja hvers vegna ég geri þetta og hvað það þýði fyrir aðra. Þetta þýðir það að það verða fleiri en ella sem fá tækifæri til að njóta þess- arar tónlistar. Ég geri þetta til þess að aðrir fái að njóta. Þess vegna gleðst ég yfir því að tónlist Hoso- kawa eigi eftir að fara svo víða og svo ódýrt því Naxos-útgáfan selur sína diska ódýrar en önnur útgáfu- fyrirtæki. Þetta er tónlist sem mér finnst eiga gríðarmikið erindi.“ Kolbeinn segir að fjölmargir hafi hljóðritað og gefið út verk Hoso- kawa. Hvað er það þá sem gerir hans útgáfu sérstaka? „Mín hugsun var að öll flautuverkin hans væru aðgengileg á sama stað því í öðrum útgáfum hafa þau verið í bland við önnur verk og önnur hljóðfæri. Þá hafa aðrar útgáfur á þessum verkum ekki verið unnar í jafn nánu samstarfi við tónskáldið. Þetta hefur verið okkar samvinnu- verkefni gegnum tíðina.“ Auk Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands og Caput leikur Valgerður Andrésdóttir píanóleikari með Kol- beini. Til þess að aðrir fái að njóta Kolbeinn Bjarnason gefur út hjá Naxos Kolbeinn Spilar japönsk verk. LÍFRÓÐUR? málþing um hafið og sjálfsmynd þjóð- arinnar verður haldið í dag frá kl. 13-15.30 í Hafn- arborg, í tengslum við sam- nefnda sýningu í safninu. Það er Þjóðfræðistofa sem stendur fyrir málþinginu og efni þess er hafið í orðræðu og sjálfsmynd Íslendinga. Þar munu fræði- og lista- menn koma saman og ræða inntak sýningarinnar ásamt aðstandendum hennar. Þá verður velt upp spurningum um skynjun okkar á ytri veruleika hafsins sem og merkingu þess í huga fólks og menningarlífi. Hugvísindi Hafið og sjálfs- mynd þjóðarinnar Silfursjór eftir Helga Þorgils SLÁTUR, Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverf- is Reykjavík, lýkur tón- leikaferð sinni um Norð- urlöndin með tónleikum í Norræna húsinu kl. 20.30. Flutt verða verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Guðmund Stein Gunnarsson, Hlyn A. Vilm- arsson, Inga Garðar Er- lendsson, Jesper Pedersen, Pál Ivan Pálsson og Þráin Hjálmarsson. Með Sláturfélögum leikur Frank Aarnink á slagverk. Verkin á tón- leikunum voru sérstaklega samin fyrir þessa ferð samtakanna. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Slátur í Norræna húsinu í kvöld Áki Ásgeirsson Myndlist í skini Ljósanætur Myndlist Ljósanótt stendur nú yfir í Reykjanesbæ með margháttaðri dagskrá. Meðal myndlistarsýninga sem opnaðar voru í tilefni Ljósanætur eru sýning Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur í Listasafni Reykjanesbæjar og sýning Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar í Gallerí Suðsuðvestur. Inga Þórey kallar sýningu sína Flökkuæðar - Loftfar / Vessels, þar sem hún skoðar farangur og farartæki í þrí- víðum málverkum, máluðum skúlptúrum og hljóð- og ljósaverki sem stillt er upp þannig að úr verður nokkurs konar umferðarmiðstöð. Libia og Ólafur sýna myndbandsverkið Caregivers, sem tekið er í Trentino á Ítalíu og dregur upp mynd af tveimur konum, innflytjendum frá Rúmeníu og Úkraínu, sem fluttust til Ítalíu til að vinna við umönnun aldraðra í heimahúsum. Tónlistin í verkinu, sem samin er við blaðagrein er fjallar um sama viðfangsefni, er samin af Karólínu Eiríksdóttur og flutt af Ingibjörgu Guðjónsdóttur sópransöngkonu, Matthíasi Nardeau óbóleikara og Kvennakór Garðabæjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.