Morgunblaðið - 05.09.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.09.2009, Qupperneq 44
44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009  Stikla úr heimildarmynd Helga Felixsonar, Guð blessi Ísland, vakti gríðarlega athygli þegar hún var frumsýnd á mbl.is á fimmtudag- inn. Svo mikill var áhuginn að rétt tæplega 30.000 manns horfðu á stikluna og var mikið bloggað í kjölfarið. Einn bloggaranna sagðist hreinlega ekki hafa ráðið við sig, og farið að gráta við það eitt að horfa á stikluna. Fyrst auglýsing fyrir myndina vekur slík viðbrögð, hvað skyldi myndin sjálf þá gera? Tárfelldi yfir stiklu úr Guð blessi Ísland Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ er langt stórra högga á milli í tilfelli Orgelkv- artettsins Apparats. Þessi stærsti orgelkvartett heims lék síðast fyrir Frónverja á Ljósanótt 2006 og víst að margir eru orðnir langeyrðir eftir hrynríkri dá- semdinni. Því skal það tilkynnt hér að kvartettinn mun halda hljómleika á næstunni, nánar tiltekið á tónlistarhátíðinni Réttum, sem fram fer 23.-26. september. Úlfur Eldjárn, einn liðsmanna, stað- festi þessar fréttir með mikilli ánægju. Hann sagði að fyrir tveimur árum hefði kvartettinn hætt spilamennsku til að geta einbeitt sér að næstu plötu en sú fyrsta – og eina til þessa – kom út 2002. „Við erum búnir að lofa nýrri plötu á hverju einasta ári síðan sú fyrsta kom út. Á endanum hættum við því svo. En ... núna er- um við í ALVÖRUNNI farnir að sjá fyrir endann á þessu. Það má eiginlega segja að við séum að trekkja upp vél- ina með þessum tónleikum. Það verður því eitthvað um dýrðir, ætli við reynum ekki að gera við sápukúlu- vélina af þessu tilefni? Er ekki síðan málið að taka gigg í Offiseraklúbbnum? Við höfum a.m.k. mikla unun af því að spila í Keflavík.“ Úlfur segir þá félaga vera orðna langþreytta á tafsi og hangsi, það sé komin smá Spinal Tap fíl- ingur í sveitina – sem sé reyndar svolítið kúl. „Við höfum allir verið uppteknir, hver í sínu horni. En erum nú farnir að hittast aftur yfir Bragakaffi og lóðboltum. Það er allt að hendast í gang, sei sei já...“ Orgelkvartettinn Apparat snýr aftur!  Það var mikið fjör í Íslensku óp- erunni á fimmtudagskvöldið þegar einleikurinn Hellisbúinn var frum- sýndur. Þar kitlaði Jóhannes Haukur Jóhannesson hlátur- taugar prúðbúinna leikhúsgesta svo um munaði, og var stemningin slík að leikarinn sjálfur sprakk meira að segja úr hlátri á einum stað í verkinu. Ljóst er að hin nýja uppsetning á þessu gríðarlega vinsæla verki hef- ur heppnast mjög vel, jafnvel enn betur en uppsetning Bjarna Hauks Þórssonar fyrir áratug. Hvort 80.000 Íslendingar sjái verkið nú líkt og þá getur hins vegar tíminn einn leitt í ljós. Jóhannes Haukur sprakk úr hlátri á sviði  Í vikunni birtist spjall við tónlist- armanninn Helga Val þar sem hann var kallaður fyrsti „trapparinn“, vegna samsuðu hans á rappi og trú- badúrstónlist. Nú hefur Valgeir nokkur Gestsson, gítarleikari og söngvari hinnar stórgóðu sveitar Jan Mayen, stigið fram og leiðrétt þessa fullyrðingu. Heldur hann því fram fullum fetum að Helgi Valur eigi ekki tilkall til þessa titils, þvert á móti séu hann og samstarfsmaður hans og vinur, hinn geðþekki út- varpsmaður Ágúst Bogason, fyrstu „trapparar“ landsins en þeir stofnuðu sveitina Da Trappaz fyrir heilum ellefu árum. Tóndæmi hafa reyndar ekki borist hingað inn á skrifstofuna en það væri óneit- anlega forvitnilegt að fá að heyra dimman og flauelsmjúkan barítón Ágústs í þessu samhengi … Nei, Ágúst Bogason var fyrsti „trapparinn“! Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞESSI mynd kemur í beinu fram- haldi af samstarfinu við Sveita- brúðkaup, Valdís virðist ekki hafa fengið ógeð á okkur þegar við vor- um að gera hana,“ segir Gísli Örn Garðarsson, leikari og forsprakki Vesturports, um kvikmyndina Kóngaveg 7 sem Valdís Ósk- arsdóttir er með í bígerð í sam- starfi við leikhópinn. Fjölmargir leikarar Vesturports fóru með hlut- verk í síðustu mynd Valdísar, Sveitabrúðkaupi, en að þessu sinni verður leikhópurinn einnig í hlut- verki meðframleiðanda. „Valdís skrifar handritið sjálf en við munum koma að því eins og alltaf, með okkar athugasemdir og skoðanir. Þannig að við verðum mjög virk í samstarfinu, en hún tekur auðvitað bara það sem henni finnst gott og hitt ekki. En grunn- urinn að handritinu er alfarið henn- ar að þessu sinni,“ segir Gísli en í tilfelli Sveitabrúðkaups kom leik- hópurinn allur að gerð handrits, sem var að hluta til spunnið. Í hjólhýsahverfi Aðspurður segir Gísli að Kónga- vegur 7 sé einhvers staðar mitt á milli þess að vera gamanmynd og drama. „Myndin gerist í ótrúlega skemmtilegu umhverfi, í hjólhýsa- hverfi á Íslandi. Það er mjög áhugaverður heimur sem býður upp á margt enda er þetta heilt samfélag á einu litlu svæði, öll flór- an af fólki í þrjátíu hjólhýsum,“ segir leikarinn sem fer með aðal- hlutverkið – hlutverk manns sem snýr aftur heim til Íslands eftir þriggja ára fjarveru erlendis og er með hin ýmsu vandamál í fartesk- inu. „Hann og vinur hans eru ut- anaðkomandi og eru þeir einu sem búa ekki þarna, og maður upplifir söguna svolítið í gegnum þá. En svo eru allskonar persónur í hjól- hýsahverfinu, persónur sem eru að takast á við hin ýmsu vandamál.“ Gísli segir að verkefnið leggist afar vel í sig og leikhópinn allan, enda hafi þau góða reynslu af sam- starfinu við Valdísi. „Það er ótrúlega gaman og gef- andi að vinna með Valdísi, enda draumaumhverfi allra leikara að fá að vera með í sköpun verksins frá upphafi og hafa áhrif á það sem gerist,“ útskýrir hann. Tvær myndir í þróun Vesturport hefur hingað til verið hvað þekktast fyrir uppsetningu á verkum fyrir leikhús, og nægir að nefna Hamskiptin, Woyzeck og Rómeó og Júlíu í því sambandi. Hópurinn hefur þó fengist við kvik- myndagerð áður, en hann kom að framleiðslu Barna og Foreldra, auk Brims sem væntanleg er í kvik- myndahús á næstunni. „Við myndum örugglega gera fleiri myndir ef þetta væri ekki svona þungt í vöfum. Það tekur alltaf langan tíma að þróa og vinna handrit, og fjármagna,“ segir Gísli en bætir því þó við að hópurinn sé með tvær myndir í þróun. „Sjón er að skrifa eina mynd fyr- ir okkur sem ber vinnuheitið Klara miðill og svo er Björn Hlynur að skrifa handrit að mynd sem heitir Bæjarins verstu og byggist á sögu útigangsmanns í Reykjavík.“ Tökur á Kóngavegi 7 hefjast um miðjan október og stefnt er að frumsýningu um páskana á næsta ári. Vesturport með Valdísi Morgunblaðið/Kristinn Gísli, Ingvar og Valdís „Myndin gerist í ótrúlega skemmtilegu umhverfi, í hjólhýsahverfi á Íslandi,“ segir Gísli meðal annars um kvikmyndina Kóngaveg 7.  Meðlimir leikhópsins fara með stærstu hlutverkin í kvikmyndinni Kóngavegur 7  Á meðal þeirra eru Gísli Örn Garðarsson og Ingvar E. Sigurðsson Það eru engar smá kanónur sem fara með aðalhlutverkin í Kóngavegi 7, en þar á meðal eru Nína Dögg Fil- ippusdóttir, Gísli Örn Garð- arsson, Björn Hlynur Har- aldsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Ingvar E. Sigurðsson, Rúnar Freyr Gíslason, Hanna María Karlsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Sig- urður Sigurjónsson, Margrét Vil- hjálmsdóttir, Ólafur Egilsson og Elva Ósk Ólafsdóttir. Þá þarf vart að kynna leik- stjórann, Val- dísi Ósk- arsdóttur, sem hlaut BAFTA- verðlaunin fyr- ir klippingu við kvikmynd- ina Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Kóngavegur 7 er hennar önnur kvikmynd í stóli leikstjóra, en Sveitabrúðkaup var sú fyrsta. Framleiðendur myndarinnar eru þeir Árni Filippusson, Davíð Óskar Ólafsson og Hreinn Beck. Engir aukvisar í aðalhlutverkum Björn Hlynur Ólafur Darri Nína Dögg Ómennskir Liðsmenn Apparatsins stilla sér upp. Ballett Byrjendur (yngst 3ja ára) og framhaldsnemendur. Innritun í síma 567 8965 Ballettskóli Sigríðar Ármann Reykjavík, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.