Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 14.10.2009, Qupperneq 5
Das Auto. Metanbíllinn Passat EcoFuel nú loksins fáanlegur Passat EcoFuel® kostar aðeins frá 4.230.000 kr. Settu saman þinn drauma Passat og byrjaðu að spara Flestar útfærslur af Volkswagen Passat eru nú fáanlegar í metanútgáfu. Passat EcoFuel, vinsælasti metanbíllinn í Svíþjóð, er alveg eins og venjulegur Passat nema enn ódýrari í rekstri, er undanþeginn vörugjöldum og kemst tæpa 900 km án þess að þú þurfir að fylla á. Passat er með tvo eldsneytistanka, metan og bensín þannig að þú kemst hvert á land sem er. Komdu og prófaðu kraftmikinn Passat og fleiri gerðir metanbíla frá Volkswagen á Metandögum 12.-16. október. METAN þýðir ókeypis bílastæði í miðbænum Íslenskt METAN eykur ekki hnattræna hlýnun Miklu ódýrari og lifir á lofti Fréttir 5INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2009 TVEIR litháískir karlmenn, sem sættu gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa svikið út vörur með föls- uðum greiðslukortum, héldu afbrot- um áfram um leið og þeim var sleppt út. Þeir sæta farbanni á meðan mál þeirra fara sína leið í réttarkerfinu. Mennirnir voru handteknir á Suð- urlandi seint í síðasta mánuði. Þá hafði þeim tekist að svíkja út vörur fyrir fleiri hundruð þúsund krónur með klónuðum og fölsuðum greiðslu- kortum. Mennirnir voru handteknir eftir skoðun upptaka úr eftirlitsmynda- vélum og úrskurðaðir í gæsluvarð- hald í vikutíma en ekki þótti ástæða til að halda þeim lengur. Um var að ræða útlensk korta- númer sem m.a. voru notuð til kaupa á tóbaki, áfengi og svo innistæðu- kortum á eldsneyti. Lögregla höfuðborgarsvæðisins staðfestir að önnur mál eru í rann- sókn þar sem þeir koma við sögu og voru framin í byrjun mánaðar. Ekki lát á afbrotum í farbanni Í HNOTSKURN »Mennirnir fóru um Vík,Hvolsvöll, Hellu og ná- grenni. Þeir notuðu kortin að- allega á bensínstöðvum. Þar keyptu þeir bensínkort. »Meðal þess sem er í rann-sókn eru tengsl mannanna við skipulagða glæpahópa. ÁGÆTUR gangur er í viðgerðum á Höfða, móttöku- húsi Reykjavíkurborgar, sem skemmdist í eldi á dög- unum. Sérpantaður viður og flísar á þak koma frá Nor- egi og innanhúss gengur vel að þurrka veggi og gólf í NA-hluta hússins en skemmdir voru einvörðungu þar. Reiknað er með að viðgerðum ljúki fyrir áramót. Morgunblaðið/Árni Sæberg VIÐGERÐIR Í HÖFÐA GANGA VEL Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í átján mán- aða fangelsi fyrir samræði við sof- andi konu í júlí á síðasta ári. Um var að ræða þáverandi kærustu vinar mannsins. Hann var dæmdur til að greiða henni 600 þúsund krónur í miskabætur. Engin vitni voru að atburðinum og hélt maðurinn því fram að sam- farirnar hefðu verið með vilja beggja. Raunar neitaði hann fyrir það við fyrstu yfirheyrslu að hafa sofið hjá konunni, en breytti síðar framburði sínum. Þorði ekki að opna augun Konan skýrði svo frá að hún hefði verið við drykkju frá klukkan átta að kvöldi og fram undir morg- un í miðborginni. Hún var ekki með lykla að heimili sínu né fjár- muni til að greiða fyrir leigubíl en taldi sér óhætt að gista hjá mann- inum. Hún hafi sofnað í rúmi mannsins – í öllum fötunum – en vaknað við að hann hafði við hana samfarir. Hún hafi enga björg sér getað veitt og ekki þorað að opna augun heldur sofnað aftur. Fjölskipaður héraðsdómur taldi framburð konunnar staðfastan á meðan maðurinn hefði ekki verið eins trúverðugur og óskýr um margt. Honum hefði átt að vera það ljóst að konan var sofandi þeg- ar hann hóf samfarirnar. „Á sama hátt hlaut honum og að vera ljóst að þótt hún hafi vaknað litla stund og ekki reynt að losna úr samför- unum gat hann ekki litið á það sem samþykki hennar eins og ástatt var fyrir henni.“ Að því athuguðu taldi dómurinn rétt að sakfella manninn fyrir að hafa haft samræði við kon- una sem gat ekki spornað við sök- um ölvunar og svefndrunga. Hafði samræði við sofandi konu Ekki samþykki þó konan hafi vaknað stutta stund og ekki reynt að losna Maðurinn sendi konunni skilboð í gegnum samskiptavef daginn eftir atvikið. Þau eru þessi: „Sæl, fórst þú eitthvað snemma í gær? ÞETTA er bara á milli okkar er þaggi?“ Þá kvað sálfræðingur konuna ekki bera merki um að hún hefði haldið fram hjá og séð eftir því, heldur greinileg merki þess að sam- ræðið hefði verið gegn vilja hennar. Morgunblaðið/Þorkell Bara á milli okkar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.