Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009
Það er ekki oft sem boðið erupp á dansgöngu í Reykja-vík. Ein slík leggur þó upp
frá veitingahúsinu Karamba í dag
kl. 14 undir leiðsögn þess er nefn-
ir sig Vaðal, samkvæmt heima-
síðu hátíðarinnar. Þar ávarpar
hann þá sem hyggjast ganga með
honum með ljóði og lofar að segja
sögu.
Ef marka má viðtökurnar áfyrsta kvöldi danshátíðar-
innar sl. fimmtudag, er jafnvíst
að margir vilji láta segja sér slíka
sögu. Hafnarfjarðarleikhúsið var
troðfullt og þau þrjú dansverk
sem voru frumflutt fengu hlýjar
viðtökur. Kannski ekkert und-
arlegt, því um langt skeið hefur
dans átt vaxandi fylgi að fagna á
Íslandi – varla til það stúlkubarn
sem ekki fer í ballett einhvern
tíma á grunnskólaaldri.
Danslist hefur að sama skapi
þróast mikið hér á landi undan-
farin ár, eins og ferskleikinn í
verkunum sem sýnd voru í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu bar gott vitni
um. Tvö verkanna báru augljós
merki þess niðurbrots á mærum á
milli listgreina sem einkenna
samtímann – voru einskonar
hreyfilist sem sjónrænt séð átti
ýmislegt sameiginlegt bæði með
myndlistargjörningum og leik-
húsi.
Sá mikli fjöldi sem lagt hefurstund á dans undanfarin ár
hefur vitaskuld ekki allur skilað
sér inn í listgreinina sem atvinnu-
fólk. En á örfáum árum hafa samt
sem áður snúið heim úr námi er-
lendis fjölmargir nýir danshöf-
undar sem blása nýju lífi í þá
stuttu hefð sem er fyrir listdansi
á Íslandi, með eftirtektarverðum
hætti. Sömuleiðis er orðinn til
hópur dansunnenda meðal áhorf-
enda; í Hafnarfjarðarleikhúsinu
var yfirgnæfandi meirihluti
áhorfenda ungur að árum – í
raun óskahópur þeirra sem reka
sviðslistahús, þar sem áhorfendur
eru oft í eldra og ráðsettara lagi.
Það sama má í raun segja um
áhorfendur leiklistarhátíðanna
tveggja sem staðið hafa undan-
farið; Art Fart og LOKAL; áhorf-
endur þar voru að stórum hluta
ungt fólk. Menningarneysla þess
aldurshóps virðist vera að aukast
– í það minnsta þegar þessum
hópi stendur eitthvað til boða sem
hann hefur efni á. Aðstandendur
danshátíðarinnar bjóða gestum
sjálfdæmi um aðgangseyri sem
vissulega er til fyrirmyndar í
kreppunni. Vonandi verður það
þó ekki til þess að ryðja þeirri til-
hneigingu braut sem allof oft örl-
ar á – að ætlast til þess að lista-
menn gefi vinnuna sína. Þeir
þurfa að eiga til hnífs og skeiðar,
jafnvel þótt það sé gaman í
vinnunni! fbi@mbl.is
Listdans – ferskur og framsækinn heimur
»En á örfáum árumhafa samt sem áður
snúið heim úr námi er-
lendis fjölmargir nýir
danshöfundar sem blása
nýju lífi í þá stuttu hefð
sem er fyrir listdansi á
Íslandi, með eftirtekt-
arverðum hætti.
Ljósmynd/Bart Griete
Shake me Það var stappað og klappað og staðið upp fyrir Íslensku hreyfi-
þróunarsamsteypunni í troðfullu Hafnarfjarðarleikhúsinu í fyrrakvöld.
AF LISTUM
Fríða Björk Ingvarsdóttir
Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára
Magnað og blóðugt
framhald af Halloween
sem Rob Zombie
færði okkur
fyrir tveimur árum.
Hinn stórhættulegi og snargeðveiki
raðmorðingi Michael Myers heldur
áfram að myrða fólk á hrottalegan hátt! Bráðskemmtileg heimildarmynd um mestu goðsögn
tískuheimsins, Önnu Wintour, fyrirmynd persónu
Meryl Streep í myndinni The Devil Wears Prada.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr. TILBOÐSVERÐ550 KR Á SÝNINGAR MERKTAR RAUÐU
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 11 B.i. 16 ára
The Taking of Pelham 123 kl. 6 B.i. 16 ára
Time Travelers Wife kl. 8 B.i. 12 ára
The Goods kl. 10 B.i. 14 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3 (300 kr.) LEYFÐ
Karlar sem hata konur kl. 3 (600 kr.) B.i. 16 ára
September issue kl. 6 - 8- 10 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára
The Time Traveler´s Wife kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
Stelpurnar okkar kl. 4 (550 kr.) LEYFÐ
Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára
Night at the Museum kl. 3:30 (300 kr.) LEYFÐ
Gullbrá kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 4 (300 kr.) LEYFÐ
G.I. Joe kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára
The Goods, live hard.... kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 750 kr B.i.14 ára Night at the Museum kl. 4 300 kr LEYFÐ
Taking of Pelham 123 kl. 5:30 - 8 - 10:30 750 kr B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal) kl. 3:40 300 kr LEYFÐ